Morgunblaðið - 09.02.2019, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Leo Varadkar, forsætisráðherra Ír-
lands, sagði í gær að hann væri opinn
fyrir frekari viðræðum um framtíð
Brexit-samkomulagsins svonefnda,
en ítrekaði að ekki væri hægt að
hrófla við efni þess á nokkurn hátt.
Theresa May, forsætisráðherra
Breta, fundaði í gær með Varadkar í
Dublin, höfuðborg Írlands, en í
fyrradag ræddi hún við Jean-Claude
Juncker, forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins. May
færði bæði Juncker og Varadkar þau
skilaboð að breska þingið gæti ekki
samþykkt samkomulagið ef lagalega
bindandi breytingar á hinum svo-
nefnda „írska varnagla“ yrðu ekki
gerðar.
Varnaglinn á að tryggja það, ef
ekki næst samkomulag á milli Breta
og Evrópusambandsins um við-
skipti, að landamæri Írlands og
Norður-Írlands haldist opin, en
breskir þingmenn hafa gagnrýnt
hann fyrir að gefa Evrópusamband-
inu of mikið vald um það hvenær og
hvort Bretland gæti yfirgefið sam-
bandið.
Varadkar þvertók hins vegar fyrir
það í gær að hægt væri að semja upp
á nýtt um varnaglann eða bæta við
ákvæðum sem takmörkuðu þann
tíma sem hann yrði í gildi.
Fjölmiðlar spurðu Varadkar hver
tilgangur viðræðna hans við May
væri í ljósi þess að engin stefnu-
breyting virtist á döfinni. Sagði hann
að allir vildu forðast þá stöðu að
Bretar yfirgæfu ESB án samkomu-
lags og að írsku landamærin myndu
lokast á ný. Þá vildu allir að góð sam-
skipti Bretlands og Írlands héldu
áfram. „Þannig að það er meira sem
sameinar en sundrar okkur,“ sagði
Varadkar og ítrekaði að naumur tími
væri til stefnu, en Bretland mun að
óbreyttu yfirgefa Evrópusambandið
hinn 29. mars næstkomandi.
Varnaglanum ekki haggað
May fundar með leiðtogum Evrópusambandsins Engin lausn í sjónmáli
AFP
Handaband May og Juncker takast í
hendur fyrir fund sinn í fyrradag.
Ár svínsins gekk í garð samkvæmt kínverska tímatal-
inu á þriðjudaginn var, og er áramótunum nú fagnað
með vikulangri hátíð vítt og breitt um Kína.
Mikið er um dýrðir í Kína vegna tímamótanna og má
víða sjá „drekadansara“, líkt og þessa sem örkuðu um
stræti og torg höfuðborgarinnar Peking í gær.
AFP
Kínverska nýárið gengið í garð
Ári svínsins fagnað í Peking
Ubolratana,
prinsessa af Taí-
landi og eldri
systir konungs-
ins, tilkynnti í
gær að hún
hygðist bjóða sig
fram í embætti
forsætisráð-
herra, en kosið
verður í landinu í
vor. Hún býður sig fram fyrir Thai
Raksa Chart-flokkinn, en hin um-
deilda Shinawatra-fjölskylda hefur
lengi haft þar tögl og hagldir.
Framboð Ubolratana kom nokk-
uð á óvart, en mótframbjóðandi
hennar er Prayut Chan-O-Cha,
helsti forvígismaður herforingja-
stjórnarinnar sem nú ræður ríkjum
í Taílandi.
Konungur Tælands, Maha Vaj-
iralongkorn, gagnrýndi systur sína
fyrir framboðið og sagði það óvið-
eigandi af meðlimi konungsfjöl-
skyldunnar að blanda sér í stjórn-
mál með þessum hætti.
Prinsessa stefnir á
forsætisráðuneytið
Ubolratana
TAÍLAND
Nicolas Maduro,
forseti Vene-
súela, hét því í
gær að hann
myndi ekki
hleypa „falskri
neyðaraðstoð“
frá Bandaríkj-
unum inn í land-
ið, en Juan
Guaidó, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar hafði óskað
eftir henni. „Við erum ekki betl-
arar,“ sagði Maduro á blaðamanna-
fundi í höfuðborginni Caracas.
