Morgunblaðið - 02.03.2019, Page 35

Morgunblaðið - 02.03.2019, Page 35
arnesi. „Þar hefur það helst borið til tíðinda, að ég var skiptastjóri þrota- bús Frjálsrar fjölmiðlunar ehf. með góðum árangri. Tókst mér að knýja stóru bankana þrjá til að skila inn í þrotabúið 340 milljónum kr., sem þeir höfðu ranglega ætlað sér að hirða. Þannig var m.a. tryggt að starfsfólk fyrirtækisins fengi greiddar 60-70 millj. kr. í vinnulaun, sem það átti inni hjá fyrirtækinu. Útivist hefur verið mér mikilvæg. Fyrr á árum hafði ég gaman af því að stunda sjó og átti m.a. trillubát í nokkur ár. Ég gerði út á grásleppu fyrst frá Eyjum í Kaldrananes- hreppi 1974 og síðan frá Flatey á Skjálfanda 1975-77. Af íþróttum hef ég haft gaman, bæði af skíðaferðum í Ölpunum og seglbrettasiglingum, bæði hér á landi og erlendis. Fór m.a. á seglbretti frá Akranesi til Seltjarnarness 1991, þ.e. 52 ára gamall. Auk reksturs lögmannsstofu hef ég undanfarin ár verið í doktors- námi á sviði réttarheimspeki, sem sérstaklega beinir sjónum að rétt- læti og réttarsköpun dómstóla.“ Fjölskylda Eiginkona Sigurðar var Guðrún Þóra Magnúsdóttir, f. 23.4. 1943, d. 24.2. 2010, húsmóðir. Foreldrar hennar voru hjónin Magnús Joch- umsson, f. 19.10. 1913, d. 21.8. 1989, rennismiður, og Júlía Jónsdóttir, f. 29.5. 1924, d. 9.2. 2014, húsmóðir. Vinkona Sigurðar er Kristín Haf- steinsdóttir, f. 23.2. 1951, lífeinda- fræðingur og bókmenntafræðingur. Börn Sigurðar og Guðrúnar eru: 1) Dagmar, f. 27.1. 1967, yfirlög- fræðingur hjá Ríkiskaupum, bús. á Seltjarnarnesi; 2) Magnús, f. 28.6. 1968, flugvirki, bús. á Seltjarnar- nesi; 3) Júlía, f. 12.1. 1970, leigubif- reiðarstjóri, bús. í Reykjavík; 4) Gizur, f. 19.3. 1973, lögfræðingur og framkvæmdastjóri, bús. í Reykja- vík; 5) Ólafur, f. 17.12. 1976, tónlistarmaður, bús. á Seltjarnar- nesi; 6) Ingibjörg, f. 19.3. 1978, lög- fræðingur og leiðsögumaður, bús. á Seltjarnarnesi. Barnabörnin eru 12. Systkini: Lúðvík, f. 6.3. 1932, hæstaréttarlögmaður, bús. í Reykjavík; Bergsteinn, f. 29.11. 1936, d. 9.7. 2008, brunamálastjóri, og Sigríður, f. 2.9. 1942, d. 29.10. 2010, lífeindafræðingur. Foreldrar Sigurðar voru hjónin Gizur Bergsteinsson, f. 18.4. 1902, d. 26.3. 1997, hæstaréttardómari, og Dagmar Lúðvíksdóttir, f. 26.12. 1905, d. 14.9. 1997, húsmóðir. Sigurður Gizurarson Dagmar Lúðvíksdóttir húsmóðir í Reykjavík Lúðvík Sigurðsson útgerðarmaður og kaupmaður í Neskaupstað Þuríður Árnadóttir húsfreyja á Eskifirði Sigurður Eiríksson skipstjóri, beykir og bátasmiður á Eskifirði Margrét Þorláksdóttir húsfreyja í Rvík Vigdís Oddný Steingrímsdóttir húsfreyja í Rvík Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra Þorlákur Jónsson útvegsbóndi í Þórukoti á Álftanesi Ingibjörg Bjarnadóttir húsfreyja í Þórukoti Ingibjörg Þorláksdóttir húsmóðir í Neskaupstað Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur