Morgunblaðið - 02.03.2019, Side 44
laugardaga frá kl. 11 til 17 sunnudaga frá 13 til 17
Sími 568 9512
Opið virka daga frá kl. 11 til 18
Suðurlandsbraut 54 bláu húsin (við faxafen)
40-70%
afsláttur
af öllum
vörum
Troðfull
verslun af
merkjavöru
Sýningin Leikreglur með ljós-
mynda- og myndbandsverkum
hinnar víðkunnu finnsku myndlist-
arkonu Elinu Brotherus verður opn-
uð í Listasafninu á Akureyri í dag
kl. 15. Sýningin var fyrst sett upp í
Pompidou-safninu í París árið 2017
og síðan í Listasafni Íslands. Broth-
erus verður með leiðsögn um sýn-
inguna á morgun, sunnudag, kl. 15.
Sýning á verkum Elinu
Brotherus á Akureyri
LAUGARDAGUR 2. MARS 61. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Hannes S. Jónsson, formaður
Körfuknattleikssambands Íslands,
segir að með ráðningu Benedikts
Guðmundssonar í gær í starf lands-
liðsþjálfara kvenna í körfuknattleik
sé stigið skref í átt að því markmiði
sambandsins að kvennalandsliðið
taki þátt í lokakeppni Evrópumóts-
ins árið 2023. Ríkur metnaður sé
fyrir hendi til þess. »1
Benedikt ráðinn og
stefnt á EM 2023
Dísella Lárusdóttir óperusöngkona
verður gestur kollega síns, Gunnars
Guðbjörnssonar, í viðtalstónleika-
röðinni Da Capo kl. 14 í dag í Salnum
í Kópavogi. Þau fara yfir söngferil
Dísellu og spjalla um lífið og listina
auk þess sem hún flytur valin tón-
listaratriði ásamt píanóleikaranum
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur.
Dísella kemur reglulega fram í Met-
ropolitan-óperunni í New York, í
næstu viku tekur hún þátt í upp-
færslu á La Clem-
enza di Tito og í
haust syngur hún
burðarhlutverk í
nýrri uppfærslu
Metropolitan á
óperu Philips
Glass, Akhna-
ten.
Dísella um lífið, listina
og söngferilinn
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hulda Karen Daníelsdóttir, sérfræð-
ingur hjá Menntamálastofnun, er ný-
kjörin formaður Þjóðræknisfélags Ís-
lendinga. Hún tók við af Hjálmari W.
Hannessyni og er fyrst kvenna til að
gegna embætti formanns í 80 ára
sögu félagsins.
„Ég hef setið í stjórn Þjóðræknis-
félagsins í nokkur ár og bjó í Winni-
peg í Manitoba í 17 ár,“ sagði Hulda
Karen. Í Winnipeg var hún ritstjóri
Lögbergs-Heimskringlu og kenndi
fullorðnum íslensku við Manitoba-
háskóla og eins á námskeiðum hjá sí-
menntunarmiðstöð. Auk þess kenndi
hún börnum íslensku á námskeiðum
og í sumarbúðum. „Það er skemmti-
legt að segja frá því að sá sem stýrir
íslenskudeildinni við háskólann kunni
ekki stakt orð í íslensku þegar hann
kom fyrst í tíma til mín. Hann er nú í
starfinu sem ég gegndi og er alveg
frábær,“ sagði Hulda Karen.
Hún sagði að viðvarandi áhugi
væri á tengslunum við Ísland á Vest-
ur-Íslandi. „Síðastliðið sumar horfði
ég á fótboltaleik í Riverton í Mani-
toba þar sem var fullt af börnum að
spila. Svo heyrði maður alltaf öðru
hvoru hrópað „afi“ eða „amma“! Kan-
adísku börnin nota þessi orð um ís-
lensku afana og íslensku ömmurnar
sínar.“
Hulda Karen kvaðst lengi hafa haft
áhuga á að laða yngra fólk að félaginu
og auka aðgengi ungra íslenskra
fræðimanna að þeim fjársjóði sem er
að finna í Vesturheimi. Kanadískir
fræðimenn geti ekki nýtt hann jafn
vel því þeir séu ekki jafn vel læsir á
íslensku. Hulda Karen nefndi t.d. ís-
lenskan fræðimann sem er að rann-
saka leiklistarhefð á meðal Vestur-
Íslendinga og nýja rannsókn á konum
sem fóru einar vestur um haf auk
bókarinnar Sigurtungu um vestur-
íslenskt mál og menningu. Hún sagði
að mörg tækifæri væru til rannsókna
í þjóðfræði, sagnfræði, tungumálinu
og fjölmenningu þar vestra.
„Ég mun leggja mig alla fram við
að upplýsa unga fræðimenn um rann-
sóknarmöguleika í Vesturheimi. Svo
vil ég gjarnan leggja áherslu á þetta
nafn: Þjóðræknisfélag Íslendinga.
Um tíma hefði ég viljað breyta því t.d.
í Frændræknisfélag. Svo hélt Guðni
Th. Jóhannesson, forseti Íslands, svo
frábært erindi á Þjóðræknisþingi
2016 og ég var svo sátt við nafnið á fé-
laginu eftir það,“ sagði Hulda Karen.
Hún sagði að á stundum hefði heiti fé-
lagsins verið tengt við þjóðrembu en
forsetinn hefði lagt sérstaka áherslu
á að þjóðrækni væri andstæða við
þjóðrembu. Þjóðrækni drægi dám af
orðinu frændrækni; það að hirða um
skyldmenni, rækta fjölskyldu í víð-
asta skilningi og sýna ræktarsemi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þjóðræknisfélag Íslendinga Hulda Karen Daníelsdóttir tók við formennsku í félaginu af Hjálmari W. Hannessyni.
Fjársjóður bíður fræði-
manna í Vesturheimi
Hulda Karen nýkjörin formaður Þjóðræknisfélagsins