Morgunblaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 Te riy aki lax 2399 kr.kg Laxaflök beinhreinsuð 599 kr.pk. Street Kitchen Teriyaki 259 kr.pk. Gestus hrísgrjón, 500 g Svarið við erfiðustu spurningu dagsins er ... Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl. kronan.is/ korteri4 Þú finnur uppskriftina á Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samkvæmt nýrri talningu Samtaka iðnaðarins í mars eru nú 4.988 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu. Það eru 3% fleiri íbúðir en voru í byggingu í september. Fram kemur í greinargerð SI að minni vöxtur hafi ekki verið milli mælinga síðan 2015. Af þessum 4.988 íbúðum eru 93% eða 4.625 í fjölbýli. Hefur þeim fjölgað um 3,6% frá því í september. Hins vegar voru 363 sérbýli í bygg- ingu sem er 4,2% fækkun milli taln- inga. Alls 2.642 íbúðir eru í bygg- ingu í Reykjavík, 1.081 í Kópavogi, 637 í Garðabæ, 510 í Mosfellsbæ, 104 í Hafnarfirði og 14 á Seltjarnarnesi. „Samkvæmt talningu SI var mesta fækkunin í íbúðum sem eru á fyrstu byggingarstigum, þ.e. að fok- heldu. Slíkar íbúðir eru nú 2.558 sem er fækkun um 110 íbúðir eða 4,1% frá því í septembertalningu SI. Samdráttur er mestur í íbúðum í fjölbýli en þeim fækkar um 4,6% eða 116 frá því í september … Íbúðum á þessu byggingarstigi hefur verið að fjölga í talningu SI frá því 2015. Fækkunin nú endurspeglar að stærstum hluta versnandi efnahags- ástand og aukna efnahagsóvissu, m.a. vegna stöðu kjarasamninga,“ segir í greinargerð samtakanna. Önnur skýring á samdrætti geti verið að veturinn hafi verið erfiður fyrir vinnu við grunna og sökkla. Jafnvægi að skapast Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir talninguna benda til að jafn- vægi sé að skapast á markaði. Fækkun íbúða á fyrstu byggingar- stigum megi mögulega skýra með því að dregið hafi úr útlánum vegna óvissu í efnahagsmálum. „Sala nýrra íbúða hefur líka verið hægari sem kann að hafa tafið ein- hver verkefni. Það er eftirspurn eftir ódýrum íbúðum en sala á dýrari íbúðum hefur gengið hægar. Það er aðalatriði hvað varðar eftirspurn. Það hefur verið markaðsbrestur. Eftirspurn eftir ódýrum íbúðum hef- ur ekki verið mætt,“ segir Sigurður. Hann segir aðspurður að ef spá SI rætist verði meira jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar. Síðustu misseri hafi verið umframeftirspurn. Um 530 íbúðir eru í byggingu í Reykjanesbæ og vel á þriðja hundrað í Árborg og á Akureyri. Bendir greining samtakanna til að fjölgun íbúða á hvern íbúa í Reykja- nesbæ, Árborg, Vogum og Hvera- gerði sé um þriðjungi meiri en að meðaltali á höfuðborgarsvæðinu. Þétting færir til miðjuna „Gefur þetta vísbendingar um að hátt fasteignaverð á höfuðborgar- svæðinu og aðrir annmarkar, m.a. tengt þéttingu byggðar, séu að stuðla að tilfærslu eftirspurnar til nágrannasveitarfélaga. Búsetumiðja þeirra sem sækja vinnu á höfuðborg- arsvæðinu er því að öllum líkindum að færast til að einhverju leyti, þrátt fyrir fyrirætlanir um þéttingu sem koma fram í svæðisskipulagi höfuð- borgarsvæðisins 2015-2040,“ segir í greinargerðinni um þessa þróun. „Athygli vekur að vöxturinn er um tvisvar sinnum meiri í Mosfellsbæ og Garðabæ heldur en að meðaltali á höfuðborgarsvæðinu miðað við mars-talningu árið 2019. Ef horft er til baka á hagsveifluna 2011-2018 má álykta að landrými og vandamál tengd þéttingu byggðar séu tak- markandi þættir fyrir Reykjavík en fjöldi skráðra íbúða í Reykjavík jókst um 5% á árunum 2011-2018 meðan fjöldi skráðra íbúða í Mos- fellsbæ og Garðabæ jókst um tæp- lega 30% og 20%, í þeirri röð, svo dæmi séu tekin,“ segir þar m.a. Sigurður segir verkefnastöðuna almennt góða á byggingarmarkaði. „Hvað varðar íbúðamarkaðinn er útlitið ágætt. Heilt yfir er aukning varðandi samgöngur og margt í píp- unum. Hins vegar eru blikur á lofti. Stærri verkefni hafa frestast. Það hefur áhrif á móti. Til dæmis hefur útboði vegna meðferðarkjarnans við Hringbraut verið frestað fram á haust en átti að vera í mars. Nefna mætti fleiri dæmi,“ segir Sigurður. Heilt yfir sé minni spenna á markaði. Dregið hafi úr yfirvinnu og orðið auðveldara að fá fólk til starfa. Minnsti vöxtur frá árinu 2015  Talning Samtaka iðnaðarins bendir til að hægt hafi á smíði nýrra íbúða  Óvissa í efnahagsmálum ein skýringin  Þétting byggðar stuðlar að tilfærslu á búsetumiðju  Stórverkefnum slegið á frest Fokhelt og lengra komið Að fokheldu Heimild: Samtök iðnaðarins Fokhelt og lengra komið Að fokheldu maí 2010 mars 2011 nóv. 2011 sept. 2012 feb. 2013 sept. 2013 mars 2014 okt. 2014 mars 2015 okt. 2015 feb. 2016 sept. 2016 feb. 2017 sept. 2017 mars 2018 sept. 2018 mars 2019 N O R Ð U R L A N D N Á G R A N N ASV E I TA R F É L Ö G H Ö F U Ð B O R G A R SVÆ Ð I S I N S O G S U Ð U R L A N D H Ö F U Ð B O R G A R SVÆ Ð I Ð Húsavík Eyjafj. og nærsveitir Sauðár- krókur Akureyri Grindavík Hella Þorláks- höfn Hvols- völlur Vogar Suður- nesjabær Hvera- gerði Akranes Árborg Reykja- nesbær Seltjarnar- nes Hafnar- fjörður Mosfells- bær Garða- bær Kópa- vogur Reykja- vík 2.642 510530 260 1.081 637 104 250 14 Íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu Íbúðir í byggingu eftir sveitar- félögum Íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu á árinu 4.625 íbúðir í fjölbýli 363 íbúðir í sérbýli 93% 7% Alls 4.988 4.988 íbúðir í byggingu 2019 2020 2021 Spá um fullbúnar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu 2019 til 2021 2.848 2.596 2.265 Sigurður Hannesson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.