Morgunblaðið - 13.02.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.02.2019, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019 ✝ KristinnMagnússon, Bói, fæddist í Reykjavík 20. október 1932. Hann lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 1. febrúar 2019. Foreldrar hans voru Anna Magn- usen frá Vogi á Suðurey í Færeyj- um, f. 28. júlí 1901, d. 24. febr- úar 1986, og Magnús Einars- son frá Stakkadal á Rauða- sandi í Vestur-Barðastrand- arsýslu, f. 13. janúar 1901, d. 3. mars 1970. Systkini Kristins eru Einar, f. 29. september 1928, Karen Júlía, f. 4. apríl 1931, og Elín, f. 4. ágúst 1944. Árið 1953 kvæntist hann Eddu Ingveldi Larsen, f. 3. febrúar 1932, d. 16. jan. 2018. Börn þeirra eru 1) Yngvi Þór Kristinsson, f. 28. september 1952, m. Guðlaug A. Sigur- finnsdóttir, f. 20. mars 1952, og eiga þau þrjú börn og níu barnabörn. 2) Anna Kristins- þar sem hann komst á samning 1953 í vélvirkjun og lauk sveinsprófi 1957. Meistara- náminu lauk hann síðan 1963. Eftir nám í tækniteiknun hóf hann störf hjá RARIK við Búr- fellsvirkjun. Þar hafði hann umsjón með teiknistofu hönn- unar- og eftirlitsfyrirtækinu Harsa. Árið 1970 réð hann sig sem vélateiknari hjá ÍSAL í Straumsvík og starfaði þar í 10 ár. Árið 1979 stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, teiknistofuna Teiknivang. Fyrstu árin voru aðalverkefni Teiknivangs véla- teikningar, einkum fisk- vinnsluvélar. Við hönnun á fiskvinnsluvélum starfaði hann um nokkra mánaða skeið í Noregi og Svíþjóð. Síðar sér- hæfði hann sig í hönnun og teikningu sumarhúsa og hafa verið reist yfir 1000 sumarhús á Íslandi eftir teikningum hans. Kristinn var einn af stofnendum Tækniteiknara- félagsins og var formaður þess í nokkur misseri og kom þar að nokkrum umbótum við gerð námskrár fyrir Tækniteikn- araskólann. Teiknivang seldi Kristinn árið 2013 og hætti störfum, áttræður að aldri. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 13. febrúar 2019, klukkan 13. dóttir, f. 19. ágúst 1956, m. Jóhann Þorvaldsson, f. 19. ágúst 1951, og eiga þau þrjú börn og sex barnabörn. Þau skildu. 3) Haukur Kristinsson, f. 22. september 1957. 4) Kristinn Magn- ús Kristinsson, f. 18. apríl 1962, m. Kristín Ottósdóttir, f. 7. mars 1963, og eiga þau fjögur börn. Þau skildu. Kristinn kvæntist aftur, Ásthildi Thorsteinsson f. 1. desember 1946, d. 5. des. 1990. Eignuðust þau soninn Magnús Loga, f. 12. mars 1975, m. Riina Turpeinen, f. 24. september 1970 í Finn- landi. Eiga þau tvö börn. Þau slitu sambúð. Alls eru því barnabörn orð- in 19 og barnabarnabörn 12. Eftir ýmis störf á unglings- árum hóf Kristinn störf í dósaverksmiðju föður síns og síðan hjá Vélsmiðjunni Sindra Elsku pabbi. Það er eitthvað svo óraunveru- legt að sitja hér og kveðja pabba rúmu ári eftir að mamma lést. Í lok desember var hann fluttur mjög veikur á spítala og fljótlega var okkur sagt að stutt væri eftir. Síðan þá höfum við átt hvern dag með honum og átt góðar stundir saman þó að oft hafi verið erfitt að horfa á hann þar sem honum leið misvel. Líf hans og okkar var ekki allt- af dans á rósum en hann vildi allt- af öllum vel og setti