Morgunblaðið - 09.02.2019, Síða 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019
GRANDAVEGUR 42
Sími 564 6711 | thingvangur@thingvangur.is | thingvangur.is
Sundlaug
4 mín.
11 mín.
Matvöruverslun
2 mín.
11 mín.
Háskóli
4 mín.
15 mín.
Grunnskóli
2 mín.
4 mín.
Leikskóli
1 mín.
5 mín.
Líkamsrækt
3 mín.
20 mín.
Bakarí
1 mín.
3 mín.
AÐEINS
10
ÍBÚÐIR
EFTIR
Samtök fyrirtækja í velferðar-
þjónustu (SFV) héldu félagsfund
hinn 1. febrúar síðastliðinn. Á fund-
inum var samþykkt ályktun þar
sem skorað er á Sjúkratryggingar
Íslands (SÍ) og heilbrigðisráðu-
neytið (HBR) að hefja nú þegar
markvissar og raunhæfar viðræður
við SFV og Samband íslenskra
sveitarfélaga (SÍS) um þjónustu
hjúkrunarheimila, sem og þjónustu
í dagdvalarrýmum. Sú krafa er
gerð að í viðræðunum afmarki
stjórnvöld þá þjónustuþætti og
kröfur sem þau telja unnt að skerða
með hliðsjón af fjárveitingum sem
veita eigi til rekstursins. Fundurinn
skoraði jafnframt á SÍ að greiða
áfram þá eyrnamerktu fjármuni
sem hjúkrunarheimilum voru veittir
í fjárlögum til að mæta aukinni
hjúkrunarþyngd sem orðið hefur á
heimilunum. Þeim tæpum 300 mkr.
halda SÍ og/eða ráðuneytið í sinni
vörslu.
Ýmist neita eða svara engu
Í júní 2018 lögðu SFV fram
kröfugerð í 14 liðum til framleng-
ingar þágildandi rammasamningi
ríkisins um þjónustu hjúkr-
unarheimila. Um er að ræða lang-
stærsta þjónustusamning sem SÍ
hafa gert, en hátt í 30 milljarðar
króna voru greiddir hjúkr-
unarheimilum á grundvelli hans ár
hvert. SFV og
SÍS hafa enn-
fremur gert þá
kröfu að sam-
hliða niður-
skurði fjár-
magns (bæði
beinum og
óbeinum nið-
urskurði) þurfi
að draga úr kröfum sem gerðar eru
til þjónustunnar. SÍ hafa ekki fallist
á einn einasta af áðurnefndum fjór-
tán liðum í kröfugerð SFV. Þá hafa
stjórnvöld ekki fengist til að útlista
hvaða kröfum hægt sé að draga úr
eða falla frá í viðræðunum. Síðasti
formlegi fundur samningsaðila, þar
sem fram fóru efnislegar viðræður,
var haldinn í október 2018 og enn
hefur ekki verið boðað til annars
samningafundar. Til að viðræð-
urnar verði sem markvissastar hafa
SFV jafnframt óskað eftir að fá
hlutlausan utanaðkomandi aðila til
að stýra viðræðum og miðla málum
með álíka hætti og ríkissáttasemjari
gerir gagnvart aðilum vinnumark-
aðarins.
Hvað varðar þjónustu í dvalar-
rýmum er staðan svipuð í viðræðum
SFV, SÍ og SÍS. Viðræðurnar hóf-
ust í janúar 2018, en ekki hefur ver-
ið haldinn formlegur samn-
ingafundur frá því í mars 2018. Að
lágmarki 30% vantar upp á fjárveit-
ingu dagdvalar með hliðsjón af
þeim kröfum sem velferðarráðu-
neytið lagði fram, en ekki hafa
fengist svör um hvort draga skuli
úr kröfum, fækka rýmum eða bæta
við fjármagni til að samningur geti
náðst.
Fyrirvaralaus reglugerð og
gjaldskrá
Á félagsfundi SFV var enn frem-
ur lýst yfir miklum vonbrigðum
með þau vinnubrögð SÍ og HBR
sem viðhöfð voru við setningu
reglugerðar og gjaldskrár fyrir
þjónustu hjúkrunarheimila í desem-
ber 2018. Með þeim voru gerðar
grundvallarbreytingar á greiðslum
til hjúkrunarheimila landsins hvað
varðar greiðslur smæðarálags sem
og greiðslur vegna aukinnar hjúkr-
unarþyngdar, án nokkurrar tilkynn-
ingar, samráðs eða fyrirvara gagn-
vart heimilunum þrátt fyrir að
fulltrúar heimilanna hefðu verið í
samningaviðræðum við stjórnvöld í
marga mánuði. Slík vinnubrögð eru
ekki til þess fallin að auka traust á
milli aðila eða tiltrú á samningaferl-
inu.
