Morgunblaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019
Meira til skiptanna
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Nítjánda Franska kvikmyndahátíðin
2019 verður haldin dagana 6. – 17.
febrúar í Háskólabíói auk þess sem
hún teygir anga sína til Egilsstaða
og Ísafjarðar. Eins og undanfarin ár
standa Franska sendiráðið á Íslandi
og Alliance Française í Reykjavík að
hátíðinni í samstarfi við Institut
français. Sýndar verða tíu kvik-
myndir, sem að sögn Renaud Dur-
ville, vísinda- og menningarfulltrúa í
Franska sendiráðinu, eru sannkall-
aðar gæðamyndir, sem skipuleggj-
endur, þar með talinn hann sjálfur,
völdu af stakri kostgæfni.
Opnunarmyndina, Að synda eða
sökkva í leikstjórn Gilles Lellouche,
ber vitaskuld
hæst, gaman-
mynd um átta
karla í tilvistar-
kreppu og kostu-
lega leið þeirra til
að koma sér á
réttan kjöl í líf-
inu. Franskir fjöl-
miðlar ausa hana
lofi og hún hefur
þegar laðað að
meira en fjórar milljónir áhorfenda.
Nýjar myndir og þrjár gamlar
Langflestar hátíðarmyndirnar
eru frá því í fyrra og hittifyrra.
Gamli tíminn liggur þó ekki óbættur
hjá garði, því ein af elstu myndum
kvikmyndasögunnar og tvímæla-
laust elsta vísindakvikmyndin,
Tunglferðin, 14 mínútna kvikmynd
frá árinu 1902 í leikstjórn George
Méliès, verður sýnd á Sólveigar An-
spach-kvöldinu 14. febrúar. Gefum
Renaud orðið:
„Aðstandendur hátíðarinnar með
stuðningi Reykjavíkurborgar, Kvik-
myndamiðstöðvar Íslands og kvik-
myndaframleiðandans Zik Zak efna
núna í þriðja sinn til verðlaunahátíð-
ar til að heiðra minningu Sólveigar
Anspach kvikmyndaleikstjóra og
hvetja ungar konur til dáða í kvik-
myndaleikstjórn. Veitt verða verð-
laun fyrir fyrstu stuttmynd konu á
frönsku eða íslensku, tungumálun-
um hennar Sólveigar,“ segir Renaud
og upplýsir jafnframt að um 60 um-
sóknir hafi borist frá Íslandi og víða
að úr heiminum.
Af þeim hefur dómnefndin með
rithöfundinn Sjón í forsæti valið
þrjár í keppnina og verða þær sýnd-
ar áður en sigurvegarinn stígur á
svið og tekur við Sólveigar Anspach-
verðlaununum. Aðgangur á viðburð-
inn er ókeypis. Renaud er sem lokuð
bók þegar hann er spurður um nafn
og þjóðerni vinningshafans.
Unga fólkið og frelsið
Annar viðburður á hátíðinni er
Klassískt kvöld mánudaginn 11.
febrúar, þar sem sýndar verða kvik-
myndirnar Núll fyrir hegðun frá
árinu 1933 í leikstjórn Jean Vigo og
400 högg frá 1959 í leikstjórn Fran-
çois Truffaut. Sú síðarnefnda er tal-
in ein af upphafsmyndum nýbylgj-
unnar í franskri kvikmyndagerð.
„Ég sá þessar myndir þegar ég
var lítill og trúlega þekkja þær flest-
ir Frakkar, enda mjög fræg meist-
araverk. Okkur fannst fara vel á að
sýna þær saman á sérstökum við-
burði því eitt af markmiðum hátíð-
arinnar í ár var að velja myndir um
ungt fólk og fyrir ungt fólk eins og
báðar þessar myndir eru. Truffaut
var aldrei nein launung á að hann
hefði verið innblásinn af mynd Vigo
þegar hann gerði 400 högg, enda
eiga þær margt sameiginlegt. Báðar
fjalla um ungt fólk í vanda og frels-
ið,“ segir Renaud.
Sama er uppi á teningnum, en þó
með gjörólíkum hætti, í þremur
myndum; Swagger, Kennedysyllan
og Strákarnir að austan, sem sýndar
verða í samstarfi við frönskudeild
Háskóla Íslands í Veröld - húsi Vig-
dísar, dagana 12., 13. og 15. febrúar.
„Vonandi hópast nemendur úr fram-
halds- og háskólum til að sjá þessar
myndir, sem eru mjög athyglisverð-
ar. Sérstaklega Swagger, sem er um
margt óvenjuleg heimildarmynd um
ungt fólk, líf þess, vonir og þrár í fá-
tækustu úthverfum Parísar,“ segir
Renaud og vekur athygli á að sýn-
ingarnar í Veröld – húsi Vigdísar séu
ókeypis.
Einnig verði ókeypis á eina sýn-
ingu af þremur á La Chute De
L’Empire Américain, eða Fall
Bandaríkjaveldis í leikstjórn Denys
Arcand. Myndin er frá hinu frönsku-
mælandi Québec-ríki í Kanada og sú
eina á hátíðinni sem gerð er utan
Frakklands. „Einn aðalleikarinn,
Pierre Curzi, heimsækir Ísland í til-
efni sýningarinnar, en hún er á veg-
um Kanadíska sendiráðsins á
Íslandi.“
Pólitík í fortíð og framtíð
Renaud segir að La Chute De
L’Empire Américain, sem Arcand
gerði 1986 hafi fengið mjög góða
Fjölbreytni
á frönsku
Ádeila Pólitík Drama Tónlist
Hasar Glæpir Spenna
Sagnfræði Glens og gaman
Franska kvikmyndahátíðin 2019
Að synda eða sökkva Leikstjóri Gilles Lellouche, 2018. Gamanmynd. Átta karlar með skipbrot af öllu tagi á bak
við sig, fá trú á lífið þegar þeir æfa samhæft sund undir handleiðslu tveggja fyrrverandi afrekskvenna í íþróttinni.
Renaud
Durville
Kennedysyllan Leikstjóri Dominique Cabrera, 2016. Eftir samnefndri
skáldsögu Maylis de Kerangal. Stúdentsprófin eru fram undan hjá Suzanne,
stúlku úr góðri fjölskyldu. Hún slæst í hóp með ungu fólki úr fátækrahverf-
um Marseille sem mana hvert annað til að stinga sér til sunds fram af syllu
við veginn um Kennedyklett.
400 högg Leikstjóri François Truffaut, 1959. Dramatísk gam-
anmynd. Antoine á stormasöm unglingsár. Skemmtilegast finnst
honum að fremja óknytti. Hann lýgur að foreldrum sínum, hann
stelur og stingur af. Dag nokkurn kemur lögreglan til skjalanna.
Núll fyrir hegðun Leikstjóri Jean Vigo, 1933.
Dramatísk gamanmynd. Þrír nemendur í
heimavistarskóla uppi í sveit rísa upp og efna
til uppþots. Þetta meistaraverk Jeans Vigos var
talið hallt undir anarkisma og bannað til 1946
en er dýrlegur óður til æskunnar og frelsisins.