Morgunblaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 Á skautum Hvort sem unga konan er búin að renna sér eða á það í vændum er ljóst að skemmtunin er á svellinu á Tjörninni. Eggert Á ríkið að leggja vegina? Hjálpa fátæk- um? Styrkja lista- menn? Passa börn og mennta þau? Hlúa að öldruðum? Tryggja öllum lífeyri? Hand- sama glæpamenn? Skipuleggja hverfi? Að þessu spyr enginn því þetta er í dag í verka- hring hins opinbera og það er okkar raunveruleiki. Sá sem vill að listamenn afli sinna eigin tekna þurfa að koma á breytingum á kerfinu. Þeir sem telja að vegir hins opinbera séu ómögulegir á einn eða annan hátt þurfa að stinga upp á öðru fyrirkomulagi og fá það samþykkt. Þetta er hinn pólitíski dans. En eru engin skýr mörk á milli þess sem klárlega á heima á frjálsum markaði og flestum þykir betra að sé á könnu hins op- inbera? Jú, þau finnast hér og þar. Fæstir eru t.d. á því að það eigi að vera í verkahring hins opinbera að selja skó og tannbursta. Enginn heldur úti bar- áttu fyrir því að rík- isvæða bílaverkstæði landsins eða þjóðnýta mat- vöruverslanir. Fæstir hafa skýra grundvallarsýn á hlutverk hins op- inbera en sætta sig við hlutina eins og þeir eru í dag og hika frekar en hlaupa þegar stungið er upp á breytingum. Í Reykjavík blasir þó við að ákveðinn rekstur er í höndum hins opinbera sem á ekkert erindi þar, og það er rekstur bílastæðahúsa. Hvernig varð það hlutverk hins op- inbera að reka steypukassa sem geyma bíla fyrir vinnandi fólk á dýrustu lóðum landsins? Var það af illri nauðsyn? Voru einkaaðilar of latir? Hérna þurfa menn að anda með nefinu og hugsa málið aðeins. Af hverju er alltaf nóg af bílastæðum við Kringluna og Smáralind? Meira að segja á tímum jólaverslunar er alltaf hægt að finna laust stæði við þessar byggingar. Til að svara því af hverju einkaaðili byggði flenn- istórt bílastæðahús við Kringluna, sem er meira að segja gjaldfrjálst að nota, en ekki við Lækjargötu, þarf að notast við hugtakið hvata. Ef hið opinbera er of þrúgandi, skattleggur of mikið, setur of mikið af reglum og takmarkar svigrúm rekstraraðila of mikið er ljóst að hann leggur upp laupana eða held- ur sig fjarri frá upphafi. Auðvitað á borgin ekki að reka bílastæðahús í miðbænum frekar en það á að sölsa undir sig bílastæðin við Kringluna. Borgin ætti að koma rekstri bílastæðahúsa í hendur sér- hæfðra einkaaðila. Verður þá of dýrt að leggja í miðbænum? Varla, því þá standa bílastæðin tóm. Verð- ur þetta arðbær rekstur á kostnað vinnandi fólks í miðbænum? Mun- um þá að arður laðar að sér keppi- nauta sem reyna að bjóða betur til að krækja í bita af kökunni. Munu bílastæðin verða vanrækt eins og grastún borgarinnar og holóttar göturnar? Það er hæpið því einka- aðili reynir alltaf að lokka til sín viðskiptavini. Nú er svo komið að rekstur borgarinnar er í molum. Hluti skýr- ingarinnar er sá að borgin hefur einfaldlega of mikið á sinni könnu. Að losna við rekstur bílastæðahús- anna gæti auðveldað borgaryf- irvöldum að einfalda rekstur sinn og gera þá frekar minna og gera það vel en gera mikið og sinna því illa. Það er því tillaga okkar sjálf- stæðismanna á fundi borg- arstjórnar í dag, að bjóða út rekst- ur bílastæðahúsanna. Eftir Katrínu Atladóttur » Í Reykjavík blasir þó við að ákveðinn rekstur er í höndum hins opinbera sem á ekkert erindi þar, og það er rekstur bílastæðahúsa. Katrín Atladóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. katrin.atladottir@reykjavik.is Bílastæði af herðum borgarinnar Stundum ger- ast þeir atburðir að maður veit ekki hvort manni ber að hlæja eða gráta! Borgarstjórinn Dagur B. Egg- ertsson hefur velkst um í haf- róti braggavit- leysunnar þar sem 450 milljónir fara af fé borgarinnar í að gera upp gamlan herbragga og eng- inn skilur neitt í málinu. Hver ákvað að setja alla þessa peninga í braggann? Er bragginn sleginn gulli eða marmara? Hvar eru tölvupóstarnir sem gengu á milli æðstráðenda í málinu þeirra Dags og Hrólfs; fóru þeir í tætarann eða niður í skolpræsið? Dagur hverfur og Dagur kemur fram, hann fórnar höndum og botnar ekki neitt í neinu, samt er dýrasti braggi Íslandssög- unnar skilgetið afkvæmi hans sem æðsta ráðamanns Reykjavíkur. Og samstarfs- fólkið í meirihluta borgar- stjórnarinnar tekur vitleys- una upp á sína arma. Allt í einu skellur ný hol- skefla á þjóðinni, Hjálmar Sveinsson er sendur fram að prufukeyra nýtt hneyksl- ismál um tvö