Morgunblaðið - 02.03.2019, Page 14

Morgunblaðið - 02.03.2019, Page 14
Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 Bolla, bolla... Bolla, bolla... Bolla, bolla... Bolla, bolla... Bolla, bolla... Bolla, bolla... Bolludagur að hætti Jóa Fel Jói Fel býður upp á einstakt úrval af gómsætum bollum. Á boðstólnum verða bollur með rjóma og sultu, bollur með hindberjafrómas, bollur með súkkulaðifrómas, bollur með karamellukrókant, bollur með irish coffee og ýmislegt annað gott. Verið velkomin! Holtagarðar & Smáralind & Garðabær & Hringbraut & Spöngin Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að markmið sitt með því að leggja fram þingsályktunartillögu um breytta framsetningu á launa- seðlum ríkisins sé að auka gagnsæi við skattheimtu. Því leggi hún og meðflutningsmenn hennar til að sér- staklega verði tilgreint hversu mikið fer til ríkisins og hversu mikið fer til sveitarfélaganna, sem útsvar. „Markmiðið er auðvitað fyrst og fremst að auka gagnsæi, en líka að auka þekkingu fólks á því hvert skattarnir sem það greiðir eru að fara,“ sagði Áslaug Arna í samtali við Morgunblaðið í gær. Hún segist hafa fengið jákvæð við- brögð við þessari tillögu, enda telji hún að fáir geti verið á móti auknu gagnsæi þegar kemur að skattamál- um. Hún bendir á að í tillögunni sé jafnframt lagt til að fram komi á launaseðlum hver kostnaður launa- greiðanda sé við tryggingagjöld og önnur launatengd gjöld vegna starfsins. Með einhæfa tekjustofna Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst telja að þingsályktunartillag- an komi í kjölfar nýlegrar umræðu um að nú sé komið að sveitarfélög- unum að lækka útsvar. „Eitt er að vera með upplýsingar um það hvernig þær greiðslur sem fólk er að inna af hendi skiptast á milli ríkis og sveitarfélaga og kannski ekkert óeðlilegt að slíkar upplýsingar séu veittar. En ég bendi nú samt á að þessar upplýsingar er allar að finna nú þegar á heimasíðu Ríkisskattstjóra, rsk.is,“ sagði Aldís í samtali við Morgunblaðið í gær. Hún segir að menn megi ekki gleyma því að sveitarfélögin hafa mjög einhæfa tekjustofna og útsvar- ið er sá mikilvægasti. „Það er ekki þannig að hægt sé í sífellu að setja auknar kröfur á sveit- arfélögin, eins og ríkið hefur gert, og halda síðan að það sé hægt að standa straum af aukinni þjónustu með lækkandi tekjum,“ sagði Aldís. Hún segir að það komi vel til greina að sveitarstjórnarmenn verði duglegri að upplýsa íbúana um það hvað hlutirnir kosta. Hún nefnir sem dæmi hver kostnaðurinn sé við að vera með barn á leikskóla, hvað mötuneyti í grunnskóla kosti, hvað sé verið að borga með almennings- samgöngum og svo framvegis. „Við þurfum einnig að vera dug- legri að upplýsa íbúa um það hvaða verkefnum sveitarfélögin eru að sinna, sem eru ekki lögbundin verk- efni sveitarfélaganna, eins og t.d. frí- stundaskólinn, tónlistarskólinn og fleira,“ sagði Aldís ennfremur. Markmiðið að auka gagnsæi í skattgreiðslum  Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga bendir á að upplýsingarnar um laun sé allar að finna á vefnum rsk.is Aldís Hafsteinsdótir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Áfram verður leitað í og við Ölfusá um helgina að Páli Mar Guðjóns- syni sem talið er að hafi ekið bifreið sinni út í ána á Selfossi síðastliðið mánudagskvöld. Leitað verður með drónum í dag en nokkuð stór hópur mun ganga með ánni á morgun og leita af bátum. Oddur