Morgunblaðið - 02.03.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 02.03.2019, Síða 6
Fyrirhuguð verkföll á hótelum • Eins dags verkfall 8. mars • Smærri aðgerðir 18.-30. mars • Full vinnustöðvun á ákveðnum dögum 22.mars - 25. apríl • Ótímabundið verkfall 1. maí Fosshótel Reykjavík Grand Hótel Reykjavík Fosshótel Baron Hótel Reykjavík Centrum Fosshótel Rauðará Fosshótel Lind Hilton Reykjavík Nordica Icelandair Hótel Reykjavík Natura Icelandair Hótel Reykjavík Marina Canopy Reykjavík City Centre Reykjavík Konsúlat hótel Hótel Plaza CenterHotel CenterHotel Miðgarður Hótel Arnarhvoll CenterHotel Hótel Þingholt CenterHotel Hótel Klöpp CenterHotel Hótel Skjaldbreið CenterHotel Exeter Hotel Reykjavík Lights Hotel Skuggi Hótel Hótel Borg Storm Hótel Sand Hótel Apótek Hótel Hótel Cabin Hótel Klettur Hótel Örk Radisson BLU Hótel Saga Radisson BLU 1919 Hótel Hotel Víking Hótel Holt Hótel Frón Hótel Óðinsvé The Capital Inn City Center Hotel City Park Hotel Kex Hostel 101 Hótel Hótel Leifur Eiríksson Hótel Smári Fosshótel Reykjavík ehf. Íslandshótel hf. Flugleiðahótel ehf. Cabin ehf. Hótel Saga ehf. Miðbæjarhótel/Centerhotels ehf. Hótel Klettur ehf. Örkin Veitingar ehf. Keahótel ehf. Hótel Frón ehf. Hótel 1919 ehf. Hótel Óðinsvé hf. Hótel Leifur Eiríksson ehf. Hótel Smári ehf. Fjörukráin ehf. (Hotel Viking) Hótel Holt Hausti ehf. Hótelkeðjan ehf. CapitalHotels ehf. Kex Hostel 101 (einn núll einn) hótel ehf. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Röð margháttaðra verkfallsaðgerða blasir við á næstu vikum og fram eft- ir vori á vegum VR, Eflingar og Verkalýðsfélaga Akraness og Grindavíkur, verði þær samþykktar í atkvæðagreiðslum og náist ekki samningar fyrir þann tíma. Verkfallsáætlanir VR, Eflingar og VLFA voru birtar í gær. Stjórn VR hefur samþykkt að boða til leynilegr- ar atkvæðagreiðslu um verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum á fé- lagssvæði VR og í hótel- og gisti- þjónustu á vegum 20 fyrirtækja á þeim hluta félagssvæðisins sem nær yfir allt höfuðborgarsvæðið og Hveragerði. Samninganefnd Eflingar sam- þykkti á fimmtudag að boða til at- kvæðagreiðslu um verkfall sem næði til 40 hótela og allra hópbifreiðafyr- irtækja á félagssvæði Eflingar á til- teknum dagsetningum. Auk þess ætlar Efling að láta greiða atkvæði um fjölmargar smærri verkfallsað- gerðir bæði á hótelum og meðal bíl- stjóra hópferðafyrirtækja á tíma- bilinu frá 18. mars til 30. apríl. Liggi samningar ekki fyrir er lagt til að ótímabundin vinnustöðvun fé- laganna hefjist frá og með 1. maí. Dagbundin verkföll í 15 daga Dagbundnu verkföllin dreifast yf- ir 15 daga og er þar um samræmdar aðgerðir VR og Eflingar að ræða sem eiga fyrst að koma til fram- kvæmda með fullri vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis 22. mars. Því næst tekur við tveggja sólarhringa verkfall 28.-29. mars og síðan þriggja sólarhringa löng verkföll sem hefjast dagana 3. apríl, 9. apríl, 15. apríl og 23. apríl. Ákveðið hefur verið að aðeins þeir félagsmenn sem verkfallsboðunin tekur til greiði atkvæði um tillögurn- ar og þarf þá lágmarksþátttakan að vera 20% samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Þetta er ólíkt þeirri aðferð sem Efling notaði í nýafstaðinni atkvæðagreiðslu um boðun verkfallsins sem á að fara fram 8. mars en hún náði til um átta þúsund félagsmanna vegna vinnu- stöðvunar um 700 starfsmanna á hótelum og öðrum gististöðum. