Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ábókasafni gerist ýmis-legt, hér hefur bókasafns-gestur verið gripinn við aðsnæða bækur, bókstaf-
lega. Þó að við séum hlynnt því að
fólk hámi í sig bækur í óeiginlegri
merkingu, þá þurftum við að banna
viðkomandi að borða bækur safns-
ins. Þetta gerðist eftir að Þórarinn
Eldjárn orti um bókagleypinn og er
því gott dæmi um að lífið hermir eft-
ir listinni,“ segir Ingvi Þór Kor-
máksson en hann og aðrir starfs-
menn Borgarbókasafnsins sendu frá
sér myndband á dögunum þar sem
hljómsveit þeirra, Bókbandið, flutti
lag um bókagleypi við fyrrnefndan
texta Þórarins.
„Þegar í ljós kom að Ingvi átti í
fórum sínum lag við texta Þórarins
voru hæg heimatökin fyrir Bók-
bandið að telja í. Við tókum mynd-
bandið upp fyrir opnun safnsins einn
morguninn, og höfðum mjög gaman
af. En við í Bókbandinu höfum spilað
saman áður á skemmtun,“ segir
Barbara Guðnadóttir safnstjóri sem
spilar á selló og bætir við að meðal
starfsmanna bókasafnsins sé margt
skapandi fólk sem ýmist spili á hljóð-
færi eða syngi í kórum. „Við fengum
Bödda Reynis til liðs við okkur og
hann tók að sér að vera aðalsöngv-
arinn. Og Vilhjálmur Guðjónsson sá
um hljóðritun og mikið af hljóðfæra-
leiknum.“
Ingvi segist hafa átt demó af
laginu um bókagleypinn sem var
meira en tuttugu ára gamalt.
„Meðfram því að vera bóka-
vörður hef ég alltaf verið viðloðandi
tónlist og spilandi í hljómsveitum frá
því ég var unglingur. Seinna fór ég
að spila blús og djass og undanfarin
þrjátíu ár hef ég gert mikið af því að
semja lög. Ég á um 200 lög útgefin.
Ég var í hljómsveit sem hét JJ Soul
Band, en hana leiddi breski söngvar-
inn JJ Soul, sem bjó um tíma á Ís-
landi. Við gáfum út fjóra diska og
þetta er allt til á veraldarvefnum.
Rafræna byltingin í tónlist hentaði
ágætlega fyrir fólk eins og mig sem
átti til mikið efni á lager, efni sem
gengur betur í útlöndum en hér
heima. Það sem ég hélt að væri
gleymt og grafið, hefur öðlast nýtt
líf með tilkomu netsins í dreifingu á
tónlist,“ segir Ingvi sem einnig hefur
samið mörg lög við íslensk ljóð.
„Enda voru hæg heimatökin
fyrir mig að nálgast allar ljóðabæk-
ur landsins hér á safninu. Stundum
kviknaði lag við fyrsta lestur ljóðs
sem verður á vegi mínum við að
glugga í ljóðabók,“ segir Ingvi sem
lætur nú af störfum hjá Borgar-
bókasafninu eftir 45 ára starf.
„Þau héldu heljarinnar kveðju-
partí fyrir mig og Bókbandið spilaði
tvö lög eftir mig. Ég var bráð-
kvaddur,“ segir hann og hlær, en
Barbara bætir við að þótt Ingvi sé
afskrifaður sem starfsmaður á bóka-
safninu sé enginn afskrifaður úr
Bókbandinu. „Sú hljómsveit lifir
áfram og Ingvi verður kallaður til
fyrir innanhússkemmtanir.“
Draugagangur í gamla húsi
Ingvi hóf störf hjá bókasafninu
árið 1974, sama dag og hann byrjaði
í námi í Háskólanum í bókasafns-
fræðum og bókmenntum.
„Mér hefur fundist gaman al-
veg frá upphafi að vinna á bókasafn-
inu og þegar ég lít til baka þá hefur
auðvitað sitthvað skemmtilegt kom-
ið upp á. Auk þess að standa bóka-
gleypi að verki þá höfum við orðið
vör við ástaratlot bókasafnsgesta á
milli bókarekka. Og stundum hefur
fólk sofnað hér í sófunum. Einu
sinni gleymdist manneskja inni á
bókasafninu í Þingholtsstræti, þá sá
konan mín skugga bregða fyrir inni í
safni eftir lokun og hún lét sögur af
draugagangi í því gamla húsi ekki
stoppa sig í að athuga hvers kyns
væri. Í ljós kom að bókasafnsgestur
hafði lokast inni, komst ekki út.“
Barbara bætir við að það hafi
einnig komið fyrir í núverandi hús-
næði að kerfið hafi farið í gang
löngu eftir að búið var að skella í lás
að kvöldi en þá hefur einhver
rumskað upp af værum blundi og
farið á stjá.
