Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 29

Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 ✝ Jóhannes Run-ólfsson fæddist á Dýrfinnustöðum í Skagafirði 6. nóvember 1923. Hann lést á Dvalar- heimili aldraðra á Sauðárkróki 18. febrúar 2019. Foreldrar Jó- hannesar voru María Jóhannes- dóttir, fædd 16. apr- íl 1892 á Sævarlandi á Skaga, lát- in 24. júní 1986, og Runólfur Þórbergur Jónsson, fæddur 25. mars 1881 á Stóru-Ökrum í Blönduhlíð, látinn 23. mars 1937. Systkini Jóhannesar eru: Sigurjón, f. 13. ágúst 1915, d. 27. maí 2000, Guðbjörg Jóhannesína, es Björgvin Eyjólfsson, f. 16. ágúst 1935, d. 12. desember 1961, og Guðrún Eyjólfsdóttir, f. 4. október 1936, d. 22. ágúst 2017. Jóhannes ólst upp á Dýrfinnu- stöðum til átta ára aldurs en fór þá í Brimnes, þar sem hann var fram undir fullorðinsár. Þá flutti hann suður þar sem hann starf- aði og lærði vélvirkjun. Hann vann við iðn sína og fjölmargt annað. Hann starfaði lengi hjá Vélsmiðjunni Héðni en síðustu árin syðra byggði hans hús í Kópavogi og seldi. 1970 keypti hann Reykjarhól í Fljótum þar sem hann bjó þar til aldur fór að segja til sín. Þar stundaði hann búskap með sauðfjár- og hrossa- rækt og reisti sér hús. Jóhannes var hagmæltur og söngelskur og á seinni árum kom í ljós að hann var líka tónskáld. Jóhannes var ókvæntur og barnlaus. Útförin fer fram frá Sauðár- krókskirkju í dag, 2. mars 2019, klukkan 15. f. 28. júlí 1916, d. 13. október 2016, Ant- on Valgarður, f. 9. júlí 1917, d. 1. apríl 1993, Björn Þórður, f. 20. mars 1919, d. 2. maí 2007, Pálmi Anton, f. 24. júlí 1920, d. 29. janúar 2012, Sigríður Sól- veig, f. 23. nóv- ember 1925, d. 1. mars 2005, Stein- unn, f. 9. nóvember 1926, Una, f. 7. september 1928, Kristfríður Friðrika, f. 23. ágúst 1929, d. 24. október 2015, Friðfríður Dodda, f. 8. desember 1931, d. 19. febr- úar 2013, og Hólmfríður Svandís, f. 11. desember 1932, d. 5. ágúst 1987. Fóstursystkini eru Jóhann- Jóhannes, áður bóndi á Reykj- arhóli á Bökkum, oftast kallaður Jói, er genginn á vit feðra sinna. Jói var að mörgu leyti sérstæður og hygg ég að hann hafi oftar en ekki farið sínar eigin leiðir, látið álit annarra sig litlu skipta. Kynni mín af honum hófust ekki fyrr en eftir lát Jonna bróður míns, en þeir voru góðkunningjar, þar áður var ég honum aðeins málkunn- ugur. Við Jói ræddum margt hin síð- ari ár. Hann var vel gerður, skarp- greindur, lesinn og víða heima. Þekkti ættir og tengsl þeirra er um var rætt. Átti létt með að setja saman vísur, kvæði og samdi lög. Hann var listrænn og naut hylli kvenna þótt hlutur hans yrði að ganga einn gegnum lífið. Sumar vísur er hann fór með gætu talist „tvíræðar“ en meiddu engan. Hann kvað það hafa verið þung spor er hann yfirgaf systkini sín og foreldra á Dýrfinnustöðum, átta ára, og fór til fósturs að Brim- nesi, undir forsjá Guðfinnu, ein- stæðrar eldri konu er var þar í heimili. Þar leið honum vel, en heimþráin var samt til staðar. Jói var lærður vélvirki. Sumar- ið er hann sótti um í Iðnskólanum í Reykjavík var hann á sjó er inn- tökuprófið í skólann fór fram. Hann fékk frest á sínu prófi um hálfan mánuð. Inntökuprófin reyndust vera tvö fög, reikningur og stíll. „Ég fékk 0 í reikningi en 10 í stílnum,“ sagði hann. „Þrátt fyrir þessar hrakfarir fékk ég skólavist og stóð mig ekkert verr en félagar mínir.“ Jói var hand- laginn. Auk fagsins var hann lag- inn smiður, fékkst við múrverk og lagði hönd að mörgu. „Höllin“ ber gleggst vitni um hæfileika hans. Eitt það minnisstæðasta kvað hann hafa verið er ísvélin hjá þeim Steingrími Hermannssyni og Pálma, síðar í Hagkaup, bilaði. „Þeir voru ungir Skagfirðingar á uppleið. Ég varð að smíða nýtt stykki um nóttina svo íssalan stöðvaðist ekki,“ sagði hann. Á sjötta áratugnum byggði Jói nokkur hús í Kópavogi. Ég tel að hann hafi þá lent í þrengingum af annarra völdum. Eftir það keypti hann Reykjarhól og flutti norður. Á Reykjarhóli undi hann sér vel, byggði þar öll hús, en íbúðar- húsið er sérstætt, stórt og mikið og gengur undir nafninu „Höllin“. Hin síðari ár undi hann sér við grúsk og bóklestur. Hann söng, spilaði og samdi lög, og með að- stoð vina og kunningja gaf hann út geisladisk með lögum sínum. Hjá Jóa var gestkvæmt og sími notaður. Hross hans voru ekki síðri en margra annarra og margir áttu við hann hrossakaup, sumir oft. Þrennt skynjaði ég í fari Jóa: Hann var lífhræddur, þjófhrædd- ur og „reimleikahræddur“. Ég spurði hvort hann væri skyggn en fékk ekki afgerandi svar. Hann taldi að yfir sér væri verndarhönd og sér hefði nokkrum sinnum ver- ið forðað frá áföllum. Ég aðstoðaði hann, ásamt fleirum, er hann flutti frá Reykjarhóli. Áður en hann yfirgaf „Höllina“ bað hann mig að fara upp á háaloft, og er ég stóð í loftopinu sagði hann: „Lyftu upp borðendanum og réttu mér um- slagið sem þar er. Ég ætla ekki að láta stela öllu frá mér.