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir í samtali við Morgunblað- ið, að atkvæðagreiðsla um aðgerð- irnar hjá VR hefjist væntanlega strax upp úr næstu helgi, líklegast á þriðjudag. Atkvæðagreiðslum hjá Eflingu um vinnustöðvanir og minni verkfallsaðgerðir á að vera lokið 14. mars. „Þetta eru samræmdar aðgerðir á milli okkar og Eflingar, nákvæmlega sömu fyrirtæki sem um ræðir,“ segir Ragnar. „Að sjálfsögðu snúast þessar að- gerðir sem við erum að fara að setja í kosningu, fyrst og fremst um að fá samningsaðila að borðinu. Okkur fellur það nokkuð þungt að þurfa að fara svona langt í aðgerðir en því miður er það allt of algengt að hlut- unum er fleytt í slíkan farveg eins og gerðist árið 2015. Þá voru aðgerð- irnar miklu víðtækari og miklu meira undir en sem betur fer komu menn þá að borðinu þegar aðgerð- irnar voru samþykktar. Ég vona að þannig verði það líka núna. Það er alltaf okkar meginmarkmið.“ Þær smærri verkfallsaðgerðir sem Efling samþykkti að láta greiða atkvæði um á framangreindum vinnustöðum eiga að fara fram frá 18. mars til 30. apríl á þeim dögum sem falla utan fullrar vinnustöðvun- ar. ,,Þær aðgerðir fela í sér að starfs- menn mæta til vinnu en fella niður einstaka verkþætti […],“ segir í fréttatilkynningu Eflingar. Gangi þetta eftir ásamt fyrirhug- uðum dagsverkföllum yrðu einhverj- ar verkfallsaðgerðir í gangi á hverj- um degi frá 18. mars út aprílmánuð þegar ótímabundið verkfall tæki við. Um er að ræða margháttaðar að- gerðir sem stigmagnast eftir því sem líður á bæði meðal bílstjóra og á hót- elum. 18. mars munu t.d. félagsmenn á hótelum eingöngu vinna störf sem tilgreind eru í starfslýsingu, frá og með 23. mars mun starfsfólkið ekki þrífa klósett og sameiginleg rými verði aðgerðirnar samþykktar í at- kvæðagreiðslu. Frá og með 30. mars bætist svo á aðgerðalistann að starfsmenn þrífa aðeins þau her- bergi sem gestir hafa útritað sig úr og þeir munu ekki sinna morgun- verði gesta. 26.-30. apríl munu starfsmenn einnig hætta að sinna þvotti á hótelunum. Fargjaldaverkfall 18. mars ,,Verkafólk á lægstu launum í röð- um Eflingar hefur stigið fram og skipulagt ýmsar nýstárlegar verk- fallsaðgerðir sem eru hluti af verk- fallsáætlun Eflingar. Bílstjórar á einkareknum strætóleiðum, sem starfa undir miklu álagi og verða fyr- ir ítrekuðum brotum á kjarasamn- ingi, hafa lagt til fargjaldaverkfall sem hefst 18. mars. Þetta verkfall er viðbót við hefðbundnar vinnustöðv- anir bílstjóra Eflingar,“ segir í til- kynningu frá Eflingu. ,,Hótelstarfsfólk mun gera mikil- vægi starfa sinna ljóst á afgerandi máta með því að hætta hluta þeirra, af stigvaxandi þunga. Til að mynda munu þau hætta klósettþrifum og leggja niður störf tengd morgun- verði, þar til ótímabundið verkfall hefst á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí,“ segir þar ennfremur. Í tillögu um vinnustöðvun hjá Al- menningsvögnum Kynnisferðum ehf. er m.a. lagt til að frá og með 18. mars hliðri starfsmenn til reglu- bundnum störfum til að þeim sé unnt að dreifa kynningarefni. 23.