Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Pappelina gólfmotta
Verð frá 6.900 kr.
Led húsnúmer
Falleg húsnúmer í öllum stærðum og gerðum
· Sérsmíðum númer á öll hús og fjölbýli
Best er að panta í gegnum facebooksíðuna okkar: ledhúsnúmer
Einnig hægt að hringa í sími 775 6080
· Ledlýsing sem endist og eyðir litlu rafmagni
· Hægt að fá í lituðu áli eða ryðfríu stáli
· Verið velkomin á facebooksíðu okkar: Led húsnúmer
ÚR BÆJARLÍFINU
Sigurður Ægisson
Siglufjörður
Í lok árs 2018 voru alls 45 án at-
vinnu í Fjallabyggð, 32 karlar og 13
konur. Þetta má lesa úr gögnum frá
Vinnumálastofnun. Íbúum fækkaði
um sjö eða um 0,3% á síðasta ári,
voru 2.004 hinn 1. desember síðast-
liðinn. Það sem af er árinu hefur
fjölgað og stóð talan 3. janúar í
2.008.
Sólberg ÓF 1 varð aflahæst ís-
lenskra frystiskipa á síðasta ári. Afli
varð 12.450 tonn af óslægðum fiski í
alls tólf löndunum og aflaverðmætið
um 3.800 milljónir króna.
Átján útskriftarnemar úr
Listaháskóla Íslands dvöldu í Siglu-
firði í byrjun árs á vegum Alþýðu-
hússins. Unnu þeir að fjölbreyttum
verkefnum undir handleiðslu Að-
alheiðar S. Eysteinsdóttur og
Sindra Leifssonar ásamt því að
kynnast heimamönnum og menning-
arstarfsemi í gamla síldarbænum og
annars staðar á Eyjafjarðarsvæð-
inu.
Tvíhliða samskipti Íslands og
Finnlands, málefni norðurslóða,
Norðurlandasamstarfið, Evrópumál
og öryggis- og varnarmál voru á
meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra
og Timo Soini, utanríkisráðherra
Finnlands, á fundi þeirra 14. janúar
sem fram fór á Síldarminjasafninu.
Soini, sem var staddur hér á landi í
vinnuheimsókn, kynnti sér jafn-
framt atvinnulíf og starfsemi fyr-
irtækja á Tröllaskaga.
Uppbyggingarsjóður Norður-
lands eystra styrkir rekstur Ljóða-
seturs Íslands um 1.200.000 kr. á
árinu. Það er töluvert hærri fjárhæð
en sveitarfélagið leggur af mörkum
þangað, sem er einungis 150.000 kr.
Samningur hefur verið gerður
við Tröppu ráðgjöf ehf. um sér-
fræðiráðgjöf við Grunnskóla Fjalla-
byggðar. Unnið verður eftir sýn um
framúrskarandi skóla þar sem gert
er ráð fyrir að ná árangri umfram
væntingar. Áhersla verður lögð á
fjölbreytta kennsluhætti.
Um 40 iðkendur Skíðafélags
Siglufjarðar, Skíðaborgar, (SSS) og
aðstandendur þeirra héldu í æf-
ingaferð til Neukirchen í Zell am
See í vesturhluta Austurríkis í jan-
úar og dvöldu þar í tæpan hálfan
mánuð.
JE vélaverkstæði á Siglufirði
færði nýverið málmiðnaðarbraut
VMA að gjöf plasma-skurðarvél.
Það er ómetanlegt fyrir skólann að
fá slíkan stuðning fyrirtækis í grein-
inni, sagði Hörður Óskarsson,
brautarstjóri málmiðngreina í VMA
í þakkarávarpi og undir það tóku
aðrir kennarar við málmiðn-
aðarbraut VMA.
Unglingahljómsveitin Ronja
og ræningjarnir, fulltrúi fé-
lagsmiðstöðvarinnar Neon í Fjalla-
byggð, var á meðal þeirra sem kom-
ust í úrslit NorðurOrg í lok janúar
og fer því í lokakeppni Samfés sem
haldin verður í Laugardagshöll
seinnipartinn í mars.
Alls eru 39 komur ellefu far-
þegaskipa áætlaðar til Siglufjarðar á
þessu ári, frá og með 14. maí til 20.
september. Með þeim koma 7.925
farþegar. Er það sami fjöldi skipa og
á síðasta ári en töluverð fjölgun far-
þega þar sem fleiri stærri skip eru
áætluð í ár en í fyrra. Skipakomur
eru þó færri í ár en á síðasta ári en
þá voru þær 42. Fyrsta farþegaskip
ársins, Ocean Diamond, kemur 14.
maí.
Salthúsið er að taka á sig end-
anlega mynd. Innan skamms verður
gert hlé á framkvæmdunum sem
staðið hafa undanfarið og haldið
áfram í haust. Á neðri hæð hússins
hafa allir milliveggir verið settir
upp, búið er að leggja rafmagn og
einangra alla útveggi og stefnt er að
því að taka varðveislurými á efri
hæð þess í notkun um mitt ár. Unnið
er að hönnun sýningar þar. „Vet-
urinn í síldarbænum“ er vinnuheiti
hennar.
