Morgunblaðið - 01.02.2019, Side 36

Morgunblaðið - 01.02.2019, Side 36
Menntaskóli í tónlist og leikfélagið Hugleikur sýna á laugardag, sunnu- dag og mánudag í Iðnó tvær nýjar íslenskar óperur eftir Þórunni Guð- mundsdóttur, byggðar á þekktum ævintýrum, Þyrnirós og Gilitrutt. Þórunn leikstýrir verkunum sjálf, Kári Þormar stjórnar átta manna kammerhljómsveit og á sviðinu verða sex einsöngvarar, þrettán manna kór og ein gimbur. Frumflytja tvær óperur Þórunnar í Iðnó Sverrir Ingi Ingason, landsliðs- maður í knattspyrnu, samdi í gær við gríska liðið PAOK frá Thessalon- iki sem kaupir hann af Rostov í Rússlandi. Sverrir verður fjórtándi íslenski knattspyrnumaðurinn til að spila sem atvinnumaður í Grikk- landi. Þar af er hann sá sjötti sem á rætur að rekja til Breiðabliks í Kópavoginum. »2-3 Fjórtándi íslenski leik- maðurinn í Grikklandi ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar stendur nú yfir. Meðal viðburða á hátíðinni eru tónleikar Caput- hópsins í Kaldalóni í Hörpu og hefj- ast þeir klukkan 20. Frumflutt verða hér á landi verk eftir fjögur íslensk tónskáld, Rounds eftir Hauk Tóm- asson, Rætur/Roots eftir Gunnar A. Krist- insson, Lucidity eft- ir Pál Ragnar Páls- son og ? (Interrob- ang) eftir Huga Guðmundsson. Fimm tónleikar til verða í mið- borginni á ólík- um tímum, í Hörpu, Mengi, Iðnó, Gamla bíói og Húrra. Caput frumflytur íslensk verk á Myrkum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Það er óhætt að segja að hand- verksfólk í Mosfellsbæ láti hendur standa fram úr ermum, en 31 sjálf- boðaliði Rauða krossins í Mos- fellsbæ saumar, prjónar og heklar fatnað milli eitt og fjögur hvern ein- asta miðvikudag í þágu alþjóðlegs hjálparstarfs og fyrir nærsam- félagið. „Þetta er allt mjög fært handavinnufólk og fatnaðurinn sem verður til fer á staði sem þurfa á honum að halda,“ segir Margrét Lúthersdóttir, verkefnastjóri Mos- fellsbæjardeildar. Hún segir að það eina sem þurfi til þess að taka þátt í starfinu sé að mæta og vísar til þess að á vef Rauða krossins sé hægt að finna hvaða deildir hans taki þátt í verk- efninu. „Hér er alltaf heitt á könn- unni, bakkelsi og skemmtilegt spjall,“ bætir hún við. Um er að ræða mikilvægan liðs- auka í starfi Rauða krossins, að sögn Margrétar. „Þetta eru þrír klukkutímar á viku, tólf tímar á mánuði, og þær taka sér bara frí yf- ir hásumarið, þannig að þetta eru margar vinnustundir. Svo eru marg- ir sem prjóna og hekla líka heima- við.“ Gæðakröfur Spurð hvort einhverjar gæðakröf- ur séu gerðar til þeirra sem hyggj- ast mæta segir hún svo vera, „en þær eru svo færar, þannig að ef ein- hver þarf hjálp þá er það ekkert mál. Þannig að það má alveg koma þótt maður sé ekki hundrað prósent fær“. Það er þá ekki fyrir nýgræðinga eins og mig að mæta og gera tilraun til þess að prjóna stakan sokk? „Jú, ég ætla að halda því fram að þú sért alveg velkominn. Þetta eru svo frábærir sjálfboðaliðar að þær taka öllum liðsauka fagnandi og kenna þá réttu handtökin,“ segir Margrét og hlær. „En þetta tiltekna verkefni er hugsað fyrir aðeins lengra komna þótt allir séu vel- komnir,“ bætir hún við. Verkefnið hefur staðið í um níu ár og er starfrækt á öllu höfuðborgar- svæðinu og víða á landsbyggðinni. Þá eru um 400 sjálfboðaliðar á land- inu öllu sem taka þátt í starfinu og eru sendir nokkrir gámar af fatnaði úr landi á ári hverju. Skiptifatamarkaður Klukkan fjögur á miðvikudögum hefst síðan skiptimarkaður þar sem hægt er að koma með barnaföt sem ekki eru lengur í notkun og taka önnur í staðinn að kostnaðarlausu. „Þetta er ofboðslega þarft og gott umhverfisverkefni og frábært ef maður er að reyta á sér hárið yfir því hvað börnin eru fljót að vaxa upp úr fötunum, þá er ekkert mál að koma með fötin sem eru of lítil og fá föt sem passa fyrir engar krónur,“ segir Margrét. Morgunblaðið/Eggert Hannyrðir Það er ávallt góð stemning þegar hist er til þess að prjóna hjá Rauða krossinum í Mosfellsbæ. Prjóna, hekla og sauma fyrir Rauða krossinn  Skiptifatamarkaðurinn þarft umhverfisverkefni WOWVALENTINE TIL ALLRA ÁFANGASTAÐAMEÐ KÓÐANUM FERÐATÍMABIL: 1. FEBRÚAR - 31. MAÍ 2019 LITAÐU VALENTÍNUSARDAGINN BLEIKAN Rósir og súkkulaði standa alltaf fyrir sínu, en það jafnast fátt á við rómantískt frí með elskunni. Komdu betri helmingnum á óvart og bókaðu flug á skemmtilegar slóðir. BÓKAÐUNÚNAÁWOWAIR.IS *Til aðnýtaafsláttinnþarf aðbókaflug framog tilbaka fyrir kl 23:59 sunnud. 3. feb. ‘19. Skilmálar gilda:wowair.is/smattletur FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 32. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.