Morgunblaðið - 22.02.2019, Page 15

Morgunblaðið - 22.02.2019, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2019 SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐ ÞÉR AÐ KOSTNAÐAR-LAUSU FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 Efnavörur fyrir framleiðslu, viðhald og viðgerðir Skákframtíðin er nýtt verkefni sem Skáksamband Íslands hefur kynnt í samstarfi við Skákskóla Íslands. Verkefninu verður formlega hleypt af stokkunum um næstu helgi en þá fer fyrsta nám- skeiðslotan fram. Markmið verk- efnisins er að hlúa að ungu af- reksfólki í skák og byggja upp framtíðarlandslið Íslands, að sögn Skáksambands- ins. Stofnaðir verða úrvalsflokkar 9-12 ára og 13-16 ára og verður hvor um sig skipaður 6-10 þátttakendum. Nýjum þátttakendum verður reglu- lega boðin þátttaka í Skákframtíð- inni. Miklar kröfur gerðar Þátttakendur í Skákframtíðinni fá sérstaka handleiðslu íslenskra og er- lendra þjálfara. Björn Ívar Karls- son, þjálfari kvennalandsliðsins, FIDE-meistari og kennari Skák- skóla Íslands, mun sjá um þjálfun innanlands undir umsjón Helga Ólafssonar, stórmeistara, landsliðs- þjálfara og skólastjóra Skákskólans. Úkraínsku stórmeistararnir Oleks- andr Sulypa og Adrian Mikhalch- ishin munu koma og þjálfa 3-4 sinn- um á ári. Þeir eru þrautreyndir þjálfarar. Sulypa er landsliðsþjálfari Úkraínu, eins sterkasta landsliðs heims. Mikhalchishin hefur verið yfirþjálfari FIDE, er landsliðsþjálf- ari kvennaliðs Tyrklands og höf- undur margra skákbóka. Miklar kröfur verða gerðar til þátttakenda í Skákframtíðinni. Þeir þurfa að sýna fram á áhuga og ástundun, taka þátt í mótum og vera iðnir við nám og undirbúning. Hópurinn mun fara í æfingabúðir innan lands og utan. Skákframtíðin byggist á svipuðu verkefni frá Pól- landi en úkraínsku þjálfararnir komu að því. Það skilaði þeim ár- angri að Pólverjar voru nærri því að sigra á síðasta Ólympíuskákmóti. 75 milljónir frá Sigtryggi Styrktarsjóður Sigtryggs Sig- urðssonar styður myndarlega við Skákframtíðina. Sigtryggur var fæddur 1946 og lést 2014, ókvæntur og barnlaus. Hann var sigursæll glímukappi á sinni tíð og varð m.a. glímukóngur Íslands. Skákin var Sigtryggi mjög hugleikin og lagði hann alla tíð stund á skák. Auk þess var hann bridsspilari. Styrktarsjóðurinn var stofnaður með erfðafé sem Sigtryggur ánafnaði sjóðnum. Stofnfé sjóðsins var 75 milljónir króna. Tilgangur sjóðsins er að vera skáklífinu á Ís- landi til styrktar. Meðal annars á hann að styrkja efnilega, unga skák- menn, greiða fyrir þjálfun þeirra og stuðla að skákkennslu á Íslandi. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Skákframtíðin Hlúð verður að ungu afreksfólki í skák. Mynd úr safni. Skákframtíð ungs afreksfólks Sigtryggur Sigurðsson  Byggja á upp framtíðarlandslið Pálmar Óli Magnússon hefur verið ráðinn í starf forstjóra hjá Dögum en félagið hét áður ISS og er umsvifa- mikið á sviði ræstinga, fasteignaum- sjónar og veitingaþjónustu. Pálmar Óli tekur við stöðunni af Guðmundi Guðmundssyni, sem lætur nú af störfum eftir áratuga störf á vett- vangi fyrirtækisins. Pálmar Óli var áður forstjóri Sam- skipa og þar áður framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun. Hann er með MBA-gráðu frá Háskóla Íslands, CS-gráðu í vélaverkfræði frá sama skóla og Dipl.Ing. í vélaverkfræði frá háskólanum í Karlsruhe í Þýska- landi. „Dagar eru gríðarlega spenn- andi fyrirtæki með mikla vaxtar- möguleika, enda er óvíða að finna jafn umfangsmikla þekkingu á þörf- um fyrirtækja og stofnana hvað varðar fasteignaumsjón, ræstingar, þrif og veitingaþjónustu í hæsta gæðaflokki,“ segir Pálmar Óli í til- kynningu. Dagar eru með starfsemi á yfir 20 stöðum á landinu og hjá félaginu starfa nú um 800 starfsmenn. Pálmar Óli nýr forstjóri Daga Vistaskipti Pálmar Óli Magnússon var áður forstjóri Samskipa.  Hét áður ISS og er með 800 starfsmenn Samningur hefur verið undirritaður um að útgerðarfélagið Bergur-Hug- inn í Vestmannaeyjum, dótturfélag Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, selji Guðmundi Runólfssyni hf. í Grundarfirði togskipið Bergey VE 544. Gert er ráð fyrir að skipið verði afhent nýjum eiganda í síðasta lagi í septembermánuði næstkomandi. Verið er að smíða tvö skip í Nor- egi fyrir Berg Hugin og er þeim ætl- að að leysa systurskipin Bergey og Vestmannaey af hólmi. Gert er ráð fyrir að útgerðarfélagið fái nýju skipin afhent á komandi sumri. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er haft eftir Guðmundi Smára Guð- mundssyni, framkvæmdastjóra Guð- mundar Runólfssonar hf., að ástæð- ur fyrir skipakaupunum séu einkum tvær. Í fyrsta lagi sé fyrirtækið að taka í notkun nýja og afkastamikla fiskvinnslustöð og því sé brýnt að auka veiðigetu skipa þess. Í öðru lagi muni nýja skipið leysa af hólmi eldra og minna skip í eigu fyrirtækisins. Bergey VE er 486 brúttótonn að stærð og smíðuð í Gdynia í Póllandi árið 2007. Í síðasta mánuði var greint frá því að aflaverðmæti Berg- eyjar, frá því að skipið hóf veiðar í ágústmánuði 2007, hefði rofið tíu milljarða múrinn og á þeim tíma var heildaraflinn orðinn rúmlega 39.000 tonn. Best heppnuðu skipin Magnús Kristinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og núverandi stjórnarmaður í útgerðarfélaginu Bergur-Huginn, segir að það sé eftirsjá að Bergey. „Ég kem til með að sakna skipsins mikið. Að mínu mati eru Bergey og Vestmannaey best heppnuðu skip sem veitt hafa við Ísland,“ er haft eftir Magnúsi. aij@mbl.is Bergey VE seld til Grundarfjarðar AflaskipBergey VE fer frá Vest- mannaeyjum til Grundarfjarðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.