Morgunblaðið - 13.02.2019, Qupperneq 14
Jarðvinna vegna byggingar Þjóðgarðsmiðstöðvar á Hellissandi er kom-
in í útboð, að því er kemur fram á heimasíðu Framkvæmdasýslu ríkis-
ins. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið í samvinnu við Umhverfis-
stofnun hyggst láta
byggja þjónustu-
miðstöð í Þjóðgarði
Snæfellsjökuls á Hellis-
sandi út frá sam-
keppnistillögu Arkís
arkitekta ehf. Bygg-
ingin mun hýsa þjón-
ustumiðstöð þjóðgarðs-
ins með sýningar- og
kennsluaðstöðu, auk
rýma fyrir starfsmenn
þjóðgarðsins, svo sem skrifstofur, geymslur og aðstöðu fyrir þjóð-
garðsverði, um 710 fermetra.
Í opnu útboði nú er gröftur fyrir húsi, bílaplani, lögnum og fyllingu
undir sökkla og burðarlag undir bílastæði á lóð. Útboðsgögn eru að-
gengileg á vef Ríkiskaupa.
Hefjast handa við þjóðgarðsmiðstöð
Ljósmynd/Síldarvinnslan-Smári Geirsson
Bíða loðnunnar Norska skipið Åkerøy við bryggju í Neskaupstað. Skipið
var með um 1.600 tonn af kolmunna sem veiddust vestur af Írlandi.
Skipstjórinn á norska uppsjávar-
skipinu Åkerøy sigldi yfir loðnutorf-
ur suðaustur af landinu á leið til
Norðfjarðar á mánudag. Birkir
Bárðarson, fiskifræðingur á Haf-
rannsóknastofnun, segir þetta ekki
miklar fréttir í sjálfu sér því rann-
sóknaskipið Árni Friðriksson hafi
mælt rúmlega 200 þúsund tonn af
loðnu úti fyrir Austurlandi í lok síð-
ustu viku, meðal annars á svipuðum
slóðum og norski skipstjórinn hafi
siglt yfir loðnutorfur. Full ástæða sé
til að ætla að þetta sé hluti af þeirri
göngu.
Áætlað var að Árni Friðriksson
færi út frá Eskifirði í gærkvöldi til að
vakta göngu loðnunnar fyrir austan
og norðaustan land. Veðurútlit er
ekki gott á þessum slóðum, en í dag
verður væntanlega tekin ákvörðun
um hvort og hvenær veiðiskip fara
einnig til leitar. Birkir segir að miðað
við aflareglu vanti enn nokkuð upp á
til að upphafskvóti verði gefinn út.
Í frétt á heimasíðu Síldarvinnsl-
unnar segir að Åkerøy hafi komið til
Neskaupstaðar í fyrrakvöld með
1.600 tonn af kolmunna og er að ræða
fyrsta norska skipið sem kemur með
kolmunnafarm til Íslands á nýbyrj-
uðu ári. Þegar skipið nálgaðist landið
sigldi það yfir allmargar loðnutorfur,
bæði smáar og stórar.
Í startholunum
Geir Ove Åker, skipstjóri, segist
gera ráð fyrir að liggja í höfn í Nes-
kaupstað eftir löndun og bíða í þeirri
von að gefinn verði út loðnukvóti.
Annar norskur bátur, Roaldsen, bíð-
ur þess sama á Seyðisfirði og margir
eru í startholunum í Noregi eftir að
geta veitt loðnu við Ísland, að sögn
Geirs Ove Åker. Samkvæmt samn-
ingum þjóðanna hafa Norðmenn
heimild til loðnuveiða við Ísland verði
veiðikvóti gefinn út. aij@mbl.is
Sigldu yfir loðnu-
torfur fyrir austan
Ekki miklar fréttir segir fiskifræð-
ingur Árni Friðriksson til leitar
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019
Panodil filmuhúðaðar töflur, Panodil Zapp filmuhúðaðar töflur, Panodil Junior mixtúra, dreifa, Panodil Hot mixtúruduft, lausn til inntöku, Panodil Brus
freyðitöflur. Inniheldur paracetamól. Við vægum verkjum. Hitalækkandi. Til inntöku. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Veldu Panodil
sem hentar þér!
Verkjastillandi og
hitalækkandi
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Stöðugildum hjá ríkinu fjölgaði um
tæplega 1.600 á þremur árum frá
2015 til 2017, þar af um 619 árið
2017. Alls voru liðlega 24 þúsund
stöðugildi árið 2017, 15.313 konur á
móti 8.961 körlum. Athygli vekur að
á Suðurnesjum fjölgaði stöðugildum
um tæplega 10% árið 2017, sem er
mun meira en á öðrum landssvæð-
um. Ríkisstörfum fjölgaði reyndar á
öllum svæðum nema á Vestfjörðum
þar sem hlutfallið var óbreytt milli
ára.
