Morgunblaðið - 13.02.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.02.2019, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019 13. febrúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.56 121.14 120.85 Sterlingspund 155.51 156.27 155.89 Kanadadalur 90.75 91.29 91.02 Dönsk króna 18.249 18.355 18.302 Norsk króna 13.886 13.968 13.927 Sænsk króna 12.995 13.071 13.033 Svissn. franki 120.13 120.81 120.47 Japanskt jen 1.0937 1.1001 1.0969 SDR 167.28 168.28 167.78 Evra 136.22 136.98 136.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.9701 Hrávöruverð Gull 1306.75 ($/únsa) Ál 1864.5 ($/tonn) LME Hráolía 62.11 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Hámarksvirði Exista var 457,3 millj- arðar. Á eftir Marel er svo aðeins Actavis Group sem fór yfir 300 millj- arða, eða í 303 milljarða króna. Þá er Marel nr. 104 í röðinni af 607 skráðum fyrirtækjum á aðal- mörkuðum Nasdaq á Norðurlöndun- um. Á toppnum trónir lyfjafyrirtæk- ið Novo Nordisk, en markaðsvirði þess nemur um 78 milljörðum evra. Næstur er Nordea-bankinn sem markaðurinn metur á 52 milljarða evra og því næst Ericsson sem metið er á tæpa 50 milljarða. Marel var fyrst skráð á markað árið 1992 en í dag eru starfsmenn fyrirtækisins 6.000 talsins á 30 starfsstöðvum um allan heim. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinn- ar, segir að hafi einhver forsjáll fjár- festir séð sér leik á borði árið 1992 og fjárfest í Marel fyrir um eina milljón króna árið 1992, og endur- fjárfest úthlutuðum arði, væri sá hinn sami búinn að 370 falda þá krónutölu í ár. Sé leiðrétt fyrir verð- bólgu væri það um 130 földun í raun- virði. „Fyrirtækið hefur gert býsna margt rétt í gegnum tíðina,“ segir Páll. Dýrmætur heimamarkaður Spurður um hvaða gagn fyrirtæki í sama stærðarflokki og Marel hafi af því að vera skráð á jafn lítinn markað og þann íslenska segir Páll mikilvægt að halda tengslum við ræturnar. „Ég held einfaldlega að ís- lenskir fjárfestar, stofnanafjárfestar og almenningur hafi sýnt félaginu mikinn áhuga. Það að vera áfram skráð hér greiðir aðgang fyrirtæk- isins að tryggustu fjárfestunum sem þekkja félagið hvað best. Reynslan, ekki bara héðan, heldur víða um heim, sýnir að heimamarkaðurinn er býsna dýrmætur. Sérstaklega þegar hann hefur virkað jafn vel og hann hefur gert fyrir Marel. Félögin sjá verðmæti í því að hlúa vel að þeim fjárfestum,“ segir Páll. Milljón í Marel hefði 370 faldast Morgunblaðið/Hari Verðmæti Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marels.  Markaðsvirði Marels fór yfir 300 milljarða í vikunni  Er fimmta stærsta fyrirtækið í sögu íslensku Kauphallarinnar sé miðað við markaðsvirði  Viðskiptabankarnir fyrir hrun og Exista ofar á lista Hámarks markaðs- virði í Kauphöllinni Félag milljarðar kr. Kaupþing banki 948,5 Landsbanki Íslands 499,2 Glitnir banki 459,8 Exista 457,3 Marel 303,4 Actavis Group 303,2 BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Markaðsvirði Marels fór yfir 300 milljarða í vikunni og er það í fyrsta skipti í sögu félagsins sem það fer yfir þann hjalla. Dagslokagengi Marels á mánudag var 444,5 krónur á bréfið og nam markaðsvirði fyr- irtækisins á því gengi 303,4 millj- örðum. Gengi félagsins lækkaði um 0,1% í viðskiptum upp á rúma tvo milljarða króna í gær og miðað við daglokagengi gærdagsins sem var 444 kr. nemur markaðsvirði félagins því 303 milljörðum króna. Fimmta stærsta fyrirtækið Sé miðað við markaðsvirði er Marel fimmta stærsta fyrirtækið í sögu íslensku