“ Eftir að hann flutti frá Reykjarhóli fór að halla verulega undan fæti. Með honum er horfin sérstæð persóna og góður drengur. Blessuð sé minning hans. Guðm. Óli. Jóhannes Runólfsson bjó á Reykjarhóli í Vestur-Fljótum hátt í hálfa öld, hann keypti jörðina 1969 og flutti þangað 1970. Jóhannes var frá Dýrfinnustöð- um í Akrahreppi í Skagafirði, úr stórum hópi systkina sem öll hafa reynst dugnaðar- og sómafólk og var Jóhannes þar engin undan- tekning, hagur bæði á tré og járn og múraði þegar svo bar undir; „höllin“ hans á Reykjarhóli ber Jóa fagurt vitni, en um árabil helg- aði hann líf sitt byggingu þessa húss. Jói var árum saman í Reykja- vík, lærði þar rennismíði og þótti öðrum fremri í þeirri iðn. Margar sögur sagði hann frá Reykjavík- urárum sínum, þá ungur maður og kvennaljómi. Eftir að hann flutti norður í Reykjarhól fékkst hann talsvert við múrverk, en það fag hafði hann tileinkað sér í lífsins skóla. Hann múraði hjá bændum og fékk í sumum tilfellum folöld upp í vinnulaun m.a. á Flugumýri; þannig kom hann sér upp hross- um. Kynni okkar Jóa má rekja til þessa; það voru hrossin sem leiddu okkur saman. Jóhannes hafði á sínum yngri árum háa og fallega tenórrödd sem trúlega hefði sómt sér í virt- ustu tónleikahúsum Evrópu, hefði hann haft aðstöðu og áhuga á að feta þá slóð. Þegar árin færðust yfir fór Jói að helga sig tónsmíðum og eru lögin hans talin í tugum, flest sam- in við ljóð eftir þekkt íslensk skáld. Til að koma böndum á lögin sín þá söng hann þau sjálfur, undirspilslaust, inn á hljóð- snældur. Á efri hæðinni í „höll- inni“ hans var, sem sagt, hljóm- leikasalur, þar sem náttúrubarnið Jóhannes eyddi mörgum stundum og ef gesti bar að garði þá voru þeir oftar en ekki leiddir á efri hæðina og fengu að hlýða á eitt eða tvö lög. Árið 2008 stóðu vinir Jóhann- esar fyrir útgáfu hljómdisks með 14 lögum hans og var það gert í til- efni 85 ára afmælis hans og árið 2013 var gefið út nótnahefti með þessum lögum. Jóhannes varð ní- ræður það ár og var útgáfan helg- uð þeim tímamótum. Með þessum orðum kveð ég vin minn, Jóhannes Runólfsson. Við áttum saman margar eftirminni- legar stundir sem auðguðu lífið og tilveruna. Ingimar Ingimarsson. Jóhannes Runólfsson Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Þorbergur Þórðarsson Elís Rúnarsson Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Sléttuvegi 13, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 19. febrúar, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 5. mars klukkan 13. Jóna Helgadóttir Eysteinn Helgason Kristín Rútsdóttir Matthildur Helgadóttir Tómas Óli Jónsson Guðleif Helgadóttir Haraldur Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MATTHÍAS EINARSSON, fv. lögregluvarðstjóri á Akureyri, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 27. febrúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 8. mars klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarsjóð Oddellowreglunnar. Jóhanna María Pálmadóttir Pálmi Matthíasson Unnur Ólafsdóttir Stefán E. Matthíasson Ásdís Ólöf Gestsdóttir Gunnar Rúnar Matthíasson Arnfríður Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku hjartans fallega eiginkona mín og besti vinur, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA INGA GUÐMUNDSDÓTTIR kennari, Rjúpnasölum 14, Kópavogi, lést á kvennadeild Landspítalans að morgni 26. febrúar. Útför hennar fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi föstudaginn 8. mars klukkan 13. Kristján Sigfússon Sveinborg Lára Kristjánsd. Lárus Ársælsson Sigfús Kristjánsson Arndís Friðriksdóttir Sigurjón Örn Sigurjónsson ömmubörn og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, GYLFI THORLACIUS, hæstaréttarlögmaður, sem lést á Landspítalanum föstudaginn 22. febrúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 4. mars klukkan 15. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Svala Thorlacius Elskuleg móðir mín, mágkona og frænka, KAREN SIGURÐARDÓTTIR, Gógó, Faxabraut 13, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu Hlévangi sunnudaginn 24. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 5. mars klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Suðurnesja. Guðmundur Kristinn Þórðarson Þóra Ragnarsdóttir Emil Birnir Sigurbjörnsson Auður Birna Egilson Þórður Kr. Jóhannsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÓLFUR FRIÐGEIRSSON, fyrrverandi skólastjóri og kennari, Árskógum 8, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 22. febrúar, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 6. mars klukkan 13. Kristín Lilja Halldórsdóttir Ágústa Þórólfsdóttir Sveinn K. Guðjónsson Elsa Björg Þórólfsdóttir Alfreð S. Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.