Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 27

Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 ✝ Ingveldur ÁstaHjartardóttir fæddist 7. júlí 1934 í Dalbæ í Gaulverja- bæjarhreppi, sem nú heitir Flóa- hreppur. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 23. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Guðlaug Narfadóttir úr Hafnarfirði og Hjörtur Níelsson frá Bjarneyjum í Breiðafirði. Systkini hennar eru: Ólafur, f. 1920, látinn, Halldór, f. 1921, lát- inn, Guðjón, f. 1927, látinn, Magnús, f. 1929, látinn, Narfi, f. 1932, Sigurþór, f. 1937. Ingveldur giftist Sigurði Sig- urðssyni frá Geirseyri í Patreks- firði 29. júní 1956. Þeim varð fjögurra barna auðið, fyrir átti Ingveldur soninn 1) Ríkhard Heimi Ásgeirsson frá fyrra sam- bandi, f. 1954, d. af slysförum 1961. 2) Hjörtur, f. 1956, maki Sigríður Ólafsdóttir, f. 1964. Börn: a) Ólafur Hrafn Guðnason, næstyngst af systkinum sínum og eina stúlkan. Ung fór Ingveldur að vinna á Álafossi, en Guðjón bróðir henn- ar var þá þar fyrir. Eftir að til Patreksfjarðar kom vann Ingveldur í Sigurðarhúsi og eftir að þau Siggi rugluðu saman reytum tók hún við sem húsmóðir á heimilinu. Þegar Ingveldur fór að vinna utan heimilis er skrif- stofa Patrekshrepps starfsvett- vangur hennar í mörg ár, síðar gegndi hún stöðu skrifstofu- manns hjá Heilbrigðisstofnun Patreksfjarðar um nokkurra ára bil en starfsævinni lauk hún á skrifstofu sýslumanns og sá þar um almannatryggingar. Félagsstörf voru alltaf fyrir- ferðarmikil hjá Ingveldi en hún var félagi í slysavarnafélaginu Unni og kvenfélaginu Sif. Hún söng með kirkjukór Patreks- fjarðarkirkju um árabil og tók þátt í uppfærslum á leikritum með leikfélagi Patreksfjarðar. Ingveldur var félagi í sjálfstæðis- félaginu Skildi og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum, m.a. var hún formaður félagsins um árabil, ásamt setu í nefndum og ráðum fyrir sveitarfélagið. Útför Ingveldar fer fram frá Patreksfjarðarkirkju í dag, 2. mars 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. f. 1982, sonur Sig- ríðar, fóstursonur Hjartar. Maki Ólafs er Anna Margrét Pétursdóttir, f. 1988. Börn þeirra eru Emma Guðrún og Benedikt Óli, f. 5.9. 2014. b) Hjördís Lára, f. 1992, d. 2002. c) Svandís Helga, f.1995. d) Narfi, f. 1997, kær- asta hans er Arna Lea Magnús- dóttir. 3) Anna María, f. 1960, maki Björn Ágúst Jónsson, f. 1957. Börn: a) Ingveldur Ásta, f. 1982, maki Árni Freyr Valdi- marsson, f. 1979. b) Sigurrós Guðbjörg, f. 1991, maki Árni Jónsson, f. 1989. c) Agnes Freyja, f. 1995, maki Friðrik Bjarnason, f, 1994. 4) Ríkhard Heimir, f. 1964, maki Thiang Sithan, f. 1971, sonur David Sithong, f. 2003. 5) Sigurður Svanur, f. 1969. Ingveldur ólst upp við almenn sveitastörf til 13 ára aldurs en þá brá fjölskyldan búi og fluttist til Reykjavíkur. Ingveldur var Komið er að leiðarlokum. Mamma fæddist í Flóanum en fluttist á unglingsárum í Sörla- skjólið í Reykjavík. Rúmlega tvítug kom hún til Patreksfjarðar fljúgandi með sjó- flugvél og steig á land í fjörunni á rauðum skóm, með ungan dreng í fanginu. Á móti henni tók snaggaraleg- ur lágvaxinn maður, ekki ósenni- legt að Reykjavíkurdömunni hafi þótt hann smá skítugur, enda örugglega stokkið beint af veg- heflinum. Það var þá. Margar sögur voru sagðar úr Flóanum og úr Skjólunum, við fyrir vestan gerðum nú stundum grín að Flóanum, þar væru nú bara þúfur en engin fjöll, en okkur hefndist fyrir það, sum af okkur systkinum hafa fengið þúfnagang- inn/göngulagið í arf, í stað fjaður- magnaðs göngulags Vestfirðinga. Mamma sinnti heimilisstörfum og búskap í Sigurðarhúsi í nokkur ár, eftir að búskap lauk var hún á vinnumarkaði til sjötugs, hún kynntist tölvuöldinni sem kom sér vel þegar hún hætti að vinna, var mjög tæknivædd, virk á sam- félagsmiðlum, átti sinn snjallsíma með fésbók og snapchat. Barnabörnunum var hún vin- kona, naut þess að fara með þeim í dekur í spa, á kaffihús og kíkja á barinn. Narfi horfði á Nágranna með henni, ef stóru stígvélin sáust fyrir utan hús þá var heilög stund hjá Narfa og ömmu. Við barna- börnin ræddi hún pólitík og heims- málin og hafði sterkar skoðanir á því sem þau tóku sér fyrir hendur. Einnig hafði hún gaman af að