Steinunn Einarsdóttir kennari Guðmundur Einarsson fv. forstjóri Ríkisskipa Anna Bjarnadóttir kennari í Reykholti í Borgarf. Guðlaugur Þorvaldsson prófessor og forsetaframbjóðandi Tómas Þorvaldsson útgerðarmaður Stefanía Margrét Tómasdóttir húsfr. á Járngerðar- stöðum Bjarni Sæmunds- son fiskifræð­ ingur Margrét Sæmundsdóttir húsfr. á Járngerðar- stöðum Sæmundur Jónsson útvegsb. á Járngerðar- stöðum í Grindavík Helga sleifsdóttir húsfreyja í Miðey í andeyjum Í L Ágúst Einarsson kaupfélagsstj. á Hvolsvelli og kaupmaður í Danmörku Einar Ágústsson utanríkis- ráðherra Sigríður Árnadóttir húsfreyja á Kanastöðum Ísleifur Magnússon bóndi á Kanastöðum í Landeyjum, Rang. Þórunn Ísleifsdóttir húsfreyja á Árgilsstöðum Björn Bergsteinsson bóndi á Dyrhólum í Mýrdal Einar Erlendsson krifstofum. í Vík Erlendur Björnsson smiður í Vík í Mýrdals Erlendur Einarsson forstjóri SÍS Bergsteinn Ólafsson bóndi og oddviti á Árgilsstöðum í Hvolhr., Rang. Sesselja Ólafsdóttir ljósmóðir í Rvík Ólöf Sigurjónsdóttir kennari í Rvík Hallgrímur Helgason tónskáld Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Bogi Nilsson fv. ríkissaksóknari Nils Ísaksson skrifstofustj. á Siglufirði og í Rvík Ólafur G. Einarsson fv. menntamálaráðherra Ólöf Ísaksdóttir húsfreyja á Siglufirði og Akureyri Þuríður Bergsteinsdóttir húsfreyja á Árgilsstöðum Ólafur Arnbjörnsson bóndi á Árgilsstöðum Úr frændgarði Sigurðar Gizurarsonar Gizur Bergsteinsson hæstaréttardómari í Reykjavík Oddur Hallgrímsson fæddist 2.mars 1819 í Görðum á Akra-nesi. Foreldrar hans voru Hallgrímur Jónsson, f. 1758, d. 1825, prestur í Görðum, og seinni kona hans, Guðrún Egilsdóttir, f. 1784, d. 1863. Þegar Hallgrímur lést giftist Guðrún Vigfúsi Halldórssyni, bónda og hrepp- stjóra á Suður-Reykjum í Mosfells- sveit, og þegar hann lést fluttist Guð- rún á eignarjörð sína, Minni-Voga á Vatnsleysuströnd og lést þar. Föðurafi Odds var Jón Magnússon Hólabiskup og móðurafi hans var Egill Sveinbjarn- arson ríki, bóndi og hreppstjóri í Innri- Njarðvík. Fósturforeldrar Odds frá sjö ára aldri voru hjónin Pétur Pétursson, prófastur í Stafholti í Borgarfirði, og Sigþrúður Bjarnadóttir. Oddur varð stúdent frá Bessastaða- skóla 1845 og var við barnakennslu í Viðey næsta vetur. Hann sigldi þá til Kaupmannahafnar og hugði á nám í Hafnarskóla. En hann varð sinn- isveikur og gerður afturreka með inn- göngupróf í háskólanum. Hann þurfti þá samkvæmt lögum að taka aftur stúdentspróf. Varð stúdent frá Lærða skólanum 1848 og útskrifaðist frá Prestaskólanum 1850. Oddur var barnakennari í Árnes- sýslu 1850-57 og í Gullbringusýslu 1857-60. Hann vígðist 29. september 1861 aðstoðarprestur í Skarðsþingum á Skarðsströnd og bjó í Langeyjarnesi. Hann varð prestur í Gufudal í Gufu- dalssveit 11. nóvember 1871 og hélt til æviloka. Hann bjó í Neðri-Gufudal 1872-78 og síðan á Hofsstöðum. Oddur var grandvar maður í öllu lífi sínu, hógvær, skyldurækinn og fékk gott orð og var vel látinn af öllum sem þekktu hann. Á sinnisveiki hans mun lítið hafa borið en hann þótti stundum utan við sig. Eiginkona Odds frá 1862 var Val- gerður Kristjana Sigríður Benjamíns- dóttir, f. 6.9. 