Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019 Suðrænsveifla í St. Tropez sp ör eh f. Vor 9 Franska rivíeran eða Côte d’Azur í Provence héraðinu tekur á móti okkur í allri sinni dýrð. Við upplifum töfrandi St. Tropez flóann sem og stórbrotna fegurð Gullstrandarinnar, Corniche de l’Estérel, á leið okkar til Cannes. Suðrænn blær frönsku rivíerunnar leikur um okkur í furstadæminu Mónakó sem ógleymanlegt er að sækja heim. Við endum með trompi í bænum Annecy sem er einn fallegasti bær frönsku Alpanna. 11. - 21. maí Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 266.200 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! rekstri veitingastofunnar, þar af eru tvær konur í föstu starfi en aðrar skipta með sér vöktum í sjálfboða- vinnu. Anna Björk segir Hrings- konur leggja mikla áherslu á að bjóða upp á ferskar og léttar veit- ingar. Þannig smyrja þær samlokur, búa til salöt, baka kökur og hafa til fleiri rétti. Einnig er fjölbreytt hand- verk Hringskvenna til sölu. Allur ágóði af sölunni rennur beint til Barnaspítalans en veitingastofan er stór liður í fjáröflun Hringsins. Um málverkin frá Eddu Heiðrúnu segir Anna Björk Hringskonur hafa beðið eftir rétta tækifærinu til að setja myndirnar upp. Það hafi þótt vel við hæfi að nýta tækifærið með opnun nýrrar veitingastofu. því tilefni. Núna eru þetta tvær milljónir á hvert ár umfram 100 ár- in,“ segir Anna Björk. Hún vonast til að gjafirnar að þessu sinni komi að góðum notum. Þannig hafi verið kominn tími á end- urnýjun á hitakössum og -borðum á vökudeildinni, eftir mikla notkun. „Það er síðan sérstök ánægja að láta til okkar taka varðandi úrlausn á vímuefnavanda barna og unglinga með því að styrkja nýju meðferð- ardeildina. Við látum okkur varða um hag allra barna. Börnin okkar eru börn alveg til 18 ára aldurs. Það skiptir okkur miklu máli að geta lagt þessari nýju deild lið,“ segir Anna Björk. Á þriðja tug kvenna kemur að Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Kvenfélagið Hringurinn gaf Land- spítalanum (LSH) gjöf í gær að and- virði 30 milljónir króna í tilefni af 115 ára afmæli félagsins. Við sama tæki- færi var endurbætt veitingastofa Hringskvenna á Barnaspítala Hringsins vígð. Sett voru upp tvö málverk sem Hringskonur fengu að gjöf frá Eddu Heiðrúnu Backman, leikkonu, listmálara og söngvara sem lést árið 2016. Gjöf Hringsins skiptist í tvennt, 20 milljónir fara til vökudeildar Barna- spítalans, til endurnýjunar á hita- kössum og hitaborðum, og 10 millj- ónir fara til nýrrar meðferðardeildar á geðsviði Landspítalans fyrir ung- menni í vímuefnavanda. Þar verður gjöfin nýtt til kaupa á innréttingum á deildina, húsgögn og rúm. Gjöf í tilefni 115 ára afmælis „Við ákváðum að gera gagngerar endurbætur á kaffistofunni, skapa meiri kaffihúsastemningu þannig að það væri vel um viðskiptavini okkar; starfsmenn, sjúklinga og aðstand- endur þeirra,“ segir Anna Björk Eð- varðsdóttir, formaður Hringsins, í samtali við Morgunblaðið. Hringskonur fengu innréttingar að gjöf frá Húsgagnahöllinni og Arn- ar Gauti Sverrisson aðstoðaði við að stílfæra kaffistofuna. „Hringurinn átti 115 ára afmæli 27. janúar síðastliðinn og það hefur skapast hefð fyrir peningagjöfum af Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hringskonur Veitingastofa Hringsins hefur tekið nokkrum stakkaskiptum. Húsgagnahöllin gaf öll húsgögnin. Hringskonur gáfu 30 milljónir til LSH  Endurbætt veitingastofa vígð á Barnaspítalanum í gær Barnaspítalinn Anna Björk, lengst til hægri, ásamt fleiri Hringskonum. Í bakgrunni er annað málverkanna sem Edda Heiðrún Backman gaf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Síldarvinnslan hf. hefur ákveðið að hætta starfsemi fiskimjölsverk- smiðju fyrirtækisins í Helguvík. Lokun verksmiðjunnar hefur í för með sér uppsögn sex starfsmanna en að auki hefur hún áhrif á ýmis verktaka- og þjónustufyrirtæki. Stendur ekki undir sér „Ástæða lokunarinnar er einfald- lega sú að rekstur verksmiðjunnar stendur ekki undir sér. Helsta