Morgunblaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 ✝ GunnlaugurBúi Sveinsson fæddist á Akureyri 24. febrúar 1932. Hann lést á heimili sínu Lögmannshlíð 23. janúar 2019. Hann var sonur hjónanna Sveins Tómassonar, járn- smiðs og slökkvi- liðsstjóra á Akur- eyri, f. 30. júlí 1904, d. 7. nóvember 1998 og Helgu Gunnlaugsdóttur, húsmóður á Akureyri, f. 24. maí 1906, d. 8. september 2006. Sveinn var frá Bústöðum í Skagafirði og Helga frá Klaufabrekknakoti í Svarf- aðardal. Systkini Gunnlaugs Búa voru Þórey Sveinsdóttir, f. 1929, og Tómas Heiðar Sveinsson, f. 1941. Þau eru bæði látin. Eftirlifandi eiginkona Gunn- laugs Búa er Signa H. Halls- dóttir, f. 4. ágúst 1933. Þau gengu í hjónaband 14. nóvem- ber 1953. Signa er fædd í Reykjavík en hefur búið á Akur- eyri stærstan hluta ævinnar og býr nú á hjúkrunarheimilinu Hrönn, maki Reynir Svan Svein- björnsson, dætur þeirra eru Rakel Sara, Bríet Helga og Íris Eva, og c) Lína Björk, maki Helgi Haraldsson, börn þeirra eru Emma Karen Anna, Birgir Hrannar og Stefán Darri. Gunnlaugur Búi bjó alla tíð á Akureyri. Hann var alinn upp á Eyrinni þar sem hann og Signa bjuggu einnig fyrstu hjúskap- arár sín. Þau byggðu svo hús að Byggðavegi 142a og þangað flutti fjölskyldan 1958. Þar var heimili þeirra hjóna fram yfir aldamót. Árið 1953 útskrifaðist hann sem vélvirki og vann ýmis störf tengd þeirri iðn, t.d. á Vélsmiðj- unni Atla. Ungur að árum hóf hann störf hjá Slökkviliði Akur- eyrar, sem varð síðar aðalævi- starf hans. Sem ungur maður stundaði hann íþróttir, sérstaklega hand- bolta. Hann var virkur í skáta- starfi og gekk í Oddfellowregl- una 1962 og starfaði þar meira og minna til æviloka. Gunn- laugur Búi vann mikið með Starfsmannafélagi Akureyrar og var formaður þess um skeið. Hann hafði einnig mikinn áhuga á stangveiði og fór margar veiðiferðir með Signu og vinum. Útför Gunnlaugs Búa fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 5. febrúar 2019, og hefst athöfn- in klukkan 13.30. Lögmannshlíð. Þau hjónin eign- uðust þrjú börn. Þau eru: 1) Ólafur Búi, f. 5.9. 1953, maki Agnes Jóns- dóttir. Börn þeirra eru a) Gunnlaugur Búi, maki Eydís Unnur Jóhanns- dóttir, börn þeirra eru Arna Sigríður, Karen Lilja og Elv- ar Búi b) og Ólafur Búi, maki Ingibjörg Zophoníasdóttir, son- ur þeirra er Zophonías Búi. 2) Halla Sigurlín, f. 31.10. 1954, maki Haukur Harðarson. Börn þeirra eru a) Arndís Ösp, maki Hermann Árni Valdimarsson, börn þeirra eru Alexander Búi og Fannar Nói Þorvaldssynir, Laufey Lilja og Þórunn Halla og b) Víðir Orri, maki Katrín Björg Lilaa Sólrúnardóttir, synir þeirra eru Gunnlaugur Vilberg og Tómas Orri. og 3) Helga Hólmfríður f. 22.1. 1963, maki Stefán Birgisson. Börn þeirra eru a) Birgir, maki Guðný Þór- fríður Magnúsdóttir sonur þeirra er Úlfur Hrói. b) Signa „Jæja vinan mín, nú þurfum við að þreyja þorrann.“ Í dag finnst mér þessi orð töl- uð til mín. Vá hvað ég sakna pabba mikið. Ég vissi að hann yrði ekki eilífur og ég vissi líka að hann var orðinn veikur en hann hefur alltaf verið til staðar í mínu lífi og ég þekki ekkert annað. Því ýtti ég öðrum hugs- unum til hliðar. Allt mitt líf hef ég talað við pabba og leitað til pabba. Ef spurningar vöknuðu, eitthvað þurfti að gera, eitthvað bilaði, einhver þurfti aðstoð, meiddi sig, veiktist, þurfti að komast eitthvert eða bara hvað sem var. Alltaf kom fyrst upp í hugann „ég hringi bara í pabba“ og allt- af kom hann, gaf ráð, skutlaðist fyrir