Morgunblaðið - 13.02.2019, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 13.02.2019, Qupperneq 27
framkvæmdastjóri Eimskips í Evrópu í tvö ár og framkvæmdastjóri Eim- skips í Hollandi í tvö ár. Frá 2006 hef- ur Björn verið framkvæmdastjóri TVG-Zimsen sem er dótturfélag Eimskips. TVG-Zimsen er alhliða flutnings- miðlun sem býður alla þjónustu tengda innflutningi og útflutningi ásamt víðtækum sérlausnum. Þegar Björn var ráðinn hófst hann handa við að skilgreina og innleiða nýja stefnu fyrir TVG-Zimsen. Áhersla var lögð á að byggja upp fyrirtækið að alþjóð- legri fyrirmynd. Umsvif TVG-Zimsen jukust jafnt og þétt á næstu árum og fyrirtækið tryggði sér samninga við öflug flutningsmiðlunarfyrirtæki sem styrkti stöðu þess enn frekar í þjónustu og flutningum. Björn sat í stjórn ÍTF 2011-2012, var formaður Knattspyrnudeildar Víkings 2007-2013 og hefur verið for- maður Víkings frá 2013. „Ég er borinn og barnfæddur Vík- ingur, félagið er hluti af hjartanu og ég hef starfað fyrir það sleitulaust eftir að ég kom frá Hollandi. Hverfistenging Víkings er mér ofarlega í huga og ég legg mikla áherslu á að Víkingur spili kjölfestuhlutverk í hverfinu. Ég bý sjálfur hérna og það var ljúft að koma til baka eftir 20 ára fjarveru í öðrum löndum og hverfum. Ég tel að keppn- isskapið skipti miklu máli til að hafa metnað í starfi og vilja til að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi.“ Fjölskylda Eiginkona Björns er Katla Guð- jónsdóttir, f. 1.10. 1986, framkvæmda- stjóri Ísbúðar Vesturbæjar. Foreldrar hennar eru hjónin Guðjón Rúnarsson, f. 16.3. 1957, framkvæmdastjóri Kjarnavara hf. og Sandra Georgsdótt- ir f. 28.10.1957, kennari. Þau eru bú- sett í Kópavogi. Börn: 1) Sigurður Hrannar Björns- son, f. 26.12. 1993, viðskiptafræðingur, maki: Hera Guðlaugsdóttir flugfreyja; 2) Tómas Atli Björnsson, f. 6.6. 2000, nemi við Menntaskólann við Hamra- hlíð; 3) Birkir Björnsson, f. 15.10. 2014, 4) Dagur Björnsson, f. 15.10. 2014, og 5) Breki Björnsson, f. 16.9. 2016. Systur Björns eru Hanna Margrét Einarsdóttir, f.12.3. 1973, keramik- hönnuður, búsett í Reykjavík; Unnur Dóra Einarsdóttir, f. 28.6. 1976, mann- auðsráðgjafi hjá Vínbúðinni, búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Björns eru hjónin Einar Ö. Hákonarson, f. 13.12. 1946, vél- virkjameistari og Margrét J. Björns- dóttir, f. 16.3. 1948, læknaritari. Þau eru búsett í Reykjavík Úr frændgarði Björns Einarssonar Björn Einarsson Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja í Rvík Jón Sigurjónsson pípulagningamaður í Rvík Unnur Jóna Jónsdóttir hárgreiðslukona í Rvík Margrét Júlíana Björnsdóttir fv. læknaritari í Rvík Björn Jóhann Guðmundsson vélvirkjameistari í Rvík Júlíana Magnúsdóttir húsfreyja í Rvík Guðmundur Axel Björnsson járnsmiður í Rvík Einar Guðmundsson járnsmiður og leikari Júlíana Einarsdóttir garðyrkjufræðingur í