ástæðan er síminnkandi hráefni til fiskimjölsverksmiðja, hækkandi kostnaður og auknar kröfur sem kalla á öflugar einingar og aukna hagræðingu. Uppistaða þess hráefnis sem borist hefur til verksmiðjunnar í Helguvík er loðna og hefur nýting verksmiðjunnar farið síminnkandi undanfarin ár. Óvissa um rekstur- inn hefur farið vaxandi vegna minnkandi loðnukvóta og mikillar óvissu um loðnuveiðar,“ segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að gera megi ráð fyrir frekari samdrætti í fiskimjölsiðn- aði. hér á landi. Nú séu starfræktar 11 fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi. Í Danmörku séu þær til dæmis þrjár og taki á móti 800 þúsund tonnum á ári til vinnslu. Starfrækt frá 1997 Verksmiðjan hefur verið starf- rækt frá árinu 1997 og verður mót- töku hráefnis hætt að lokinni loðnuvertíð í vetur, en reyndar er óvissa um hvort af henni verður. Áformin um lokun verksmiðjunnar voru kynnt starfsfólki á fimmtudag og hafa einnig verið kynnt fulltrú- um Reykjanesbæjar og öðrum hlutaðeigandi. Síldarvinnslan vonast til að önn- ur uppbygging á Suðurnesjum komi í veg fyrir að lokun verk- smiðjunnar hafi þar alvarleg áhrif. Hafist verður handa við að ganga frá verksmiðjunni og svæðinu í Helguvík í samráði við hlutaðeig- andi yfirvöld. Unnið verður að því að koma búnaði og fasteignum í sölu og notkun. Sex manns missa vinnu í Helguvík  SVN lokar fiskimjölsverksmiðjunni Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Óþolinmæðin færist í aukana meðal fulltrúa þeirra 16 félaga í Starfsgreinasambandinu (SGS) sem enn hafa ekki vísað yfirstandandi kjaradeilu við SA til ríkissáttasemjara. Fram kom á fundi samninganefndar SGS sl. fimmtu- dag, þar sem farið var yfir stöðuna í kjara- viðræðunum, að margir forystumenn eru þeirrar skoðunar að íhuga verði alvarlega næsta fimmtudag, þegar nefndin kemur aftur saman til fundar, að vísa deilunni í sáttameð- ferð, hafi ekki náðst marktækur árangur í við- ræðunum fyrir þann tíma, skv. heimildum. Ekki eru þó allir þeirrar skoðunar og vilja bíða eitthvað lengur með þá ákvörðun. Þétti raðirnar og myndi blokk SGS, iðnaðarmannafélögin og Landssam- band íslenskra verslunarmanna hafa verið í góðu sambandi í kjaraviðræðunum við SA og hefur nú m.a. komið til tals að skynsamlegt sé að þétta þær raðir og mynda blokk þannig að þessi félög yrðu öll samferða þegar og ef ákveðið yrði að vísa til Ríkissáttasemjara. Samhliða kjaraviðræðunum eiga sér stað þessa dagana óformleg samtöl við stjórnvöld bak við tjöldin um aðkomu þeirra að gerð kjarasamninga. M.a. eru fundir í gangi í fá- mennum hópi sem forseti ASÍ, formaður BSRB og framkvæmdastjóri SA mynda með fulltrúum stjórnvalda. Skv. upplýsingum blaðsins er nú búist við því innan launþegahreyfingarinnar að útspils ríkisstjórnarinnar megi vænta mánudaginn 18. febrúar og þá komi a.m.k. að einhverju leyti í ljós hvað stjórnvöld eru reiðubúin að gera til að greiða fyrir lausn á vinnumarkaði. Ágreiningur hefur verið um hversu miklum tíma hefur verið varið í viðræður við SA um breytingar á vinnutíma. Forsvarsmenn iðnað- armanna gagnrýna þær fullyrðingar sem sett- ar hafa verið fram í umræðunni og vísa því á bug að verið sé að semja um niðurfellingu á kaffihléum á útsölu. ,,Við sem erum við samn- ingaborðið könnumst ekki við slíkt,“ segir í pistli á vef Samiðnar í gær. Ef kaffitímar eru felldir niður verði ávinningnum skipt milli starfsmanna og atvinnurekenda. Þá sé alls ekki verið að semja um að lækka yfirvinnuálag 80% í 66%. „Það eru þrír áratugir síðan kjara- samningum var breytt og hætt að miða við 80% yfirvinnuálag en í staðinn samið um hlutfall af mánaðarlaunum. Engin umræða hefur farið fram um að breyta þessu hlutfalli,“ segir þar. Sýna stjórnvöld á spilin 18. febrúar?  Háværar raddir í SGS um að ákveða á fimmtudag að vísa kjaradeilunni til Ríkissáttasemjara hafi ekki náðst árangur  Samiðn vísar á bug að rætt sé um að lækka yfirvinnuálag og selja kaffihlé á útsölu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.