mig, náði í og passaði börnin mín, hjálpaði mér við flutninga, málaði, smíðaði, lagði hitaveitu í húsið mitt eða bara kom og kyssti á bágtið. Hann og mamma voru allra bestu for- eldrar sem hægt er að hugsa sér. Alltaf voru þau til staðar og hjálpuðu við allt. Fóru síðust heim eftir veislur því þau voru að hjálpa til við að ganga frá. Voru fyrst mætt ef eitthvað þurfti að gera. Ég get fullyrt að börnin mín áttu góða æsku ein- mitt vegna þeirra. Það var svo gott að geta alltaf skroppið til afa og ömmu þegar eitthvað vantaði heima. Þegar ég var lítil tók ég aldr- ei þátt í „pabbi minn er sterkari en pabbi þinn“ metingi því ég „vissi“ að minn hafði alltaf vinn- inginn í öllum samanburði. Ég var óendanlega stolt af honum og fannst hann sá allra flottasti. Ég naut þess líka að vera yngst í systkinahópnum og var örugg- lega dekruð í drasl. Pabbi var í vaktavinnu á slökkvistöðinni og ég naut því oft samvista með honum á dag- inn þegar aðrir voru í vinnu. Ég elskaði að fara með pabba í reddingar. Dytta að hinu og þessu heima, á slökkvistöðinni eða í Oddfellowhúsinu. Mér fannst líka fínt þegar pabbi var á næturvöktum, þá fékk ég að kúra upp í hjá mömmu og við áttum notaleg kvöld saman þar sem ég sat ein að athyglinni. Ég var stolt af því að pabbi væri slökkviliðsmaður. Fannst hann flottastur allra þegar hann var í uniforminum á vakt í Gúttó. Þá stóð ég rígmontin við hlið hans fyrir og eftir leiksýn- ingar. Sumt var samt erfitt hjá barni slökkviliðsmanns. Ég vandist því t.d. aldrei að vera róleg þegar útkallssíminn hringdi og mér leið ekki vel þegar pabbi var í útkalli og lyktin af honum eftir bruna var líka óbærileg. Hún sat í húðinni hans í marga daga. Pabba fannst ekkert gaman að verða gamall. Allt í einu upp- lifði hann að hlutir gerðust í fjölskyldunni án þess að hann væri spurður álits. Honum fannst það pínu erfitt. Einnig var erfið sú ákvörðun hans að hætta að keyra, en það gerði hann samt. Hann vildi frekar láta minnast sín fyrir afrek sín í lífinu heldur en eitthvert óhapp sem hefði getað verið hægt að koma í veg fyrir. Pabbi átti erf- itt með að sitja verkefnalaus og dundaði því öllum stundum við eitthvert handverk, sama hvers kyns var. Elsku pabbi minn. Takk fyrir að hafa stutt mig allt mitt líf í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur og hjartans þakkir fyrir að hafa staðið við hlið mömmu í hennar veikindum. Þú varst kletturinn í mínu lífi. Helga Hólmfríður Gunnlaugsdóttir. Aldrei hvarflaði það að mér þar sem ég sat í Ford Capri- bílnum hjá nýja kærastanum fyrir utan Byggðaveg 142a að í því húsi byggju tilvonandi tengdaforeldrar mínir. Þar sem ég sat taugaóstyrk og sveitt í lófunum og beið, var hurðinni kippt upp og þar stóð Gulli Búi og spurði hvort það mætti ekki bjóða mér inn. Ég reyndi að malda í móinn en það var ekki annað tekið í mál. Inn skyldi ég koma. Upp frá þessum degi í janúar 1977 hef ég borið þann titil sem engin önnur getur státað af. Tengdadóttir Gulla Búa. Gulli Búi var karl af gamla skólanum sem kippti sér ekki upp við það þó að álit hans og skoðanir á mönnum og málefn- um hans féllu ekki alltaf í kram- ið hjá samferðafólki hans. Öfugt við fólk í dag sem skellir at- hugasemdum á „kommenta- kerfi“ dagblaða og netmiðla án þess að þurfa að vera ábyrgt orða sinna sagði tengdafaðir minn hlutina umbúðalaust og stóð við orð sín. Því er ekki úr vegi að við stöldrum við og lít- um til okkur eldra fólks og tök- um það