Mosfellsbæ Hafdís Huld tónlistarkona Jón Axel Björnsson myndlistarmaður Sigrún Björnsdóttir kennari í Rvík Orri Páll Jóhannsson aðstoðarmaður umhverfisráðherra Guðbjörg Káradóttir kennari á Patreksfirði og húsfreyja í Rvík Eiríkur Kristófersson skipherra Jón Kristófersson sjómaður hjá Landhelgisgæslunni Hanna Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Rvík órhallur Einarsson ögfræðingur í Rvík Þ l Hinrik Þórhallsson þróttakennari á Akureyrií Bragi Þór Hinriksson kvikmyndaleikstjóri Trausti Einarsson prófessor í í eðlisfræði við HÍ Guðrún Einarsdóttir starfsm. í apóteki ristín Unnsteinsdóttir bókasafnsfræðingur KTómas Lemarquis leikari Stefán Unnsteinsson fiskútflytjandiLogi Pedro Stefánsson tónlistarmaður Unnsteinn Manuel Stefánsson tónlistar- og sjónvarpsmaður Einar Unnsteinsson hótelhaldari á Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði Hákon Einarsson skipasmiður í Rvík Kristín Traustadóttir húsfreyja í Rvík Einar Runólfsson smiður í Rvík Einar Örn Hákonarson vélvirkjameistari í Rvík Yngstu synirnir Dagur, Breki og Birkir í HM-treyjunum. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019 Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur fyrir heim Stærð 232 cm | Verð 299.000 kr. Stærð 202 cm | Verð 275.000 kr. Stærð 172 cm | Verð 235.000 kr. ili Sendum um land allt Guðmundur Löve fæddist 13.febrúar 1919 í Reykjavík.Foreldrar hans voru hjónin Sophus Carl Löve, f. 1876, d. 1952, skipstjóri og Þóra Guðmunda Jóns- dóttir, f. 1888, d. 1972, húsfreyja. Guðmundur ólst upp á Ísafirði og lauk prófi frá Gagnfræðaskóla Ísa- fjarðar. Hann hugði á framhaldsnám en veiktist af berklum. Honum tókst þó að klára kennarapróf 1941 og kenndi í Austurbæjarskóla veturinn 1941-42 en þurfti að hætta kennslu vegna veikinda. Hann varð síðan skrifstofustjóri og félagsmálafulltrúi SÍBS 1946. Hann gegndi sínu starfi hjá SÍBS með sóma og kom meða annars því til leiðar í samvinnu við Reykjavíkur- borg að koma á skömmum tíma öllum berklafjölskyldum úr bröggum og í betra húsnæði. Hann sá einnig að hefðbundin störf hentuðu oft ekki fólki sem átti við veikindi að stríða og þess vegna nýttist oft ekki takmörk- uð vinnugeta, enda þótt hún væri fyr- ir hendi. Til þess að nýta þetta vinnu- afl setti SÍBS á stofn verndaða vinnustofu. Þegar komið var undir 1960 hafði berklaveikin verið á hröðu undan- haldi. Sá Guðmundur þá þörfina á öfl- ugu bandalagi öryrkja og var þá Ör- yrkjabandalag Íslands stofnað og var hann fyrsti framkvæmdastjóri þess. Hann gegndi þeirri stöðu af sama þrótti og hjá SÍBS og í hans tíð voru reistar glæsilegar byggingar í Hátúni. Guðmundur var formaður endur- hæfingarráðs, sat í stjórn SÍBS, í stjórn Reykjalundar, og einnig um langt árabil fulltrúi úthlutunarnefnd- ar öryrkjabifreiða. Hann var einnig í stjórn Íþróttafélags fatlaðra. Guðmundi var veitt heiðursmerki Rauða kross Íslands og var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálka- orðu árið 1977. Eiginkona Guðmundar var Rann- veig Löve, f. 29.6. 