sig ávallt í annað sæti. Ég var átján ára þeg- ar foreldrar okkar skildu og var það unglingnum erfitt að horfa á pabba sinn yfirgefa heimili sitt með nánast ekki neitt. En þið mamma voruð alltaf góðir vinir, nánast háð hvort öðru. Vinskapur ykkar var okkur systkinunum mikils virði. Pabbi kvæntist aftur, kom sér aftur upp fallegu heimili á Öldu- götunni í Hafnarfirði þar sem hann eignaðist bróður okkar, Magga Loga. Hjónabandið stóð stutt og þurfti hann að byggja sitt líf upp að nýju. Framtíðarheimili eignaðist hann síðar á Kleppsvegi 30 þar sem hann kom sér upp fal- legu heimili. Margar góðar minningar koma í hugann, skemmtilegar helgar á Búrfelli þar sem hann vann um tíma, allar skíðaferðirnar með okkur og börnunum okkar. Á sín- um yngri árum var hann afreks- maður á skíðum og skilaði það sér svo sannarlega til okkar og barnanna okkar og nú áfram til barnabarnanna. Stoltur afi og langafi væri hann nú að sjá þau í fjöllunum. Eftir að hafa hannað og teiknað fjöldann allan af sum- arbústöðum byggði hann sér fal- legan bústað í Grímsnesinu, þá kominn á áttræðisaldur. Átti hann þar margar góðar stundir. Pabbi var víðlesinn og fróður maður, hafði unun af lestri góðra bóka og var mjög gaman og fróð- legt að spjalla saman um menn og málefni. Síðustu þrjú árin bjó pabbi í þjónustuíbúð í Norðurbrúninni. Við fráfall mömmu brotnaði hann svolítið niður við að missa lífsföru- naut og vin. Ævinlega verðum við þakklát fyrir að eiga góða minn- ingu um kvöldstund 20. desember þegar hann bauð okkur í jólamat í Norðurbrúninni. Ætluðum við að borða með honum aftur á gaml- árskvöld en ekki fer alltaf allt eins og ætlað er. Takk fyrir allt, elsku pabbi, þú sagðir okkur alltaf hvað þú værir stoltur af okkur og börnunum okkar. Nú færð þú að hvíla hjá mömmu og minning um góðan mann lifir. Við Gulla kveðjum þig með miklum söknuði. Þinn sonur, Yngvi Þór. Stórt skarð hefur verið höggvið í líf mitt nú þegar faðir minn, fag- teiknarinn er fallinn í valinn. Faðir minn var skarpgreindur og mjög vel að sér um margt. Hann hafði næmt skopskyn og átti jafnan auðvelt með að sjá hin- ar léttari hliðar tilverunnar. Hann var mikill unnandi list- arinnar og í hvert skipti sem ég kom heim til Íslands í heimsókn byrjaði ég á að fara til hans í kaffi og yfirleitt ræddum við um ljóð- listina og myndlistina og svo auð- vitað að fá lánaðan bílinn svo ég gæti brunað um göturnar. Áhugasamur var hann um nú- tímalistina og vildi alltaf vita hvernig gengi hjá listamönnunum í dag. Oft sagði hann mér sömu söguna af því þegar hann sjálfur vann og bjó í Vestmannaeyjum með Jóni Gunnari myndhöggvara og braust stoltið út í augum hans að geta deilt sögum af ævintýrum þeirra beggja í Vestmannaeyjum. Hann var stoltur af strákunum mínum í Finnlandi og þótti honum merkilegt að eiga barnabörn sem voru hálffinnsk og vera kominn með þessi tengsl til Finnlands. Faðir minn varð vinur vina minna spurði hann allt til síðasta dags um hvernig gengi hjá strák- unum og hvað þeir væru að bar- dúsa í lífinu í dag. Takk pabbi fyrir allar heim- spekilegu vangavelturnar um al- heiminn og fróðleik þinn um ljóð- in og gömlu