okkur til fyrirmyndar í hreinskilni og heiðarleika gagn- vart meðborgurum okkar. Gulli Búi var svo sannarlega fjölskyldumaður. Svo lengi sem þau gátu, hann og hans ynd- islega kona Signa, blésu þau til fjölskyldumáltíða. Gamlárs- kvöldin voru fjölmörg sem við eyddum hjá þeim, svo ekki sé talað um páskamáltíðir þar sem við nutum veislumáltíða hjá þeim eftir góða og fallega daga í Fjallinu. Gulli Búi tók ekki þátt í eldamennskunni, en að smakka á matnum og koma með athuga- semdir, þar var hann á heima- velli. Eftir öll herlegheitin skellti hann á sig svuntu og sá um uppvask og fágang. Börn hans, tengdabörn og barnabörn hans voru nánast gallalaus í hans huga, þannig að betra var að vera honum sam- mála þegar að því kom að ræða um þau. Árið 1979 ákváðum við hjónin að byggja okkur raðhúsaíbúð í Arnarsíðu. Það má segja að Gulli tengdapabbi hafi notað hverja frístund sem hann átti frá vinnu til að aðstoða okkur. Ekki var sá gamli ánægður þeg- ar við notuðum tækifærið þegar hann og Signa voru utanbæjar til að flytja í nýju höllina okkar. Því auðvitað vildi hann taka þátt í flutningunum. Svona liðu árin í leik og starfi og alltaf var Gulli Búi okkur innan handar ef hann átti lausa stund. Pípulögn, smíðar, máln- ingarvinna, múrbrot, alltaf var hann mættur til að aðstoða okkur. Síðustu árin bjuggu hann og Signa tengdamóðir mín á Lög- mannshlíð, þar sem þau hafa notið einstakrar umönnunar barna sinna, tengdabarna, barnabarna og starfsfólks. Að leiðarlokum vil ég þakka tengdaföður mínum þá einstöku elsku og virðingu sem hann hef- ur sýnt frá fyrsta degi. Hvíldu í friði, gamli minn. Agnes Jónsdóttir. Miðvikudaginn 23. janúar kvaddi elsku Gulli afi. Hann varð eitthvað slappur í hádeginu og ákvað að leggja sig, sofnaði og sefur enn. Betri afa hefði ekki verið hægt að hugsa sér. Hann var hrjúfur, sterkur, stoltur, mjúk- ur, blíður, viðkvæmur allt í senn. Akkúrat passleg blanda. Alltaf þegar eitthvað kom upp á var fyrsta hugsunin að heyra í afa. Hvort sem einhver meiddi sig eða það þurfti að láta laga eitthvað, redda einhverju, eng- um var betur treyst en afa. Afi kunni allt, a.m.k. í litlum barnshuga og líka eftir að ég fullorðnaðist þá var alltaf viss- ara að spyrja afa hvað honum fyndist, biðja hann um ráð og hjálparhönd. Og alltaf kom hann ef aðstoðar var óskað, hress og klár í slaginn. Við flutninga, við- gerðir, tognanir, skurði, mar- bletti, hvað sem var. Ég gleymi heldur aldrei knúsinu sem ég fékk þegar hann frétti að fyrsta langafa- barnið væri væntanlegt. Þétt- ingsfast og svo fullt af gleði og hamingju. Kreisti mig svo hressilega að ég kláraði allt loft- ið úr lungunum. Svo þegar sonur minn fædd- ist löngu fyrir tímann þá voru afi og amma ómetanlegur stuðn- ingur á erfiðum tíma, grétu með okkur, knúsuðu okkur og hug- hreystu þegar við vissum ekkert um það að kraftaverkabarnið myndi hafa það af og verða stolt langafa og okkar allra. Afi var svo ofur stoltur af langafabörn- unum sínum öllum. Honum raunverulega fannst hann rík- asti maður í heimi. Hann var mikil barnagæla og fannst sonum mínum alltaf gaman að fara í pössun til langafa og lang- ömmu þegar þeir voru litlir, því eins og þeir sögðu sjálfir var afi Gunnlaugur Búi Sveinsson Látinn er í Reykjavík Þórarinn Brandur föðurbróð- ir okkar eftir snarpa og harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Hann tók öllu sem á honum dundi með yfirvegaðri ró og var þakk- látur fyrir þann tíma sem