1920, d. 13.9. 2015, kennari. Börn þeirra: Sigrún, f. 1942, og Leó Eiríkur, f. 1948, d. 2017. Guðmundur lést 3. maí 1978. Merkir Íslendingar Guðmundur Löve 90 ára Ingibjörg J. Jónasdóttir 80 ára Bjarni Ó. Árnason Björn Baldvinsson Edda Kristjánsdóttir Erla Gígja Þorvaldsdóttir Eygló Gréta Andrésdóttir Guðjón Jónsson Hulda Steinsdóttir 75 ára Guðni Guðmundsson Guðný Davíðsdóttir Hilda Emilía Hilmarsdóttir Karl Þ. Jónasson Kolbrún Guðveigsdóttir Kristín Jónsdóttir 70 ára Björn Jóhannsson Kristín S. Magnúsdóttir Ruth Jóhannsdóttir Sigurður Þór Sigurðsson 60 ára Ásdís Bragadóttir Börkur Arnviðarson Elín María Sigurðardóttir Kristján Hauksson Óskar Sigþór Ingimundarson Rúnar Árnason Skúli Hersteinn Oddgeirsson Victor Ívar Ström Jónsson 50 ára Björn Einarsson Eva Sif Heimisdóttir Guðsteinn Halldórsson Gunnar Gíslason Helgi Kuldeep Kumar Hlynur Svan Eiríksson Jenný Guðmundsdóttir Jónína Sigurlaug Gísladóttir Michael Edward White Sigurður Jóhann Hermannsson 40 ára Bára Ósk Einarsdóttir Eyrún Björg Magnúsdóttir Eyþór Máni Jósefsson Gunnar Jóhann Ásgeirsson Helga Rún Helgadóttir Hrannar Sigurðsson Jón Þór Þorvaldsson Marek Iwanski Mari Kaarina Agge Marinó Heiðar Svavarsson Nadiia Shalimova Saulius Simaitis 30 ára Audrone Malakauskiené Daníel Cochran Jónsson Gisela Santos Cardoso Guðni Páll Kristjánsson Hjörtur Jónasson Ísleifur Örn Guðmundsson Jónatan Friðriksson Kamila Stetková Karina Karolina Trumpus Magnús Már Einarsson Marchin Jerzy Chrostek Ólafur Arason Queny Campos Domaoal Siwaporn Kongsanan Til hamingju með daginn 40 ára Helga er úr Kópa- vogi en býr í Garðabæ. Hún er viðskiptafræð- ingur að mennt og er sérfr. í Seðlabankanum. Maki: Rob Kamsma, f. 1981, tæknifræðingur hjá Eflu. Börn: Thomas Helgi, f. 2009, Elías Kári, f. 2012, og Yngvi Már, f. 2017. Foreldrar: Helgi Þóris- son, 1955, frkvstj., og Sig- ríður Pálsdóttir, 1958, sérfr. hjá Arion banka. Helga Rún Helgadóttir 40 ára Jón Þór er frá Skeljabrekku í Borgarfirði en býr í Borgarnesi. Hann er bílstjóri hjá Borgarverki. Maki: Arna Pálsdóttir, f. 1975, bókari hjá Borgar- verki. Börn: Maríus, f. 2003, Anna, f. 2003, Þorvaldur, f. 2007, stjúpbörn: Hlín, f. 1998, Hlynur, f. 2000, og Hugrún, f. 2008. Foreldrar: Þorvaldur Jóns- son, f. 1954, og Dagný Sig- urðardóttir, f. 1959. Jón Þór Þorvaldsson 30 ára Magnús ólst upp á Esjugrund á Kjalarnesi en býr í Mosfellsbæ. Hann er ritstjóri Fótbolti.net. Maki: Anna Guðrún Inga- dóttir, f. 1990, tölvunarfr. hjá Advania. Sonur: Einar Ingi, f. 2018. Foreldrar: Einar Þór Magnússon, f. 1964, stöðvarstj. hjá Frumherja, og Hanna Símonardóttir, f. 1966, vallarstjóri á íþróttasvæðinu Tungu- bökkum. Magnús Már Einarsson Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.