Morgunblaðið - 13.02.2019, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 2019
Nýjasta verk Íslenskadansflokksins, Um hvaðsyngjum við, var frum-sýnt síðastliðið föstu-
dagskvöld á Stóra sviði Borgarleik-
hússins, en verkið er byggt á
hugmynd belgíska danshöfundarins
Pieter Ampe og er hann titlaður
höfundur þess í samvinnu við fjóra
aðra höfunda og dansara flokksins.
Tónlistin er úr ýmsum áttum, mest
dægurlög sem tengjast efni verks-
ins, en samsetning hennar og radd-
þjálfun dansaranna er í höndum
Jakobs Ampe. Alls taka átta dans-
arar þátt í sýningunni og eru þrír
þeirra að koma fram í fyrsta skipti
með flokknum sem hefur tekið
miklum breytingum undanfarið.
Í blábyrjun verksins blasir við
áhorfendum autt svið í vinnulýs-
ingu. Dansararnir tínast svo inn
einn af öðru með ýmislegt sviðsdót,
sem þau raða saman og klæða með
litríkum tjöldum. Eitthvað verður
til sem minnir kannski á skýli eða
tjald, og ósjálfrátt dettur manni í
hug börn í útilegu eða krakkar í
sumarbúðum. Undir hljómar nos-
talgísk popptónlist. Einn dansarinn
tilkynnir okkur að í kvöld ætli þau
að deila með okkur sínum persónu-
legu sögum, upplifunum og við-
horfum – og berskjalda sig. Hún
ætli hins vegar að dansa sinn sárs-
auka og exístensíal pælingar sem
hún gerir af mikilli alúð. Annar
dansari reynir eftirminnilega að
stökkva í loftið á hælaháum skóm
sem er hægt að túlka sem hans
innri baráttu. Dansararnir dansa
eins og það sé enginn að horfa og
persónuleiki þeirra skín í gegn sem
er áhrifaríkt. Það fylgir sviðsetning-
unni fyrirheit um spennandi frá-
sögn, allt getur gerst og áhugi
áhorfandans er vakinn.
Frásögnin breytist þó fljótt og
tekur á sig það form að verða röð af
sólóatriðum með stuttum teng-
ingum, þar sem einn dansarinn af
öðrum segir einhvers konar sögu
eða lýsir ástandi með samblandi af
leik, söng, og dansi. Öll umfjöll-
unarefni eru leyfileg, og eina teng-
ingin á milli þeirra eru manneskj-
urnar á sviðinu.
Strax eftir fyrstu „söguna“ fer
maður að velta fyrir sér hvort
svona persónulegar frásagnir eigi
eitthvert erindi við okkur áhorf-
endur. Af hverju eigum við áhorf-
endur að sitja undir því í stórum sal
að hlusta á misjafnlega vel útfærðar
frásagnir dansara um sitt eigið líf?
Það sem virtist ætla að verða
spennandi sýning verður fljótt
þreytandi og innihaldslaust.
Senurnar streyma síðan ein af
annarri og þá oftar en ekki í litlu
eða engu samhengi við þá næstu,
bara samansafn af ólíkum persónu-
legum opnunum. Stundum verður
þetta hreinlega pínlegt og maður
spyr sig hversu langt höfundur
verksins ætli að fara í að kreista
fram eitthvað úr einkalífi dans-
aranna til að sjokkera áhorfendur.
Má t.d. nefna senu þar sem einn
dansarinn sýnir kynferðislega til-
burði við „sofandi“ líkama hinna.
Meðvirkni, valdastaða, forréttindi
og ofbeldi eru orð sem fljóta á yf-
irborðinu, gagnvart dönsurunum
sjálfum og einnig gagnvart áhorf-
endum.
Dansararnir leggja sig mjög mik-
ið fram, eins og þeirra er von og
vísa, og þeir ná að skapa fögur
augnablik í verkinu. Sérstaklega má
nefna minnisstæða mynd þar sem
einn dansaranna dansar nakinn og
leikur sér með stóra og hvasstennta
sög. Eins eru nokkur góð tilboð
sem augljóslega koma frá döns-
urunum, ljóðrænar myndir sem og
áhugaverðar hugleiðingar, sem því
miður týnast í óljósum óreiðuheimi.
Úti í sal virðist manni allt að því
áþreifanlegt að dönsurunum líður
óþægilega, og þeir eigi fullt í fangi
með að standa með verkinu. Senan
þar sem dansarinn reynir að dansa
í hælaháum skóm fær nýja merk-
ingu. Lokaatriðið, væmið karókí-
atriði í anda bandarískra bíómynda,
má jafnvel túlka sem íróníu eða til-
raun til uppreisnar gagnvart höf-
undinum.
Að sviðsetja hið persónulega get-
ur verið stórkostleg aðferðafræði,
en mjög vandmeðfarin. Antonin Ar-
taud prédikaði að í leikhúsi ætti
flytjandinn að færa persónulega
fórn og afhjúpa sjálfan sig – og
þannig gæti áhorfandinn upplifað
hina sönnu gleði sem samfélagið
hefur þjálfað hann í að bæla. Í
verkinu sem hér um ræðir skortir
hins vegar alla greiningu á við-
fangsefninu og ramma í kringum
frásögnina, en umfram allt þá vant-
ar dýpt: að verkið sé að segja eitt-
hvað, eitthvað brenni á því. Útkom-
an verður því væmin, klisjukennd
og jaðrar við tilfinningaklám. Upp-
lifunin er svolítið eins og að vera
óvart staddur á einhvers konar
blöndu af árshátíð og AA-fundi.