höfundana. Heimsóknirnar á listasöfnin og vangavelturnar um hvað þetta nú allt saman þýðir. Sumir dagar eru hús sem við læsum vandlega áður en við kveðjum og hverfum út á vettvang áranna en ef við síðar förum þar hjá af tilviljun sjáum við allar dyr opnar – börn dvelja þar að leik og það sem mest er um vert: sólin skín ótrúlega glatt á húsið. (Þorsteinn frá Hamri.) Magnús Logi Kristinsson. Nú er elsku pabbi minn búinn að fá hvíldina eftir erfið veikindi og ég veit að hann er hvíldinni feginn. En ég sakna hans og hefði viljað hafa hann alltaf og ég hef reyndar haft hann í 62 ár. Hann átti langa ævi, mjög ánægjulega en auðvitað skiptust á skin og skúrir. Pabbi var bæði besti vinur minn og trúnaðarvinur. Ég væri örugglega ekki hér að skrifa ef ég hefði ekki átt pabba að. Fyrsta minning mín um hann var hvað hann var skemmtilegur og alltaf svo gaman þegar hann kom heim úr vinnunni. Hann hafði svo mik- inn húmor og var svo skemmti- legur. Á góðum tímum sátum við öll börnin í kringum hann og hann sagði brandara og sögur og við hlógum og hlógum. Hann spilaði líka á munnhörpu og við sungum. Það er svo margs að minnast frá æskuárunum. Svo skildi leiðir hjá mömmu og pabba og þá var sam- bandið stopulla en það slitnaði aldrei. Síðustu 20-30 ár höfum við ver- ið bestu vinir, ferðast og gert margt skemmtilegt saman og var pabbi alltaf að passa einu stelp- una sína. Hann byggði sumarbú- staðinn sinn sjötugur að aldri og var honum mjög annt um hann. Þar áttum við margar góðar stundir þótt fyrstu árin hafi geng- ið á ýmsu. Hann hljóp til dæmis á eftir okkur og skrúfaði fyrir krana til þess að vatnstankurinn myndi ekki tæmast og rotþróin fyllast, það mátti ekki grilla á pall- inum því þá gat kviknað í en það mátti ekki heldur grilla úti í móa því þá gat líka kviknað í. Það mátti helst ekki kaupa neina óþarfa hluti og fylla bústaðinn af drasli eins og hreingerningavör- um en hann notaði sápustykki og gamlan pensil til að vaska upp sem honum fannst duga fínt og skildi ekkert í þessum innkaup- um. Við höfum hlegið mikið að þessu og eigum góðar minningar úr bústaðnum. Það var bara alltaf gaman með pabba. Hann var svo hógvær og stærði sig ekki af neinu þótt hann hefði vel haft efni á því. Hann vissi einhvern veginn allt um allt. Alltaf var hægt að leita til pabba, alveg sama hvað gekk á. Við vorum í daglegu sam- bandi og mér finnst ég bara hálf manneskja án hans. Hvíldu í friði, elsku pabbi minn, og þú munt allt- af vera í hjarta mínu. Þín dóttir Anna. Nú er Bói blessaður allur, fyrr en við áttum von á. Ættingjar og vinir syrgja einstakt ljúfmenni. Ég þekkti Bóa frá unga aldri og þótti alltaf mjög vænt um þennan kæra stjúpa. Sem krakki heimsótti ég oft þau mömmu, Bóa og systkini í Reykjavík. Mjög gaman og þægilegt var að vera í nánd Bóa. Hann var einstaklega barngóður, gaf sér tíma til að vera með okkur krökkunum, spjallaði um heima og geima, hló með okk- ur, fór með okkur í sund og á skíði. Bói var einstakt gæðablóð, ljúf- ur, þolinmóður og blíður, greið- vikinn og sannur haukur í horni. Einnig var hann mjög hugs- andi, las mikið og fylgdist með heimsmálum og hafði