Morgunblaðið - 13.02.2019, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Stundum ertu sólgin/n í að vera í
hópi og skemmta þér. Tækifæri til þess
verða mörg næstu vikur. Gamall vinur kemur
aftur til sögunnar.
20. apríl - 20. maí
Naut Það getur dregið dilk á eftir sér að
gera hlutina ekki upp strax. Gleymdu því
sem ætlast er til af þér, og hlustaðu á rödd
hæfileika þinna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Lausnir margra mála liggja nær
þér en þú vilt í fljótu bragði viðurkenna. Ein-
hverjir gamlir vinir setja sig í samband við
þig aftur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þetta er góður dagur til að ræða við
fjölskylduna um fjármálin og það sem fram-
undan er. Fasteignaviðskipti ættu að skila
góðum hagnaði.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér finnst einhvern veginn eins og þú
sért að missa tökin á hlutunum. Taktu þér
tíma því að flas er ekki til fagnaðar. Sýndu
unglingi skilning og þá mun ykkur ganga allt
í haginn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gleymdu vonbrigðum þínum, lífið er
ekki bara dans á rósum. Láttu stoltið ekki
hindra þig núna því þú þarft á hjálp að
halda.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert eitthvað annars hugar í vinnunni
og verður að taka þig á áður en allt fer í
hund og kött. Horfstu í augu við drauga for-
tíðarinnar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þér finnst brotið á þér áttu
ekki að hika við að láta í þér heyra. Geymdu
öll fagnaðarlæti þangað til öll kurl eru komin
til grafar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vígin eru til að vinna þau svo ef
þú hefur tök á að afgreiða málin núna skaltu
gera það. Þú hefur verið dugleg/ur við að
leggja inn í reynslubankann, það breytist
ekki þetta árið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert í góðu jafnvægi og hefur
því góð áhrif á alla í kringum þig. Vertu já-
kvæð/ur og hafðu trú á að allt fari vel.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Samræður við náungann taka
óvænta stefnu í dag. Leystu því eigin vanda-
mál áður en þú fæst við vanda annarra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Dagurinn í dag er kjörinn til þess að
gera við allt sem er bilað á heimilinu. Vertu
því á verði og láttu gott tækifæri ekki renna
þér úr greipum. Leyfðu öðrum að finna svör
við sínum vanda.
Bandaríski blaðamaðurinn og rit-höfundurinn Robert Caro hefur
varið rúmlega helmingi ævi sinnar í
að rannsaka og skrifa um ævi Lynd-
ons B. Johnsons, sem var forseti
Bandaríkjanna frá 1963 til 1969.
Bækur Caros um Johnson eru orðnar
fjórar og rúmlega þrjú þúsund blað-
síður í allt. Fyrsta bókin kom út 1982,
sú fjórða 2012 og hann á eitt bindi eft-
ir, sem ekki er víst hvenær kemur út.
x x x
Nýlega birtist grein eftir Caro ítímaritinu The New Yorker þar
sem hann lýsir því hvernig hann upp-
götvaði ástríðu sína fyrir að liggja yf-
ir skjölum þegar hann var ungur
blaðamaður. Ritstjóri hans sagði að
hann ætti að fletta hverju skjali. Því
ráði fylgdi hann dyggilega er hann lá
yfir skjölum frá stjórnmálaferli John-
sons og varð margs vísari, meðal ann-
ars um það hvernig hann komst til
áhrifa á Bandaríkjaþingi.
x x x
Caro segir einnig frá því að hannhafi farið á æskuslóðir Johnsons
í Texas til að ræða við samferðamenn
hans. Þótti honum þeir lokaðir og fá-
málir um forsetann. Blaðamenn allra
helstu fjölmiðla landsins og margra
minni miðla hefðu komið á þessar
slóðir til að spyrja um æsku hans og
uppvaxtarár og voru heimamenn
orðnir varir um sig gagnvart þeim.
Caro ákvað því að setjast að á æsku-
slóðum viðfangsefnisins ásamt konu
sinni og bjó þar meira og minna í þrjú
ár. Segir Caro að konu sinni hafi þótt
nóg um og spurt hann hvers vegna
hann gæti ekki skrifað ævisögu
Napóleons. Við flutninginn ger-
breyttist viðmótið gagnvart honum
og fólk varð mun opnara. Hann fékk
líka allt aðra mynd af Johnson en áð-
ur hafði komið fram.
x x x
Caro byrjaði að afla heimilda fyrirævisöguna um Johnson árið
1976. Nú er Caro 83 ára. Í greininni í
The New Yorker segir hann að enn
séu nokkur ár í að hann ljúki fimmta
og síðasta bindinu. Hann ætlar líka að
skrifa endurminningar, meðal annars
um reynslu sína af að skrifa um John-
son, en er ekki viss um að sér endist
tími til þess. vikverji@mbl.is
Víkverji
Hinn réttláti gleðst yfir Drottni og leit-
ar hælis hjá honum og allir hjarta-
hreinir munu sigri hrósa.