1833, d. 28.10. 1901, hús- freyja, síðast á Bakka í Tálknafirði. Þau eignuðust níu börn, sex dóu á barnsaldri, þar af fimm elstu börnin, en þau sem komust á legg voru Hall- björn Edvard, kennari og rithöfundur á Bakka, síðar verkstjóri á Suðureyri, síðast á Akranesi, Kristján, bóndi í Skógum í Þorskafirði, síðar húsmaður víða, og Guðrún Sigríður Sigþrúður, húsfreyja á Arnarstapa í Tálknafirði og Suðureyri. Oddur lést 25. apríl 1882. Merkir Íslendingar Oddur Hallgrímsson ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019 Laugardagur 85 ára Ágústa Markúsdóttir Ásgeir Karlsson Bjarney Kristín Viggósd. Ingibjörg Jónsdóttir 80 ára Ásgeir Stefánsson Dagný Kjartansdóttir Elsa Hanna Ágústsdóttir Guðlaug Ingibj. Arilíusard. Kristján Magnússon Orri Hrafnkelsson Sigurður Gizurarson Sigurveig Þóra Árelíusd. Svava S. Gestsdóttir Valborg Rakel Gunnarsd. 75 ára Edda Hinriksdóttir Sveinn Snæland 70 ára Gígja Harðardóttir Helgi Kristján Gunnarsson Þórdís Unndórsdóttir 60 ára Auður Egilsdóttir Bergþóra Sveinsdóttir Friðrika Sigurgeirsdóttir Guðmundur K. Zophoníass. Guðmundur Óskar Haukss. Ingveldur Jónsdóttir Marie Odette St Germain Sigurður Arnar Gunnarsson Svavar Helgi Ásmundsson Vilmar Pétursson 50 ára Aðalsteinn Ingólfsson Ari Pétur Wendel Ása Jakobsdóttir Danguole Miliuviene Einar Sólberg Helgason Guðjón P. Hjaltalín Guðríður Eiríksdóttir Guðrún Ólafsdóttir Ilmur María Stefánsdóttir Linda Rós Sveinbjörnsd. Magnús Kjartan Sigurðsson Marek Niescier Pálmi Arthursson 40 ára Arndís Ósk Ólafsd. Arnalds Baldvin Júlíus Baldvinsson Einar Örn Konráðsson Guðjón Baldursson Helga María Hermannsd. Katarzyna A. Urbanowska Katrín Ösp Gunnarsdóttir Kristín Guðmundsdóttir Marta Gíslrún Ólafsdóttir Ólafur Pétur Ásgeirsson Ragnar Eiríksson Rut Harðardóttir Sigríður Ósk Indriðadóttir Steinunn Dögg Steinsen 30 ára Andri Geir Gunnarsson Aníta Björk Sigurðardóttir Aron Martin Ásgerðarson Daníel Þór Egilsson Erla Rún Sigþórsdóttir Ingimar Flóvent Marinóss. Julian D. Ramirez Carvajal Katrín María Emilsdóttir Marcin Józef Górka Margrét Jóna Gunnarsd. Mindaugas Skeirys Pawel Szymula Rebekka Anna Allwood Sigurður Örn Einarsson Sólborg Anna Lárusdóttir Sunnefa Yeatman Ómarsd. Sævar Örn Eggertsson Tinna Bjarnadóttir Tómas Freyr Sigurjónsson Sunnudagur 95 ára Hafsteinn Bjargmundsson Ingibjörg F. Petersen 90 ára Henný Sigr. Guðmundsd. 