Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 4
Morgunblaðið/Hari
Strætó Lögð er til vinnustöðvun hjá
Almenningsvögnum Kynnisferða.
Atkvæðagreiðsla um tillögur samn-
inganefndar Eflingar um vinnu-
stöðvanir í hópbifreiðaakstri og
akstri Almenningsvagna Kynnis-
ferða eiga að hefjast á mánudag, að
sögn Viðars Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra Eflingar. Tillögurnar
voru birtar í gær og þar er miðað við
að atkvæðagreiðslu skuli lokið eigi
síðar en kl. 22.00 fimmtudaginn 14.
mars 2019. Viðar kvaðst eiga von á
að atkvæðagreiðslunni lyki fyrr en
lagt var til svo áætlun samninga-
nefndar um aðgerðir héldist.
Í tillögunum um vinnustöðvun í
hópbifreiðaakstri segir að „vinnu-
stöðvunin taki til þess hóps fé-
lagsmanna Eflingar sem vinna hjá
fyrirtækjum í hópbifreiðaakstri (að
undanskildum áætlunarferðum inn-
anbæjar í nafni Strætó BS) skv. al-
mennum kjarasamningi milli Sam-
taka atvinnulífsins og Eflingar –
stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins
Hlífar, Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur og nágrennis og
Stéttarfélags Vesturlands sem rann
út hinn 31. desember 2018.“
Viðar sagði að verktakar Strætó
BS væru samkvæmt þessu undan-
þegnir verkfallsboðun en benti á að
einnig hefðu verið lagðar fram þrjár
sérstakar tillögur um vinnustöðvun
hjá Almenningsvögnum Kynnis-
ferða. Fyrirtækið sér um akstur á
nokkrum leiðum Strætó BS. Auk
þess sjá Hagvagnar um akstur fyrir
Strætó BS en ekki eru boðaðar að-
gerðir gegn þeim í þessari umferð.
Vinnustöðvunin á að taka til allra
hópbifreiðastjóra og annarra fé-
lagsmanna Eflingar sem vinna hjá
hópbifreiðafyrirtækjum samkvæmt
kjarasamningi Eflingar og SA „að
undanskildum áætlunarferðum inn-
anbæjar í nafni Strætó BS“. Viðar
sagði að strætisvagnaferðir innan-
bæjar í Reykjavík og innan þétt-
býlisins á höfuðborgarsvæðinu féllu
þar undir. Þannig teldist Kjalarnes-
strætó vera innanbæjar en ekki
strætóar til Hveragerðis eða Selfoss.
Viðar sagði einu ástæðu þess að
svo margar tillögur væru lagðar
fram að á þær kynni að reyna fyrir
félagsdómi. gudni@mbl.is
Kosning um næstu aðgerðir eftir helgi
Verkfall í hópbifreiðaakstri mun ná til eins verktaka hjá Strætó en ekki leiða Strætó innanbæjar
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019
Njóttu þess að hlakka til
8nætur, allt innifalið
frá186.300 kr.*
*á mann m.v. 2 í herbergi þann 2. júní.
Bodrum
Salmakis Resort★★★★★
Afbragðs þjónusta
og frábær verð
5 stjörnu lúxus í
Bodrum og Marmaris
8nætur, allt innifalið
frá183.300 kr.*
*á mann m.v. 2 í herbergi þann 2. júní.
Marmaris
Green Nature Diamond ★★★★★
Veður víða um heim 1.3., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Hólar í Dýrafirði 2 alskýjað
Akureyri 1 alskýjað
Egilsstaðir 1 slydda
Vatnsskarðshólar 7 rigning
Nuuk 5 skýjað
Þórshöfn 7 rigning
Ósló 4 heiðskírt
Kaupmannahöfn 4 heiðskírt
Stokkhólmur 0 heiðskírt
Helsinki -4 heiðskírt
Lúxemborg 6 rigning
Brussel 7 skýjað
Dublin 11 rigning
Glasgow 9 alskýjað
London 10 skýjað
París 10 rigning
Amsterdam 6 rigning
Hamborg 6 skýjað
Berlín 5 skýjað
Vín 10 skýjað
Moskva -1 snjóél
Algarve 19 heiðskírt
Madríd 19 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 13 léttskýjað
Aþena 15 heiðskírt
Winnipeg -18 skýjað
Montreal -8 léttskýjað
New York 0 rigning
Chicago -1 alskýjað
Orlando 23 rigning
2. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:33 18:48
ÍSAFJÖRÐUR 8:43 18:48
SIGLUFJÖRÐUR 8:26 18:31
DJÚPIVOGUR 8:03 18:16
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á sunnudag
Norðaustan 13-20 m/s með snjókomu eða slyddu
um landið norðan- og austanvert, en bjartviðri suð-
vestantil. Hiti kringum frostmark.
Lægir og dregur úr úrkomu. Norðaustan 5-13 m/s síðdegis með éljum fyrir norðan og austan en
léttir til sunnan heiða. Kólnandi veður.
