Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 14

Morgunblaðið - 05.02.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2019 BUfera um Balkanskagann 14.-24. aprn Paskafero - Serbia, Maked6nia, Albania, Svartfjallaland, Bosnia-Hersegovina og Kr6atfa - Mj6g mikio innifalio 6sh6lmar Donar - Rumenia 23.-30. aprU Faria um meginala, hlioarskuroi, votn og fen - Fuglalff, gr6our og mannlff - Mikio innifalio . It . . .. ...,.,..ii!� ·-� .• " ; � . -�!!l,,S l)l. Skoaia einnig fjoU5reytt urval ol<l<ar af..-.al!� gongu- og hj6laferaum a ferdir.fjallakofinn.is Fjallakofinn /Evintyraferoir I Kringlan 7 I 103 Reykjavik I Simi 510 9500 I ferdir@fjallakofinn.is Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Aldrei hafa fleiri erlendir gestir komið hingað til lands í tengslum við Reykjavíkurleikana, RIG, en í ár. Þessi árlega íþróttahátíð var haldin í 12. sinn frá 24. janúar til 3. febrúar og fer hún vaxandi með hverju árinu, að sögn Önnu Lilju Sigurð- ardóttur, upplýsinga- og sam- skiptastjóra Íþróttabandalags Reykjavíkur. Keppendur, þjálfarar og dómarar frá útlöndum voru um 720. „Við höfum verið að tala um það undanfarin ár að erlendir gestir hafi verið á sjöunda hundrað, en nú erum við komin yfir 700 í fyrsta skipti. Þetta mót hefur fest sig vel í sessi og það ríkir mikil ánægja. Margir er- lendir gestir sögðust ætla að koma aftur og taka fleiri með sér næst,“ sagði Anna Lilja í samtali við Morg- unblaðið. Alls var keppt í 18 greinum, en auk metfjölda erlendra keppenda er talið að um 2.000 íslenskir kepp- endur taki þátt. Íþróttabandalag Reykjavíkur sér um skipulagn- inguna í samstarfi við sérsambönd ÍSÍ og íþróttafélögin í Reykjavík, en Anna Lilja segir að keppnin sé sífellt að draga að sér aukna alþjóðlega at- hygli. Það á ekki einungis við hvað keppendur varðar. „Það hefur líka verið aukinn áhugi á því að sýna frá greinum erlendis. Við höfum til dæmis verið í sam- bandi við Eurosport og skoðað möguleika á því. Að mótinu sé sýnd- ur slíkur áhugi er gríðarlegur heiður og sýnir að þetta er á réttri leið. Við erum að fá mjög jákvæð viðbrögð er- lendis frá.“ Hundruð koma að skipulagi Anna Lilja segir misjafnt hvernig ferðatilhögun er háttað hvað erlenda keppendur varðar. Margir komi á eigin vegum en öðrum, sérstaklega sterkustu keppendunum, sé ef til vill boðið og í þeim tilvikum standi sér- samböndin þá að skipulagningu. Þrátt fyrir að mótinu í ár sé nýlokið hefst skipulagning fyrir næsta ár mjög fljótlega, enda eru margar hendur sem koma að svona stórum viðburði. „Það hleypur á hundruðum karla og kvenna sem koma að þessu, það er ekki spurning. Mesta vinnan er hjá sérsamböndunum sem halda hvern viðburð fyrir sig. Þetta er há- punkturinn á árinu í mörgum grein- um og fólk leggur sig virkilega vel fram. Ég hitti marga sem voru í for- svari fyrir greinarnar og það var gríðarleg ánægja. Ég skynjaði mjög mikla jákvæðni í loftinu,“ sagði Anna Lilja. Aukinn alþjóðlegur áhugi á RIG  Aldrei hafa jafn margir erlendir gestir komið hingað til lands vegna Reykjavíkurleikanna og í ár  Margir koma á eigin vegum til að keppa  Eurosport hefur áhuga á að sýna frá greinum erlendis Morgunblaðið/Árni Sæberg Frjálsar Fremsta frjálsíþróttafólk Íslands keppti í Laugardalshöll auk um 30 erlendra keppenda frá sjö löndum. Reykjavíkurleikarnir » Haldnir í 12. sinn í ár þar sem keppt var í 18 mismunandi íþróttagreinum. » Um 720 erlendir gestir komu hingað til lands vegna mótsins. » Mikil ánægja og viðurkenn- ing hvað alþjóðlegur áhugi hef- ur aukist. » Farið að huga að keppni næsta árs mjög fljótlega þar sem hundruð koma að skipu- lagningu. Sjálfstæðisflokkurinn mun á fundi borgarstjórnar í dag leggja fram tillögu um bættan rekstur bíla- stæðahúsa í Reykjavík, en um er að