Morgunblaðið - 02.03.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.03.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 FISKHAKK Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 NÝSTEIKTAR FISKIBOLLUR FISKFARS N FRÁ GLÆNÝ ÝSA SÆLKERABOLLUR Bæjaryfirvöld í Kópavogi bíða enn svara frá WOW air varðandi lóð fé- lagsins í Kársnesi. Vegna anna hjá WOW air vannst ekki tími til að svara fyrirspurn í síðari hluta febrúar. WOW air áformaði að reisa höfuðstöðvar á landfyllingu við Vesturvör í Kársnesi. Lóðin snýr að Nauthólsvík en þaðan er áformað að leggja brú yfir á Kársnesið. Byggingarlóðin er í eigu félagsins TF-Kóp en það er í eigu Skúla Mogensen, forstjóra WOW air. Fyrirspurn bæjarlögmanns Fram kom í Morgunblaðinu í nóv- ember að bæjarlögmaður Kópavogs hefði ritað félaginu bréf. Tilefnið var fyrirspurn um gang verkefnisins. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, segir bæinn hafa fyrir- hugað fund með WOW air út af þessu máli í síðari hluta febrúar. „Af þeim fundi gat ekki orðið. Við höfum gefið fulltrúum WOW air svigrúm enda virðast þeir önn- um kafnir, sem er kannski skiljan- legt. Það hafa verið bréfaskipti milli lögmanna. Við bíðum endanlegra svara,“ segir Ármann. Óvissa er um framtíð WOW air. Þegar fréttin birtist í Morgun- blaðinu í nóvember var útlit fyrir að Icelandair myndi kaupa félagið. Teikning/Yrki arkitektar Drög Þessi hugmynd varð í 3. sæti í lokaðri hugmyndasamkeppni WOW air. Kópavogur bíður svara frá WOW air  Varðar lóð undir höfuðstöðvar Ármann Kr. Ólafsson Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Nýliðun hefur verið léleg í norsk-ís- lenska síldarstofninum í fjölda ára. Nú standa vonir til að loksins sé sterkur árgangur á leiðinni því ár- gangur frá 2016 virðist vera sterkur. Um þetta er fjallað í Vestlandsnytt í Noregi í gær og þar er haft eftir Pål Cato Reite, skipstjóra á norska skip- inu Eros, að árgangurinn sé sá stærsti og besti frá árinu 2004. Ný- lokið er síldarleiðangri þriggja skipa í norskri lögsögu og eiga sérfræðingar eftir að vinna úr gögnum. Haft er eft- ir Reite að ánægjulegt hafi verið að sjá sterka árganga ungsíldar, sem sé farin að hrygna, og þá einkanlega 2016-árganginn sem byrji væntan- lega að hrygna að einhverju leyti á næsta ári. Lengi hafi verið beðið eftir góðri nýliðun til að bera uppi síldveiðar næstu ára. Stórsíld sem komin sé á efri ár hafi verið veigamikil í veiðinni síðustu ár. Þannig hafi elsta síldin sem fékkst í leiðangrinum verið talin 19 ára gömul. Jákvætt, en töluverð óvissa Samkvæmt upplýsingum Guð- mundar J. Óskarssonar, fiskifræð- ings á uppsjávarsviði Hafrannsókna- stofnunar, sýndu niðurstöður leið- angurs í maí í fyrra í Barentshafi hærri vísitölu af fjölda tveggja ára, árgangi 2016, heldur en sést hafði lengi. Þessi vísitala hafi verið notuð í stofnmati. Töluverð óvissa hafi hins vegar verið í þessari mælingu, en vonandi takist að ná annarri mælingu á ár- gangnum í maí í vor og fá ábyggilegra mat á stærð hans. Sama eigi við um mat á stærð annarra yngri árganga, en aðrir nýlegir árgangar hafi verið litlir, ef frá sé talinn árgangurinn frá 2013 sem er „þokkalegur“, sam- kvæmt upplýsingum Guðmundar. Í stofnmatsskýrslu um norsk-ís- lensku síldina má lesa eftirfarandi á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar: Fiskdauði hefur farið hækkandi síðan 2015. Hrygningarstofninn hefur farið minnkandi en er metinn undir að- gerðamörkum árið 2018. Stofninn hefur getið af sér fjóra stóra árganga síðan 1998 (árgangar 1998, 1999, 2002 og 2004). Árgangar frá 2005–2015 voru undir meðalstærð eða litlir. Árgangurinn frá 2016 er hinsvegar metinn yfir meðalstærð. Norsk-íslenski síldarstofninn hef- ur lengi verið meðal mikilvægustu nytjastofna í N-Atlantshafi. Í ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) um síldveiðar ársins 2019 fyrir norsk- íslenska síld er byggt á nýrri afla- reglu sem strandríkin samþykktu í fyrrahaust. ICES ráðleggur að afli ársins 2019 verði í heild ekki meiri en 588.562 tonn. Ráðgjöf síðasta árs var upp á 384 þúsund tonn og er því um að ræða nær 53% aukningu í ráðlögðum afla. Ástæða þess er fyrst og fremst þær breytingar sem gerðar hafa verið á aflareglunni, sem leiða til hærri veiði- dánartölu. Hrygningarstofninn held- ur áfram að minnka og nýliðun hefur verið slök um langt árabil. Vonir um betri nýliðun með síldarárgangi 2016  Ekki góðir árgangar norsk-íslensku síldarinnar í fjölda ára Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Síld á færiböndum í frystihúsinu Ísfélagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.