-29. mars muni bílstjórar stöðva bifreiðar sín- ar á stoppistöð í 5 mínútur dag hvern kl. 16 og þá daga verða bifreiðar ekki þrifnar að utanverðu. Frá og með 18. mars og í ótil- greindan tíma er í tillögunni um stakar verkfallsaðgerðir bílstjóra í hópferðabifreiðaakstri og hjá Kynn- isferðum lagt til að bílstjórar annist ekki eftirlit með greiðslu fargjalds, óháð greiðslumáta. Verði tillagan samþykkt munu félagsmenn leggja niður alla vinnu dag hvern til og með 1. maí frá kl. 7 til 9 að morgni og aft- ur frá kl. 16 til 18 síðdegis. Frá og með 6. apríl bætist við að bílstjórar mæta ekki til vinnu fyrr en kl. 12 á hádegi og 15 apríl og í ótil- greindan tíma eiga starfsmenn sem vinna við eftirfarandi störf að leggja niður alla vinnu við þrif bifreiða að utanverðu og að innanverðu, dæl- ingu eldsneytis á bifreiðar og lagn- ingu bifreiða í stæði. Leggja til röð verkfallsaðgerða  Vinna verði lögð niður á 15 dögum á hótelum og hjá fólksflutningafyrirtækjum  Aðgerðir í gangi dag hvern frá 18. mars  Ótímabundið verkfall hefjist 1. maí Morgunblaðið/Hari Efling Kosningarúta fór á milli staða og gat fólk þar kosið um verkfall. Fyrirhuguð verkföll VR og Eflingar MARS MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN 25 26 27 28 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 APRÍL MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 1 2 3 4 5 Tímabundin vinnustöðvun: VR Efling Ótímabundin vinnustöðvun VR og Eflingar 6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 Páskaveisla í Vínarborg sp ör eh f. Vor 3 Þessi glæsilega páskaferð hefst í Passau sem er við ármót Dónár, Inn og Ilz í Bæjaralandi og margir telja eitt fegursta borgarstæði Evrópu. Þaðan verður farið til Vínarborgar þar sem fagrar byggingar prýða borgina og munum við skoða helstu staði hennar svo sem Schönbrun höllina og hið þekkta hús Hundertwasser. Ferðin endar svo í hinni heillandi München. 13. - 20. apríl Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 214.400 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS Mjög mikið innifalið! Kjaradeilur Stjórn Verkalýðsfélags Akraness hefur ákveðið að láta fara fram allsherjaratkvæðagreiðslu um verkfallsboðun meðal fé- lagsmanna sinna sem heyra und- ir kjarasamning sem félagið á við Samtök atvinnulífsins vegna veitinga-, gisti-, þjónustu og greiðasölustaða, afþreyingarfyr- irtækja og hliðstæðrar starfsemi. Samkvæmt upplýsingum verkalýðsfélagsins mun at- kvæðagreiðslan hefjast 29. mars og standa til 5. apríl. Ef kosning um verkfall verður samþykkt mun allsherjarverkfall þeirra sem heyra undir áðurnefndan kjarasamning skella á 12. apríl. Félagið bendir á að þessi kosn- ing um verkfallsboðun er partur af aðgerðaplani sem stétt- arfélögin fjögur, VLFA, VR, Efl- ing og Verkalýðsfélag Grinda- víkur, standa sameiginlega að. Ákvörðun VLFG á þriðjudag Stjórnendur Verkalýðsfélags Grindavíkur hafa ekki gengið frá ákvörðun um verkfallsboðun en að sögn Harðar Guðbrands- sonar, formanns félagsins, mun stjórn félagsins koma saman til fundar næstkomandi þriðjudags- kvöld til að ákveða til hvaða að- gerða verður gripið. Félagið hef- ur verið í nánu samstarfi við VLFA, Eflingu og VR og að sögn Harðar verða tillögur um vænt- anlegt aðgerðaplan sams konar og þær aðgerðir sem félögin þrjú hafa tilkynnt. Félagssvæðið nær til Grindavíkur og m.a. ferða- þjónustustarfsemi á aðliggjandi svæðum s.s. Bláa lónsins. VLFA leggur til verkfall 12. apríl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.