Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
VELKOMIN Í
URÐARAPÓTEK
Audi Q7 e-tron er umhverfismildur
tengiltvinnbíll sem sameinar krafta
dísilvélar og rafmagnsmótors með
drægni allt að 56 km. (skv. NEDC).
Verð frá 10.990.000 kr.
Audi Q7 e-tron quattro
Rafmagnaður
Eigum nokkra Audi Q7 e-tron quattro
hlaðna aukahlutum á einstöku tilboðsverði.
Til afhendinga
r strax!
Morgunblaðið/Hari
Hugsjónakona Laura kann vel við snjóinn og fólkið á Íslandinu kalda.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við þurfum að láta unglings-stelpur finna að þær skiptimáli, það þarf að segjaþeim það. Og við þurfum
að hlusta á þær. Þessar stelpur sem
ég hef spjallað við búa yfir mikilli
visku,“ segir Laura Peña sem stödd
er á Íslandi á ferð sinni um heiminn,
en hún tók sér árs leyfi frá starfi sínu
í Bandaríkjunum sem kvikmynda-
gerðarkona og kvikari (animator), til
að sinna verkefni sínu „She is the
Universe“.
„Verkefnið gengur út á að ég
tek upp myndbönd þar sem 111 ung-
lingsstúlkur um víða veröld, flestar á
aldrinum 13-19 ára, segja frá sjálfum
sér. Ég spyr þær um ástríður þeirra,
framtíðardrauma og áhugamál og
hvað þær telji að geti staðið í veg
fyrir að þær láti drauma sína rætast.
Hvað þær séu hræddar við og hvern-
ig þær sjá sjálfar sig og hvernig aðr-
ir skilgreina þær. Margar þeirra tala
til dæmis um að fólk hafi ekki trú á
þeim. Ég spyr þær hvað við hin get-
um gert til að þær nái markmiðum
sínum í lífinu. Ég vonast til að þetta
verkefni varpi ljósi á hvað stúlkur
þurfi til að þeim séu allir vegir fær-
ir,“ segir Laura og bætir við að hún
vilji hafa einstaklingana í hópi þess-
ara 111 stelpna sem fjölbreyttasta.
„Þær eru með ólíkan bakgrunn,
ólík áhugamál og alast upp í ólíkum
samfélögum. Þetta eru allskonar
stelpur sem munu taka við af okkur,
þær eru mæður framtíðar og stjórn-
endur framtíðar. Ég spjalla við þær
Veröld vantar fleiri
konur í áhrifastöður
Hún hefur áhyggjur af því að leiðtogar heimsins í dag stíi okkur í sundur í stað þess
að sameina. Og eyðileggi jörðina. Hún vill hvetja ungar konur til dáða og fór því af
stað með verkefnið „She is the Universe“, þar sem 111 unglingsstúlkur frá 6 heims-
álfum segja sögu sína. Laura Peña er hugsjónakona sem lagði upp í leiðangur í
sumar og er nú stödd á Íslandi til að filma sögur íslenskra unglingsstúlkna.
Í íslenskri fjöru Laura með mæðgunum Írisi Dröfn Björnsdóttur og
Rebekku Íri Jónsdóttur, en Rebekka segir sögu sína í verkefni Lauru.
Aðalsteinn Ásberg og Svavar Knútur
ætla að flytja dagskrá um Reykja-
víkurskáldið Tómas Guðmundsson í
Hannesarholti í Reykjavík, á morg-
un, sunnudaginn 10. febrúar, kl. 16.
Þeir munu endurtaka leikinn 24.
mars kl. 16.
Dagskráin verður í tónum, máli og
myndum, en Tómas Guðmundsson
er án efa eitt allra vinsælasta ljóð-
skáld Íslendinga. Í tilkynningu kem-
ur fram að fegurð, kímni og róm-
antík muni svífa yfir vötnum í
líflegri dagskrá þar sem þeir félagar
ætla að segja frá lífi og ljóðum
Tómasar og flytja ástsæl sönglög
sem samin hafa verið við ljóð hans.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
hefur sent frá sér fjölda verka fyrir
börn og fullorðna og hefur átt gjöf-
ult samstarf við marga tónlist-
armenn gegnum árin. Svavar Knútur
hefur sent frá sér margar hljóm-
plötur og hefur á undanförnum
misserum komið fram á fjölda tón-
leika hérlendis og erlendis. Saman
eiga þeir félagar heiðurinn af vin-
sælli dagskrá um Stein Steinar sem
þeir hafa flutt í grunnskólum um
land allt. Miðasala fer fram á tix.is
Svavar Knútur og Aðalsteinn Ásberg í Hannesarholti
Góður félagsskapur Aðalsteinn Ásberg og Svavar Knútur á góðri stundu með
Tómasi Guðmundssyni, en reyndar er þetta aðeins stytta af skáldinu.
Segja frá lífi og ljóðum Tómasar
og flytja ástsæl sönglög
Þinn Falstaff! heitir nemendaópera
Söngskólans í Reykjavík sem sýnd
verður í Iðnó í Reykjavík á morgun,
sunnudag, kl. 16 og 20. Þinn Falstaff!
er óperuflækja um ástir, örlög og
brostnar vonir með senum úr hinum
ýmsu óperum. Sögusviðið er í miðbæ
Reykjavíkur. Á kaffihúsinu Kaffi Lola,
hefur hópur áhugamanna um sveiflu
millistríðsáranna hreiðrað um sig.
Þau setja svip á bæinn, þar sem þau
bæði klæða sig og dansa Lindy Hop í
anda stríðsáranna. Í einsöngshlut-
verkum eru 9 af nemendum fram-
halds- og háskóladeilda Söngskólans
í Reykjavík, og dansarar frá Sveiflu-
stöðinni dansa og Sinfóníuhljómsveit
leikur undir. Sibylle Köll leikstýrir,
Hrönn Þráinsdóttir er tónlistarstjóri
og stjórnandi er Garðar Cortes.
Nemendaópera Söngskólans í Reykjavík
Ástir, örlög og brostnar vonir
Fjör Söngur og dans á Kaffi Lola.