hann fékk, mest um vert að hann var þakklátur fyrir góða ævi. Hann bjó alla tíð einn og fyrir vikið gat hann hagað hlutunum eins og hann vildi. Brandur var víðlesinn og fróð- leiksfús og minnumst við systk- inin þess hvað það var gaman að spjalla við hann um allt milli him- ins og jarðar. Það var alveg sama þó að það liði langur tími milli samverustunda það var ætíð auð- Þórarinn Brandur Þórarinsson ✝ ÞórarinnBrandur Þór- arinsson fæddist 30. október 1943. Hann lést 8. janúar 2019. Útför Þórarins fór fram 24. janúar 2019. velt að taka upp þráðinn. Okkur er líka minnisstætt hversu gjafmildur Brandur var og á hverjum pakkanum á fætur öðrum sem kom undan jólatrénu þegar við vorum yngri stóð frá Brandi. Síðar þegar hluti af hópnum bjó úti í Noregi var sömu sögu að segja. Hann var alltaf duglegur að senda okkur bækur og tónlist alveg fram á fullorðinsár. Nú líður að leiðarlokum og kominn tími til að kveðja. Okkur langar að gera það með þessari fallegu bæn eftir Sigurð Jónsson frá Presthólum, sem við lærðum að fara með fyrir nóttina: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Pétur, Helena, Helga Björk og Gunnar Þór. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GERÐA HALLDÓRSDÓTTIR, Pósthússtræti 1, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Keflavík 31. janúar. Útförin fer fram frá Keflavíkur- kirkju föstudaginn 8. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlévangs fyrir frábæra umönnun og hlýtt viðmót sem og allra þeirra sem reyndust henni vel. Guðmundur Rúnar Hallgrímsson Halldór Guðmundsson Hallgrímur Guðmundsson Sigurbjörg Guðmundsdóttir Rúnar Guðmundsson Rakel Hreiðarsdóttir Ívar Guðmundsson Halldóra Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Bróðir okkar, ANTON HAUKUR GUNNARSSON frá Þingeyri, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu fimmtudaginn 31. janúar. Útför hans fer fram frá Áskirkju föstudaginn 15. febrúar klukkan 13. Nanna Magnúsdóttir Halldóra Magnúsdóttir Kolbrún Gunnarsdóttir Daníel Guðmundsson Sigríður Sturludóttir Örn Sturluson Atli Sturluson Hrönn Sturludóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLL SVEINSSON, Lækjasmára 4, áður Bugðulæk 4, lést á Landspítalanum sunnudaginn 27. janúar. Útförin fer fram í Laugarneskirkju föstudaginn 8. febrúar klukkan 11. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á samtök lungnasjúklinga; reikningur 115-15-372748 kt. 670697-2079. Sigurlína Árnadóttir Árni Sveinn Pálsson Stefanía Dögg Hauksdóttir Ómar Örn Pálsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, INGVAR ÞORSTEINSSON húsgagnasmíðameistari, lést fimmtudaginn 31. janúar. Steinunn Guðrún Geirsdóttir (Lillý) Bergljót Erla Ingvarsdóttir Þorsteinn Ingvarsson Ragna Gústafsdóttir Geir Örn Ingvarsson Hallveig Ragnarsdóttir Einar Ágúst Kristinsson barnabörn, langafabörn og langalangafabarn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, HÁLFDAN JÓNSSON, Hörgsholti 31, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi, miðvikudaginn 30. febrúar. Jarðarför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Júlíus A. Hálfdanarson Matthías Hálfdanarson Lovísa Grétarsdóttir Brynja Guðmundsdóttir Kara R.M. Júlíusdóttir Guðmundur Matthíasson Tera R.J. Júlíusdóttir Máni Matthíasson Margrét A. Júlíusdóttir Aron Bjarki Hallsson Jón O. Brynjólfsson Guðný Hálfdanardóttir Brynjólfur Jónsson Guðbjörg Jónsdóttir Hreinn Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.