Morgunblaðið - 09.02.2019, Page 4

Morgunblaðið - 09.02.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019 Njóttu þess að hlakka til Ævintýraferð til Portúgal 3. til 13. maí 2019 FerðakynninghjáVITA 12. febrúar Kynningarfundur umævintýraferð til Portúgal þann 12. febrúar kl. 17:30 á skrifstofuVITA, Skógarhlíð 12. Gengið inn neðan við húsið – gegnt Bústaðavegi. Fararstjórar: Ólöf Salmon Guðmundsdóttir og Steinar Þór Guðlaugsson ÍS LE N SK A/ SI A. IS VI T 90 93 7 02 /1 9 Veður víða um heim 8.2., kl. 18.00 Reykjavík -5 léttskýjað Hólar í Dýrafirði -8 skýjað Akureyri -7 snjókoma Egilsstaðir -3 snjókoma Vatnsskarðshólar -1 heiðskírt Nuuk -8 snjókoma Þórshöfn 6 rigning Ósló 0 léttskýjað Kaupmannahöfn 4 súld Stokkhólmur 1 skýjað Helsinki 2 rigning Lúxemborg 6 skýjað Brussel 9 skýjað Dublin 8 skýjað Glasgow 8 rigning London 10 rigning París 9 alskýjað Amsterdam 9 skýjað Hamborg 8 rigning Berlín 8 skýjað Vín 7 léttskýjað Moskva 0 heiðskírt Algarve 15 léttskýjað Madríd 15 heiðskírt Barcelona 15 skýjað Mallorca 15 léttskýjað Róm 13 léttskýjað Aþena 8 súld Winnipeg -23 snjókoma Montreal 3 skúrir New York 6 rigning Chicago -13 léttskýjað Orlando 22 heiðskírt  9. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:44 17:41 ÍSAFJÖRÐUR 10:01 17:33 SIGLUFJÖRÐUR 9:45 17:16 DJÚPIVOGUR 9:16 17:07 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á sunnudag Hæg norðlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað, en skýjað nyrðra og stöku él við strönd- ina. Frostlaust allra syðst, en frost annars 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins. Norðlæg átt, 6-16 m/s, hvassast suðaustantil. Þurrt og bjart veður á Suður- og Suðvesturlandi, en annars snjókoma eða él. Hægt hlýnandi veður og hiti víða um frostmark síðdegis. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Meirihluti borgarstjórnar Reykja- víkur hafnaði því í borgarráði að fá álit Persónuverndar vegna fyrirhug- aðra aðgerða til að auka kosninga- þátttöku í sveitarstjórnarkosningun- um í fyrra. Persónuvernd hefur nú úrskurðað að- vinnsla Reykja- víkurborgar og Háskóla Íslands á persónuupplýs- ingum vegna sendingar á mis- munandi skila- boðum til ungra kjósenda braut lög. Persónuvernd segir einnig að hvatningarskilaboðin sem Reykjavíkurborg sendi ungum kjósendum hafi verið gildishlaðin, í einu tilviki röng og til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þeirra í kosning- unum. Ítrekað var óskað eftir, bæði í borgarstjórn og í borgarráði, að borgin myndi fá álit Persónuverndar á þessum aðgerðum fyrir kosning- arnar 2018. Þremur dögum fyrir kosningarnar gerði dómsmálaráðuneytið athuga- semdir við aðgerðirnar í bréfi til Reykjavíkurborgar. Í bréfi frá dóms- málaráðuneytinu, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, er borginni m.a. bent á að í einni sendingunni væri að finna „villandi upplýsingar þar sem kveðið er á um að það sé borgarleg skylda að kjósa“. Í niðurlagi bréfsins segir ráðu- neytið að það telji ekki hjá því komist að benda Reykjavíkurborg á þessi at- riði. Frestað og hafnað í borgarráði Mánuð fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar, 26. apríl 2018, lagði Kjart- an Magnússon, fyrrverandi borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fram tillögu í borgarráði