Ýmsar spurningar vakna að lok-
inni sýningu, s.s. um hver sé al-
mennt þróun dansins í dag, um ein-
lægni á sviði, um mörk hins
persónulega og almenna, um
ábyrgð höfundarins og hversu mik-
ils er hægt að krefjast af dans-
aranum í nafni listarinnar. Sú
spurning vaknar líka hvort „sjálf-
hverfan“ í öllu sínu veldi sé ef til vill
að taka yfir mikilvægi hins listræna
í sviðslistum. Dansararnir halda
verkinu uppi með hugrekki sínu, en
þau eru sett í mjög erfiða stöðu þar
sem eina hugsjón verksins liggur á
þeim sjálfum að framleiða. Þetta
skiptir þó kannski ekki öllu máli því
þegar á allt er litið, og allir mega og
eiga að gera allt, og verkið á að
vera um allt, þá er það í raun ekki
um neitt, ekki um nokkurn skap-
aðan hlut – og dettur dautt niður.
Að syngja um
ekki neitt
Berskjaldaður „Dansararnir leggja sig mjög mikið fram, eins og þeirra er von og vísa, og þeir ná að skapa fögur
augnablik í verkinu. Sérstaklega má nefna minnisstæða mynd þar sem einn dansaranna dansar nakinn og leikur sér
með stóra og hvasstennta sög,“ segir í rýni um Um hvað syngjum við hjá Íslenska dansflokknum.
Borgarleikhúsið
Um hvað syngjum við bbnnn
Eftir Pieter Ampe í náinni samvinnu við
Jakob Ampe, Valdimar Jóhannsson,
Barböru Demaret, Jelle Clarise og dans-
ara Íslenska dansflokksins. Hugmynd:
Pieter Ampe. Tónlist, samsetning og
raddþjálfun: Jakob Ampe. Glöggt auga:
Jelle Clarisse. Dramatúrgísk aðstoð:
Barbara Demaret. Ljós og leynd aðstoð:
Valdimar Jóhannsson. Dansarar: Sig-
urður Andrean Sigurgeirsson, Elín
Signý Weywadt Ragnarsdóttir, Erna
Gunnarsdóttir, Felix Urbina Alejandre,
Charmene Pang, Tilly Sordat, Shota
Inoue og Una Björg Bjarnadóttir. Ís-
lenski dansflokkurinn frumsýndi á
Stóra sviði Borgarleikhússins föstudag-
inn 8. febrúar 2019.
NÍNA
HJÁLMARSDÓTTIR
DANS
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn
Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn
Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas.
Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas.
Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas.
Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas.
Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 Aukas.
Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 Aukas.
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 15/2 kl. 19:30 Aukas. Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Lau 9/3 kl. 19:30 17.sýn
Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn
Fös 22/2 kl. 19:30 Auka Fös 8/3 kl. 19:30 16.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn
Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 Auka Sun 24/3 kl. 15:00 18.sýn
Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 19.sýn
Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Lau 30/3 kl. 15:00 20.sýn
Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 21.sýn
Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Sun 17/3 kl. 17:00 Auka Sun 31/3 kl. 17:00 22.sýn
Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums Fim 28/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 8.sýn
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 7.sýn
Velkomin heim (Kassinn)
Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn Lau 16/2 kl. 19:30 6.sýn Sun 17/2 kl. 19:30 7.sýn
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 13/2 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Mið 20/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 14/2 kl. 19:30 Fim 21/2 kl. 19:30 Sun 24/2 kl. 21:00
Fös 15/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 19:30 Mán 25/2 kl. 22:00
Fös 15/2 kl. 22:00 Fös 22/2 kl. 22:00 Fim 28/2 kl. 19:30
Lau 16/2 kl. 19:30 Lau 23/2 kl. 19:30
Lau 16/2 kl. 22:00 Lau 23/2 kl. 22:00
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/2 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Þri 12/3 kl. 19:00 Fors. Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s
Mið 13/3 kl. 19:00 Fors. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s
Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Miðasalan er hafin!
Elly (Stóra sviðið)
Fös 15/2 kl. 20:00 201. s Lau 23/2 kl. 20:00 204. s Fös 8/3 kl. 20:00 207. s
Lau 16/2 kl. 20:00 202. s Fös 1/3 kl. 20:00 205. s Lau 9/3 kl. 20:00 208. s
Fös 22/2 kl. 20:00 203. s Lau 2/3 kl. 20:00 206. s
Sýningum lýkur í mars.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Fim 21/2 kl. 20:00 13. s Sun 3/3 kl. 20:00 14. s
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s
Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s
Athugið, takmarkaður sýningafjöldi.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 14/2 kl. 20:00 31. s Fös 22/2 kl. 20:00 37. s Lau 2/3 kl. 20:00 40. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 38. s
Sun 17/2 kl. 20:00 33. s Fös 1/3 kl. 20:00 39. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Ég dey (Nýja sviðið)
Fös 15/2 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðasta sýning!
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!