Morgunblaðið - 09.02.2019, Page 37

Morgunblaðið - 09.02.2019, Page 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2019 Ármúla 24 • S. 585 2800 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur lagt hart að þér í starfi og nú er komið að því að þú sjáir laun erfiðis þíns. Hafðu auga með öllum smáatriðum, hvort sem þér finnst þau skipta einhverju máli eða ekki. 20. apríl - 20. maí  Naut Heppnin er með þér ef þú einbeitir þér að þeim sem þú elskar. Þín kann að bíða ein- stakt tækifæri í dag og ríður á miklu að þú þekkir þinn vitjunartíma. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Eitt erfiðasta verkefni manns er að fylgja sinni innri sannfæringu, í stað þess að reyna að gera öllum í kringum sig til hæfis. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert svo önnum kafinn við að sjá heildarmyndina að þú gleymir kjarnanum sem þó skiptir mestu máli. Magnþrungnir árekstr- ar við nákomna munu reyna töluvert á þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það væri ekki vitlaust að blanda geði við nýtt fólk og víkka sjóndeildarhringinn. Þú ert svo upptekinn við að setja annan fótinn fram fyrir hinn að þú ert eiginlega búinn að búa til nýjan dans. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur haldið of lengi aftur af þér svo nú er kominn tími til að fá útrás og njóta sín. Ef einhver gagnrýnir þig skaltu taka til þín það sem þú átt og breyta því sem þú getur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú lætur í ljós óskir þínar verður litið á það sem kvörtun nema þú gerir það mjög glæsilega. Reyndu að halda ró þinni hvað sem tautar og raular. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þegar þú stendur frammi fyrir vali skaltu ekki velja það sem er auðveldast. Leggðu þig fram um sættir og þá gengur allt vel. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ýmsir möguleikar standa þér til boða sem er bara eins og þú átt skilið. Enginn er eyland og vertu því óhræddur við að tjá öðrum hug þinn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú hefðir gott af því að breyta um umhverfi, en að umgangast nýtt fólk væri enn betra. Það hefur legið eitthvert slen í þér, en nú mætir þú tvíefldur til leiks. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er alls ekki auðvelt að kveðja fortíðina þegar manni finnst maður eiga ým- islegt óuppgert. Reyndu að setja þér takmörk sem þú getur ráðið við. 19. feb. - 20. mars Fiskar Reyndu ekki að þvælast fyrir öðrum með einhverju nöldri og leiðindum. Eina stjórnunin sem vit er í er sú sem aldrei þarf að beita valdi. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Vont umtal hér varast ber. Víst það handan fjallsins er. Að aftanverðu á þér sést. Upp á klárinn hefur sest. Svona lítur lausn Hörpu á Hjarð- arfelli út: Baktal ætti að banna víst. Að baki fjalla er nú snjór. Baki sný við bónda síst. Á bak ég fer, já ekkert slór. Helgi R. Einarsson svarar: Þótt fjórar línur hlið við hlið heilabrotum valdi fljótt þó bakið blasir við og best að því ég tjaldi. Guðrún Bjarnadóttir á þessa lausn: Baktal finnst mér býsna ljótt, að baki fjalla gott að skíða. Á bakið dett ég frekar fljótt og fæ á hestbaki að ríða. Helgi Seljan leysir gátuna þannig: Baktal finnst oss nú býsna leitt, að baki fjallsins er vatnið eitt. Bak mitt víst að aftanverðu er, upp á bak á klárnum dembi mér. Sigmar Ingason svarar: Að fjallabaki finn ég skjól fyrir baktalinu ljóta. Bak mitt fellur að baki á stól. Á baki gæðings má ferðar njóta. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Forðast baktal viljum vér. Víst það bakvið fjallið er. Að aftanverðu bak þú berð. Á bak á hestinum þú ferð. Þá er limra: Þorbjörg digra var þéttari en Þjóðhildur, sem var réttari í baki, af því að upprétt á ný hún varð, þegar varð hún léttari. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Gest hér einn að garði ber, gegnum lúgu smeygir sér. Ekki af gæða gerðinni gátan er á ferðinni: Fjallsins brún oss blasir við. Beitt hún löngum klýfur við. Má það kalla matarbúr. Maðurinn því kemur úr. Ágúst Jósefsson orti: Þarna er Símon sífulli, svínastíu goði. Finnst hann oft á flækingi fullur „på en måde“. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Jöfn byrði brýtur engra bak Víkverji hefur gaman af orða-leikjum. Allt Framliðið lék eins og það væri framliðið, sagði einhver um daginn svo Víkverji heyrði og gat ekki varist brosi. x x x Látnir þvo strætó á nóttunni, sagði í fyrirsögn fyrir einhverju síðan, en fór ekki sögum af því hvort það fólk væri framliðið. Hvað þá hvort þar hefði Framliðið verið komið. x x x Víkverji finnur til í málbeininuþegar hann heyrir notað orðið púðursnjór, sem er þýtt beint upp úr ensku. Orðið er að finna í nú- tímamálsorðabók þegar farið er inn á vefinn málið.is, en Víkverji lætur sér það í léttu rúmi liggja og notar frekar lausamjöll, sem honum finnst mun fallegra. x x x Sama gildir um orðið snjó-stormur, sem einnig er þýtt úr ensku og mun tilþrifaminna en til dæmis stórhríð eða blindbylur, sem í orðabókinni er skýrt „mikil snjókoma samfara hvassviðri svo að vart sér út úr augum“. Reynd- ar eyðir málið.is ekki einu sinni púðri í skýringu á orðinu snjó- stormur. x x x Fyrst Víkverji er byrjaður aðtuða út af orðum og notkun þeirra er við hæfi að nefna orðið samkeppnisaðili, sem honum finnst allt of algengt. Hann sér að þetta orð er orðið fullkomlega gjaldgengt í íslensku og skýtur upp kollinum í öllum gagnasöfnum málsins.is. Hann er þó ánægður með að þar segi að oft fari „betur á að nota orðin keppandi og keppi- nautur en orðið samkeppnisaðili“. Víkverji gæti ekki verið meira sammála. x x x Síðan mætti finna annað orð yfirviðbragðsaðila, sem notað er um alla þá sem bregðast við þegar hættu ber að höndum. Eitthvað þjálla hlýtur að leynast einhvers staðar. vikverji@mbl.is Víkverji Ákalla mig á degi neyðarinnar og ég mun frelsa þig og þú skalt vegsama mig. (Sálm: 50.15)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.