85 ára Elsa Lára Sigurðardóttir Hörður Líndal Árnason Pétur Geirsson Sigurlaug Sveinsdóttir 80 ára Guðjón Yngvi Stefánsson Kristján Sigurjónsson 75 ára Edda Karen Haraldsdóttir Elísabet G. Guðmundsd. Guðleif Hrefna Vigfúsdóttir Hjördís Gunnarsdóttir Rannveig Jónsdóttir Svava Gunnlaugsdóttir Þorvaldur St. Jóhannesson 70 ára Bjarni Árnason Eyrún Anna Ívarsdóttir Guðmundur Svavarsson Hreinn Halldórsson Louisa Gunnarsdóttir Páll Árnason Þórður Ingimarsson 60 ára Einar Ragnarsson Elísabet Ragnarsdóttir Gunnar Þór Heiðarsson Heimir Guðbjörnsson Helga Hauksdóttir Jenný Marín Helgadóttir Jóna Ósk Garðarsdóttir Jónína Bragadóttir Sigurþór Þórólfsson Svandís Rögnvaldsdóttir Svan Hector Trampe Wincenta Piktel 50 ára Berglind Jóna Þráinsdóttir Daniela Barbara Gscheidel Finnbogi Karlsson Hildur Kristjánsdóttir Íris Williamsdóttir Kristín Sif Árnadóttir Margot Johanna Backx Margrét Ólöf Bjarnadóttir Ólafur Ingólfsson Soffía Sturludóttir Valur Guðmundsson Örn Ólafsson 40 ára Arna Jakobsdóttir Ágúst Örn Einarsson Erla Rán Kjartansdóttir Hákon Örn Breiðfjörð Helga Björt Guðmundsd. Ijeoma Tilda Kenneth Kjartan Ingvarsson Lára Valdís Kristjánsdóttir Orri Sigurðsson Ragnar St. Guðmundsson Skarphéðinn Guðmundss. Svanhvít Stefánsdóttir Þorfinnur Karl Karlsson 30 ára Alex Cambray Orrason Brynjar Hans Lúðvíksson Dawid Jurczyk Eyþór Bergvinsson Gintaras Ustinovas Guðmundur H. Markússon Hafberg Óskar Gunnarsson Halldór Smárason Hanna Kristín B. Pétursd. Hanna Rún Smáradóttir Haraldur Valdimarsson Katrín Ösp Guðjónsdóttir Kári Pálsson Mark David Allan Marlena T. Zwierzynska Matthías Ragnarsson Ólafur Ingi Guðmundsson Sandra Dögg Björnsdóttir Sigurður Max Jónsson Til hamingju með daginn ✆ 585 8800 Við leggjum kapp á að veita vandaða og trausta þjónustu í fasteignaviðskiptum og leitumst við að ná hámarksárangri fyrir viðskiptavini okkar Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is 79.500.000,- Endurnýjuð efri sérhæð - 161,9 m2 Glæsileg og mikið endurnýjuð efri sérhæð ásamt bílskúr við Hjarðarhaga 33 í Vesturbæ Reykjavíkur. . Hjarðarhagi 33 - 107 Reykjavík 51.900.000 Fjölbýli 3ja herb. 84 m2 útsýnisíbúð Mjög falleg og mikið endurnýjuð útsýnisíbúð á efstu hæð (rishæð) við Skeljanes í Stóra-Skerjafirði. Skeljanes 4, 101 Reykjavík Sléttuvegur 15, 103 Reykjavík Fjölbýli, 3-4ra herb., 133,3 m2 Laus strax. Afar falleg og björt íbúð á 1. hæð í vönduðu og eftirsóttu fjölbýlishúsi fyrir 55 ára og eldri. Íbúðin er skráð 133,3 m2 en að auki er 11,5 m2 flísalögð, yfirbyggð og upphituð verönd til suð- vesturs. Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali 72.900.000,- Fjölbýli 4ra herb - 143 m2 Langalína 20, 210 Garðabær Glæsileg 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í nýlega byggðu (2016) lyftuhúsi við Löngulínu í Garðabæ. Mjög gott aðgengi er að íbúðinni sem og bílastæði og geymslu sem henni fylgja. Opið hús mánud. 4. mars 17:00 - 17:30 Opið hús þriðjud. 5. mars 17:00 - 17:30 64.900.000,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.