um að leitað yrði eftir áliti Persónuverndar vegna fyr- irhugaðra aðgerða Reykjavíkurborg- ar til að auka kosningaþátttöku ákveðinni hópa. Meirihluti borgar- stjórnar frestaði afgreiðslu tillögunn- ar. Kjartan óskaði eftir því að tillagan yrði sett á dagskrá næsta fundar borgarráðs 3. maí en ekki var orðið við því. Tillagan var tekin upp að nýju 15. maí á borgarstjórnarfundi og vís- að þaðan aftur til borgarráðs. Á fundi borgarráðs 17. maí var aftur lögð fram tillaga um að óska eftir áliti Per- sónuverndar á fyrirhuguðum aðgerð- um borgarinnar. Sú tillaga var felld af meirihluta borgarstjórar. Sam- þykkti meirihlutinn þess í stað tillögu um að fela mannréttindastjóra borg- arinnar um að vera áfram í samráði við Persónuvernd vegna aðgerða til að auka kosningaþátttöku. Trúnaði haldið yfir bókun þangað til eftir kosningarnar Kjartan lét bóka athugasemd í fundargerð eftir samþykktina en meirihluti borgarstjórnar lét færa bókunina í trúnaðarbók. Bókunin myndi þá ekki birtast í fundargerð fyrr en eftir kosningar. „Það er ljóst að það var ekkert trúnaðarmál í þessu. Meirihlutinn vildi einhverra hluta vegna að þessi bókun birtist ekki í fundargerðinni og kvað þá upp úr um það að um væri að ræða trún- aðarmál. Sem ég mótmælti. Það heyrir til algjörra undantekninga að bókanir séu færðar inn í trúnaðar- bók. Þá er bókunin ekki birt með fundargerðinni heldur sett í trúnað- arbók og aflétt þegar sá háski er ekki lengur fyrir hendi sem talinn er vera ef hún er birt strax,“ segir Kjartan í samtali við Morgunblaðið. Hann bendir á að trúnaðarbók eigi að nota þegar um viðkvæmar persónuupp- lýsingar er að ræða, t.d. upplýsingar um bótaþega eða upplýsingar sem geta skaðað borginna fjárhagslega. „Ég gerði mínar athugasemdir þarna og meirihlutinn brást þannig við að það var mikil reiði og dónaskapur í minn garð þegar ég var að fjalla um þetta,“ segir Kjartan. Borgin sam- þykkti í febrúar að fara í aðgerðir til að auka kosningaþátttöku og var Kjartan hlynntur því. „En ég sagði að þær yrðu að vera mjög almennar. Það mætti ekki á neinn hátt vakna grunur um það að þarna væri verið að misnota fé í pólitísku skyni til að auka kosningaþátttöku einhverra ákveðinna hópa umfram aðra.“ Misvísandi upplýsingjöf Kjartan segir það algengt að stjórnmálaflokkar velji ákveðna markhópa til að reyna að fá þá á kjör- stað en varhugavert sé að flytja þetta til opinbers stjórnvalds og gera þetta fyrir opinbert fé. Hann hafi einnig ítrekað óskað eftir upplýsingum um hvers konar aðgerðir borgin ætlaði í og fengið litlar upplýsingar. „Við heyrum af því að það er verið að fara í mjög mikla greiningarvinnu. Verið að greina hópa eftir ákveðnum göt- um, ákveðnum svæðum og ákveðnum hverfum þar sem er lítil kosninga- þátttaka.“ Á þessum tíma, þegar ver- ið var að undirbúa nýju persónu- verndarlögin, segir Kjartan það hafi verið mikilvægt að hafa þau í huga því aðgerðunum yrði hrint í fram- kvæmd eftir gildistöku þeirra. „Við fengum engin svör við því hvort menn hefðu þau í huga,“ segir Kjart- an. „Þess vegna töldum við að það ætti að hafa mjög náið samband við Persónuvernd. Þegar við fréttum síð- an af því hvað átti á gera, m.a. eitt- hvað sem mér fannst vera á gráu svæði, spurði ég sérstaklega um það hvort það hefði verið haft samráð við Persónuvernd og hún búin að gefa grænt ljós. Það var fullyrt við okkur að samráð við Persónuvernd væri í góðu lagi. Svo fréttum við seinna að það væri ekki ljóst. Það voru misvís- andi svörin sem við fengum og þá spurðum við hvort það væri ekki bara hægt að sjá bréf eða álit frá Persónu- vernd. Þá var ekki hægt að sýna það.