Morgunblaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MARS 2019
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ungan bónda dreymir um að verða
leikari í bíómynd en það vill enginn
leika við hann. Fastur í eigin heimi
leikur hann senur úr gömlum bíó-
myndum við sjálf-
an sig, allan lið-
langan daginn.
Dag einn ákveður
hann að láta
draum sinn ræt-
ast og rænir 5
listamönnum úr
borginni. Leik-
konu, rithöfundi,
tónlistarmanni,
leikstjóra og
myndlistarmanni
og neyðir þau til að gera bíómynd
með sér með gömlu VHS vélinni sinni
úti í hlöðu.“
Þannig er söguþræði fyrstu kvik-
myndar Magnúsar Jónssonar, Taka
5, lýst á vef Stockfish kvikmyndahá-
tíðarinnar í Bíó Paradís en myndin
verður frumsýnd á henni annað
kvöld, 3. mars, kl. 20. Með aðal-
hlutverk fara Hilmir Jensson, Þóra
Karítas Árnadóttir, Halldór Gylfa-
son, Guðmundur Ingi Þorvaldsson,
Margrét Kristín Sigurðardóttir, Ólaf-
ur Ásgeirsson, Edda Björg Eyjólfs-
dóttir, Kári Hjaltason og leikstjórinn
Magnús og í kynningu á myndinni á
vef Stockfish er tekið fram að hún
hafi að mestu verið framleidd án
styrkja og öll verið tekin upp á aðeins
níu dögum.
Kvikmyndagerð er dýr í fram-
kvæmd og Magnús segir fólk al-
mennt ekki ráðast í að gera kvik-
mynd nánast án styrkja, eins og hann
gerði. „Þetta er ekki sólósport,“ segir
hann og viðurkennir að það hafi verið
dálítið galið að láta verða af þessu.
Hann hafi líka viljað prófa að vera
ekki öðrum háður og ekki undir þeim
þrýstingi að þurfa að klára myndina
fyrir ákveðinn tíma.
Spark í rass frá Herzog
Magnús segist lengi hafa velt því
fyrir sér hvort hann ætti að láta slag
standa, gera kvikmyndina og hvernig
hann ætti þá að gera hana. Hvort það
væri yfirleitt hægt. „Ég fékk mér
masterklass með Werner Herzog þar
sem hann situr bara í sjö klukkutíma í
stól og segir þér hvernig þú átt að
gera ódýra mynd,“ segir Magnús og á
þar við masterklass í formi vídeós á
netinu. „Það er algjör snilld,“ bætir
hann við, „hann var rosa innspýting
fyrir mig því aðeins mánuði eftir
þetta var ég kominn í tökur.“
Magnús segir Herzog hafa sparkað
hressilega í rassinn á honum og hann
í kjölfarið farið að leita að heppilegum
tökustað. Hann fann svo einn sem var
líkt og sérsniðinn fyrir verkefnið,
Kollabæ í Fljótshlíð. Magnús ólst upp
þar í sveit, á Sámsstöðum sem er ör-
fáum bæjarstæðum frá Kollabæ en
segist þó ekki hafa þekkt þann bæ
sérstaklega.
Alltaf í bíó
En er eitthvað í handritinu byggt á
hans eigin reynslu? Nei, ekki segir
Magnús svo vera en bendir á að höf-
undar byggi líklega alltaf sín verk að
hluta til á eigin reynslu og sjálfum
sér. „Ég var rosalega bíóglaður, var
kallaður Maggi bíóglaði þegar ég var
krakki. Ég var alltaf í bíó og alveg óð-
ur í bíómyndir,“ segir Magnús og
hlær. „En ég er kannski ekki með
þennan sama draum og þessi bóndi,
að ræna fólki til að gera bíómynd.
Reyndar fór þetta að vissu leyti svo-
lítið út í það því ég rændi fólki til að
gera þessa mynd með mér. Svo er
annað líka, þegar maður er að gera
svona hráa indímynd sem á að vera
það, verður til svolítið önnur spenna
en ég hef kynnst sjálfur. Ég hef leikið
mikið í þáttum og bíómyndum og þá
er þetta alltaf meiri pródúksjón en
þarna var nándin meiri, allir þátttak-
endur í verkefninu og allir sem tóku
þátt í myndinni eiga lítinn hlut í
henni. Það voru launin.“
Magnús var allt í öllu hvað gerð
myndarinnar varðar en Hrund Atla-
dóttir, kærastan hans, sá um mynda-
töku. „Hún hefur verið ótrúleg hjálp í
þessu ævintýri með mér og svo var ég
með þrjá hljóðmenn til að taka upp
hljóð en ég klippti myndina m.a. sjálf-
ur,“ segir Magnús og að hann hafi
tekið sér góðan tíma í alla eftir-
vinnsluna sem hafi reynt á og hann
þurft hvíld inn á milli.
En fylltist hann aldrei örvæntingu?
„Nei, nei, það góða líka við að gera
svona ódýra indímynd er að maður
þarf ekki að hafa áhyggjur ef það
koma ekki 20 þúsund manns á hana í
bíó,“ svarar Magnús
Svört kómedía
– Af söguþræðinum einum að
dæma gæti þetta bæði verið gaman-
mynd og hryllingsmynd?