Hópar í kvenlægum störfum eins
og við kennslu og í heilbrigðisþjón-
ustu eru áberandi í stöðugildum rík-
isins. Konur eru í öllum landshlutum
í meirihluta í ríkisstörfum nema á
Suðurnesjum. Þar eru Tollstjóri,
Landhelgisgæslan og Lögreglu-
stjórinn á Suðurnesjum með stórar
starfsstöðvar þar sem karlar eru
margir auk þess sem hjá Isavia
sinna karlar 65% stöðugilda. Hjá
þessum fjórum embættum og stofn-
unum fjölgaði um 148 stöðugildi
2017, að sögn Önnu Leu Gestsdótt-
ur, sérfræðings á þróunarsviði
Byggðastofnunar.
Staður, störf og stöðugildi
Stofnunin hefur gert könnun á
staðsetningu starfa á vegum ríkisins
árlega frá áramótum 2013/2014 og
liggja nú fyrir tölur um fjölda stöðu-
gilda til loka árs 2017. Stöðugildum
er skipt í tvo flokka. Í fyrsta lagi
stöðugildi sem greidd eru af Fjár-
sýslunni og hjá opinberum hluta-
félögum og stofnunum í eigu ríkis-
ins. Þeim flokki tilheyra til að
mynda ráðuneytin með sínar und-
irstofnanir eins og heilbrigðisstarfs-
fólk um allt land og kennara í flest-
um framhaldsskólum svo dæmi séu
tekin, einnig Háskóli Íslands og
Isavia.
Seinni flokkuninni tilheyra stofn-
anir sem hafa meirihluta rekstrar-
tekna sinna af fjárlögum. Má nefna
sem dæmi Háskólann í Reykjavík,
SÁÁ og hjúkrunar- og dvalarheim-
ilin. Víð skilgreining ríkisstarfa er
fjöldi í þessum flokkum lagður sam-
an, segir á heimasíðu Byggðastofn-
unar. Störf eru mun fleiri en stöðu-
gildi og miðað er við hvar störfin eru
unnin, en ekki hvar viðkomandi
starfsmaður býr.
Á höfuðborgarsvæðinu störfuðu
liðlega 17 þúsund manns í ríkisstörf-
um 2017 eða 7,7% af íbúafjölda.
Norðurland kemur næst með 6,6%
íbúafjölda með stöðugildi hjá ríkinu
en lægst er hlutfallið 4,9% á Suður-
landi. Utan Norðurlands vestra og
Suðurlands, er áberandi fjölgun
stöðugilda innan stærsta kjarna við-
komandi landshluta, þá oftast á
kostnað minni sveitarfélaga. Anna
Lea nefnir í því sambandi að Ísa-
fjörður hefur bætt við sig en í öðrum
kjörnum á Vestfjörðum eins og t.d. í
Bolungarvík, Reykhólahreppi,
Strandabyggð og Vesturbyggð hef-
ur orðið fækkun.
Á Suðurlandi er athyglisvert að
stöðugildum fjölgaði um 49 og skýr-
ist það að hluta af fjölgun stöðugilda
í Vatnajökulsþjóðgarði og í Þjóð-
garðinum á Þingvöllum.
Störf á vegum ríkisins* Hlutfall stöðugilda af íbúafjölda í árslok 2017**
Fjöldi stöðugilda í árslok 2013-2017, þúsundir
Hlutfallsleg fjölgun stöðugilda 2016-2017**
Alls
Konur
Karlar
25
20
15
10
5
Höfuðborgarsv. Vesturland Vestfirðir Norðurl. vestra
Norðurl. eystra Austurland Suðurland Suðurnes
Höfuð-
borgarsv.
Vestur-
land
Vest-
firðir
Norðurl.
vestra
Norðurl.
eystra
Austur-
land
Suður-
land
Suður-
nes
Heimild: Byggðastofnun
2013 2014 2015 2016 2017
2,0% 1,9% 1,3%
0,0%
4,0%
2,7%
3,5%
9,7%14,2 14,2 14,4
14,9 15,3
22,7 22,7 23,1
23,7
24,3
8,5 8,5 8,6 8,7
9,0
Alls fjölgaði stöðugildum um 620
á landsvísu eða um 2,62%
7,7%
6,3%
5,0%
5,5%
6,4%
4,9%
6,6%
5,4%*Í víðri skilgreiningu: Stöðugildi sem greidd eru af Fjársýslunni og hjá opinberum hlutafélögum og stofnunum í eigu ríkisins. Einnig stöðugildi sem
tilheyra stofnunum sem hafa meirihluta rekstrartekna sinna af fjárlögum.
**M.v. hvar störfin eru unnin, en ekki hvar viðkomandi starfsmaður býr.
Mikil fjölgun ríkis-
starfa á Suðurnesjum
Fjölgun stöðugilda síðustu ár 17 þúsund á höfuðborgarsvæði
Morgunblaðið/Eggert
Flugið Ríkisstörfum á Suðurnesjum hefur fjölgað talsvert síðustu ár.