Morgunblaðið - 28.03.2019, Side 64

Morgunblaðið - 28.03.2019, Side 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 Fyrir Skjaldmeyjar hafsins voru tekin viðtöl við tíu eiginkonur sjó- manna á Norður- og Austurlandi á aldrinum 26 til 93 ára. „Viðtölin not- uðum við síðan til að skapa þrjár heild- stæðar persónur. Við vorum ekki að gera okkur hlutina auðveldari með því að fara þessa leið, því við þurftum auð- vitað að gæta samræmis milli frá- sagnabrotanna þannig að hver og ein persóna yrði heildstæð,“ segir Jenný Lára og tekur fram að hver persóna verksins byggist að mestu leyti á einni burðarsögu. VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Titill sýningarinnar vísar í lagið „Fisherman’s Woman“ eftir Emili- önu Torrini en þar segir: „The gladia- tor of all fisherman’s wives“ sem þýða mætti sem skjaldmeyjar hafs- ins,“ segir Jenný Lára Arnórsdóttir, höfundur og leikstjóri leikritsins Skjaldmeyjar hafsins sem leikhóp- urinn Artik frumsýnir í Samkomu- húsinu á Akureyri 28. mars. Verkið er sannsögulegt leikverk um líf eiginkvenna sjó- manna og er fyrsta frumsýn- ingin í röð gróð- urhúsaverkefna Leikfélags Ak- ureyrar sem er liður í auknu sam- starfi við sjálf- stæða listamenn og leikhópa á Norð- urlandi eins og fram kom í viðtali við Mörtu Nordal, leikhússtjóra LA, fyrr í vetur. „Gróðurhúsaröðin er frábær vettvangur fyrir fólk sem menntað hefur sig í sviðslistum erlendis og flutt er aftur heim til að sýna sig og sanna,“ segir Jenný Lára og fagnar framtaki LA. Að sögn Jennýjar Láru er verkið Skjaldmeyjar hafsins unnið með að- ferð sem á ensku nefnist „verbatim“ sem hún segir best þýtt sem bein- heimildaverk. Undir merkjum Artik hefur Jenný Lára sett upp tvær aðr- ar sýningar unnar með þessari að- ferð, Djúp spor og Elska – ástar- sögur Norðlendinga sem báðar voru settar upp árið 2016. „Aðferðin bygg- ist á því að tekin eru viðtöl við fólk sem tengist efninu og þau síðan klippt saman til að mynda eina heild, án þess að orðalagi sé breytt. Þannig er öllum hikorðum haldið inni og mis- mælum, enda segir það mikið um til- finningar viðkomandi hvort og hvar hann ruglast. Þetta hjálpar til við alla persónusköpun leikaranna.“ Aðspurð hvernig hún hafi fundið viðmælendur segist Jenný Lára hafa látið orð út berast og spurst fyrir hjá vinum og kunningjum. „Þegar ég setti upp Elsku auglýsti ég eftir viðmæl- endum, en fékk lítil viðbrögð. Það var eins og að fólk væri feimið og héldi að það hefði ekki merkilega sögu að segja. En málið er að við höfum öll merkilega sögu að segja,“ segir Jenný Lára og rifjar upp að sjómannskonur sem ekki höfðu lent í alvarlegum áföll- um hafi verið fúsari til að tala um líf sitt en hinar. Erfitt að finna viðmælendur „Það var erfiðara að finna viðmæl- endur sem höfðu farið í gegnum erfiða atburði. Það kemur meðal annars til af því að öryggi sjómanna hefur aukist og því hefur slysum sem betur fer fækkað miðað við hvernig það var hér áður fyrr. Þegar við ræddum við kon- ur af eldri kynslóðinni um reynslu þeirra af missi kom í ljós að margar þeirra höfðu aldrei talað um þessa reynslu sína áður,“ segir Jenný Lára og bendir á að blessunarlega hafi margt breyst í samfélaginu hvað þetta varðar. „Í dag er hægt að fá stuðning og áfallahjálp, en það var ekki í boði hér áður fyrr. Ein rifjaði meira að segja upp að presturinn hefði ekki einu sinni komið í heimsókn til að sinna sálusorg- un eftir andlát eiginmanns hennar,“ segir Jenný Lára og segist þakklát fyrir að sjómannskonur af eldri kyn- slóðinni hafi verið tilbúnar að deila erf- iðri reynslu sinni. Innt eftir því hvernig hugmyndin að uppfærslunni hafi vaknað rifjar Jenný Lára upp að hún hafi verið í