„Það er nefnilega málið, ég skrifaði
þetta fyrst sem hryllingssögu en
fannst þetta svo vera orðið svo
óhuggulegt allt. Þetta var miklu
flóknari saga hjá mér fyrst og á ein-
hverjum tímapunkti fór ég að sjá
húmorinn í þessu og þetta fór að
breytast í svarta kómedíu,“ svarar
Magnús. Erfitt geti verið að finna lín-
una á milli hins óhugnanlega og hins
spaugilega. Hún sé oft á tíðum hárfín
og áhorfendur verði að fá tækifæri til
að meta myndina á sínum forsendum.
Maggi bíóglaði gerir bíómynd
Öskur Þóra Karítas Árnadóttir og Halldór Gylfason í hlutverkum sínum í kvikmyndinni Taka 5.
Magnús Jónsson frumsýnir sína fyrstu kvikmynd, Taka 5, á Stockfish Tekin
upp á níu dögum Bóndi neyðir fimm listamenn til að leika fyrir sig í kvikmynd
Magnús
Jónsson
Kammersveitin Elja kemur fram á
næstu tónleikum Sígildra sunnu-
daga kl. 12 á morgun, sunnudag, í
Norðurljósasal Hörpu. Boðið verð-
ur upp á dagskrá sem spannar ann-
an áratug 20. aldar til dagsins í
dag.
Á efnisskránni eru m.a. verk eftir
Arvo Pärt, Carl Nielsen, Bergrúnu
Snæbjörnsdóttur og Báru Gísla-
dóttur. Um tónsprotann heldur
Bjarni Frímann Bjarnason, einn
stofnenda Elju. Hljómsveitin er
skipuð ungu tónlistarfólki sem flest
er komið vel á veg með að skapa sér
sess sem einleikarar, hljómsveitar-
spilarar og hljómsveitarstjórar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tilnefnd Elja var tilnefnd til Íslensku tón-
listarverðlaunanna sem flytjandi ársins í
flokknum Sígild og samtímatónlist.
Elja á Sígildum
sunnudögum
Án titils, án höf-
undar er yfir-
skrift sýningar
sem verður opn-
uð kl. 16 í dag,
laugardag, í
Gallery Porti,
Laugavegi 23b.
Listamenn-
irnir Hreinn
Friðfinnsson,
Magnús Logi
Kristinsson og Pétur Magnússon
sýna verk sem eru útfærslur hvers
fyrir sig á sömu hugmyndinni –
hugmynd sem er án titils og án höf-
undar.
Þremenningarnir eiga að baki
litríkan og langan feril í listaheim-
inum og hafa allir haldið fjölda
einka- og samsýninga.
Útfærslur á sömu
hugmyndinni
Hreinn
Friðfinnsson
Hinn margverðlaunaði og fjölhæfi
hljómsveitarstjóri og píanóleikari
André Previn er látinn, 89 ára að
aldri. Meðal verðlauna sem féllu
honum í skraut á löngum og glæst-
um ferli voru fern Óskarsverðlaun
fyrir kvikmyndatónlist – árið 1961
var hann tilnefndur fyrir þrenn –
og tíu Grammy-verðlaun – og
Grammy-heiðursverðlaunin.
Previn lék sér löngum á mörkum
klassískrar tónlistar, djass og dæg-
urtónlistar. Á sjötta og sjöunda ára-
tugnum fyllti hann tónleikasali
kvöld eftir kvöld, ýmist sem stjórn-
andi sinfóníuhljómsveita eða við pí-
anóið í djasshljómsveitum en á því
sviði hljóðritaði hann með mörgum
stórstjörnum. Previn var einnig
aðalstjórnanandi margra kunnra
sveita, þar á meðal sinfóníu-
hljómsveitanna í London, Los Ang-
eles og Pittsburg. Hann var fimm-
giftur, síðast fiðluleikaranum
kunna Anne-Sophie Mutter.
Hinn fjölhæfi André Previn látinn
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Virtur Previn með þáverandi eiginkonu,
Miu Farrow, við komuna til Íslands árið
1970 er hann kom fram á Listahátíð.
Guðný Guð-
mundsdóttir
fiðluleikari og
Gerrit Schuil pí-
anóleikari halda
styrktartón-
leikana Mozart
Meditation í
Hljóðbergi
Hannesarholts á
morgun, sunnu-
dag, kl. 16. Lista-
mennirnir gefa vinnu sína og renn-
ur ágóðinn til hússins, til styrktar
menningarviðburðum þar.
Styrkja reksturinn
Guðný
Guðmundsdóttir
Guðmundur
Oddur Magn-
ússon sér um
leiðsögn og
spjall á sýning-
unni Safnið á
röngunni með
Einari Þorsteini
í Hönnunarsafni
Íslands kl. 13 í
dag, laugardag.
Einar Þorsteinn, sem lést 2015,
var brautryðjandi í rúmfræðirann-
sóknum og sérfræðingur í marg-
flötungum.
Safnið á röngunni
Einar Þorsteinn
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
DVERGARNIR R
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til erumargar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.