Morgunblaðið - 28.03.2019, Side 24
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Á laugardaginn eru 70 ár liðin frá
því að Alþingi samþykkti að sækja
um aðild að Atlantshafsbandalaginu
(NATO). Þetta var 30. mars 1949.
Ekki gekk það átakalaust fyrir sig,
hvorki innan þings né utan. Harðar
umræðu urðu á Alþingi og höfðu
andstæðingar málsins uppi stór orð
um svik ríkisstjórnarinnar og þing-
meirihlutans við fullveldi og sjálf-
stæði Íslands. Efnt var til mótmæla-
fundar við Miðbæjarbarnaskólann,
steinsnar frá þinghúsinu, þar sem
krafist var þjóðaratkvæðagreiðslu
um ákvörðunina. Að fundinum lokn-
um komu þúsundir manna saman á
Austurvelli og leið ekki á löngu þar
til upp úr sauð og allt logaði í óspekt-
um. Þarna urðu mestu óeirðir á Ís-
landi á öldinni sem leið og verður að
leita til búsáhaldabyltingarinnar í
janúar 2009 um samjöfnuð.
Viðbrögð við útþenslu
Á þessum tíma var heimsbyggðin
enn í sárum eftir heimsstyrjöldina
sem lauk 1945. Í Evrópu var kalt
stríð skollið á milli kommúnistaríkj-
anna í austri og lýðræðisríkjanna í
vestri. Eftir að Sovétríkin innlimuðu
fjölda landa í Austur-Evrópu ákváðu
Bandaríkin og forysturíki í Vestur-
Evrópu að stofna varnarbandalag til
að koma í veg fyrir frekari útþenslu
þeirra. Þótt Íslendingar væru her-
laus þjóð var þeim boðin þátttaka
enda hernaðarleg lega landsins mik-
ilvæg og ekki útilokað að Sovétmenn
myndu reyna að komast til áhrifa á
norðurslóðum.
Strax og fréttist um þetta boð
lýsti Sósíalistaflokkurinn, sem þá
hafði 10 menn á Alþingi, yfir ein-
dreginni andstöðu við þátttöku Ís-
lands í bandalaginu. Inn í þá afstöðu
spilaði að flokkurinn var í nánum
tengslum við alþjóðahreyfingu
kommúnista og málsvari Sovétríkj-
anna og fylgiríkja þeirra. Á afar fjöl-
mennum fundi sósíalista 24. mars
voru hafðar uppi heitstrengingar um
að tugþúsundir manna myndu koma
saman til að hindra að samningurinn
um aðild að NATO yrði samþykktur.
Lögreglan og forystumenn stjórn-
arflokkanna skildu þetta sem hótun
um ofbeldi. Hóf lögreglan þegar að
undirbúa viðamiklar ráðstafanir til
að verja þinghúsið, m.a. með því að
kalla út varalið. Þá voru fengnar
heimildir dómara til að hlera síma
forsprakka væntanlegra mótmæla
til að reyna að komast að því hvað
þeir hefðu í hyggju.
Fyrri umræða um þingsályktun-
artillöguna um þátttökuna í NATO
fór fram mánudaginn 29. mars.
Safnaðist þá mikill mannfjöldi sam-
an við þinghúsið og lét ófriðlega. Var
grjóti kastað og brotnuðu flestar
rúður á framhlið hússins. Aðsúgur
var gerður að þingmönnum utan-
húss eftir að þingfundinum lauk.
Maður nokkur veittist að Bernharð
Stefánssyni, þingmanni Framsókn-
arflokksins, og gerði sig líklegan til
að veita honum högg áður en hann
áttaði sig á að hann fór mannavillt.
„Fyrirgefðu, ég hélt að þú væri hel-
vítið hann Bjarni Benediktsson. Ég
ætlaði að drepa hann!“ sagði hann.
Bjarni var utanríkisráðherra og einn
helsti hvatamaður inngöngunnar í
NATO.
Fjölmenni á Austurvelli
Sósíalistar höfðu á þessum tíma
mikil ítök í verkalýðshreyfingunni
og beittu henni óspart fyrir sinn
pólitíska vagn. Til mótmælafund-
arins við Miðbæjarskólann 30. mars,
þegar seinni umræðan um NATO-
aðildina var fyrirhuguð, var því boð-
að af fulltrúaráði verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík og Verkamanna-
félaginu Dagsbrún, þótt
Sósíalistaflokkurinn stæði þar raun-
verulega að baki. Forystumenn
stjórnarflokkanna, Alþýðuflokksins,
Framsóknarflokksins og Sjálfstæð-
isflokksins, brugðust við fundinum
með því að senda þennan sama dag
frá sér hvatningu til friðsamra borg-
ara í Reykjavík og hvetja þá til að
koma á Austurvöll til að tryggja að
Alþingi fengi starfsfrið. Í varaliði
lögreglunnar inni í þinghúsinu voru
um 85 manns, allt félagar í ungliða-
samtökum Sjálfstæðisflokksins, og
átti það eftir að sæta mikilli gagn-
rýni.
Þingmönnum var mjög heitt í
hamsi við umræðurnar og ekki dró
úr spennunni og æsingnum þegar
Mestu óeirðir á Íslandi á 20. öld
Þúsundir manna voru á Austurvelli 30. mars 1949 til að mótmæla inngöngu Íslands í NATO
Grjóti, eggjum og moldarkögglum rigndi yfir þinghúsið Lögreglan beitti kylfum og táragasi
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Táragas Sögufræg mynd sem sýnir mótmælendur flýja af Austurvelli eftir að lögreglan hefur kastað táragassprengjum. Einn mótmælenda er með barefli.
Forsíða Morgunblaðsins 31. mars
1949, daginn eftir mótmælin.
Forsíða Þjóðviljans 31. mars 1949,
daginn eftir mótmælin. SJÁ SÍÐU 26
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
*SENDUM UM LAND ALLT
Skoðaðu úrvalið okkar á
W
D8
0N
64
2
Verð 159.900,-
W
W
90
M
64
3
Verð 119.900,-
W
W
80
M
64
2
Verð 139.900,-
DV
80
M
62
53
2
Verð 139.900,-
Settu hana í gang
Með síMaNuM
ByltiNg í þvottaheiminum!
Þvottavél/Þurrkari
Þvottavél
Þurrkari
Þvottavél
Mótmælin á Austurvelli 1949