Eyrnamerktum fjármunum
haldið eftir
Á fundinum var einnig skorað á
stjórnvöld að greiða strax áfram þá
fjármuni sem hjúkrunarheimilum
voru veittir í fjárlögum til að mæta
aukinni hjúkrunarþyngd sem orðið
hefur á heimilunum. Þrátt fyrir við-
bótarfjárveitinguna miða SÍ við
sömu þyngdarstuðla og notaðir
voru fyrir árið 2018 í þeirri nýju
gjaldskrá sem tók gildi um áramót.
Í þessu felst að
um 276,4 millj-
ónir króna sem
fjárlaganefnd og
Alþingi eyrna-
merktu til rekst-
urs hjúkr-
unarheimila
verða ekki
greiddar til
heimilanna samkvæmt gjald-
skránni, heldur haldið eftir í vörslu
stofnunarinnar eða heilbrigðisráðu-
neytisins. Var skorað á heilbrigðis-
ráðherra og SÍ að framkvæma tafa-
lausa leiðréttingu og ennfremur að
fjárlaganefnd og þingmenn beiti sér
fyrir því að ákvörðun alþingis verði
virt.
Þurfa að skerða þjónustu
Af hálfu Samtaka fyrirtækja í
velferðarþjónustu er ljóst að við
óbreyttar aðstæður er óhjákvæmi-
legt að taka mjög fljótlega ákvarð-
anir um skerðingu þjónustuþátta til
að mæta rýrnun verðgildis fjárveit-
inga til rekstrar hjúkrunarheim-
ilanna samfara kostnaðarhækk-
unum undanfarin misseri. Þær
aðgerðir verða án efa útfærðar með
mismunandi hætti á heimilunum
enda aðstæður mismunandi. Eftir
fremsta megni verður þó leitast við
að haga þeim þannig að íbúar verði
fyrir eins litlu óhagræði og unnt er.
Stjórnvöld hefji
strax viðræður
um þjónustu
hjúkrunarheimila
Eftir Eybjörgu Hauksdóttur,
Pétur Magnússon og Björn
Bjarka Þorsteinsson
» Vinnubrögð SÍ og
ráðuneytisins eru
ekki til þess fallin að
auka traust á milli aðila
eða tiltrú á samninga-
ferlinu.
Björn Bjarki
Þorsteinsson
Höfundar eru framkvæmdastjóri, for-
maður og varaformaður SFV.
Eybjörg
Hauksdóttir
Pétur
Magnússon
Frammistaða stjórn-
málamanna í Banda-
ríkjunum og Evrópu er
ömurleg, en loftslags-
breytingar eru ekki
bara þeim að kenna.
Stjórnmálamenn þriðja
heimsins hafa aldrei
tekið í mál að draga úr
losun hjá sér, þvert á
móti, þar er hamast við
að bæta við stórum
kola- og olíurafstöðvum, bara í Ind-
landi og Kína er hægt að tala um eina
í viku hverri. Ef þetta væri kjarn-
orkurafmagn væri ástandið í heim-
inum skárra en það er.
Vestrænar ríkisstjórnir hafa tekið
þessu fegins hendi; meðan ekkert
samkomulag er við þriðja heiminn
þurfa þær ekki að gera neitt heldur,
bara gera sínar samþykktir á kjafta-
þingunum um minnkaða losun og
fresta þeim jafnóðum og í ljós kemur
að þær standast ekki.
En stjórnmálamenn komast ekki
hjá því að sýna einhvern lit. Það gera
þeir með því að beina athyglinni að
sorphirðu, endurvinnslu, skógrækt,
mýrlendi og kolsýrubókhaldi. Auðvit-
að er hægt að gera töluvert gagn á
þessum sviðum öllum, en hvað varðar
kolsýruútblástur heimsins er árangur
enginn og verður það. Þetta er svo
augljóst að hver maður getur séð það.
En þessi flokka-gróðursetja-
skurðastíflu-umræða er greinilega
ágætis áburður á það ólæknandi sár
iðrunar yfir óhófi nútímans sem
margt umhverfislega sinnað fólk
gengur með. Þetta minnir hlægilega
mikið á iðrunarguðfræði fyrri tíma.
Meira að segja aflátsbréfin eru komin
aftur, fólk getur séð merki þeirra á
rafmagnsreikningunum.
Kemur þá ekkert út úr hinni póli-
tísku umræðu? Jú, eitt kemur, það er
nýtt skattkerfi sem vekur mikinn
fögnuð á stjórnmálasviðinu. Sala á
losunarkvótum er nýtt skattkerfi sem
leggjast mun á frumframleiðsluna.
Rökin fyrir því eru að mengandi iðn-
aður leggist af vegna aukins kostn-
aðar og losun minnki. Þetta er hin
mesta firra. Frumframleiðslan verð-
ur að ganga, losunar-
skattur á hana fer bara
út í verðlagið eins og
aðrir skattar hafa gert.