Kjaradeilur
„Þátttakan er lítil
en það kemur
ekki sérstaklega
á óvart hversu
margir greiða at-
kvæði með verk-
fallinu,“ segir
Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson,
dósent við Há-
skóla Íslands, um
atkvæðagreiðsl-
una um verkfall Eflingar á hótelum
sem lauk í fyrradag. 89% þeirra sem
kusu samþykktu en alls greiddu 862
atkvæði af 7.950 á kjörskrá og þátt-
takan því tæp 11%.
Aðstæður eru ólíkar milli vinnu-
deilna og kosninga um verkföll en
skv. upplýsingum Gylfa var kosið í
Eflingu um verkfall síðast vorið
2015. Um níu þúsund voru á kjör-
skrá og þar var kosningaþátttakan
29,4%. 94% sögðu já við tillögunni
um boðun verkfalls. Í atkvæða-
greiðslu félaga í Starfsgreina-
sambandinu um boðun verkfalls sem
fram fór á sama tíma og beindist að
um 5.000 félagsmönnum var kjör-
sóknin rúmlega 50%. 94,5% sam-
þykktu verkfall. Sama vor var verk-
fallsboðun í VR samþykkt með 58%
atkvæða og var þátttakan 25,2%.
Lítil þátt-
taka í kosn-
ingunni
Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson
Málið sem Samtök atvinnulífsins
hafa höfðað gegn Eflingu stétt-
arfélagi og krafist að boðað verkfall
8. mars nk. verði dæmt ólögmætt,
var þingfest fyrir félagsdómi í gær.
Samtökin telja atkvæðagreiðslu
Eflingar hafa verið andstæða lögum
„enda verði vinnustöðvun, sem ein-
ungis sé ætlað að ná til ákveðins
hóps félagsmanna, einungis borin
undir þá félagsmenn sem vinnu-
stöðvun er ætlað að taka til“, segir í
rökstuðningi SA.
Einnig er vísað til þess að at-
kvæðagreiðsla Eflingar hafi ekki
verið póstatkvæðagreiðsla í skiln-
ingi laga enda hafi atkvæða verið
að mestu aflað með kjörfundum
fyrir utan einstaka vinnustaði. Þeg-
ar atkvæði eru greidd á kjörfundi
þurfi a.m.k. 20% félagsmanna á at-
kvæðaskrá að taka þátt í atkvæða-
greiðslu. Auk þessa hafi fjölmargir
aðrir annmarkar verið á kosning-
unni og hvorki fylgt lögum um
stéttarfélög og vinnudeilur né
reglum miðstjórnar ASÍ um fyr-
irkomulag atkvæðagreiðslna hjá að-
ildarfélögunum.
Í stefnu SA segir m.a. að sú
„Hvellskýrt og morgunljóst“
SA og Efling á
öndverðum meiði
um gildi kosninga
Morgunblaðið/Hari
Verkfallsboð Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, afhenti tilkynningu um boðun verkfalls 8. mars nk.
framkvæmd sem viðhöfð var í at-
kvæðagreiðslunni sé andstæð lög-
um enda sé „hvellskýrt og morg-
unljóst samkvæmt 2. mgr. 15. gr.
laga nr. 80/1938 að tillaga um
vinnustöðvun, sem einungis sé ætl-
að að ná til
ákveðins hóps félagsmanna, verð-
ur einungis borin undir þá fé-
lagsmenn sem vinnustöðvun er
ætlað að taka til“.
Þá segir m.a. í umfjöllun um þá
kröfu laganna að nást þurfi 20%
þátttaka að lágmarki til að at-
kvæðagreiðslan teljist lögleg, að
formaður og aðrir starfsmenn Efl-
ingar hafi haldið fundi þar sem
rætt var við félagsmenn og þeim af-
hent kynningarefni og áskorun um
að greiða atkvæði með verkfalls-
boðun.
Atkvæðagreiðsla Eflingar geti
því ekki talist vera „almenn leyni-
leg póstatkvæðagreiðsla“ í skilningi
laganna. Hún falli undir þá meg-
inreglu að fimmtungur félagsmanna
skv. félagaskrá þurfi að taka þátt í
atkvæðagreiðslu. ,,Því marki var
ekki náð og verkfallsboðun því
ólögmæt,“ segir í stefnunni.
Heimild en ekki skylda
Forsvarsmenn Eflingar eru á
öndverðri skoðun og segja at-
kvæðagreiðsluna í einu og öllu upp-
fylla ákvæði vinnulöggjafarinnar. Í
greinargerð lögmanns Eflingar er
m.a. bent á að hin umdeilda 2. mgr.
15. greinar laganna um verkfalls-
boðun sem tekur einungis til hluta
félagsmanna segi að heimilt sé að
taka ákvörðun um vinnustöðvun
með atkvæðum þeirra sem henni er
ætlað að taka til, og gildi þá krafan
um 20% kosningaþátttöku.
Efling hafi kosið að nýta ekki
þessa heimild heldur efna til al-
mennrar leynilegrar atkvæða-
greiðslu meðal allra félagsmanna
sem kjarasamningurinn tekur til.
Ekkert banni slíka nálgun. Þá hafi
Efling haft allan rétt á að bjóða fé-
lagsmönnum að greiða atkvæði ut-
an kjörfundar á pappír. omfr@mbl.is