gaman af að spjalla – og stundum þusa! – við unga sem aldna um daginn og veginn. Hann kom að ýmsum stórverk- um eins og t.d. Búrfellsvirkjun og álverksmiðjunni í Straumsvík. Um tíma vann hann hjá föður sín- um í Dósaverksmiðjunni við fram- leiðslu á hlutum sem prýddu fjölda heimila áður fyrr, t.d. inni- ljósin úr málmhringjum og svo kökudunkana með myndum af konum í íslenskum búningum. Svo hafa verið reist vítt og breitt um landið yfir 1.000 sumarhús eftir teikningum hans. Allt sem Bói tók sér fyrir hendur ein- kenndist af vandvirkni og smekk- vísi. Ég þakka sérstök kynni við einstakan mann, votta systkinum mínum, fjölskyldum þeirra og öðrum ástvinum hans og vinum dýpstu samúð. Sérstakt ljúfmenni er fallið frá en vonandi munu allar góðu minningarnar létta söknuð- inn. Í Guðs friði. Einar Valgeir. Ég mun aldrei gleyma þeirri stund þegar við hittumst öll fjöl- skyldan uppi í sumarbústað með þér. Þú varst alltaf hress og fynd- inn. Þú varst yngri í anda en flest okkar yngra fólksins. Takk Bói fyrir að hafa verið afi strákanna minna og hafa alltaf tekið svo vel á móti mér inn í fjöl- skylduna. Þú verður ávallt í hjarta okkar, við munum sakna þín. Takk fyrir að vera hluti af lífi okkar. Hamingja okkar mun vera sterkari. Kærleikur okkar mun verða dýpri. Líf okkar mun verða ríkara. Vegna þess að við deildum þínum augnablikum. Riina Turpeinen. Takk afi fyrir allar stundirnar saman þegar við komum til Ís- lands. Skemmtilegast var að fara á KFC saman að borða og svo í bíl- túr. Alltaf þegar við erum að keyra á nýja bílnum í Finnlandi hugsum við til þín. Þú varst góður og skemmtileg- ur afi sem var alltaf gaman að hitta. Helgi Ilmari og Ville Logi. Elsku afi. Núna ertu farinn yfir, yfir til ömmu. Allir sem þekktu ykkur ömmu vita að þrátt fyrir allt tókst ykkur aldrei að vera lengi í burtu frá hvort öðru. Við efumst ekki um að amma sé að taka á móti þér með miklum fögnuði, eftir að vera aðeins búin að tuða í þér um leið- ina sem þú fórst. Þið hafið nefni- lega yfirleitt valið ykkur að vera samferða allt sem þið fóruð, vit- andi að þið væruð algjörlega ósammála um hvaða leið væri best, þið rifust þá bara aðeins um það í bílnum en komuð samt bros- andi á áfangastað. Þetta litla dæmi er einmitt svo lýsandi fyrir þig, elsku afi. Við þekkjum þig sem mann með mik- ið jafnaðargeð sem náðir alltaf að brosa í gegnum allt. Við þekkjum engan sem brosir ekki þegar við nefnum þig á nafn. Það bera þér allir svo vel söguna. Þú varst svo fyndinn og skemmtilegur. Sög- urnar þínar munu lifa um ókomna tíð og nú er það okkar verkefni að útskýra fyrir fólki að þetta hafi ekki verið brandari, heldur nokk- uð sem Bói afi lenti raunverulega í. Þú vissir líka svo ótal margt og það var svo gaman að tala við þig um allt. Þrátt fyrir að þú hafir vit- að svona margt og verið jafn klár og þú varst, þá steig það þér aldr- ei til höfuðs og aldrei máttum við hrósa þér fyrir það. Einlægni þín og hjartahlýja gerði það líka að verkum að það var svo dásamlegt að segja þér frá eða sýna þér eitt- hvað sem við höfðum afrekað. Þú samgladdist svo innilega og varst svo innilega stoltur af