Morgunblaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 Meira til skiptanna Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Nítjánda Franska kvikmyndahátíðin 2019 verður haldin dagana 6. – 17. febrúar í Háskólabíói auk þess sem hún teygir anga sína til Egilsstaða og Ísafjarðar. Eins og undanfarin ár standa Franska sendiráðið á Íslandi og Alliance Française í Reykjavík að hátíðinni í samstarfi við Institut français. Sýndar verða tíu kvik- myndir, sem að sögn Renaud Dur- ville, vísinda- og menningarfulltrúa í Franska sendiráðinu, eru sannkall- aðar gæðamyndir, sem skipuleggj- endur, þar með talinn hann sjálfur, völdu af stakri kostgæfni. Opnunarmyndina, Að synda eða sökkva í leikstjórn Gilles Lellouche, ber vitaskuld hæst, gaman- mynd um átta karla í tilvistar- kreppu og kostu- lega leið þeirra til að koma sér á réttan kjöl í líf- inu. Franskir fjöl- miðlar ausa hana lofi og hún hefur þegar laðað að meira en fjórar milljónir áhorfenda. Nýjar myndir og þrjár gamlar Langflestar hátíðarmyndirnar eru frá því í fyrra og hittifyrra. Gamli tíminn liggur þó ekki óbættur hjá garði, því ein af elstu myndum kvikmyndasögunnar og tvímæla- laust elsta vísindakvikmyndin, Tunglferðin, 14 mínútna kvikmynd frá árinu 1902 í leikstjórn George Méliès, verður sýnd á Sólveigar An- spach-kvöldinu 14. febrúar. Gefum Renaud orðið: „Aðstandendur hátíðarinnar með stuðningi Reykjavíkurborgar, Kvik- myndamiðstöðvar Íslands og kvik- myndaframleiðandans Zik Zak efna núna í þriðja sinn til verðlaunahátíð- ar til að heiðra minningu Sólveigar Anspach kvikmyndaleikstjóra og hvetja ungar konur til dáða í kvik- myndaleikstjórn. Veitt verða verð- laun fyrir fyrstu stuttmynd konu á frönsku eða íslensku, tungumálun- um hennar Sólveigar,“ segir Renaud og upplýsir jafnframt að um 60 um- sóknir hafi borist frá Íslandi og víða að úr heiminum. Af þeim hefur dómnefndin með rithöfundinn Sjón í forsæti valið þrjár í keppnina og verða þær sýnd- ar áður en sigurvegarinn stígur á svið og tekur við Sólveigar Anspach- verðlaununum. Aðgangur á viðburð- inn er ókeypis. Renaud er sem lokuð bók þegar hann er spurður um nafn og þjóðerni vinningshafans. Unga fólkið og frelsið Annar viðburður á hátíðinni er Klassískt kvöld mánudaginn 11. febrúar, þar sem sýndar verða kvik- myndirnar Núll fyrir hegðun frá árinu 1933 í leikstjórn Jean Vigo og 400 högg frá 1959 í leikstjórn Fran- çois Truffaut. Sú síðarnefnda er tal- in ein af upphafsmyndum nýbylgj- unnar í franskri kvikmyndagerð. „Ég sá þessar myndir þegar ég var lítill og trúlega þekkja þær flest- ir Frakkar, enda mjög fræg meist- araverk. Okkur fannst fara vel á að sýna þær saman á sérstökum við- burði því eitt af markmiðum hátíð- arinnar í ár var að velja myndir um ungt fólk og fyrir ungt fólk eins og báðar þessar myndir eru. Truffaut var aldrei nein launung á að hann hefði verið innblásinn af mynd Vigo þegar hann gerði 400 högg, enda eiga þær margt sameiginlegt. Báðar fjalla um ungt fólk í vanda og frels- ið,“ segir Renaud. Sama er uppi á teningnum, en þó með gjörólíkum hætti, í þremur myndum; Swagger, Kennedysyllan og Strákarnir að austan, sem sýndar verða í samstarfi við frönskudeild Háskóla Íslands í Veröld - húsi Vig- dísar, dagana 12., 13. og 15. febrúar. „Vonandi hópast nemendur úr fram- halds- og háskólum til að sjá þessar myndir, sem eru mjög athyglisverð- ar. Sérstaklega Swagger, sem er um margt óvenjuleg heimildarmynd um ungt fólk, líf þess, vonir og þrár í fá- tækustu úthverfum Parísar,“ segir Renaud og vekur athygli á að sýn- ingarnar í Veröld – húsi Vigdísar séu ókeypis. Einnig verði ókeypis á eina sýn- ingu af þremur á La Chute De L’Empire Américain, eða Fall Bandaríkjaveldis í leikstjórn Denys Arcand. Myndin er frá hinu frönsku- mælandi Québec-ríki í Kanada og sú eina á hátíðinni sem gerð er utan Frakklands. „Einn aðalleikarinn, Pierre Curzi, heimsækir Ísland í til- efni sýningarinnar, en hún er á veg- um Kanadíska sendiráðsins á Íslandi.“ Pólitík í fortíð og framtíð Renaud segir að La Chute De L’Empire Américain, sem Arcand gerði 1986 hafi fengið mjög góða Fjölbreytni á frönsku  Ádeila  Pólitík  Drama  Tónlist  Hasar  Glæpir  Spenna  Sagnfræði  Glens og gaman  Franska kvikmyndahátíðin 2019 Að synda eða sökkva Leikstjóri Gilles Lellouche, 2018. Gamanmynd. Átta karlar með skipbrot af öllu tagi á bak við sig, fá trú á lífið þegar þeir æfa samhæft sund undir handleiðslu tveggja fyrrverandi afrekskvenna í íþróttinni. Renaud Durville Kennedysyllan Leikstjóri Dominique Cabrera, 2016. Eftir samnefndri skáldsögu Maylis de Kerangal. Stúdentsprófin eru fram undan hjá Suzanne, stúlku úr góðri fjölskyldu. Hún slæst í hóp með ungu fólki úr fátækrahverf- um Marseille sem mana hvert annað til að stinga sér til sunds fram af syllu við veginn um Kennedyklett. 400 högg Leikstjóri François Truffaut, 1959. Dramatísk gam- anmynd. Antoine á stormasöm unglingsár. Skemmtilegast finnst honum að fremja óknytti. Hann lýgur að foreldrum sínum, hann stelur og stingur af. Dag nokkurn kemur lögreglan til skjalanna. Núll fyrir hegðun Leikstjóri Jean Vigo, 1933. Dramatísk gamanmynd. Þrír nemendur í heimavistarskóla uppi í sveit rísa upp og efna til uppþots. Þetta meistaraverk Jeans Vigos var talið hallt undir anarkisma og bannað til 1946 en er dýrlegur óður til æskunnar og frelsisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.