Morgunblaðið - 09.02.2019, Page 16
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tekjur sveitarfélaga af staðgreiddu
útsvari voru 195 milljarðar króna í
fyrra og jukust um 9,5% milli ára.
Þær voru til samanburðar 161 millj-
arður 2016 og 178 milljarðar 2017.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
Sambands íslenskra sveitarfélaga
um staðgreiðslu
útsvars árið 2018.
Útsvarið er lagt á
tekjur ein-
staklinga, þó ekki
á fjármagns-
tekjur. Það hefur
skilað stigvax-
andi tekjum á
síðustu árum.
Þannig skilaði
staðgreiðslan
sveitarfélögunum tæpum 134 millj-
örðum 2014 en um 195 milljörðum í
fyrra. Það er aukning um 61 milljarð
sem er 46% aukning á nafnvirði.
Til samanburðar hækkaði vísitala
neysluverðs um 8% milli ára 2014 og
2018. Er þá reiknað með meðaltali
vísitölunnar bæði árin. Samkvæmt
þessu hækkaði útsvarið um tæp 38%
að raunvirði 2014 til 2018.
Fylgir hækkandi launum
Sigurður Á. Snævarr, sviðsstjóri
hag- og upplýsingasviðs hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga, segir
aukninguna hjá sveitarfélögunum
milli ára 2017 og 2018 vera í takt við
hækkandi laun í landinu.
Reykjavík hefur sem fyrr mestar
tekjur af útsvari. Staðgreiðslan
færði borginni 72,3 milljarða í fyrra
sem er 8,4% aukning milli ára. Næst
kemur Kópavogur en þar voru út-
svarstekjurnar 21,4 milljarðar sem
var 9,4% meira en árið áður. Hafn-
arfjörður var í þriðja sæti með 16,3
milljarða, sem var 8,7% aukning, og
Reykjanesbær í fjórða sæti með 9,9
milljarða, sem er 18% aukning.
Hefur Reykjanesbær þar með haft
sætaskipti við Garðabæ í þessu efni.
Þá hefur Garðabær farið fram úr
Akureyri sem er nú í sjötta sæti.
Má geta þess að Akureyri var í
fjórða sæti listans fyrir ári, á eftir
Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík.
Fór fram úr Akureyri
Varð það að umfjöllunarefni í vik-
unni að íbúar í Reykjanesbæ voru
orðnir fleiri en íbúar Akureyrar, eða
rétt tæplega 19 þúsund. Til saman-
burðar bjó 14.091 íbúi í Reykja-
nesbæ árið 2010 en 17.573 á Akur-
eyri, sem var þá töluvert stærri
bær.
Þessar breytingar endurspegla
meðal annars mikla íbúafjölgun í
Reykjanesbæ og Garðabæ og stór-
auknar tekjur af ferðaþjónustu suð-
ur með sjó. Hægt hefur á vexti
ferðaþjónustunnar. Það ásamt
mikilli uppbyggingu í Garðabæ er
líklegt til að hafa þær afleiðingar að
Garðabær fari aftur í fjórða sætið í
ár. Á þessu ári verður til dæmis flutt
í fjölda íbúða í Urriðaholti og fær
bærinn með því fleiri útsvars-
greiðendur.
Árborg er meðal hástökkvara í
þessu efni. Útsvarstekjurnar fóru úr
4,1 milljarði 2017 í 4,6 milljarða í
fyrra og jukust um 13%. Aðflutn-
ingur fólks frá höfuðborgarsvæðinu
á vafalítið þátt í þessari þróun.
Sömu sögu er að segja af Akra-
nesi. Þar fóru útsvarstekjurnar úr
3,6 milljörðum í 4 milljarða, sem er
11,4% aukning.
Útsvarstekjur sveiflast í takt við
atvinnuástand og launaþróun. Þá
hefur íbúafjöldinn töluverð áhrif.
Hlutfallslega mikil aukning
Sigurður segir aðspurður það
vera hlutfallslega mikla aukningu að
útsvarstekjur sveitarfélaga í heild
skuli hafa aukist um 46% frá 2014.
Sú þróun vitni um efnahagsbatann.
„Þetta er fyrst og fremst breyting
í undirliggjandi tekjum milli ára.
Álagningarhlutfallið hefur lítið
breyst,“ segir Sigurður.