barnabörn- unum þínum öllum. Takk, afi, fyrir að hafa verið maðurinn sem þú varst og takk fyrir allar góðu stundirnar okkar saman. Við munum svo sannar- lega sakna þín. Þangað til næst, Finnur, Kristín og Margrét. Elsku afi okkar, það er svo sárt að kveðja þig en við vitum að þér líður betur núna. Það var alltaf svo skemmtilegt að vera með þér. Þú varst alltaf að segja sögur og varst fullur af fróðleik. Þú sagðir líka svo skemmtilega frá öllu og maður hlustaði alltaf á með at- hygli. Þú varst líka listhneigður og hafði gaman af því að teikna, spila á munnhörpu eða hljómborðið þitt, lesa og læra ljóð og slóst um þig með því og öðrum orðatiltækj- um. Eins og „Summa lastanna er konstant“ en lengi framan af skildum við ekki hvað það þýddi en okkur fannst voða gaman að segja það. Þú varst svo ljúfur og komst vel fram við alla. Þú sagðir líka alltaf að þeir sem gerðu mistök væru skemmtilegasta fólkið. Við sjáum það líka núna hvað margir hugsa hlýtt til þín og dásama þig. Eins ljúfur og þú varst þá gastu samt líka verið þver og það var eiginlega vonlaust að vinna þig í rökræðum því þótt maður væri ekki sammála þá varstu svo vel upplýstur að þú varst með góð rök fyrir öllu. Þú varst líka eftirsóttur og vinsæll í vinnu og ef við kom- umst með tærnar þar sem þú hafðir hælana erum við ánægðar. Við munum þegar þú varst að spá í minningargreinar og þú tókst eftir því að það var miklu meira skrifað um húsmæður en kannski virta menn í samfélaginu. Ég held að við getum fullyrt að þó að þú hafir verið virtur áttu eflaust eftir að slá mörgum húsmæðrunum við. Það var svo auðvelt að tala við þig og við gátum talað um allt saman, og eins hlegið að öllu sam- an. Þú varst sá allra ljúfasti og flottasti og við erum báðar stoltar af því að bera sama starfstitil og þú. Elsku afi, við eigum eftir að sakna þín mikið. Við elskum þig og vitum að það verður tekið vel á móti þér. Við kveðjum þig með uppá- haldserindinu þínu úr ljóðinu Konan sem kyndir ofninn minn eftir Davíð Stefánsson Ég finn það gegnum svefninn, að einhver læðist inn með eldhúslampann sinn, og veit, að það er konan, sem kyndir ofninn minn, sem út með ösku fer og eld að spónum ber og yljar upp hjá mér, læðist út úr stofunni og lokar á eftir sér. Þínar Edda og Elsa Dóra. Elskulegur bróðir minn, Krist- inn Magnússon eða Bói eins og hann var alltaf kallaður, er nú lát- inn eftir stutt veikindi. Ég hrökk illa við þegar ég fékk þessar frétt- ir því mér finnst svo stutt síðan Bói bróðir heimsótti mig. Þá var hann hress og hafði frá mörgu skemmtilegu að segja enda fylgd- ist hann mjög vel með samfélags- málum og var víðlesinn. Við systkinin tengdumst tryggða- og vináttuböndum frá fyrstu tíð enda aðeins 18 mánuðir á milli okkar. Ég var ung þegar ég fór að passa litla bróður þó að stutt væri á milli okkar. Það var mjög auðvelt að passa hann því hann var einstaklega ljúfur og ró- legur og það lundarfar fylgdi hon- um alla tíð. Þegar við vorum börn og unglingar áttum við marga sameiginlega vini og sameiginlegt áhugamál sem var skíðaíþróttin og var samvera okkar því mikil og náin. Á uppvaxtarárunum bjuggum við víða m.a. á