Morgunblaðið - 28.03.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 28.03.2019, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 8. M A R S 2 0 1 9 Stofnað 1913  74. tölublað  107. árgangur  UM HUNDRAÐ VIÐBURÐIR Á DAGSKRÁ ÓEIRÐIR Á ÍSLANDI ATVINNUBLAÐ MORGUN- BLAÐSINS MÓTMÆLIN Á AUSTURVELLI 1949 24 FINNA VINNU ÁTTA SÍÐURHÖNNUNARMARS 58  Samkvæmt nýrri talningu Sam- taka iðnaðarins í mars hefur íbúð- um sem eru á fyrstu byggingar- stigum á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. að fokheldu, fækkað um 4,1% frá síðustu talningu í september. Slíkar íbúðir voru 2.558 talsins í mars. „Fækkunin nú endurspeglar að stærstum hluta versnandi efna- hagsástand og aukna efnahags- óvissu, m.a. vegna stöðu kjara- samninga,“ segir í greinargerð Samtaka iðnaðarins (SI) um málið. Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri SI, segir verk- efnastöðuna almennt góða. „Hvað varðar íbúðamarkaðinn er útlitið ágætt. Heilt yfir er aukning varðandi samgöngur og margt í pípunum. Hins vegar eru blikur á lofti. Stærri verkefni hafa frestast. Það hefur áhrif á móti. Til dæmis hefur útboði vegna meðferðar- kjarnans við Hringbraut verið frestað fram á haust en það átti að verða í mars,“ segir Sigurður. »20 Íbúðir í byggingu á höfuðborgar- svæðinu 2018-2019 Heimild: SI Mars 2018 Sept. 2018 Mars 2019 Fokhelt og lengra komið Að fokheldu 4.9884.845 4.093 2.558 2.430 2.668 2.177 2.040 2.053 Vísbendingar um að hægt hafi á upp- byggingu íbúða Ein kindin í Árbæjarhjáleigu tók forskot á sæluna í vetur með þeim afleiðingum að hún bar tveimur lömbum í gærmorgun, mánuði fyrr en almennur sauðburður hefst hjá bændunum Kristni Guðna- syni og Marjolijn Tiepen. Annað lambið er bíldótt og hitt dökkmórautt. Vilhelm Bjartur og Áslaug María Eiríksbörn fóru í fjárhúsin með afa og ömmu og fengu að skoða lömbin. Vorið leggst vel í Kristin, klakalaus jörð veit á gott. Morgunblaðið/RAX Bar tveimur lömbum mánuði á undan áætlun Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500 Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 360° snúningur | Innbyggður fótaskemill Hallanlegt bak | Stillanlegur höfuðpúðiWizar HÆGINDASTÓLL Fyrir lífsins ljúfu stundir. Efni: Leður/tau 20% AFSLÁTTUR Verð: 159.920 Fullt verð: 199.900  Skortur á gjörgæslurýmum er við- varandi vandamál á Landspítalanum og lausn á því ekki í sjónmáli, að sögn Gunnars Mýrdal Einarssonar, yfirlæknis hjarta- og lungnaskurð- deildar Landspítalans. Hann segir vanta stærra húsnæði og fleira sér- hæft starfsfólk svo hægt sé að fjölga gjörgæslurýmum á spítalanum. „Ef við lítum á tölfræðina þá vant- ar okkur 7-10 gjörgæslupláss til að standast alþjóðlegan samanburð miðað við fólksfjölda.“ Á Landspítala eru 13 gjörgæslu- pláss. „Þetta er allt gjörgæslurýmið á höfuðborgarsvæðinu og í raun fyr- ir megnið af landinu. Þetta er ekki nóg fyrir 350 þúsund íbúa og alla ferðamennina sem hingað koma,“ segir hann. »6 Brýn þörf á að stækka gjörgæslu Helgi Bjarnason Jóhann Ólafsson Nýr og jákvæðari tónn virðist vera kominn í samningaviðræður sam- flots sex verkalýðsfélaga og samtaka og Samtaka atvinnulífsins á sátta- fundum í Karphúsinu. Samtök at- vinnulífsins lögðu fram nýjar hug- myndir á fundi í gær sem forystumenn verkalýðsfélaganna töldu að gætu orðið nýr viðræðu- grundvöllur. Til þess að samningamenn gætu einbeitt sér að samningum næstu daga ákváðu Efling og VR að aflýsa tveggja daga verkfalli á ferðaþjón- ustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu sem hefjast átti á miðnætti. Samningamenn eru bundnir af fréttabanni ríkissáttasemjara þann- ig að ekkert fæst uppgefið um efni þeirra hugmynda sem nú er verið að vinna með. „Raunverulegur samningsvilji“ Samninganefndirnar hittast klukkan 13 í dag og verður unnið næstu daga og um helgina til að reyna að ná samningum, helst áður en ný verkfallslota hefst. Næsta verkfall verður á mánudag og nær til hluta strætisvagnabílstjóra á höfuð- borgarsvæðinu en þriggja daga verkfall Eflingar og VR hjá rútufyr- irtækjum og hótelum verður seinni hluta næstu viku. „Það er vænlegast að fresta öllum verkföllum þannig að ferðaþjónust- an geti komist í samt lag og farið að vinna af fullum krafti,“ segir Jó- hannes Þór Skúlason, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. „Það er mikilvægt að það komi fram að við hefðum ekki tekið ákvörðun um að aflýsa þessum verk- föllum nema vegna þess að við upp- lifum að það sé raunverulegur samn- ingsvilji fyrir hendi,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags. „Við hefðum ekki farið þessa leið ef við hefðum ekki séð alla vega til sólar,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Nýr tónn á sáttafundum  Efling og VR aflýsa verkföllum þessarar viku  Samningsaðilar telja að nýr grundvöllur hafi fundist  Reynt að semja áður en næsta verkfallslota skellur á MAflýsa verkfalli »4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.