Sigurður segir að lokum að rétt sé
að benda á að hér sé um bráða-
birgðatölur um staðgreiðsluna að
ræða og eins að hluti útsvars inn-
heimtist utan staðgreiðslu í endan-
legri álagningu sem liggur fyrir í
haust. Þannig námu tekjur Reykja-
víkurborgar af útsvari árið 2017 alls
68,7 milljörðum króna, en tekjur af
staðgreiddu útsvari 66,7 milljörðum
króna.
Útsvarstekjurnar á hraðri uppleið
Sveitarfélög höfðu 195 milljarða í tekjur af staðgreiddu útsvari í fyrra 9,5% aukning frá 2017
Tekjurnar jukust um 18% í Reykjanesbæ og er sveitarfélagið nú komið í fjórða sæti tekjulistans
Greidd staðgreiðsla til sveitarfélaga 2014-2018
Upphæðir eru í milljónum króna
■ 2014 2015 2016 2017 2018
Breyting
frá 2014
Breyting
frá 2017
Skagafjörður 1.515 1.577 1.760 1.850 2.006 32,5% 8,5%
Ísafjörður 1.485 1.577 1.710 1.817 1.983 33,5% 9,1%
Borgarbyggð 1.170 1.310 1.459 1.654 1.819 55,5% 10,0%
Akranes 2.777 2.977 3.306 3.623 4.037 45,4% 11,4%
■ 2014 2015 2016 2017 2018
Breyting
frá 2014
Breyting
frá 2017
Reykjavík 50.717 53.997 60.447 66.713 72.333 42,6% 8,4%
Kópavogur 14.113 15.386 17.695 19.563 21.396 51,6% 9,4%
Seltjarnarnes 2.050 2.164 2.423 2.640 2.843 38,7% 7,7%
Garðabær 6.486 6.957 7.866 8.805 9.730 50,0% 10,5%
Hafnarfjörður 11.196 11.984 13.672 14.980 16.276 45,4% 8,7%
Mosfellsbær 3.729 4.042 4.623 5.262 6.039 62,0% 14,8%
■ 2014 2015 2016 2017 2018
Breyting
frá 2014
Breyting
frá 2017
Reykjanesbær 5.381 6.126 6.999 8.387 9.899 84,0% 18,0%
Grindavík 1.128 1.281 1.420 1.481 1.663 47,5% 12,3%
■ 2014 2015 2016 2017 2018
Breyting
frá 2014
Breyting
frá 2017
Árborg 2.918 3.197 3.653 4.097 4.628 58,6% 13,0%
Hveragerði 798 893 1.024 1.163 1.310 64,2% 12,6%
Vestmannaeyjar 1.907 2.082 2.195 2.260 2.383 25,0% 5,5%
■ 2014 2015 2016 2017 2018
Breyting
frá 2014
Breyting
frá 2017
Hornafjörður 901 982 1.084 1.201 1.326 47,2% 10,4%
Fjarðabyggð 2.356 2.545 2.603 2.773 2.948 25,1% 6,3%
Fljótsdalshérað 1.346 1.426 1.576 1.717 1.822 35,4% 6,1%
Norðurþing 1.125 1.214 1.398 1.623 1.755 56,0% 8,1%
Akureyri 7.191 7.657 8.449 9.134 9.720 35,2% 6,4%
Reykjanesbær 84,0%
Hveragerði 64,2%
Mosfellsbær 62,0%
Árborg 58,6%
Norðurþing 56,0%
Mesta aukning 2014 til 2018
Reykjanesbær 18,0%
Mosfellsbær 14,8%
Árborg 13,0%
Hveragerði 12,6%
Grindavík 12,3%
Mesta aukning 2017 til 2018
Reykjavík Kópavogur Hafnar-
fjörður
Reykjanes-
bær
Garðabær Akureyri Mosfells-
bær
Árborg Akranes Fjarða-
byggð
Greidd staðgreiðsla
– tíu stærstu
sveitarfélögin 2018
2014 2015 2016 2017 2018
Samtals greidd staðgreiðsla 2014-2018
Milljarðar króna
Milljarðar króna
195178161
144133
Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga
4,0 2,9
72,3
21,4
16,3
9,9 9,7 9,7
6,0 4,6
Sigurður Á.
Snævarr
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á Keflavíkurflugvelli Aukin umsvif í fluginu hafa skapað störf og tekjur
suður með sjó. Skatttekjur Reykjanesbæjar hafa stóraukist síðustu ár.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus
freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Veldu Panodil
sem hentar þér!
Verkjastillandi og
hitalækkandi