“ Hann segist hafa komist að því mánuði fyrir kosningar að ekkert bréf eða álit frá Persónuvernd lá fyr- ir. „Ég lagði fram tillögu í borgarráði um að álits Persónuverndar yrði leit- að. Þessi tillaga vakti mikla gremju hjá meirihlutanum, henni var ekki vel tekið og mér sagt að þetta samráð væri í gangi, hún væri óþörf og allt þetta en ég hélt henni til streitu. Þá brá svo við að þau samþykktu hana ekki.“ Hann segir að þegar vinnubrögðin voru gagnrýnt hafi borgarstjóri bent á starfsmenn háskólans. „Dagur var ítrekað varaður við og beðið um að þetta yrði borið undir Persónuvernd en þeir töfðu málið vísvitandi til þess að geta komið þessum sóðalegu vinnubrögðum í framkvæmd án þess að Persónuvernd kæmist í málið,“ segir Kjartan að lokum. Morgunblaðið/Eggert Ráðhúsið Persónuvernd úrskurðaði á fimmtudaginn að Reykjavíkurborg hefði brotið lög í aðdraganda kosninga. Ítrekuðum óskum um álit hafnað  Dómsmálaráðuneytið sendi Reykjavíkurborg athugasemdir vegna aðgerða til að auka kosningaþátttöku  Hafnað í borgarráði að fá álit Persónuverndar  Gildishlaðin og villandi skilaboð send kjósendum Kjartan Magnússon „Ákvörðunin snýr að einu þeirra verkefna sem allir flokkar í borgarstjórn sameinuðust um í febrúar 2018 til að auka kosningaþátttöku. Þetta voru tillögur sér- fræðingahóps sem voru unnar í býsna breiðu samráði og úrskurður persónuverndar lýtur ekki síst að rann- sóknarhluta verkefnisins. Háskóli Íslands lagði upp rannsókn; Hvort hvatning til að kjósa sem beint yrði til ungs fólks hefði áhrif og svo eins hvort mismun- andi orð um hvatningu hefðu mismunandi áhrif. Það er væntanlega orðalagið í þeim bréfum sem verið er að vísa til,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, spurður um viðbrögð við ákvörðun Persónuverndar og gagnrýni hennar á gildishlaðið orðalag sendinganna. „Ég held að við þurfum bara að fara yfir þennan úr- skurð með okkar samstarfsaðilum og meðal annars velta fyrir okkur hvort við séum að framkvæma þetta öðruvísi en gert er á öðrum Norðurlöndum. Eftir því sem ég kemst næst er fyrirmyndin sótt til Norður- landa, líka að rannsókninni. Það er eitt af því sem þarf að fara yfir,“ segir Dagur og ítrekar nauðsyn þess að hvetja fólk til að nýta kosninga- rétt sinn. „Ég vona að þessi úrskurð- ur leiði ekki til þess að sú breiða samstaða sem hefur verið um að hvetja alla til að kjósa í ljós dvínandi kosningaþátttöku hætti.“ Spurður hver séu rökin fyrir því að leita ekki eftir áliti Persónuvernd- ar fyrr segir hann slíkt hafa verið gert. „Það var leitað til Persónuverndar, meðal annars eftir ábendingu Póst- og fjarskiptastofnunar, hvort það hefði mátt gera það fyrr. Þetta er unnið þarna í kapp við tímann greinilega. Kannski er einn lærdóm- urinn að svona þurfi að ákveða með lengri fyrirvara en gert var.“ Fer yfir úrskurðinn með samstarfsaðilum DAGUR B. EGGERTSSON BORGARSTJÓRI Í REYKJAVÍK Dagur B. Eggertsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.