Morgunblaðið - 02.03.2019, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 2. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 52. tölublað 107. árgangur
BJARNI H.
SÝNIR
VÍSIRÓSIR
FYRSTI
HLUTI
ÞRÍLEIKS
HILDINGUR 12VÍÐRÓF 38
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Þungur róður í viðræðum Skúla Mogensen,
eiganda og forstjóra WOW air, við fjárfesting-
arfélagið Indigo Partners olli því að hann hafði
í upphafi vikunnar samband við Boga Nils
Bogason, forstjóra Icelandair Group, í því
skyni að kanna flöt á aðkomu síðarnefnda fé-
lagsins að WOW air. Bogi Nils var þá staddur á
vegum Icelandair í Japan.
Þetta herma heimildir Morgunblaðsins.
Mun stjórn Icelandair hafa komið saman á
fundi eftir lokun markaða á fimmtudag og þar
hafi verið ákveðið að ganga ekki til viðræðna
við WOW air. Icelandair féll
frá kaupum á félaginu í lok
nóvember síðastliðins eftir
að viðræður og vinna við
áreiðanleikakönnun á starf-
semi WOW air hafði staðið
yfir um nokkurra vikna
skeið. Mun reynslan af
þeirri vinnu hafa haft veru-
leg áhrif á að ekki var geng-
ið til viðræðnanna að þessu
sinni.
Þótt ekki hafi orðið af formlegum viðræðum
milli aðila var stjórnvöldum gert viðvart um
þessar þreifingar. Stjórnvöld, þ.á m. Sam-
göngustofa, hafa fylgst náið með þróun mála
síðustu sólarhringa en á miðnætti aðfaranótt
föstudagsins rann út fresturinn sem skulda-
bréfaeigendur WOW air höfðu veitt félaginu til
að ná samningum við Indigo Partners.
Örfáum klukkustundum áður en fresturinn
rann út náðist samkomulag um að framlengja
viðræður Indigo Partners og WOW air út 29.
mars næstkomandi. Í kjölfar þess að sam-
komulagið náðist var skuldabréfaeigendum
þeim sem lagt höfðu 50 milljónir evra, jafnvirði
6,8 milljarða króna, til fjármögnunar félagsins
í september síðastliðnum gert viðvart um að
viðræðum væri ekki lokið og lengri frest þyrfti
til að ganga frá lausum endum.
Nú stendur WOW air hins vegar frammi fyr-
ir nýrri áskorun en hún felst í því að ná að nýju
samkomulagi við skuldabréfaeigendurna. Þeir
höfðu fallist á að falla frá upphaflegum skil-
málum bréfanna, sem m.a. fólst í að lengja í
bréfunum og falla frá mögulegum forkaups-
rétti að bréfum í félaginu, yrði það skráð á
markað.
Þar sem ekki tókst að ljúka viðræðunum
hafa upphaflegir skilmálar bréfanna virkjast
að nýju og semja þarf að nýju við skuldabréfa-
eigendurna.
Laun starfsmanna WOW air voru greidd út í
gær, 1. mars, degi síðar en almennt tíðkast hjá
félaginu.
Höfnuðu viðræðum við WOW
Skúli Mogensen óskaði eftir aðkomu Icelandair að WOW air Fyrri samningaviðræður flæktust
fyrir Laun starfsmanna greidd út í gær Viðræður við skuldabréfaeigendur komnar á byrjunarreit
WOW Félagið
berst í bökkum.
„Það sem helst hefur áhrif á bíla-
söluna eru kjaraviðræðurnar og
óvissa varðandi þá niðurstöðu,“
segir Jón Trausti Ólafsson, formað-
ur Bílgreinasambandsins, en bíla-
sala dróst saman um 30% í febr-
úarmánuði frá því sem var í sama
mánuði í fyrra. Jón Trausti segist
þó hafa búist við meiri samdrætti í
sölu í mánuðinum en raun ber vitni
en salan í janúarmánuði dróst sam-
an um tæplega 50% á milli ára. Jón
Trausti nefnir einnig að undan-
þága, sem rann út um áramót,
vegna álagningar vörugjalda á bif-
reiðar sem ætlaðar eru til útleigu
skipti máli í þessu samhengi. »20
Bílasala dregst
saman um 30%
Bílar Sala á bílum dróst saman um 30%.
Aha.is fer ekki
troðnar slóðir
þegar kemur að
heimsendingum
á mat, fatnaði og
fleiri vörum. Með
umhverfissjónar-
mið að leiðarljósi
eru vörurnar ým-
ist keyrðar á
áfangastað í raf-
magnsbílum eða
sendar með drónum á fyrirfram
ákveðnum flugleiðum. Í dag er
hægt að fá sendingar með dróna ef
veður leyfir. Til að bæta þjónustuna
eru nýir og fullkomnari drónar
væntanlegir. Maron Kristófersson,
forstjóri Aha.is, segist leggja metn-
að í að finna betri leiðir fyrir ís-
lenskar netverslanir til að keppa
við erlendar. »10
Flygildi koma með
vörurnar heim
Dróni kemur
með vörur.
Því var víða fagnað á öldurhúsum og handverks-
brugghúsum að í gær voru 30 ár liðin frá því sala
á bjór var heimiluð á ný hér á landi eftir langt
hlé. „Bjórdeginum mikla“ var til að mynda fagn-
að vel af gestum á Bryggjunni brugghúsi á
Grandagarði, eins og myndin ber með sér.
Morgunblaðið/Eggert
Víða skálað á knæpum landsins fyrir bjórdeginum
Helgi Bjarnason
Ómar Friðriksson
Verkalýðsfélögin fjögur á höfuð-
borgarsvæðinu og nágrenni sem eru
í samfloti í kjaraviðræðum áætla röð
margháttaðra verkfallsaðgerða
gagnvart ferðaþjónustufyrirtækjum
á næstu vikum og ótímabundnu alls-
herjarverkfalli frá 1. maí.
Verkfallsáætlanir VR, Eflingar og
Verkalýðsfélags Akraness voru
kynntar í gær en stjórn Verkalýðs-
félags Grindavíkur ákveður aðgerðir
síðar. Aðgerðirnar beinast að hótel-
um, gistiheimilum og hópferðafyrir-
tækjum. Dreifast aðgerðir VR og
Eflingar á 15 daga í mars og apríl.
Efnt verður til atkvæðagreiðslna um
þessar aðgerðir eftir helgi.
Beint fjárhagslegt tap ferðaþjón-
ustunnar á hverjum degi verkfalla
getur numið hundruðum milljóna, að
mati Jóhannesar Þórs Skúlasonar,
framkvæmdastjóra Samtaka ferða-
þjónustunnar. Tjónið eykst hratt ef
aðgerðir standa marga daga í einu í
margar vikur. „Þetta yrðu efnahags-
legar hamfarir.“
Á sama tíma og samflotið skipu-
leggur verkföll eru önnur verkalýðs-
sambönd á stöðugum vinnufundum í
Karphúsinu. „Það er ágætis gangur í
viðræðunum. Vinnufundum verður
haldið áfram í fyrramálið, alla
helgina og inn í næstu viku,“ sagði
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissátta-
semjari í gær, eftir langan vinnufund
Starfsgreinasambandsins og Sam-
taka atvinnulífsins. »2, 4, 6 og 8
Áætla allsherjarverkfall frá 1. maí
Tjóni ferðaþjónustu vegna aðgerða á næstunni líkt við „efnahagslegar hamfarir“