Djúpuvík um tíma þar sem pabbi var verksmiðju- stjóri. Þau ár eru ofarlega í huga mér þessa dagana. Þar voru hætt- urnar allt í kring, klettarnir og sjórinn og mamma bað mig sér- staklega að líta aldrei af Bóa bróður því þá gæti hann dottið í sjóinn. Þessi skilaboð og hlutverk mitt tók ég mjög alvarlega og leit aldrei af litla bróður þá og mér fannst eins og ég þyrfti að líta eft- ir honum allar götur síðan. Nú þegar komið er að hinstu kveðju sitja eftir dýrmætar minn- ingar um góðan dreng. Við Víðir sendum bróðurbörnum mínum, Ingva Þór, Önnu, Hauki, Kristni og Magnúsi Loga og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Hvíl í friði, elsku bróðir. Far þú í friði friður guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt (Valdimar Briem.) Þín systir Karen (Didda). Hinn 1. febrúar bárust okkur þær fregnir að bróðir, mágur og góður vinur okkar til margra ára væri allur. Þó að hann hefði glímt við veikindi um nokkurn tíma er slík fregn alltaf harmafregn. Slík tímamót eru einnig tilvalin til að fara aðeins yfir samverustundir með þeim sem er að kveðja og þakka fyrir góðu stundirnar. Hugurinn reikar hálfa öld til baka þegar við Bói kynntumst og urðum mágar þegar við Ella rugl- uðum saman reytum. Á þessum árum var að hefjast mikið upp- byggingarskeið í íslensku at- vinnulífi þar sem bygging Búr- fells hófst, aðallega til að þjóna þörfum álversins í Straumsvík. Bói vann við Búrfellsvirkjun nán- ast allan smíðatímann og síðan seinna einnig í Straumsvík sem tækniteiknari til margra ára. Um miðjan september 1972 heimsótti ég Bóa til Halden í Noregi en þar starfaði hann um skeið við teikn- un og hönnun á flokkunarvélum fyrir sjávarútveginn. Á hans yngri árum kom í ljós að hann var mjög músíkalskur og spilaði bæði á píanó og munn- hörpu þegar hann bjó í foreldra- húsum við Háteigsveg. Snemma kom fram að hann hafði góða hæfileika sem skíðamaður og keppti oft til verðlauna í þeirri grein. Sem ungur maður fram- leiddi hann inniljósalampa og var sú framleiðsla hliðargrein hjá þeim feðgum, en Magnús faðir hans var eigandi Umbúðaverk- smiðjunnar hf. sem framleiddi meðal annars hinar frægu þjóð- búningadósir. Hönnun og teiknun voru helsta áhugamál Bóa, sem varð til þess að hann sneri sér að því í alvöru að teikna og hanna sumarhús. Til að halda utan um það verkefni stofnaði hann fyrirtækið Teikniv- ang, sem varð fljótlega lands- frægt fyrirtæki þótt ekki væri það stórt í fermetrum, viðurkennt fyr- ir góðar teikningar og afbragðs þjónustu enda var Bói einstakt ljúfmenni og greiðvikinn. Það sem prýddi hann einnig var heiðarleiki í öllum viðskiptum, nokkuð sem nútíminn þyrfti að læra. Það var alltaf eitthvað hress- andi við að hitta Bóa. Húmorinn var aldrei langt undan og hann sá oft fyndnina í málefnum dagsins eða mannlegum samskiptum. Það var gaman að hlusta á hann fara yfir málin, hann fann oft nýtt sjónarhorn á mönnum og málefn- um sem engan hrekkti og hann skildi mann oft eftir með nýja hugsun í stöðunni. Bói var af þeirri kynslóð þegar ekki var hægt að skipta um kenni- tölu eins og sokka, menn urðu Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.