Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 13
og segi þeim frá ástæðunni fyrir því að ég er að gera þetta verkefni, sem er meðal annars sú að ég tel að heim- inn vanti fleiri konur í áhrifastöður. Af því að margir af leiðtogum heims- ins í dag eru ekki að gera það sem er gott, heldur virkilega eyðileggjandi, til dæmis fyrir jörðina okkar. Og þeir stía okkur í sundur í stað þess að sameina. Ég segi stelpunum að ég trúi því að konur geti breytt veröld- inni.“ Sést á íslenskum konum að þeim eru allir vegir færir Laura er fædd og uppalin í Dóminíska lýðveldinu en flutti þaðan til Bandaríkjanna þegar hún var 25 ára og hefur búið þar undanfarin 14 ár. „Ég hef aldrei áður komið til Ís- lands en ástæðan fyrir því að ég vildi láta íslenskar unglingsstelpur tjá sig í þessu verkefni er sú að hér var fyrsti kvenkyns forseti heims kosinn í lýðræðislegri kosningu. Ég velti fyrir mér hvernig það væri fyrir stúlkur að alast upp í landi þar sem þær vita að þetta er möguleiki fyrir þær, að verða forseti. Ég lít á Vigdísi ykkar Finnbogadóttur sem afar sterka fyrirmynd sem skiptir miklu máli fyrir stúlkur. Eftir að ég kom hingað komst ég að því að núverandi forsætisráðherra væri ung kona, og að áður hefði samkynhneigð kona gegnt því starfi. Ég hef komið til margra landa þar sem jafnréttismál eru ekki komin svona langt og það er ólíkt umhverfi fyrir stúlkur að alast upp í. Ég sé það meira að segja á því hvernig íslenskar konur bera sig, þær eru fullar af sjálfstrausti og það sést á þeim að þeim eru allir vegir færir. Þetta sýnir hvað fyrirmynd- irnar skipta miklu máli og hvaða raunveruleika stúlkur alast upp í. Í heimalandi mínu, Dóminíska lýð- veldinu er það afar fjarlægur mögu- leiki fyrir ungar stúlkur að þær eða aðrar konur geti verið forsetar. Það er meira eins og draumur.“ Þungun unglingsstúlkna Laura fór af stað með verkefnið í júní en hún er með sextán lönd á lista yfir þau sem hún mun heim- sækja og fá stelpur til að tjá sig. „Ég byrjaði í Bandaríkjunum, fór svo til Dóminíska lýðveldisins, þaðan til Kólumbíu og nú er ég hér á Íslandi. Framundan er Bretland, Danmörk, Frakkland og Spánn, en síðan fer ég til Afríku, Asíu og Ástr- alíu,“ segir Laura og bætir við að hugmyndin hafi kviknað þegar hún fyrir nokkrum árum tók þátt í verk- efni fyrir unglingsstelpur í Dómin- íska lýðveldinu. „Ég kenndi þeim að segja sögur í gegnum teiknimyndir og sögurnar þeirra voru svo kraftmiklar. Þegar ég spurði eina þeirra sem var 14 ára, hvað hefði mest áhrif á stelpur á hennar aldri í samfélaginu, svaraði hún að það væri sú staðreynd að 80 prósent vinkvenna hennar væru barnshafandi. Þarna er þetta norm- ið, hversdagslegt. Vændi er líka stór hluti af raunveruleika þessara ungu stúlkna. Mig langaði virkilega mikið til að gera eitthvað til að styrkja stelpur í heiminum, efla þær til að verða sjálfstæðar og berjast fyrir sínu.“ Laura segist í framhaldinu hafa velt fyrir sér hvað samstaða kvenna og tengsl skipta miklu máli, það sem á ensku kallast „sisterhood“. „Ég spurði sjálfa mig að því hvað ég gæti lagt af mörkum. Sem starfandi kvikmyndagerðarkona og hafandi mikinn áhuga á því að ferðast, ákvað ég að fá stelpur frá ólíkustu heimshornum til að segja sögur sínar, taka það upp og gera að- gengilegt á myndböndum á vefnum. Til að efla þær til dáða. Svo ég lagði bara af stað.“ Þekkti Ingunni ekkert en fær að gista hjá henni og borða Laura tekur fram að hún gæti þetta aldrei án alls þess stuðnings sem hún nýtur úr tengslaneti sínu. „Ég fæ til dæmis að gista og borða hér hjá Ingunni Snædal, konu sem ég þekkti ekkert en vinkona mín þekkti. Margir vinir aðstoða mig við þetta verkefni og ég lít á þennan hóp sem samfélag,“ segir Laura sem fékk þrjár íslenskar stúlkur til að segja frá lífi sínu fyrir „She is the Universe“ verkefnið. Þetta eru þær Lára Snædal Boyce, Rebekka Ír Jónsdóttir og Brónagh Rán Katr- ínardóttir O’Reilly. Laura hefur þegar sett mörg myndbönd á heimasíðuna og nýtt kemur þar inn eins hratt og henni vinnst efnið. Hægt er að skoða þau myndbönd sem þegar eru komin á heimasíðunni: sheistheuniverse.org og einnig á YouTube. Tónlist Aubrienne Davis frá Bandaríkjunum í myndatöku hjá Lauru. Gaman Lára Snædal Boyce tók fúslega þátt í verkefni nöfnu sinnar Lauru.Flottar Brot af þeim stelpum sem segja sögu sína í She is the Universe. Lára og Rebekka eru þar á meðal. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019 FIMMTUDAGINN 14. FEBRÚAR KL. 8.30-12.00 Í HÖRPU NORÐURLJÓSUM MENNTADAGUR ATVINNULÍFSINS 2019 Vinsamlegast skráið þátttöku á vef SA: www.sa.is 8.30 Velkomin. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnnulífsins Ávarp. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands Læsi til framtíðar – staða, ástæður og möguleikar. Hermundur Sigmundsson, prófessor við Háskólann í Þrándheimi í Noregi og HR STIKLAÐ Á STÓRU Að skilja nútímann. Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi og hugbúnaðarverkfræðingur Fjármálalæsi. Ómar Örn Magnússon, kennari og verkefnastjóri við Hagaskóla Menningarlæsi: Ætlarðu í alvörunni að kyssa mig þrisvar? Margrét Lára Friðriksdóttir, mannauðsstjóri Össurar MENNTAVERÐLAUN ATVINNULÍFSINS 2019 Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra afhendir verðlaunin 10.00 Kaffi og meðlæti. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi 10.30 Málstofur: A) Kennslustofa 21. aldarinnar. B) Staða stráka í lífi og starfi Fundarstjóri: Signý Sif Sigurðardóttir, forstöðumaður fjárstýringar hjá Landsvirkjun –

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.