ræða sjö bílastæðahús með alls 1.140 bílastæðum sem Bílastæða- sjóður rekur í miðborginni. „Einkaaðilum verði þannig falinn rekstur bílastæðahúsanna með það fyrir augum að bæta nýtingu og efla þjónustu í húsunum og jafn- framt auka tekjur borgarinnar af þeim,“ segir í tillögu Sjálfstæðis- flokksins, en tillagan gerir ráð fyrir að umhverfis- og skipulagssviði verði gert að skila tillögum að út- boðsskilmálum til skipulags- og samgönguráðs fyrir 1. ágúst nk. Fram kemur í greinargerð með tillögunni að Bílastæðasjóður myndi áfram sjá um gjaldtöku með- fram götum en láta aðra um rekst- ur bílastæðahúsanna. „Með því að útvista rekstri þessara húsa er hægt að auka þjónustu við not- endur bílastæðahúsa, ásamt því að skila meiri hagnaði til borgar- innar,“ segir í greinargerð. Þá munu sjálfstæðismenn einnig legga fram tillögu þess efnis að listaverkaeign Listasafns Reykja- víkur verði gerð sýnilegri í skólum og stofnunum borgarinnar. Er það gert í þeim tilgangi að efla áhuga fólks, einkum nemenda, á menn- ingu og listum, að því er fram kem- ur í áðurnefndri tillögu sjálfstæðis- manna. khj@mbl.is Bílastæðahús verði einkarekin Morgunblaðið/Heiddi Reykjavík Sjálfstæðismenn vilja bæta rekstur bílastæðahúsa. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Mikilvirkustu uppsprettur loft- mengunar á Íslandi eru eldgos en þau geta haft tímabundin áhrif á stórum hluta landsins. Aðrar upp- sprettur mengunar eru álver, annar iðnaður og jarðvarmavirkjanir sem hafa fremur staðbundin en viðvar- andi áhrif. Þetta kemur fram í skýrslu Sigurðar H. Magnússonar, gróðurvistfræðings hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands (ni.is). Skýrsla hans um vöktun þungmálma og brennisteins í mosa á Íslandi 1990-2015 og áhrif frá iðjuverum og eldvirkni kom út í desember 2018. Loftborin mengun á Íslandi hefur verið vöktuð frá árinu 1990 með því að mæla þungmálma í tildurmosa á fimm ára fresti. Þessi vöktun er hluti af evrópsku verkefni sem snýst um að kortleggja uppsprettur mengandi efna í andrúmslofti og fylgjast með breytingum. Mosanum hefur verið safnað víða um land og er reynt að endurtaka sýnatöku á sömu stöðum, sé það hægt. Sérstaklega hefur verið fylgst með mosa við álverin í Straumsvík, á Grundartanga og í Reyðarfirði og í litlum mæli við jarð- varmavirkjanir. Sýnatökustöðum var fjölgað 2015 en þá óskaði kísilver PCC á Bakka eftir mælingum á mosa í nágrenni versins. Kísilver United Silicon í Helguvík samþykkti einnig að taka þátt í vöktuninni og sama gerði HS Orka vegna vöktunar við virkjanir fyrirtækisins á Reykja- nesskaga. Sigurður kvaðst vona að verkefninu yrði haldið áfram og verður þá næst safnað sýnum 2020. Vöktunin hefur sýnt að helstu uppsprettur mengunar af völdum þungmálma og brennisteins eru eld- gos, áfok af lítt grónum svæðum, annar iðnaður og jarðvarmavirkj- anir. Þá berast hingað þungmálmar í fremur litlum mæli með loft- straumum frá útlöndum. Holuhraunsgosið 2014-2015 olli því að styrkur brennisteins í tild- urmosa hækkaði og komu fram skemmdir á mosanum á stórum hluta landsins. Mosi var einnig skemmdur við öll álverin og sums staðar hafði hann horfið með öllu, líklega vegna efnaálags. Sigurður nefndi að talsverð meng- un væri við iðnaðarsvæðið í Hellna- hrauni í Hafnarfirði en þar hefur mælst hlutfallslega hár styrkur margra efna. Líklega má rekja upp- runa þeirra til málmiðnaðar á svæð- inu. Einnig berast efni inn á svæðið í allmiklum mæli frá álverinu í Straumsvík. Morgunblaðið/Þórður Straumsvík Álvinnsla hófst á Íslandi 1970 í Straumsvík og nú eru hér þrjú álver. Fylgst hefur verið með áhrifum álveranna á umhverfi þeirra. Eldgosin valda mikilli mengun  Sýni tekin af mosa um allt land

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.