Morgunblaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 20
BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Danska fyrirtækið Munck Gruppen A/S, móðurfélag verktakafyrirtæk- isins Munck Íslandi ehf., skilaði tapi í fyrsta skipti í 30 ára rekstrarsögu þess fyrir reikningstímabil þess frá 1. október 2017 til 30. september ár- ið 2018. Tapið nam 129 milljónum danskra króna, eða um 2,3 milljörð- um íslenskra króna, að því er fram kemur á heimasíðu félagsins. Í henni kemur einnig fram að starfsemi fyrirtækisins, sem stofnað var af Hans Christan Munck, sem einnig er starfandi framkvæmda- stjóri fyrirtækisins hér á landi, hafi skilað hagnaði af verkefnum félags- ins í Danmörku en tap Munck á Ís- landi, áður LNS Saga, og niður- færsla eigna hafi dregið hagnaðinn saman að miklu leyti. Segir þar að Munck Gruppen hafi þurft að færa niður virði íslenska félagsins og við- skiptavild þess. Er Munck á Íslandi ehf. lýst sem „vandræðabarni“ í samstæðu félagsins og var tap þess „mjög stórt“. Óendanlega pirrandi Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Morgunblaðsins náðist ekki í Munck í gær. Í samtali hans við danska miðilinn Fyens á fimmtudag sagðist hann ekki vilja upplýsa um ná- kvæmt tap Munck á Íslandi en sam- kvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2017 var tap félagsins 1,3 millj- arðar króna. „Þetta pirrar mig óendanlega mikið,“ sagði Munck við Fyens. Munck Gruppen keypti verktakafyrirtækið LNS Saga í árs- lok 2016. Í fyrrnefndri fréttatilkynn- ingu kemur einnig fram að fjárhags- staða LNS hafi verið umtalsvert óstöðugri en gert var ráð fyrir. Í bí- gerð sé gerðardómsmál danska móðurfélagsins á hendur seljandan- um, LNS, þar sem því er haldið fram að upplýsingagjöf síðarnefnda félagsins hafi verið ófullnægjandi og ýmsa lesti væri þar að finna í tengslum við söluferlið. Ásgeir Loftsson var framkvæmdastjóri LNS Saga og tók við sömu stöðu í Munck á Íslandi, en lét af störfum síðasta haust. Munck Íslandi ehf. hefur verið umsvifamikið í útboðum síðustu ár en rekstrartekjur félagsins árið 2017 námu átta milljörðum króna. Á meðal verkefna félagsins var bygg- ing á fjögurra hæða sjúkrahóteli Nýja Landspítalans ohf. (NLSH) sem fór fram á tafarlausa afhend- ingu þess í lok síðasta árs, en fram- kvæmdum var ólokið. Gerðu NLSH og Munck á Íslandi gerðardóms- samning sem gerir ráð fyrir að gerð- ardómur muni fjalla um þau ágrein- ingsatriði sem upp komu. Snerust þau. m.a. um umsamin verklok. Fram kom í umfjöllun RÚV að taf- arbæturnar skiptu allt að hundruð- um milljónum króna. Þá urðu einnig tafir á framkvæmdum fyrirtækisins við uppbyggingu nýs hjúkrunar- heimilis við Sólvang í Hafnarfirði en þar er stefnt að afhendingu 15. júní í ár í stað 20. september 2018. Skera niður starfsemina Í september 2017 kom fram í Morgunblaðinu að talið væri að pólska fyrirtækið Koman, sem starf- aði sem undirverktaki fyrir Munck á Íslandi við framkvæmdir á Þeista- reykjavirkjun, hefði ekki greitt starfsmönnum eftir íslenskum kjarasamningum og að ráðningar- samningar starfsmanna hefðu verið falsaðir. Var það í annað sinn sem félagið lenti í þessum aðstæðum. „Munck Gruppen hefur nú kosið að skera niður starfsemi Munck Ís- landi ehf. til bráðabirgða og nota næstu misseri til þess að móta fram- tíð fyrirtækisins,“ segir í frétta- tilkynningu. Fyrirtækið Munck Constructions Icel ehf. var stofnað hinn 19. desember síðastliðinn en Hans Christan Munck er skráður forráðamaður þess. Vandræðabarn á Íslandi Morgunblaðið/Hari Munck Starfsmenn vinna hér að byggingu sjúkrahótels NLSH.  Móðurfélag Munck á Íslandi tapaði 2,3 milljörðum íslenskra króna á síðasta rekstrarári og skrifar tapið að stórum hluta til á íslenskt dótturfélag þess Munck Íslandi ehf. » Tap fyrirtækisins árið 2017 nam 1,3 milljörðum króna. » Rekstrartekjur félagsins námu 8 milljörðum. » Tap Munck Gruppen A/S nam 2,4 milljörðum íslenskra króna á síðasta rekstrarári. 