Listaháskólanemar kynntu
sér gamla síldarbæinn
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Siglufjörður Nú ríkir sannkallaður vetur á Siglufirði, gamla síldarbænum
nyrst á Tröllaskaga sem skartar þessa dagana fannhvítum vetrarbúningi.
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Enn hefur ekki mælst það mikið af
loðnu að gefinn verði út upphafskvóti
á vertíðinni. Fiskifræðingar og full-
trúar útgerða uppsjávarfyrirtækja
ræddu málin á fundum í gær þar sem
farið var yfir stöðuna, framhald leitar
og ýmsar sviðsmyndir ræddar um
göngu loðnunnar.
Leitað frá áramótum
Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri
uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofn-
unar, segir að rannsóknaskipið Árni
Friðriksson haldi loðnhuleit áfram
eftir helgi, en skipið var inni á Eski-
firði í gær. Polar Amaroq er vænt-
anlegt til hafnar í dag, eftir að hafa
leitað loðnu fyrir Norðurlandi og
Austfjörðum síðustu daga. Eitt veiði-
skipanna verður einnig við leit í næstu
viku í samstarfi Hafrannsóknastofn-
unar og útgerða uppsjávarskipa.
Loðnuleit hefur meira og minna
staðið yfir síðan 4. janúar, en nokkrar
frátafir hafa orðið vegna brælu.
Bergmálsmælingar á stærð veiði-
stofns loðnu, þ.e. kynþroska loðnu
sem hrygnir í vor, fóru fram á Árna
Friðrikssyni og veiðiskipunum Aðal-
steini Jónssyni SU og Berki NK 4.-
15. janúar. Í þeim leiðangri mældust
um 214 þúsund tonn af kynþroska
loðnu „og er ljóst að magnið sem
mældist er undir því sem þarf til að
mælt verði með loðnuveiðum á yfir-
standandi vertíð,“ sagði í frétt frá
Hafrannsóknastofnun.
Þorsteinn segir að ekki sé endan-
lega búið að reikna út niðurstöður úr
úthaldi Árna Friðrikssonar og Polar
Amaroq síðustu daga. Svo virðist þó
sem eitthvað hafi bæst í gönguna og
þá einkum úti fyrir sunnanverðum
Austfjörðum. Það sé þó ekki nóg til að
taka ákvörðun um upphafskvóta.
Norður af Horni sást einnig loðna og
er fullorðin loðna farin að skilja sig
frá ungloðnu sem er þar vestan við.
Hver dagur dýrmætur
Sá árgangur sem hrygnir í vor hef-
ur aldrei mælst sterkur, en Þorsteinn
segir að von manna sé sú „að góð
gusa komi að norðan“ og inn á svæðið
fyrir norðan land. Hver dagur er dýr-
mætur ef einhver loðnuvertíð á að
verða í vetur því loðnan hrygnir yf-
irleitt í lok mars og drepst síðan. Síð-
asta vor var undantekning því þá
veiddist loðna fyrir norðan land fram
undir miðjan mars og töluvert af
loðnu er talið hafa hrygnt þar.
Loðnuveiðar skipta þjóðarbúið
miklu máli og má áætla að 100 þús-
und tonn geti skilað hátt í 10 millj-
örðum króna í útflutningsverðmæti. Í
sjávarplássum frá Vopnafirði suður
og vestur um til Reykjaness hafa
fyrstu mánuðir ársins gjarnan verið
merktir loðnunni. Nú ríkir óvissa.
Góðar markaðsaðstæður
Aðstæður á mörkuðum eru sagðar
góðar um þessar mundir og útflytj-
andi sem rætt var við í vikunni sagði
að það yrði áfall ef árseyða kæmi í
veiðar, vinnslu og útflutning. Tíma
gæti tekið að vinna markaðinn upp að
nýju.
Öll nótt er þó ekki úti enn og bent
hefur verið á að talsvert var liðið á
febrúarmánuð 2017 þegar hressilega
var bætt í kvótann. Sömuleiðis var
bætt í kvótann í byrjun febrúar í
fyrravetur. Þá veiddu íslensk skip um
186 þúsund tonn og tíu þúsund tonn-
um meira veturinn 2017. Til viðbótar
kvóta íslenskra skipa fengu Færey-
ingar, Grænlendingar og Norðmenn
aflaheimildir samkvæmt samningum
þjóðanna. Nú eru ekki í gildi samn-
ingar við Færeyinga um gagnkvæm-
ar veiðiheimildir.
Enn ríkir óvissa um loðnuvertíð
Loðnuleit haldið áfram eftir helgi Von manna „að góð gusa komi að norðan“ Skiptir þjóðarbúið
miklu máli 100 þúsund tonn af loðnu gætu skilað hátt í 10 milljörðum króna í útflutningsverðmæti
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Enginn kvóti Hoffellið frá Fáskrúðsfirði á loðnuveiðum fyrir tveimur árum,
en skipið leitar nú fyrir sér á kolmunnaslóð vestur af Írlandi.