Morgunblaðið - 02.03.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019
TILBOÐSDAGAR
50%
AFSLÁTTU
R
ALLT AÐ
3.356
Áður: kr. 4.795
3.356
Áður: kr. 4.795
1.998
Áður: kr. 3.995
1.498
Áður: kr. 2.995
998
Áður: kr. 1.995
4.196
Áður: kr. 5.995
-30%
-30%
-30% -50%
-50%
-50%
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9–18.
Laugard. kl. 10–16.
Sunnud. kl. 12–16
Rúmlega níu af hverjum tíu fé-lagsmönnum í Eflingu, sem
voru á kjörskrá vegna kosningar
um verkfall, sáu ekki ástæðu til
að styðja þann gjörning. Aðeins
769 af 7.950 studdu verkfallið,
flestir kusu ekki,
aðrir greiddu at-
kvæði gegn verk-
falli.
Þetta gerðistþrátt fyrir að
félagið stæði fyrir
umfangsmikilli
smölun og miklum áróðri, keyrði
bíla á milli vinnustaða og reyndi
að draga sem flesta inn í færan-
legan kjörklefann.
Þátttakan, sem var rúmlega10%, er fjarri því lágmarki
sem tilskilið er í lögum, sem er
20%.
Viðbrögð Sólveigar Önnu Jóns-dóttur, formanns Eflingar,
voru þau að lýsa því yfir að hún
væri „innilega stolt af fé-
lagsmönnum okkar, sem hafa nú
sent mjög skýr og sterk skilaboð
með atkvæðum sínum“.
Ef þetta eru skýr skilaboð umað félagsmenn vilji fara í
verkfall, þá er ekki gott að segja
hvað þyrfti til að senda skýr
skilaboð um að þeir hefðu ekki
áhuga á verkfalli.
En afstaða Sólveigar Önnu lit-ast sennilega af því að hún
var fyrir tæpu ári kosin formaður
með 12,7% stuðningi fé-
lagsmanna.
Í því samhengi er innan við 10%stuðningur við að fara í verk-
fall ekki eins rýr og á flesta aðra
mælikvarða.
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Rýr stuðningur
við verkfall
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Söfnunin sem staðið hefur yfir í
viku fór miklu betur af stað en við
þorðum að vona. Við höfum náð 56%
af markmiðinu sem við fórum af stað
með á fjármögnunarsíðunni Karo-
lina Fund,“ segir Einar Aron Fjal-
arsson, verkefnastjóri Hins íslenska
biblíufélags. Einar Aron segir að
söfnuninni ljúki 15. mars og hann
vonist til þess að á þeim tíma náist
2.000.000 króna markmiðið.
„Okkur þykir vænt um hvað Ís-
lendingar taka vel í að hljóðrita Nýja
testamentið á íslensku. Með því opn-
ast möguleikar á að hægt sé að lesa
eða hlusta á Nýja testamentið fyrir
alla, alls staðar og ókeypis,“ segir
Einar Aron og bætir við að ef mark-
miðið náist verði byrjað á því að
hljóðrita lesturinn en hugmyndin sé
að fá leikara til þess að lesa. Að því
loknu taki við hljóðvinnsla. Þegar
henni ljúki þurfi að búta niður lest-
urinn svo hægt verði að nýta hann í
hljóðbækur, á netið og í öpp í snjall-
tækjum.
„Ef allt gengur upp má búast við
að hljóðupptökurnar verði aðgengi-
legar með haustinu,“ segir Einar Ar-
on og bendir á að á vefsíðunni bibli-
an.is sé að finna tengil á söfununina.
Safnað fyrir hljóðritun Biblíunnar
Söfnunin gengur vel Nýja testa-
mentið fer á hljóðbók, net og app
Ljósmynd/Pixabay
Tækni Biblían fylgir tækninni.
Heilbrigðisráðherra hefur undir-
ritað reglugerð um merkingar á um-
búðum rafrettna og áfyllinga og efni
upplýsingabæklings sem fylgja skal
rafrettum og áfyllingum. Reglugerð-
in á að taka gildi 1. júní næstkom-
andi.
Með áfyllingu er átt við ílát sem
inniheldur nikótínvökva eða annan
vökva til að fylla á rafrettur. Kveðið
er á um útlit viðvörunarmerkinga
sem eiga að vera á umbúðunum og
þekja 30% af yfirborði einingapakka
og allra ytri umbúða vörunnar. Text-
inn á að vera: „Þessi vara inniheldur
nikótín sem er mjög ávanabindandi
efni. Ekki er mælt með notkun þess
fyrir þá sem reykja ekki.“ Auk þess
á að birta lista yfir öll innihaldsefni
vörunnar.
Með pakkningum rafrettna og
umbúðum áfyllinga á að fylgja bækl-
ingur með upplýsingum á íslensku.
Þær eiga m.a. að innihalda leiðbein-
ingar um notkun og geymslu vör-
unnar, þar með talið ráðleggingu um
að ekki sé mælt með vörunni til
notkunar fyrir börn og þá sem ekki
reykja. Einnig um frábendingar,
viðvaranir fyrir tiltekna áhættu-
hópa, hugsanlega skaðleg áhrif,
ávanabindandi áhrif og eiturhrif og
hvernig sé hægt að hafa samband
við framleiðanda eða innflytjanda.
Lögin um rafrettur og áfyllingar
gengu í gildi í gær. Með setningu
þeirra hefur tilskipun Evrópuþings-
ins og -ráðsins, um samræmingu
ákvæða í lögum og stjórnvaldsfyr-
irmælum aðilarríkjanna varðandi
framleiðslu, kynningu og sölu á tób-
aki og tengdum vörum, verið inn-
leidd að hluta í íslensk lög, að sögn
ráðuneytisins. gudni@mbl.is
Rafrettur og áfyll-
ingar með viðvörun
Reglugerð um
merkingar tekur
gildi 1. júní
Morgunblaðið/Hari
Rafrettur Viðvaranir og upplýs-
ingabæklingur eiga að fylgja.