„Sumir vilja gjarnan gleymast
hérna,“ segir hún, enda bókasafnið
notalegur staður. „Þegar rignir úti
eða hörkufrost ríkir er alltaf margt
um manninn hér enda eitthvað fyrir
alla að finna á stóru safni. Bókasöfn
hafa breyst mikið, nú er þau staður
þar sem fólk kemur ekki aðeins til
að fá lánaðar bækur og leita upplýs-
inga, heldur líka til að njóta hvers-
konar viðburða sem við bjóðum upp
á. Hér er skapandi starf, til dæmis
hlaðvarpsstúdíó fyrir þá sem vilja.
Hingað eru allir velkomnir, óháð
stétt og stöðu, þetta er griðastaður
fyrir alla.“
Þau segja þá sem hvergi eiga
höfði sínu að halla stundum sækja í
safnið enda velkomið, svo framar-
lega sem fólk fari eftir reglum safns-
ins sem snú aða almennri kurteisi,
umgengni og mannlegum samskipt-
um. „Mér finnst dásamlegt að hing-
að komi fólk úr öllum stéttum sam-
félagsins,“ segir Barbara og Ingvi
bætir við að margir forsetar hafi
komið á hans 45 árum í safninu til að
fá lánaðar bækur. „Vigdís kom oft á
sínum tíma.“
Ekki áhyggjur af dauða bóka
Barbara segir að nú þegar ætl-
ast sé til að allir framkvæmi allt í
gegnum tölvur eða síma á netinu
sæki það fólk í auknum mæli til
þeirra á bókasafninu sem ann-
aðhvort kunni ekki á slík tæki eða
hafi ekki aðgang að neti.
„Hingað kemur fólk í ólíkustu
erindum, jafnvel þeir sem hafa týnt
vegabréfi og þurfa að fara í gegnum
erfitt umsóknarferli í tengslum við
sendiráðin. Við erum að bjóða upp á
þjónustu og aðstoð sem er hvergi
annars staðar í boði. Við hjálpum
fólki, líka þeim sem þurfa aðstoð við
að setja upp starfsferilsskrár til
dæmis. En bókasafnið er fyrst og
fremst staður þar sem allir hafa að-
gang að fræðslu, upplýsingu og af-
þreyingu með gríðarlega góðum
bókakosti og öðru efni, erlendu
fræðiefni og tónlist. Hér er hægt að
fá lánaðar vínilplötur og geisladiska,
og þeir sem eiga bókasafnsskírteini
hafa aðgang að Naxos, tónlist-
arveitu okkar fyrir klassíska tónlist
á netinu. “
Barbara og Ingvi hafa engar
áhyggjur af dauða bókarinnar í
pappírsformi.
„Rafbókasafnið hóf göngu sína
hér fyrir rúmu ári, en reyndar er
það svo að frá því rafbækur komu
fram á sjónarsviðið hafa þær aldrei
farið yfir 15 prósent á bókamarkaði,
hvorki hér á landi né úti í heimi.
Kannanir sýna að yfir 80 prósent
fólks vilja lesa bækur í pappírs-
formi. Hljóðbækur eru vinsælar hjá
okkur, ekki síst á Rafbókasafninu,
enda gott að hlusta meðan ekið er,
hjólað eða hlaupið, og úrvalið þar
hefur aukist mjög mikið. Rafbækur
eru fyrst og fremst viðbót, þeir sem
lesa mikið þeir lesa rafbækur, hlusta
á hljóðbækur og lesa bækur á papp-
ír. Fjölbreytnin er meiri en þetta
gamla góða lifir áfram.“
Ýmislegt getur gerst á bókasafni
Ástaratlot milli bóka-
rekka, sofandi fólk í sóf-
um og græðgislegt bókaát
er meðal þess sem starfs-
fólk Borgarbókasafnsins
hefur orðið vitni að. Þau
settu saman hljómsveit-
ina Bókbandið þar sem
sungið er um bókagleypi.
Morgunblaðið/Hari
Notalegt Ingvi og Barbara láta fara vel um sig í einum af mörgum sófum bókasafnsins, þar sem sumir sofna.
Bókagleypir „Hann telur víst að maginn muni skána í
mörgum við að bíta í símaskrána,“ segir í ljóði Þórarins.
Úr myndbandi Hluti Bókbands: Barbara á selló, Ingi Þór-
isson á gítar, Ingvi á melódiku og Böddi Reynis syngur.
AÐGANGSSTÝRÐIR LYKLA-
OG VERÐMÆTASKÁPAR
Traka-kerfið býður upp á persónubundna aðgangsheimild.
Búnaður í skápunum heldur utan um heimildir og útlán verðmæta
hverju sinni, til dæmis lykla, spjaldtölvur og fartölvur.
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS