Morgunblaðið - 22.02.2019, Side 25

Morgunblaðið - 22.02.2019, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019 25 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Tilkynningar Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 og deiliskipulagi – Ós á Skógarströnd, Dalabyggð Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti 14. febrúar 2019 að auglýsa tillögu að deiliskipu- lagi frístundarbyggðar, Ós á Skógarströnd, skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Á sama fundi var samþykkt að auglýsa sam- hliða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016, skv. 36. gr. skipu- lagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin felst í því að svæði fyrir frístundabyggð, F1 Ós á Skógarströnd, er stækkað úr 20 ha í 25 ha og lóðum fyrir frístundahús fjölgað úr 10 í 18. Deiliskipulagssvæðið er á jörðinni Ós á Skógarströnd þar sem skilgreint er svæði fyrir frístundarbyggð F1 í aðalskipulagi Dala- byggðar 2004-2016. Svæðið er um 25 ha að stærð og tekur til 18 frístundalóða á bilinu 0,5 - 1,5 ha með nýtingarhlutfall ekki hærra en 0.3 ha. Tillögurnar liggja frammi á skrifstofu Dala- byggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal og á heimasíðu sveitarfélagsins www.dalir.is frá 22. febrúar til 6. apríl 2019. Athugasemdum skal skila skriflega á skrif- stofu skipulagsfulltrúa, í síðasta lagi 6. apríl 2019, Miðbraut 11, 370 Búðardal eða á netfangið byggingarfulltrui@dalir.is merkt: „Ós á Skógarströnd“. Dalabyggð 19. febrúar 2019 Kristján Ingi Arnarsson skipulags- og byggingarfulltrúi Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30. Zumba Gold 60+. BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr. Veglegir vinningar. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Regínu kl. 10. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40- 12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700. Velkomin. Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Vöflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 16. Breiðholtskirkja Hollvinafélag Breiðholtskirkju verður með köku- sölu í göngugötunni í Mjódd í dag. Allir hjartanlega velkomnir. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Fella- og Hólakirkja Karlakaffi, verið velkomnir í kaffi og vínabrauð kl. 10-11.30, Gestur okkar að þessu sinni er fyrrum ráðherra og forseti Alþingis; Halldór Blöndal. Láttu sjá þig, við tökum hlýlega á móti þér. Fella- og Hólakirkja, Hólabergi 88, 111 Reykjavík. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50, kaffi og blöðin. Frjáls tími í listasmiðju kl. 9-12. Thai chi kl. 9-10. Botsía kl. 10.15-11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið hjá Margréti Zóphaníasd. kl. 12.30-15.30. Zumbaleikfimi kl. 13-13.50. Bingó Holl- vina kl. 14. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Heilsuefling á Vitatorgi kl. 10-11.15, þjálf- un /ganga /botsía /æfingatæki, föstudagshópurinn kl. 10-11.30, Handa- band, vinnustofa í skapandi handverki ókeypis og öllum opið kl. 13- 15.30. BINGÓ kl. 13.30-14.30,- spjaldið kostar aðeins 250 kr., vöfflu- kaffi kl. 14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59, síminn er 411-9450. Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13-16. Velkomin. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30, bókband með leiðbein- anda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist. Grensáskirkja Síðdegissamvera eldri borgara miðvikudaginn 27. febrúar kl. 17.30-19. Guð og fuglarnir. Söngur, hugvekja og mynda- sýning. Sveinn Jónsson fuglaáhugamaður og kristniboðsvinur segir frá og sýnir eigin ljósmyndir. Léttur kvöldverður kr. 1.000. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 528-4410 í síðasta lagi á hádegi þriðjudaginn 26. febrúar. Verið velkomin. Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Flugunhnýtingar kl. 13. Gleðigjarfarnir kl. 13.30. Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika, kl. 10.30 línudans, kl. 13 brids, kl. 13.30 botsía, kl. 11.30 leikfimi í Bjarkarhúsi. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bíó kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogssundlaug, bridshópur Korpúlfa kl. 12.30 í Borgum, hann- yrðahópur Korpúlfa í Borgum kl. 12.30 og tréútskurður í umsjón Davíðs á Korpúfsstöðum kl. 13 í dag, allir velkomnir. Hið rómaða föstudagsvöfflukaffi í Borgum kl. 14.30 til 15.30 í dag. Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45. Lesið upp úr blöðum kl. 10.15. Upplestur kl. 11-11.30. Trésmiðja/listasmiðja kl. 9-12. Bingó kl. 14. Bókasafnshópur kl. 15.30. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln- um á Skólabraut kl. 11. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Ath. söngstundin fellur niður í dag. Skráning hafin á nikku- og skemmtikvöldið sem verður miðvikudaginn 6. mars og hefst kl. 17.30. Söngur, glens og gaman. Skráningarblöð liggja frammi á Skólabraut og Eiðismýri. Allar nánari uppl. í síma 8939800. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Íslendingasögur / fornsagnanámskeiðið kl. 13, þar sem sögusviðið er Ísafjarðardjúp. Kennari Baldur Hafstað. Dansað sunnudagskvöld 27. janúar kl. 20-23. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Vesturgata 7 Sungið við flygilinn frá kl. 13-14 með Gylfa Gunnars- syni. Kaffi kl. 14-14.30. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Atvinnublað Morgunblaðsins fimmtudaga og laugardaga Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað? Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100 Allar auglýsingar birtast í Mogganum, á mbl.is og finna.is Vantar þig fagmann? FINNA.is mbl.is alltaf - allstaðar ✝ GuðmundurHeiðar Er- lendsson fæddist 30. janúar 1968. Hann lést 13. febr- úar 2019. Foreldrar hans voru Elísabet Guð- rún Guðmunds- dóttir og Erlendur Jón Björgvinsson. Þau eru bæði látin. Guðmundur átti eina systur, Sólveigu Erlends- dóttur, maki hennar er Sigur- jón Geir Þórðarson og þau eiga tvo syni, Dag Árna og Jökul Loga. Guðmundur bjó mestalla ævi sína í Kópavogi, gekk í Kópavogs- skóla og síðar lauk hann stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands. Einnig lagði hann stund á nám í hagfræði við Háskóla Íslands. Guðmundur vann sem bílstjóri síðustu árin, m.a. hjá Strætó og síð- ustu árin sem hann lifði vann hann hjá Kynnisferðum sem bílstjóri. Útför Guðmundar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 22. febrúar 2019, klukkan 11. Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Því hamingjan felst í því að vera með himininn í hjartanu. Lifi lífið! (Sigurbjörn Þorkelsson) Með þessum ljóðlínum vil ég kveðja hann Gumma frænda minn, sem féll frá óvænt og snöggt miðvikudaginn 13. febr- úar. Ég minnist hans fyrst sem lítils drengs í vöggu með svo fallegt bros, frumburður for- eldra sinna og hvers manns hugljúfi. Seinna sem unglings sem hafði gaman af tónlist og dansi var til dæmis snillingur í break-dansi. Það var gaman að horfa á hann dansa í stofunni í Víðihvamminum enn með þetta undurfallega bros. Svo liðu árin og samband okkar varð minna eftir að foreldrar hans féllu frá, en þegar við hittumst tókum við tal saman, höfðum um margt að spjalla. Hann var allt- af jafn elskulegur, hafði góða nærveru og brosið á sínum stað. Þó hann væri háskóla- genginn valdi hann að keyra strætisvagna og langferðabíla, mér vitanlega vann hann nán- ast ekkert við neitt annað. Svo kom andlátsfréttin eins og þruma úr heiðskíru lofti. Eftir stöndum við og skiljum hvorki upp né niður í þessum tilgangi lífsins. En þá er að hugga sig við máltækið góða „þeir deyja ungir sem guðirnir elska“. Með þeim orðum kveð ég og fjöl- skylda mín frænda minn og votta systur hans og fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúð. Sigurjóna Björgvinsdóttir. Á kveðjustund skrifa ég nið- ur orð sem minna mig á Guð- mund góða eins og hann var nefndur í daglegu tali hjá okk- ur vinnufélögunum hjá Kynnis- ferðum – hans verður sárt saknað. Ljúfur, áreiðanlegur, sam- viskusamur, orðvar og glettinn á stundum. Þannig kom hann mér fyrir sjónir. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund, fagurt með frjóvgun hreina, fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. (Hallgrímur Pétursson) Í Guðs friði. Helga Bryndís. Það var sárt að fá þær fregn- ir að Guðmundur Erlendsson bílstjóri hjá Kynnisferðum væri látinn. Guðmundur var einstakt ljúfmenni og keyrði oft áhafnir Icelandair. Það eru ekki margir sem hafa fetað í fótspor Þor- geirs Hafsteinssonar, sérlegs bílstjóra Flugfreyjukórs Ice- landair, en það gerði Guðmund- ur í desember 2015 þegar Þor- geir var fjarri góðu gamni. Guðmundur keyrði þá Flug- freyjukórinn á eftirminnilegu jólaflakki þann 3. desember 2015. Hann fékk þau verkefni sem Þorgeir hafði ávallt sinnt, var bílstjóri, rótari og sérlegur ljósmyndari. Guðmundur sinnti þessu verkefni eins og honum einum var lagið með sinni nota- legu nærveru og hófsemi. Fé- lagar Flugfreyjukórs Iceland- air minnast Guðmundar af hlýhug og þakka honum sam- fylgdina. Blessuð sé minning góðs drengs. Með hlýrri kveðju til fjöl- skyldu og vina Guðmundar frá fyrrverandi formanni og stofn- anda Flugfreyjukórs Icelandair ásamt félögum í Flugfreyjukór Icelandair, Bergþóra Kristín Garðarsdóttir. Guðmundur Heið- ar Erlendsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningar- grein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.