(Sálm: 64.11)
Á sunnudag skrifaði Jón Giss-urarson á Boðnarmjöð: „Síðdeg-
is í dag var hér stillt og bjart veður
með sjö gráða frosti. Hríðarélið sem
var hér í gær og fyrradag er flúið til
fjalla og fönnin er lítil. Svartasta
skammdegið er að baki þetta árið og
birtan er hægt og bítandi að taka
völdin. Síðdegissólin baðaði Skaga-
fjörð afar fallegri birtu nú undir
rökkrið.“
Hríðin hún flúði til fjalla í gær
felur þó snjóhulan runna.
Skammdegið búið og skuggarnir fjær
skín yfir landinu sunna.
Í síðdegis birtunni finnst mér svo flott
fjörðinn minn yfir að líta.
Lífið í honum er ljómandi gott
og leikur á fölinu hvíta.
Sama dag skrifaði Ingólfur Ómar í
Leirinn: „Fallegt veður ríkir hér
syðra, bjart og stillt með smá frosti“:
Glóey kyndir geislabrá
gyllir tind og ögur.
Himinlindin björt og blá
brosir yndisfögur.
Jón H. Arnljótsson svaraði að
bragði: „Ég er hættur að geta ort
heilar vísur, en reikna með að það
lagist aftur. Það rifjaðist hins vegar
upp gömul vísa og ég ákvað að skella
henni hér inn, að vísu lítillega
breyttri (vonandi til bóta)“:
Veður fagurt varð á ný,
í veislu ragur þyrði.
Góður dagur gengur í
garð í Skagafirði.
Þannig var hljóðið í Sigmundi
Benediktssyni á mánudag:
Anda gefur ljúflings leiði,
letur engin pólitík.
Skefur mjöll á Hellisheiði,
hér er sólin blíðurík.
Þetta er falleg vetrarstemning hjá
Gunnari J. Straumland á Boðnarmiði:
Stirnir ljósi storðin öll,
stækka andans turnar.
Englar Guðs í himnahöll
hrista dúnsængurnar.
Það er gamla sagan, – Pétur Stef-
ánsson yrkir:
Oft hef ég mér í drykkju drekkt,
dapur í hugraun sárri.
Að dreypa á öli er unaðslegt,
en ást á konu er skárri.
Ennþá vill hún á mig hlýða.
Aldrei brúkar röfl og pex.
Eftir því sem árin líða,
ást til konu minnar vex.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fallegt veður en skafrenn-
ingur á Hellisheiði
RÓBERT MUNKUR BAÐ TIL GUÐS AÐ HANN
RÆKIST EKKI Á NEINN SÉR KUNNUGAN ÁÐUR
EN HANN GÆTI ÞVEGIÐ GELIÐ ÚR HÁRINU.
„ViÐ byrjum á aÐ taka nokkrar
röntgen-myndir, þá fyrstu af veskinu
þínu.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að þvo ekki varalitinn
hennar af bollanum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GRETTIR, ÉG
AÐHYLLIST NÝJA
LÍFSSPEKI
SEM MYNDI
VERA?
AÐ LIFA HVERN DAG
EINS OG ÉG EIGI
AFMÆLI
HVÍ ÞÁ?
KÖKUGRÍSIR
HUGSA EINS
ÞANNIG GETUM
VIÐ BORÐAÐ
FLEIRI KÖKUR
KONAN ÞARNA SAGÐIST
MYNDU FARA ÚT MEÐ MÉR
EF ÉG LÆT MÉR
SPRETTA GRÖN
NÚ GERÐU ÞAÐ
ÞÁ! HÚN ER
GULLFALLEG!
ÉG ER AÐ REYNA EN ÞAÐ ERU BARA
LIÐNIR ÁTTA MÁNUÐIR!
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 15. mars
Fermingarblaðið er
eitt af vinsælustu
sérblöðum
Morgunblaðsins.
Fjallað verður um
allt sem tengist
fermingunni.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 11. mars.
SÉRBLAÐ