Eitt kíló af olíu býr til
14 kíló af útblæstri við
bruna, skattar breyta
engu þar um.
Eru loftslagsbreyt-
ingar vegna kolsýru-
aukningarinnar eina
ógnin? Nei, loftslagið
getur gert allt nema
standa lengi í stað, það
væri efni í stóra grein.
En kolsýrumálið hefur kæft alla um-
ræðu um þetta, þótt margar loftslags-
breytingar, sem jafnvel eiga sér
langa sögu, séu í gangi. Nefna má
söltun Miðjarðarhafsins, hlýnun
norðurhafanna, breytingar á Golf-
straumnum og Suðaustur-Asíu-
mistrið. T.d. getur breyttur Golf-
straumur orsakað ísaldarástand á Ís-
landi og hefur gert það.
Fyrir utan þetta má búast við
sprengingu í orkunotkun vegna loft-
kælingar. Í þremur löndum, Banda-
ríkjunum, Ástralíu og Japan, er loft-
kæling í nánast hverju húsi.
Loftkæling er hrikalega raforkufrek.
Hún er framkvæmd með áhöldum á
stærð við sæmilegan pappakassa sem
sett er upp í stað gluggarúðu og
stungið í samband. Þessi tækni breið-
ist hratt út meðal millistéttarfólks í
öðrum löndum og á eftir að valda gíf-
urlegri eftirspurn eftir rafmagni um-
fram það sem séð er fram á í dag. Ef
þrjóskan á móti kjarnorkunni heldur
áfram verða það kolin og jarðgasið
sem taka við þeirri aukningu.
Ísland og loftslagsbreytingarnar
Á heimskautasvæðum jarðarinnar
er ekkert hægt að gera sem hefur
nein teljandi áhrif á gróðurhúsaáhrif-
in, en hlýnunin aftur á móti kemur
mest fram þar. Nú er loftslag á Ís-
landi 4-7 stigum heitara en það ætti
að vera miðað við hnattstöðu, svo er
Golfstraumnum fyrir að þakka. Þetta
er líklega undirrót þess að líkön
IPCC sýna minni hlýnun á Íslandi en
í kring. Þessi kuldapollur umhverfis
Ísland mundi þó líklega hverfa þegar
höfin hafa hlýnað nægilega, sem ger-
ist þegar kuldaforðabúr jökla og
djúpsjávar er uppurið, hvenær sem
það verður. En á Íslandi er ekki von á
neinni sérstakri hlýnun í bráð. Ná-
grannar okkar hér í norðrinu verða
hins vegar fyrir henni.
Þetta er það sem blasir við ef
ástandið heldur áfram eins og verið
hefur, eða það sem IPCC kallar „bus-
iness as usual“. En ef eitthvað óvænt
skeður breytist þetta heldur betur.
T.d. ef Gíbraltarstraumurinn snýst
við getur Golfstraumurinn beygt yfir
til Portúgals, þá dettur Ísland niður á
eðlilegt hitastig fyrir sína breidd-
argráðu. Dæmi um að Golfstraum-
urinn hafi hrakist af leið og Ísland
kólnað er svokallað Búðaskeið í jarð-
sögu landsins. Þá var það tæming á
stóru vatnasvæði í Norður-Ameríku
sem hrakti Golfstrauminn burtu, nú
yrði það innstraumur í Miðjarð-
arhafið á yfirborðinu í Gíbraltarsundi,
en þar hefur útstraumurinn legið
hingað til. Orsök viðsnúningsins er að
ferskvatn er meira og minna hætt að
streyma til Miðjarðarhafsins og þá
eykst selta þess. Þessi þróun er búin
að standa yfir í um 3.000 ár, en geng-
ur nú mun hraðar en áður vegna
framfara í landbúnaði og áveitutækni.
En í dag er þetta lítið rætt.
Það er kominn tími til að Íslend-
ingar hætti þessu tískutali um kol-
sýrumál. Meiriparturinn af þessari
umræðu er pólitískur rétttrúnaður án
tengsla við raunveruleikann. Gildir
þar einu þótt hlýnun jarðar sé að öll-
um líkindum heldur lengra komin en
IPCC gerir ráð fyrir. Á stjórn-
málasviðinu er ekkert að gerast sem
breytir neinu um kolsýru loftsins eða
gróðurhúsaáhrifin, einungis verið að
fagna nýju skattkerfi.
Hlýnun jarðar:
Pólitík á heimavelli
Eftir Jónas Elíasson »Umræðan um hlýn-un jarðar er tískutal
sem leiðir ekki til neins,
því raunhæfum aðgerð-
um var hafnað fyrir
löngu og ekkert komið í
staðinn.
Jónas Elíasson
Höfundur er prófessor.
jonaseliassonhi@gmail.com