kynnast vinum barnabarnanna og kallaði sum þeirra barnabörnin sín og þau hana ömmu. Við systkinin lærðum fljótt að bjarga okkur því mamma var allt- af á fundum, hún tók virkan þátt í félagsmálum á staðnum og sinnti því fram á síðasta dag, fór í marg- ar ferðirnar með Slysavarnafélag- inu og vil ég þakka öllum ungu konunum í þeim félagsskap sér- staklega fyrir síðustu ár, síðasta ferðin var farin á Snæfellsnesið í haust og þá var okkar kona klædd í ABBA-búning. Eftir að hún varð ein þá velti hún því fyrir sér hvort hún ætti að flytja suður á gamlar slóðir, en ákvað að það gæti hún ekki gert, því það þyrfti einhver að stjórna hér, sem sagt á Patreksfirði! Þessum minningum lýk ég með Patróvalsinum sem er eftir móður mína. Ef að á Patró ég unnusta finn, ungur og vasklegur verður hann minn Er út við leiðumst með hönd læsta’ í hönd, himinninn roðnar við hafsbrúnarrönd. Ég held út í vorið á hárauðum skóm, hafaldan raular með fagnaðarróm. Ástin þá kviknar og óskirnar rætast, enginn verður þá ósnortinn og ungu piltarnir kætast. Takk fyrir allt. Þín einkadóttir, Anna María. Elsku amma. Drottning er orð sem kemur í huga okkar systra þegar við hugsum um þig, ekki bara af því þú varst alltaf glæsileg- ust, heldur líka vegna þess að þú varst mjög ákveðin og sterk kona. Elsku amma, þú varst einstök og í okkar huga var engin amma eins og þú, mesta skvísa í heimi með dökkbleikan varalit hvert sem þú fórst og lakkaðar neglur. Þú settir meira að segja á þig varalit þegar það var verið að færa þig á milli deilda á spítalanum eða þegar þú fórst út með ruslið. Þetta klikkaði aldrei af því að „maður veit aldrei í hverju maður lendir og stíllinn tekur aldrei frí“. Við systur eigum óteljandi skemmtilegar minningar um sam- verustundir með þér sem varst í raun meiri vinkona okkar en amma. Þú hafðir mest gaman af því að taka þátt í lífinu og fara með okk- ur og okkar vinum út og hitta fólk, hvort sem var á barinn eða kaffi- hús. Það lýsir þér vel að þegar við nöfnurnar fórum til Kaupmanna- hafnar saman vantaði þig flotta yf- irhöfn til að fara í út og fékkst úlp- una hennar Agnesar, sem þá var 22 ára, að láni og varst auðvitað langflottust. Það verður skrítið að fara til Patró og fara ekki með þér í pott- inn, þar mættir þú stundvíslega nánast daglega, og ræddir m.a. við gesti um pólitík og lást ekki á skoðunum þínum þar frekar en annars staðar. Nágrannar í há- deginu var annar fastur punktur í deginum en þú varst svo heppin að fá félagsskap frá Narfa oftar en ekki við þá iðju. Þú tókst virk- an þátt í félagsstarfinu á Patró og fórst í Selið að syngja, sinna ýms- um verkefnum, sýna þig og sjá aðra. Þegar þú komst í bæinn var það fastur liður að kíkja í búðir og á kaffihús og helst í eitthvert dek- ur. Þú varst góð vinkona, klár, hugrökk og ákveðin og hafðir sterkar skoðanir á því sem við systur erum að fást við. Amma, þú varst okkur sterk fyrirmynd. Minningarnar um þig eru dýrmætar og við munum sakna þín. Inga, Sigurrós og Agnes. Ingveldur Ásta Hjartardóttir  Fleiri minningargreinar um Ingveldi Ástu Hjartardóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda 551 1266 Skipulag útfarar Dánarbússkipti Kaupmálar Erfðaskrár Reiknivélar Minn hinsti vilji Fróðleikur Sjá nánar á www.utfor.is Vesturhlíð 9 Fossvogi | Sími 551 1266 | utfor.is Önnumst alla þætti útfararinnar með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Reynslumikið fagfólk Elín Sigrún Jónsdóttir Framkvæmdastjóri Jón G. Bjarnason Útfararþjónusta Ellert Ingason Útfararþjónusta Lára Árnadóttir Útfararþjónusta Katla Þorsteinsdóttir Lögfræðiþjónusta Guðmundur Baldvinsson Útfararþjónusta Magnús Sævar Magnússon Útfararþjónusta Emilía Jónsdóttir Félagsráðgjafi Sigrún Óskarsdóttir Guðfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta utfor.is Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA MARÍA HALLSDÓTTIR, Strikinu 12, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold 28. febrúar. Útförin fer fram í kyrrþey mánudaginn 4. mars. Baldur Ágústsson Halla Elín Baldursdóttir Helga Guðbjörg Baldursd. Gísli Baldur Garðarsson Ágúst Baldursson Sigurlín Baldursdóttir Guðjón Ómar Davíðsson barnabörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.