Morgunblaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hugsanlegt er að eitthvað sem
fjölskyldumeðlimir gera valdi þér áhyggj-
um eða pirri þig. Hugsaðu fram í tímann
og mundu að þetta ástand varir ekki að ei-
lífu.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú átt auðvelt með að sjá í gegnum
aðra en vertu sanngjarn/gjörn því aðrir
geta líka séð í gegnum þig. Slepptu takinu
af áhyggjunum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er mikil hætta á að nei-
kvæðni nái tökum á þér í dag. Allt sem þú
gerir gerirðu vel og af ástríðu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Löngun þín í frelsi og flótta frá
hversdagslegu amstri er sterk í dag. Leit-
aðu ráða hjá öðrum ef með þarf. Trúðu á
sjálfa/n þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gefðu þér tíma til að hafa samband
við vini og ættingja. Góða veðrið togar í
þig að gera eitthvað þér til skemmtunar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það gefur lífinu lit að hitta góða
vini og ræða lífsins gagn og nauðsynjar og
skiptast á skoðunum. Reyndu að koma
persónu sem skiptir þig máli í skilning um
að hún sé þér mikilvæg.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú ertu meira en lítið tilbúin/n til að
vera ein/n með sjálfri/um þér og hugsa
upp ný plön. Ekki skipuleggja framtíðina
um of.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gerðu eitthvað fyrir sjálfa/n
þig í dag. Þolinmæði er dyggð og þú þarft
að æfa þig í henni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Lokaðu þig ekki af frá umheim-
inum þótt þú sért ekki upp á þitt besta.
Festu hugsanir þínar á blað, markmið þín
verða líka raunverulegri ef þú gerir það.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Eitthvað mun hugsanlega koma
þér á óvart í dag og það innan fjölskyld-
unnar. Trúnaðarvinur ræður þér heilt,
hlustaðu á hann.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert óhrædd/ur við að láta
skoðanir þínar í ljós í dag. Þér finnst best
að nýta morgnana til að vinna. Ekki hætta
að fara í göngutúra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Því lengur sem þú slærð hlutunum
á frest því erfiðara er að koma sér að
verki. Prófaðu að viðurkenna að þú gætir
haft rangt fyrir þér í staðinn fyrir að rök-
ræða.
Kvikmyndin Græna bókin vaktiforvitni Víkverja þegar sýningar
hófust og í vikunni komst hann loks í
bíó að sjá hana. Myndin vann þrenn
Óskarsverðlaun. Hún var valin besta
myndin, Mahershala Ali besti leikari
í aukahlutverki (þótt hann geti tæp-
ast talist í aukahlutverki!) og verð-
launuð að auki fyrir besta handritið.
x x x
Myndin fjallar um tónlistarmann-inn Dr. Don Shirley og útkast-
arann Tony Vallelonga, sem gerist
bílstjóri hans á tónleikaferðalagi um
Suðurríki Bandaríkjanna á tímum
aðskilnaðar á liðinni öld. Heitið vísar
í bók, sem þá var í umferð og var
leiðarvísir fyrir svarta ferðalanga í
Suðurríkjunum með upplýsingum
um veitingahús, gististaði og aðrar
stofnanir þar sem þeir væru vel-
komnir.
x x x
Viðbrögð við myndinni hafa veriðblendin. Sumir halda því fram að
hér sé komin enn ein myndin úr
smiðju Hollywood til að láta hvíta
manninum líða vel og vísa til atriða
þar sem fordómafulli útkastarinn
kemur svarta píanóleikaranum til
bjargar. Sú gagnrýni er vissulega
ekki út í hött, en myndin er þó flókn-
ari og dýpri en það.
x x x
Myndin er byggð á sönnum at-burðum og hefur fjölskylda
Shirleys fundið að því að hún hafi
ekki verið með í ráðum og því sé ekki
brugðið upp réttri mynd af atburð-
um.
x x x
Víkverji hafði ekki heyrt um Shir-ley áður, en hefur kynnt sér tón-
list hans örlítið eftir að myndin kom
út og er staðráðinn í að gera það bet-
ur. Hann var klassískt menntaður
píanóleikari, sem hefði viljað leika
klassíska tónlist í helstu tónleikasöl-
um heims, en gafst ekki kostur á því
vegna húðlitar síns. Finna má fleiri
dæmi um slíka tónlistarmenn og má
þar nefna bassaleikarann Ron Cart-
er, sem vissulega hefur sett mark á
djasstónlist með stórkostlegum leik,
en átti þess ekki kost að fara þá leið
sem hann vildi. vikverji@mbl.is
Víkverji
bænarkall mitt. Lofaður sé Guð er
hvorki vísaði bæn minni á bug né tók
frá mér miskunn sína.
(Sálm: 66.18-20)
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Rúmgott fordyri ranna.
Reisulegt stórhýsi er.
Hneigist til heldri manna.
Hár þarna unir sér.
Helgi R. Einarsson svarar:
Að lausninni við leitum öll,
langar til að vera snjöll.
Er hlaupum út um víðan völl
á vegi okkar birtist höll.
Og bætti við einni limru að
loknum þorra, – „Sviðin“:
Sæl við borðin sátu þau,
smjattað mikið gátu þau.
Södd og sátt
og sögðu fátt
meðan að þau átu þau.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Höll kallast fordyri flottast hér,
frægustu stórhýsi köllum vér.
Hefðartildur sem helzt ég veit.
Hár úr byggð sinni glaður leit.
Sjálfur skýrir Guðmundur
gátuna þannig:
Fordyri höll má heita víst.
Höll byggir álfaþjóðin.
Höll undir blók er seimþöll síst.
Situr í Valhöll Óðinn.
Þá er limra:
Nú unnið er höndum hörðum
og hlaðið upp minnisvörðum,
hallir, sem rísa,
menn hástöfum prísa
og hótel í kirkjugörðum.
Síðan kemur ný gáta eftir
Guðmund:
Nú er úti þoka þétt,
þanki býsna tregur minn,
í Vísnahorni harla létt
hér er gáta í þetta sinn:
Viðarbolur vera kann.
Vera þessi skelfir mann.
Lítinn stein í flekk ég fann.
Fjarska latur þykir hann.
Hlymrekur handan kvað:
Prins Hamlet á Helsingjaeyri
fékkst við heilabrot eins og við
fleiri,
en lét af að hugsa
og hætti að slugsa,
enda varð hann af maður að meiri.
Og að lokum eftir Guðmund
Magnússon lækni:
Ljótt er að tæma losta skál,
launin sérðu vinur:
slepjuð augu, slorug sál,
sláttur æða linur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er mörg höllin
Í klípu
„ég kemst ekki í burt þetta áriÐ,
SVO ÉG TJALDA BARA HÉR.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ertu ekki ENNÞÁ búinn aÐ NÁ TAPPANUM
ÚR?”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... skin og skúrir.
LETILÖPPIN ÉG. ÉG SVAF
ALLAN GÆRDAGINN
VAR GÆRDAGUR?
ÉG ER KALLAÐUR „TILLITSSAMI TORTÍMANDINN”! ÖÐRU NAFNI „rotinn kjaftur”!