Morgunblaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 Miklu meira, en bara ódýrt Hálkubroddar 695 Snjósköfur Verð frá kr. 1.495 Bílrúðu- sköfur Verð frá kr. 395 Rassaþotur 495 Dráttartóg 2tonn 4m 2.485 Rúðuvökvi 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Startkaplar frá 1.495 Snjóskóflur Verð frá kr. 1.985 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2013 - 2017 DRIFSKÖFT LAGFÆRUM – SMÍÐUM JAFNVÆGISSTILLUM OG SELJUM NÝ Hjöruliðir og íhlutir í flestar gerðir bifreiða Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Myrkvaferðamennska er tiltölulega nýtt hugtak á sviði ferðamálafræði, en það nær yfir það þegar ferðast er til staða sem á einhvern hátt eru tengdir dauðanum eða fólk hefur upplifað þjáningar. Fólk er hins veg- ar að verða meðvitaðra um þessa tegund ferðamennsku að sögn Silju Marínar Jensdóttur, sem ásamt Ey- dísi Önnu Theodórsdóttur tók fyrir hugtakið um myrkvaferðamennsku í lokaverkefni þeirra til BA-gráðu í ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni tóku þær Silja og Ey- dís viðtöl við sex einstaklinga sem ferðast höfðu til staða sem falla und- ir skilgreiningar myrkvaferða- mennsku og áttu að lýsa upplifun sinni. Meðal slíkra staða eru Ausch- witz-Birkenau-útrýmingarbúðirnar í Póllandi og akrar dauðans, Killing Fields, í Kambódíu. „Þetta er frekar nýtt hugtak í ferðamálafræði, sem ný tegund ferðamennsku. Fólk veit því ekki endilega hvað þetta er og áttar sig ekki á því að það sé að stunda ein- hverja tegund ferðamennsku með því að heimsækja svona staði,“ segir Silja Marín. Hún segir það áberandi hvað viðmælendum í rannsókninni hafi þótt átakanlegt að koma á slíka staði, jafnvel þó að þeir hafi enga beina tengingu við þá atburði sem þar áttu sér stað. Forvitni, sorg og samúð „Við bjuggumst ekki við því, að fólk brotnaði alveg niður. Það virðist því vera öðruvísi að mæta á staðina en að heyra af þeim.“ Rannsóknin tók fyrir mismunandi hvata fólks til ferðalaga á staði tengda dauðanum. Einn viðmælandi í rannsókninni hafði gagngert lagt land undir fót til þess að heimsækja stað sem getur flokkast undir myrkvaferðamennsku. Hins vegar var algengara að viðmælendur hefðu komið við á slíkum stöðum á ferða- lögum, oft vegna forvitni. „Fólk var forvitið að komast nær dauðanum, því hann er svolítið fjar- lægur í dag. Helstu niðurstöður voru þær að fólk fann fyrir mikilli sorg og samúð, en einnig vaknaði mikil for- vitni um að læra meira um sögu stað- arins,“ segir Silja. Farið hafi verið grunnt í hugtakið í ferðamálafræð- inni í háskólanum, en þær hafi lang- að að kafa dýpra. Nýleg sjónvarps- þáttasería, Dark Tourist, hafi jafn- framt vakið áhuga þeirra á mál- efninu. Rannsókn þeirra Eydísar snérist fyrst og fremst um myrkvaferða- mennsku út á við. Aðspurð hvort þessi tegund ferðamennsku þekkist hér á landi nefnir Silja dæmi um Þingvelli og Almannagjá þar sem saga tengd dauðanum geti vakið sér- staka forvitni ferðamanna. AFP Auschwitz-Birkenau Útrýmingarbúðir nasista í seinni heimsstyrjöldinni eru vinsæll áfangastaður ferðafólks og flokkast sem myrkvaferðamennska. Ferðafólk for- vitið um dauða  Myrkvaferðamennska vekur áhuga Eydís Anna Theodórsdóttir Silja Marín Jensdóttir Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hafa tilvik um notkun óla sem geta gefið hundum rafstuð verið til- kynnt til Matvælastofnunar, Mast. Þóra Jóhanna Jónasdóttir, dýra- læknir gæludýra- og dýravelferðar hjá Mast, segir að reglulega berist ábendingar um hundaólar sem geti gefið rafstuð. Stundum komi þær í ábendingarhnapp Mast eða tilkynn- ingu frá tollinum. En tilfellum virð- ist fara fækkandi. Þóra segir að ný lög um velferð dýra sem tóku gildi 2014 banni sölu og dreifingu á raf- magnsólum, áður var eingöngu bannað að nota ólarnar. „Eftir nýju lögin hefur tollurinn verið virkur í að stöðva innflutning á rafmagnsólum enda innflutningur ólöglegur. Rafmagnsólar eru ekki seldar í verslunum hér á landi svo við vitum til,“ segir Þóra sem bendir á að ólar með gadda eða ólar sem herst geti að hálsi dýra séu einnig ólöglegar. Þóra segir að Mast berist á fjórða hundrað ábendinga á ári vegna gruns um illa meðferð dýra en í sumum tilfellum sé um sama dýrið að ræða eða ábendingar sem eigi ekki við rök að styðjast. Ef upp kemst um illa meðferð á dýri er hægt að beita refsingum, þvingunar- úrræðum eða vörslusviptingu. Ólar með rafmagni og göddum ólöglegar  Refsiaðgerðir og vörslusviptingar Ólöglegt Rafmagnsólar má hvorki flytja inn, selja né nota á Íslandi. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Betl þekkist fyrir utan allar Krónu- verslanir á höfuðborgarsvæðinu og kemur í bylgjum. Þannig hefur þetta verið í nokkur ár segir Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. „Þetta er ekki það sem við viljum en þetta er ekki vandamál þar sem fólk sem betlar bregst vel við þegar við óskum eftir að það fari í burtu,“ segir Gréta. Hún telur án þess að geta fullyrt það að flestir sem betla séu af erlendu bergi brotnir og það sé neyð sem reki fólk út í betl. Þóra Jónasdóttir, aðstoðaryfirlög- regluþjónn og stöðvarstjóri á lög- reglustöð 3 í Kópavogi, segist ekki hafa orðið vör við að betl sé vaxandi. Þóra segir að ef óskað sé eftir því fari lögregla og aðstoði við að koma ein- staklingum sem valda ónæði eða óþægindum í burtu. „Það hefur borið á því í Mjóddinni að tveir einstaklingar valda óþæg- indum fyrir gesti með nærveru sinni. Svæðisfélagið í Mjóddinni og hús- félagið eru að vinna að lausn þessa máls,“ segir Hallur Geir Heiðarsson, rekstrarstjóri Nettó. Hann segir að það sé margbúið að óska eftir því við þessa einstaklinga að þeir hætti þessu en þeir komi alltaf aftur og það hafi komið fyrir að lögreglan hafi ver- ið kölluð til vegna þeirra. Hallur seg- ist ekki hafa orðið var við betl í ná- grenni við Nettóverslunina í Mjódd. Betlað fyrir utan verslanir  Kemur í bylgjum en er ekki vandamál  Betlað í neyð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.