Morgunblaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
TIL SÖLU
Dugguvogur 17 – 104 Reykjavík
Stærð: 750 m2
Gerð: Atvinnuhúsnæði
s 534 1020
Til sölu 750 m² atvinnuhúsnæði á þremur hæðum við
Dugguvog 17 í Reykjavík. Heildareign sem stendur á sérlóð.
Óskað er eftir kauptilboði.
Á jarðhæð Kænuvogsmegin eru tvö lagerrými 107 m² og 143,4
m² og er annað þeirra með afgirtu porti. Innkeyrsludyr og
inngöngudyr eru á báðum einingum.
1. hæð/jarðhæð Dugguvogsmegin eru 8 herbergi/vinnustofur
auk kaffistofu, sturtuaðstöðu og tveggja salerna.
2. hæð er með 7 herbergjum/vinnustofum, eldhúsi,
sturtuaðstöðu og snyrtingum.
Stórir gluggar með opnanlegum fögum eru í öllum herbergjum.
Á gólfum er dúkur og parket. Kerfisloft með lýsingu er á báðum
hæðum. Úr stigagangi er opið inn í þakrými sem býður upp á
möguleika til að stækka húsið.
Leigusamningar eru á báðum iðnaðarbilum á jarðhæð
Kænuvogsmegin en báðar hæðir frá Dugguvogi eru tómar í dag. Á bak við húsið er stórt malbikað bílaplan.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali, s. 824 6703, olafur@jofur.is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta verður skemmtilegupplifun fyrir alla fjöl-skylduna þar sem sápurverða í aðalhlutverki. Með-
al annars verðum við með úlf í raun-
stærð sem gerður er úr sápu,“ segir
Erla Gísladóttir, en í tilefni af Hönn-
unarmars ætlar hún ásamt hönn-
unarstúdíóinu Wolftown að opna í
kvöld sýninguna Úlfur í sauðargæru,
í garðskála Listasafns Einars Jóns-
sonar. Erla á og rekur ilm- og húð-
vörumerkið URÐ og með sjálfbærni,
umhverfissjónarmið og íslensk hrá-
efni að leiðarljósi ætlar hún að
kynna á sýningunni nýjar umhverf-
isvænar sápur úr íslenskum hráefn-
um.
„Grafíski hönnuðurinn André
Visage hefur unnið umbúðir með
okkur í URÐ, og þar sem
hönnunarstúdíóið hans heitir Wolf-
town, eða úlfabær, þá langaði hann
til að búa til úlf. Andri eyddi ótrú-
lega mörgum klukkutímum í að búa
úlfinn til úr pappír, síðan hellti hann
yfir hann bræddum sápuafgangi
sem hann hafði fengið á hótelum og
líka frá framleiðslunni minni. Nú er
úlfurinn orðinn að flottum táknræn-
um sápuskúlptúr sem standa mun
ofan á sjónvarpsskjá og mun grafík
varpast á úlfinn. Pælingin hjá okkar
með nafninu á sýningunni, Úlfur í
sauðargæru, tengist ferða-
mannabransanum á Íslandi, sem við
teljum að hluta til vera úlf í sauð-
argæru, því þar er ekki allt sem sýn-
ist. Við erum að skoða skuggahlið-
arnar á ferðamannabransanum, og
koma í leiðinni fram með ákveðna
lausn, því við erum að framleiða sáp-
ur og fleira hér heima og þess vegna
þarf ekki endilega að flytja allt inn.“
Flutt inn til að nota einu sinni
Erla segir að hún og André hafi
pælt mikið í umbúðum og hvernig
hægt sé að minnka kolefnissporin
okkar, enda nauðsynlegt eins og
ástandið í umhverfismálum er.
„Hann fór að skoða hina miklu
einnota neyslu ferðamanna sem
koma til Íslands. Til dæmis er mikið
um einnota mataráhöld og fleira sem
ferðamenn nota aðeins einu sinni og
að því loknu er því hent. Þessar um-
búðir eru margar fluttar inn til
landsins í þeim eina tilgangi að nota
þær einu sinni. Til dæmis sápur á
hótelum og gististöðum, þessi litlu
sápustykki enda í sturtubotninum
eftir að hafa verið notuð einu sinni
og síðan er þeim hent. André fékk
mikið af slíkum afgangssápum á hót-
eli í miðbænum og þá spratt upp sú
hugmynd að þrátt fyrir að margt
mjög jákvætt sé við ferðamanna-
strauminn til Íslands, þá fylgja hon-
um þessar skuggahliðar, meðal ann-
ars í einnota neyslu. Við höfum velt
fyrir okkur hvað við Íslendingar get-
um framleitt hér heima og hvernig
við getum verið umhverfisvænni.
Fyrirtækið mitt URÐ framleiðir
m.a. íslenskar sápur og við leitumst
við að nota íslenskt hráefni eins og
kostur er. Sápurnar eru handgerðar
og ég nota íslenska kaldpressaða
repjuolíu í sápugerðina. Í skrúbb-
sápuna nota ég íslenskan sand, í
sjampóbarinn nota ég íslenskan þara
og blóðberg og ég nota hafra frá
Sandhóli í sápuna sem er fyrir við-
kvæma húð og börn. Það er því hægt
að nota ýmislegt úr náttúrunni okk-
ar í vöruframleiðslu, í stað þess að
flytja allt inn með tilheyrandi meng-
un,“ segir Erla og bætir við að auk
þess sé steinasápunum hennar pakk-
að í pappír en ekki plast. „Lögun
sápanna minnir á brotna hrafntinnu,
því hrafntinna er táknræn fyrir hina
viðkvæmu íslensku náttúru. Ég valdi
hrafntinnu af því hún er friðuð og
stundum nefnd steinn sannleikans.“
Sápurnar frá URÐ hafa átt góðu
gengi að fagna og hafa m.a verið
seldar í verslunum Anthropologie í
Bretlandi, auk verslana hér á landi.
Sápuúlfur í
sauðagæru
Þari, blóðberg, hafrar, sandur og repjuolía eru meðal
þeirra íslensku hráefna sem Erla Gísladóttir notar í
handgerðar steinsápur sínar. Hún og André Visage
vilja minna af einnota vörum í ferðamannabransa.
Morgunblaðið/Eggert
Skúlptúr Erla og André með sápuúlfinum. Steinsápurnar sem Erla býr til hanga nokkrar saman á statífi.
Ilm- og húðvörumerkið URÐ og
hönnunarstúdíóið Wolftown opna
sýninguna Úlfur í sauðargæru í
garðskála Listasafns Einars Jóns-
sonar í dag, fimmtudag 28. mars,
kl.17-20. Þar má sjá sápuskúlptúr-
inn, sápukúluvél verður í styttu-
garðinum og gestir fá að taka
heim með sér sápu úr nýju vöru-
línu URÐAR á meðan birgðir end-
ast. Sýningin stendur yfir út Hönn-
unarmars á opnunartíma safnsins.