pálmatré í glerhjúp í nýju hverfi borg- arinnar. Og kostnaðurinn er litlar 140 milljónir, aldýr- ustu tvö tré sem plantað hefur verið á jörðinni. Fræðimenn á sviði garð- yrkju efast um að blessuð trén lifi og spyrja eftir hvort kosnaðurinn við að halda þeim lifandi verði ekki gíg- antískur. Þessi jurt passar alls ekki í landi elds og ísa og hversu lengi munu pálmatrén telj- ast listaverk? Í hinum nýja miðbæ ætla Selfyssingar að bjarga tveimur gömlum reyniviðartrjám, jafn göml- um Selfossbæ, þessi gömlu tré hljóta að vera gamaldags og hallærisleg miðað við „Hjálmarstrén“. En Dagur og Hjálmar trúa að fólkinu í nýja hverfinu muni hlýna við að sjá pálma- trén þegar frostið heltek- ur borgina og þarf að skafa rúður bílanna. Og kannski trúi fólkið því að það sé kom- ið á Kanarí! Dagur borgarstjóri er eins og Óðinn; hann á sér tvo hrafna sem hann sendir út í pólitísku veðrin. Annar er Hjálmar Sveinsson, hann er sendur með váleg tíðindi og vond erindi sem forleik- ari. Hinn hrafninn er Þórdís Lóa Þórhallsdóttir sem tek- ur að sér alla vörn fyrir borgarstjórann í vondum og vonlausum málum. En er ekki listin komin á eitthvert stig vitleysunnar þegar listamenn geta talið stjórnmálamönnum trú um að erlend tré og dönsk strá séu listaverk? Hver er nak- inn? Hver er í hlutverki keisarans í þessu leikriti? Hvar er nú barnið sem segir nakinn sannleikann? Mikið held ég að listamennirnir hlæi og séu hissa þegar þeir sjá að menn gleypa agnið og borga kinnroðalaust 600 milljónir úr vösum Reykvík- inga fyrir bragga, dönsk strá og tvö suðræn pálmatré. Og þetta er hún Reykjavík, höfuðborgin okk- ar Íslendinga sem Einar Benediktsson kvað þetta um: „Hún óx um tíu alda bil, og naut alls, sem þjóðin átti til.“ Æ, æ, Reykjavík, þú mátt muna þinn fífil fegri. Eftir Guðna Ágústsson »Kostnaðurinn er litlar 140 milljónir, aldýrustu tvö tré sem plantað hefur verið á jörðinni. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingis- maður og ráðherra. Pálmatré, braggi og dönsk strá skekja borgarstjórnina Bílastæða- sjóður rekur sjö bílastæðahús í miðborg Reykja- víkur með 1.140 bílastæðum. Á fundi borgar- stjórnar í dag mun ég leggja það til fyrir hönd Sjálfstæðis- flokksins að um- hverfis- og skipulagssviði ásamt bílastæðasjóði verði fal- ið að bjóða út rekstur þessara 1.140 stæða. Bílastæðasjóður ætti að einbeita sér áfram að gjaldtöku meðfram götum (e. on street parking) en láta aðra um rekstur bílastæðahúsanna (e. off street parking). Með því að út- vista rekstri þessara húsa er hægt að auka þjónustu við not- endur bílastæða- húsa, auk þess að skila meiri hagn- aði til borgar- innar. Ekki vegna þess að bílastæðahúsin séu illa rekin í dag heldur vegna þess að tækifær- in eru mun meiri fyrir aðra rekstr- araðila en bílastæðasjóð. Það skýrist fyrst og fremst af ströngum reglum sem sjóð- urinn þarf að vinna eftir í dag. Þannig yrði sveigjanleikinn í rekstrinum, t.d. hvað varðar afgreiðslutíma, þjónustustig, bætta nýtingu á stæðum og fleira, mun meiri hjá einkaað- ilum. Við vitum að bílastæðasjóður er vel rekinn innan þess regl- uramma sem honum er gert að vinna eftir í dag. Því er hægt, með útvistun á þeim sjö bíla- stæðahúsum sem sjóðurinn rekur, að afla meiri tekna fyrir Reykjavíkurborg. Það væri hagur þeirra sem myndu taka að sér rekstur bílastæðahús- anna að bæta nýtingu þeirra og auka þjónustu. Þrif og rekstur bílastæðahúsanna myndu einn- ig vera í höndum leigutaka. Það er vel þekkt í öðrum löndum að rekstur bílastæða- húsa sé leigður út til einka- aðila. Árið 1931 var í Bretlandi stofnað félag sem enn í dag sinnir þessum rekstri en hann nær yfir 150 þúsund stæði í yf- ir 500 bílastæðahúsum víða í Bretlandi. Hér er því ekki ver- ið að finna upp hjólið og auð- velt að horfa til fordæma frá öðrum löndum við tæknileg úr- lausnarefni við útvistun þess- ara 1.140 bílastæða. Þannig er lagt til að fela um- hverfis- og skipulagssviði, ásamt bílastæðasjóði, útfærslu á rekstrarútboði fyrir þau sjö bílastæðahús sem sjóðurinn rekur. Það yrði til hagsbóta fyrir notendur þessara bíla- stæðahúsa og Reykjavík- urborg. Aukum þjónustu við notendur bílastæðahúsa Valgerður Sigurðardóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. valgerdur.sigurdardottir- @reykjavik.is »Bílastæðasjóður ætti að einbeita sér áfram að gjald- töku meðfram götum Eftir Valgerði Sigurðardóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.