20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda og hagræða málin fyrir húsfélög Traust - Samstaða - Hagkvæmni eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005 Ráðgjöf Veitum faglega ráðgjöf til húsfélaga Bókhald Höfum umsjón með bókhaldi fyrir húsfélög Þjónusta Veitum persónulega þjónustu sem er sérsniðin að hverju og einu húsfélagi Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á var umfram mínar væntingar,“ segir Jón Trausti í samtali við Morg- unblaðið. „Það sem helst hefur áhrif á bíla- söluna eru kjaraviðræðurnar og óvissa varðandi þá niðurstöðu. Það vegur þyngst. Önnur ástæða er óvissa bílaleiga varðandi vörugjöld,“ segir Jón Trausti en um síðustu ára- mót féll niður undanþága vegna álagningar vörugjalda á bifreiðar sem ætlaðar eru til útleigu hjá bílaleigum. Segir Jón Trausti að Samtök ferða- þjónustunnar (SAF) hafi rætt við stjórnvöld um framlengingu á þessari undanþágu. Vonast hann til þess að leið verði fundin á vormánuðum til þess að gera bílaleigum auðveldara fyrir að endurnýja flotann. „SAF hefur óskað eftir því við stjórnvöld fyrir hönd bílaleiganna að það verði framhald á undanþágunni til þess að stuðla að eðlilegri og nauð- synlegri endurnýjun bílaleiguflotans. Bílagreinasambandið styður það einnig. Ég tel það mjög mikilvægt fyrir Ísland, ef það ætlar sér að vera gæðaland í ferðaþjónustu, að bjóða upp á nýlega bíla til útleigu fyrir ferðamenn.“ Sala á fólksbílum dróst saman um 30% í febrúarmánuði frá því sem var í sama mánuði í fyrra. Alls seldist 801 bíll í febrúarmánuði í ár en í fyrra seldust 1.159 bílar. Að sögn Jóns Trausta Ólafssonar, formanns Bíl- greinasambandsins, var salan í febr- úarmánuði í ár aftur á móti meiri en gert var ráð fyrir en bílasala í jan- úarmánuði dróst saman um tæplega 50% á milli ára. „Þetta er meiri bílasala en ég bjóst við og því kemur þetta á óvart miðað við umræðuna í þjóðfélaginu um kjarasamninga og flugmálin. Salan Bílasala dregst saman um 30%  Óvissa um kjarasamninga vegur þungt en einnig undanþága um vörugjöld Morgunblaðið/Ómar Bílar Bílasala dróst saman um 30%. ● Íslenska ríkið hefur samið við Arion banka um kaup á um 38% hlut bankans í Farice, sem rekur sæstrengina FARICE-1 og DANICE. Eftir kaupin á íslenska ríkið um 65% hlutafjár Farice en Landsvirkjun 33% og er félagið því alfarið í eigu rík- isins. Kaupverð er 740 milljónir króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Þar segir einnig að íslenska ríkið hafi skil- greint fjarskiptasambönd til útlanda sem innviði og kaupin séu gerð í ljósi þess. Farice ehf. var stofnað árið 2002 af ís- lenska ríkinu og íslenskum og fær- eyskum fjarskiptafyrirtækjum. Farice er langstærsti aðilinn í sölu á samböndum milli Íslands og útlanda. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru fjarskiptafyrirtæki hvers konar og stærri viðskiptavinir gagnavera. Ríkissjóður kaupir hlut Arion banka í Farice 2. mars 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.08 119.64 119.36 Sterlingspund 158.48 159.26 158.87 Kanadadalur 90.37 90.89 90.63 Dönsk króna 18.188 18.294 18.241 Norsk króna 13.943 14.025 13.984 Sænsk króna 12.951 13.027 12.989 Svissn. franki 119.66 120.32 119.99 Japanskt jen 1.0745 1.0807 1.0776 SDR 166.3 167.3 166.8 Evra 135.72 136.48 136.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.6679 Hrávöruverð Gull 1325.45 ($/únsa) Ál 1898.0 ($/tonn) LME Hráolía 66.38 ($/fatið) Brent ● Hrein ávöxtun Lífeyrissjóðs verzl- unarmanna, LIVE, var 4,3% á árinu 2018 og jukust eignir sjóðsins um 48 milljarða, en þær námu 713 milljörðum í árslok. Í tilkynningu sjóðsins segir að ávöxtunin svari til 1,0% hreinnar raunávöxtunar. Fjárfest- ingartekjur sjóðsins voru 29,7 millj- arðar, samkvæmt tilkynningunni, og segir sjóðurinn að langtímaraunávöxtun sé góð. Fimm ára meðalávöxtun sé þannig 4,8%, tíu ára meðalávöxtun er 4,5% og tuttugu ára meðalávöxtun 3,9%. tobj@mbl.is Hrein ávöxtun LIVE 4,3% árið 2018 Lán Sjóðfélagalán námu 92,9 mö. STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.