Kauphallarinnar. Þeg- ar kemur að hámarksmarkaðsvirði raða viðskiptabankarnir þrír fyrir hrun sér í efstu þrjú sætin. Hæst fór Kaupþing banki í 948,5 milljarða, Landsbanki Íslands í 499,2 milljarða og Glitnir banki í 459,8 milljarða. Eik fasteignafélag hf. hagnaðist um 2,5 milljarða króna á árinu 2018, en það er rúmlega 30% minni hagnaður en árið á undan, en þá var hagnaður félagsins 3,8 milljarðar króna. Þetta kemur fram í tilkynningu Eikar til Kauphallar. Eignir Eikar í lok árs 2018 námu tæpum 97 milljörðum króna, og juk- ust þær um rúm sex prósent á milli ára, en í lok árs 2017 námu eignirnar rúmum 91 milljarði króna. Eigið fé félagsins nam í árslok 2018 tæpum 31 milljarði króna og hafði hækkað um tæpan milljarð, en eigið fé nam rúmum 29 milljörðum í árslok 2017. Eiginfjárhlutfall félagsins er 32%. Í tilkynningu félagsins segir að greiddur verði út rúmur milljarður í arð, eða 35% af handbæru fé frá rekstri ársins 2018. Reksturinn gekk vel Í tilkynningunni segir jafnframt að reksturinn á árinu 2018 hafi geng- ið vel og EBITDA ársins hafi verið 5.218 milljónir króna. Eru þær nið- urstöðurnar sagðar vera í takti við uppfærðar væntingar félagsins við birtingu uppgjörs þriðja ársfjórð- ungs. EBITDA félagsins sé rétt und- ir neðri 1% mörkum sem félagið hafði til viðmiðunar vegna frávika um EBITDA-spá, eins og það er orð- að í tilkynningunni. tobj@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Eign Húsnæðið sem hýsir Hagstofu Íslands við Borgartún 21 A er ein af mörgum þekktum byggingum í eignasafni Eikar fasteignafélags hf. Eik hagnaðist um 2,5 milljarða  EBITDA ársins nam 5.218 milljónum króna Birta lífeyrissjóður I Sundagörðum 2 I 104 Reykjavík I 480 7000 I birta@birta.is I birta.is Fulltrúar launamanna í stjórn Birtu lífeyrissjóðs Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir fulltrúum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2019–2021. Samkvæmt samþykktum Birtu lífeyrissjóðs (gr. 5.8) hefur valnefnd m.a. þann yfirlýsta tilgang að tryggja að stjórn sjóðsins endurspegli fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu stjórnarmanna sem og að tryggja gagnsæi í málum um tilnefningu stjórnarmanna. Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn og einn varamann til tveggja ára í stjórn sjóðsins. Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn umsókn í formi útfyllts framboðseyðublaðs, sem er að finna á vefnum birta.is, á netfangið valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 28. febrúar 2019. BIRTA LÍFEYRISSJÓÐUR er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins. Hann varð til við sameiningu Sameinaða lífeyrissjóðsins og Stafa lífeyrissjóðs í desember 2016. ÞEIR SEM GEFA KOST Á SÉR SKULU · vera launamenn sem greiða iðgjald í Birtu lífeyrissjóð · ekki vera sjálfstætt starfandi atvinnurekendur/einyrkjar · vera fjárhagslega sjálfstæðir og búa yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu skv. 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og 6. gr. reglna FME nr. 180/2013 og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem gerðar eru um hæfi og hæfni stjórnarmanna skv. framangreindum lögum, reglum FME, samþykktum sjóðsins og starfsreglum valnefndar. · Skila inn útfylltu framboðseyðublaði með drengskaparyfirlýsingu um að þeir uppfylli skilyrði til slíkrar stjórnarsetu Allar nánari upplýsingar um stjórnarkjörið, framboðseyðublaðið/yfirlýsinguna og sjóðinn má finna á vefnum birta.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.