fæðingar- orlofi og maður hennar upptekinn á lokametrunum í krefjandi námi. „Fyrsta æviár stráksins okkar var ég því mjög mikið ein og var reglulega að vorkenna sjálfri mér. Þá fór ég ósjálf- rátt að leiða hugann að öðrum konum sem væru alltaf einar, hvort heldur væru einstæðar mæður eða sjómanns- konur. Í framhaldinu fór ég að velta fyrir mér hvernig væri að lifa við þá óvissu sem fylgir því að eiga maka úti á sjó, því það getur allt mögulegt kom- ið upp á og ákvað að kynna mér þetta betur,“ segir Jenný Lára og rifjar upp að fyrir um tveimur árum hafi leikkon- urnar Jónína Björt Gunnarsdóttir og Katrín Mist Haraldsdóttir spurt hana hvort hún væri með hugmynd að sýn- ingu. Leikstjórnin togar fastar „Við það fór þessi hugmynd að gerj- ast fyrir alvöru. Mér fannst svo spenn- andi að gera verk upp úr sögum kvenna. Sjómennska hefur alltaf verið stór partur af samfélaginu og flest þekkjum við einhverjar sögur úr þess- ari mikilvægu atvinnugrein landsins. Hins vegar hefur farið minna fyrir sögum af eiginkonunum, sem sjá um heimili, börn og buru á meðan menn- irnir eru í löngum túrum. Þær sem bíða milli vonar og ótta í öllum veðrum og eru jafnvel sjálfar að takast á við sína eigin erfiðleika um leið og þær eru stoð og stytta sjómannsins, fjöl- skyldunnar og heimilisins,“ segir Jenný Lára og tekur fram að mark- mið verksins hafi þannig verið að skoða menningu sjómennskunnar út frá margvíslegum sjónarhornum með því að varpa ljósi á sögur kvennanna. „Ég ákvað á endanum að hafa þrjár persónur í verkinu. Þá hafði ég sam- band við systur mína, Völu Fannell, sem var þá búsett í London, en er í millitíðinni flutt heim,“ segir Jenný Lára, en leikkonurnar þrjár hafa allar menntað sig í leiklist erlendis, þ.e. í London og New York, og þreyta frumraun sína á leiklistarsviðinu á Ak- ureyri í sýningunni. Sem fyrr segir leikstýrir Jenný Lára, en hún lauk námi í leiklist og leikstjórn við KADA-leiklistarskólann (Kogan Academy of Dramatic Arts) í London vorið 2012. Sama haust leik- stýrði hún Hinum fullkomna jafningja undir merkjum Artik sem var fyrsta uppfærsla leikhópsins, en hefur síðan leikið í uppfærslum Artik. Aðspurð segir Jenný Lára að leikstjórnin sé farin að toga meira í hana en leikara- starfið. „Ekki síst af því að ég hef svo mikinn áhuga á þessu formi, það er beinheimildaverkinu. Þá langar mig til að vinna verkið frá grunni sem höf- undur og klára ferlið í sviðsetningu sem leikstjóri,“ segir Jenný Lára og tekur fram að það hafi lengi blundað í henni leikstjóri. „Það togar ekki lengur jafnfast í mig að leika á sviði,“ segir Jenný Lára, sem er þakklát fyrir þann með- byr sem uppfærslan hefur fengið. „Við fengum styrki frá mennta- og menn- ingarmálaráðuneytinu, Uppbygging- arsjóði Norðurlands eystra auk lista- mannalauna frá launasjóði sviðs- listafólks. Það er greinilegt að fólk hefur trú á okkur.“ Spurð hvernig gangi að reka sjálfstæðan atvinnu- leikhóp á Akureyri segir Jenný Lára að það krefjist mikillar útsjónarsemi og þrautseigju til að vel eigi að ganga, en hún er þegar farin að leggja drög að næsta verkefni. Aðeins eru þrjár sýningar auglýstar, þ.e. í kvöld, 5. og 12 apríl kl. 20 öll kvöld, en Jenný Lára segir að bætt verði við sýningum í samræmi við eftirspurn. „Þær sem bíða milli vonar og ótta“ Ljósmynd/Auðunn Níelsson  Artik frumsýnir Skjaldmeyjar hafsins í Samkomuhúsinu á Akureyri í kvöld  Byggist á viðtölum við tíu sjómannskonur  Fyrsta frumsýningin í röð gróðurhúsaverkefna Leikfélags Akureyrar Jenný Lára Arnórsdóttir Frumraun Vala Fannell, Katrín Mist Haraldsdóttir og Jónína Björt Gunnarsdóttir í hlutverkum sínum í Skjald- meyjum hafsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.