Árnason, yfirlögreglu- þjónn hjá Lögreglunni á Suður- landi, segir að aðaláherslan sé á sunnudag. Leitin er skipulögð af svæðisstjórn björgunarsveitanna í Árnessýslu. Gunnar Ingi Frið- riksson, stjórnandi leitar, segir að um 30 björgunarsveitarmenn af Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu muni taka þátt í leitinni á sunnudag. Gengið verði með ánni og siglt á bátum og líklegir staðir leitaðir. Í dag verði leitað með drónum en það ræðst af veðri hversu mikið er hægt að gera. Reiknað er með að þyrlur Landhelgisgæslunnar fljúgi yfir svæðið, þegar færi gefst. Leita með fjölgeislamæli Unnið er að undirbúningi þess að nota fjölgeislamæli til að reyna að staðsetja bíl Páls Mars en talið er líklegt að hann sé í gjánni neðan við Ölfusárbrú en þar er dýpi allt að 13 metrum. Slík leit hefur ekki verið reynd áður. Lögreglan, Björgunarfélag Ár- borgar, sérsveit ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæslan og Brunavarnir Árnessýslu vinna að þessu verkefni. Slíkir mælar eru meðal annars notaðir til að kortleggja sjávarbotn og leita að skipsflökum. Oddur yf- irlögregluþjónn segir vitað að þeir séu góðir í kyrru vatni. Ekki sé vit- að hvernig þeir nýtist á þessum stað þar sem straumur er mikill. Stefnt var að því að fara í þessa tilraun um miðja næstu viku en Oddur segir ekki víst að það takist. Allt þurfi að fara saman, tækin þurfi að vera klár og veður gott. Þá sé vonast til að rennsli í ánni fari nú minnkandi. Lögreglan heimilar ekki köfun í gjánni vegna þeirrar áhættu sem í henni fælist. Umfangsmeiri leit á morgun  Undirbúa notkun fjölgeislamæla til að reyna að staðsetja flak bílsins í gjánni í Ölfusá  Leitað með drónum í dag Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson Ölfusá Síðustu daga hefur mest verið leitað með bátum niður með ánni. Bróðir Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf sporlaust í Dublin fyrir þremur vikum er vongóður um að lögreglan í Dublin kveðji írsku björgunarsveitar- innar til leitar á næstunni. „Við áttum fund með lögreglunni í dag og fórum yfir ábendingar sem þeir eru að skoða og annað. Það eru jákvæð teikn á lofti varðandi aðkomu björgunarsveitar- innar. Það mun skýrast mjög fljót- lega,“ sagði Davíð Karl Wiium, bróðir Jóns Þrastar, í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Davíð segir að það myndi breyta miklu að fá björgunarsveitina til leit- ar, væntanlega nokkur hundruð sér- hæfða leitarmenn með sporhunda og dróna. Þeir muni setja upp leitar- áætlun og fín- kemba svæðið. Fjölskylda og vinir Jóns Þrastar hafa verið að leita og spyrjast fyrir um hann undan- farna daga, eins og þau hafa gert frá því hann hvarf. „Við erum að banka upp á hjá fólki, spyrjast fyrir, hengja upp miða og vinna í ábendingum eða nýjum stöð- um,“ segir Davíð. Það hefur ekki bor- ið tilætlaðan árangur enn sem komið er. Þrjár vikur liðnar Ef írska björgunarsveitin verður ekki kvödd til leitar allra næstu daga mun hópurinn skipuleggja nýja stóra leit með írskum sjálfboðaliðum, með svipuðu sniði og leitin sem var skipu- lögð síðasta laugardag. Jón Þröstur hvarf 9. febrúar. Hann sást síðast í öryggismyndavélum, ekki langt frá hótelinu sem hann bjó á. Í dag eru því þrjár vikur frá því hann hvarf. helgi@mbl.is Björgunarmenn til leitar?  Vonast til að lögreglan í Dublin kveðji til leitarflokka Jón Þröstur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.