Maduro gagnrýndi einnig ráð-
herrafund evrópskra og suður-
amerískra ráðamanna, sem haldinn
var í fyrradag, fyrir að hafa hvatt
til þess að frjálsar og gagnsæjar
forsetakosningar yrðu haldnar sem
fyrst í landinu. Efnahagur Vene-
súela hefur hrunið undir stjórn
Maduros og er nú talsverður skort-
ur á nauðsynjavöru, bæði mat-
vælum og lyfjum.
Hafnar „falskri“
neyðaraðstoð
Nicolas Maduro
VENESÚELA
Donald Trump Bandaríkjaforseti
ákvað í gær að verða ekki við kröfu
bandarískra öldungadeildarþing-
manna um að hann lýsti því yfir hver
bæri ábyrgð á morðinu á sádí-arab-
íska blaðamanninum Jamal Khas-
hoggi í október á síðasta ári, en hann
var tekinn af lífi í ræðismannsbústað
Sádí-Arabíu í Istanbúl hinn 2. októ-
ber 2018.
Samkvæmt ályktun sem öldunga-
deildarþingmenn úr báðum flokkum
samþykktu 10. október síðastliðinn
fékk forsetinn frest til dagsins í gær
til þess að skila áliti um það hvort
krónprins Sádí-Arabíu, Mohammed
bin Salman, hefði persónulega fyr-
irskipað að Khashoggi yrði tekinn af
lífi, en krónprinsinn var sagður hafa
haft horn í síðu hans.
Ákvörðun Trumps kom degi eftir
að bandaríska dagblaðið New York
Times birti fregnir þess efnis að
bandaríska leyniþjónustan hefði
hlerað samskipti krónprinsins árið
2017, þar sem hann hefði hótað því
að láta „setja kúlu“ í Khashoggi ef
hann sneri ekki aftur til Sádí-Arabíu
og léti af gagnrýni sinni á þarlend
stjórnvöld. Vakti greinin mikið um-
tal vestanhafs í fyrradag.
Utanríkisráðu-
neyti Bandaríkj-
anna sagði að
stjórnvöld hefðu
þegar beitt sér
gegn þeim sem
bæru ábyrgðina,
en rúmlega tutt-
ugu sádí-arabísk-
ir embættismenn
voru sviptir land-
vistarleyfi eftir
morðið, auk þess sem eigur sautján
annarra voru frystar.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, nefndi Khashoggi-
málið á fundi sínum við Adel al-Ju-
beir, utanríkisráðherra Sádí-Arabíu
á fimmtudaginn, en al-Jubeir lýsti
því yfir í gær að krónprinsinn hefði
ekki átt neinn þátt í morðinu.
Sagði hann að það væri „rautt
strik“ í samskiptum Sádí-Araba við
aðrar þjóðir ef einhver myndi ásaka
krónprinsinn um að hafa gefið skip-
unina um að myrða Jamal Khas-
hoggi. „Að einhver telji sig geta skip-
að okkur fyrir verkum, eða skipað
forystu okkar fyrir verkum, er fá-
ránlegt,“ sagði al-Jubeir við fjöl-
miðla í gær.
Krónprinsinn
ekki ásakaður
Khashoggi-málið aftur í hámæli
Jamal
Khashoggi
Þjóðarsorg ríkti í Brasilíu í gær eftir
að tíu manns létust í eldsvoða í þjálf-
unarbúðum Flamengo, eins vinsæl-
asta knattspyrnufélags landsins.
Samkvæmt tilkynningu frá lögregl-
unni í Rio de Janeiro kom eldsvoðinn
upp fyrir dögun í byggingu þar sem
leikmenn á aldrinum 14 til 17 ára
dvöldu ásamt þjálfurum og öðru
starfsfólki. Hermdu heimildir bras-
ilískra fjölmiðla að sex ungmenni
hefðu verið meðal hinna látnu og
fjórir fullorðnir. Þá fengu þrír
brunasár.
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu,
sagði að hann fyndi til með fjölskyld-
um þeirra sem létust í eldsvoðanum,
en mikið af yngri flokkum Flamengo
er skipað leikmönnum sem koma
víðsvegar að í Brasilíu, þó að félagið
sé í Rio de Janeiro. Rodolfo Landim,
forseti Flamengo, sagði að þetta
væri mesti harmleikur í 123 ára sögu
félagsins.
Tíu látnir
í eldsvoða
í Brasilíu
Tengdust yngri
flokkum Flamengo