Morgunblaðið - 13.02.2019, Page 1

Morgunblaðið - 13.02.2019, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. F E B R Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  37. tölublað  107. árgangur  ENGIN LEIÐ ER GREIÐ Í ÚRSLIT ÞRIÐJA EYRAR- RÓS SEYÐIS- FJARÐAR ÞAÐ SKIPTIR MÁLI AÐ SÝNA SAMKENND LIST Í LJÓSI 30 LÆKNISSTARFIÐ 12GEYSISBIKARINN ÍÞRÓTTIR Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þegar ákvörðun um þessa launa- hækkun var tekin lá fyrir að erfiðar kjaraviðræður væru fram undan. Auðvitað eiga menn að halda í sér,“ segir Friðbert Traustason, fram- kvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Tíðindi af launa- hækkunum Lilju Bjarkar Einars- dóttur, bankastjóra Landsbankans, hafa mælst illa fyrir í þjóðfélaginu, en laun bankastjórans hafa hækkað um 82% á skömmum tíma. „Allar svona vitleysishækkanir setja strik í kjaraviðræður,“ segir Friðbert. Bankasýsla ríkisins sendi í gær bréf til bankaráðs Landsbankans hf. og stjórnar Íslandsbanka hf. þar sem óskað er eftir upplýsingum um launamál bankastjóra þeirra. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, skrifaði stjórnum fyrirtækja í ríkiseigu í gær og bað um að þær upplýsi ráðuneytið um hvernig brugðist var við tilmælum sem ráðuneytið sendi stofnunum í janúar 2017 og voru síðan ítrekuð um að gæta varkárni við launaákvarðan- ir. Erindið var líka sent til Banka- sýslu ríkisins. VM Félag vélstjóra og málm- tæknimanna hefur krafist þess að laun bankastjóra Landsbankans verði lækkuð tafarlaust. „Það er ekki boðlegt að sífellt skuli vera slegið á putta almenns launafólks á Íslandi á meðan þeir hæst launuðu skammta sér launahækkanir upp á hundruð þúsunda eða milljónir í hverjum mánuði,“ segir í yfirlýsingu VM. Ósátt við „vitleysishækkun“  Mikil óánægja með launahækkanir bankastjóra Landsbanka  Fjármálaráð- herra spyr um viðbrögð ríkisfyrirtækja  Bankasýsla ríkisins óskar upplýsinga M„Vitleysishækkun“ »4 Teikning/THG Arkitektar Nýjar leiguíbúðir Fyrirhugað fjöl- býlishús Bjargs í Urðarbrunni. Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir það hafa verið metið hagkvæmast að flytja inn lettnesk einingahús fyrir Bjarg leigufélag. Horft hafi verið til framleiðslugetu innlendra aðila. Tilefnið er gagnrýni innlendra framleiðenda á að Bjarg, sem var stofnað af ASÍ og BSRB, skuli nota innflutt einingahús á Akranesi og innfluttar innréttingar í íbúðum. Hún bendir á að innlend fyrirtæki sem smíða innréttingar þurfi að kaupa efni sem er að mestu unnið er- lendis. Þorbjörn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samiðnar, segir löggjafann setja þröngan ramma um byggingarkostnað og húsaleigu. Þurfa að vera innan rammans „Við viljum að sem mest sé fram- leitt af íslenskum verktökum en þeir verða þá að vera tilbúnir að vera inn- an rammans sem löggjöfin setur,“ segir Þorbjörn. Það væri „óábyrgt ef fulltrúar stéttarfélaganna treystu sér ekki til að vera í þessu verkefni“. Þórarinn H. Ævarsson, fram- kvæmdastjóri IKEA, segir í að- sendri grein að IKEA hafi boðið best þegar Bjarg bauð út innréttingar. baldura@mbl.is »10-11, 19 Erlendu húsin betri kostur  Forseti ASÍ vísar til hagkvæmnismats á húsum fyrir Bjarg Ferðamenn eru á ferli í miðborg Reykjavíkur þótt nú sé há- vetur, samkvæmt dagatalinu. Þetta par var á gangi í mið- bænum þar sem sjá má mynd af því hvernig Hafnartorg kem- ur til með að líta út þegar framkvæmdum lýkur. Það var líkast því að þetta par stigi út úr gróskumikilli framtíðarsýn- inni og inn í íslenska veturinn þar sem frostrósir blómstra. Stigið inn í nútímann úr framtíðinni Morgunblaðið/Eggert Miðborg Reykjavíkur breytist mikið með nýbyggingum við Hafnartorg og Austurhöfnina  „Við tökum þessar athuga- semdir Orku- stofnunar alvar- lega og munum breyta okkar vinnulagi,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, en skv. úrskurði Orkustofnunar var fyrir- tækinu óheimilt að hækka orku- reikning viðskiptavinar í því skyni að þrýsta á viðkomandi að skila upplýsingum af rafmagns- og heita- vatnsmælum. »6 Veitur taka athuga- semdir alvarlega  Stöðugildum hjá ríkinu fjölgaði um tæplega 1.600 á þremur árum frá 2015 til 2017, þar af um 619 árið 2017. Alls voru liðlega 24 þúsund stöðugildi árið 2017. Athygli vekur að á Suðurnesjum fjölgaði stöðu- gildum um tæplega 10% árið 2017, mun meira en á öðrum lands- svæðum. Ríkisstörfum fjölgaði á öllum svæðum nema á Vestfjörðum þar sem hlutfallið var óbreytt milli ára. Hópar í kvenlægum störfum, s.s. við kennslu og í heilbrigðisþjón- ustu, eru áberandi í stöðugildum ríkisins. Konur eru í öllum lands- hlutum í meirihluta í ríkisstörfum nema á Suðurnesjum. »14 Ríkisstarfsmönnum fjölgaði frá 2015  Sé miðað við markaðsvirði er Marel orðið fimmta stærsta fyrir- tækið í sögu íslensku Kauphallar- innar, en markaðsvirði félagsins fór yfir 300 milljarða króna fyrr í vikunni í fyrsta sinn í sögu fyrir- tækisins. Virði félagsins í lok dags í gær var 303 milljarðar króna. Verðmætasta félag í sögu Kaup- hallarinnar er Kaupþing, en mark- aðsvirði þess náði 948,5 milljörðum þegar hæst stóð. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að sé leiðrétt fyrir verðbólgu hafi verðmæti félagsins í kauphöll 130 faldast frá upphafi. Þá er Marel nr. 104 í stærðarröðinni af 607 skráð- um fyrirtækjum á aðalmörkuðum Nasdaq á Norðurlöndunum. »16 Marel er fimmta stærsta í sögunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.