Morgunblaðið - 28.03.2019, Page 16

Morgunblaðið - 28.03.2019, Page 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Dönsk hönnun Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ársfundur 2019 fimmtudaginn 11. apríl - Heildareignir: 229,5 milljarðar - Skráðir sjóðfélagar: 46 þúsund - Hæsta nafnávöxtun 2018: 7,0% - Hæsta raunávöxtun á ári sl. 10 ár: 4,9% Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður haldinn á Icelandair Hótel Reykjavík Natura fimmtudaginn 11. apríl 2019 kl. 17:15. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Ársreikningur 2018 og tryggingafræðileg athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs. 3. Kynning á fjárfestingarstefnu. 4. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. 5. Kosning stjórnar. 6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags. 7. Ákvörðun um laun stjórnar. 8. Önnur mál. Framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund sjóðsins. Framboðs- frestur rennur út þann 4. apríl 2019.Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is. Ársreikningur sjóðsins, tillögur um breytingar á samþykktum og nánari upplýsingar um ársfundinn eru á heimasíðu sjóðsins. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta. Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins. Nánar á: www.almenni.is - A.m.k. 1/3 skyldusparnaðar í séreign - Hagstæð lífeyrisréttindi - Daglegt gengi ávöxtunarleiða á heimasíðu - Sjö ávöxtunarleiðir í boði Almenni í hnotskurn Nú eru margir að horfa tilframandi landa með áætlunum að leggja land undir fót. Að upplifa framandi menningu, skrýtna siði, stórbrotið landslag, smakka og prófa nýjan mat er allt hluti af skemmtilegri upplifun ferða- langsins. En skemmtileg ferðalög geta snúist upp í andhverfu sína ef heilsan er ekki í lagi. Á www.heilsu- vera.is er að finna mörg heilsutengd ráð fyrir ferðalanginn og eins bjóða heilsugæslustöðvar upp á ferða- mannaráðgjöf. Gott er að hafa sam- band um tveimur mánuðum fyrir áætlaða ferð svo mögulegt sé að framkvæma nauðsynlegar bólusetn- ingar. Hér koma nokkur heilsutengd atriði sem gott er að huga að: Er ég með bólu- setningarnar í lagi? Almennt má segja að þeir sem ferðast til Norðurlandanna, Vestur- og Suður-Evrópu, Kanada, Banda- ríkjanna og Japan þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af alvarlegum sjúk- dómum. En það skiptir þó máli hvað ferðamaðurinn er að gera í þessum löndum. Þeir sem ætla á vit náttúr- unnar gætu þurft að huga að bólu- setningu. Þeir sem ferðast til landa utan þessara svæða þurfa að ráð- færa sig við heilbrigðisstarfsfólk tímanlega, það er tveimur til þremur mánuðum áður en lagt er upp í ferð til að ganga úr skugga um hvort ástæða er til bólusetninga. Á heilsugæslustöðvum má fá ráð og leiðbeiningar um mikilvægar bólusetningar sem og á göngudeild sóttvarna sem er til húsa í Þöngla- bakka 1 í Mjódd í Reykjavík. Borðið ekki grænmetið hrátt Það eru næstum helmings líkur á því að fólk fái niðurgang ef ferðinni er heitið til landa í Austur-Evrópu, Asíu, Suður-Ameríku og Afríku. Besta forvörnin er handþvottur og huga vel að mataræðinu. Hafa í huga að borða ekki hrátt grænmeti eða ávexti með hýðinu. Öruggast er að afhýða sjálfur ávexti og grænmeti. Almennt ætti ekki að borða hráan mat eða endurhitaðan. Öruggastur er nýsoðinn matur. Ekki ætti að borða ís eða nota ísmola. Við niðurgang skal gæta þess að drekka nóg af vökva sem inniheldur sykur og sölt, lítið í senn. Einnig get- ur verið gott að hafa með sér í ferð- ina lyf sem fást í lausasölu í apóteki, til dæmis Imodium sem geta dregið úr niðurgangi. Ef niðurgangurinn er svæsinn og blóðugur og honum fylgir hiti þá skal leita lækn- isaðstoðar og fá sýklalyf. Smyrsl fæla skordýrin Mikilvægt er að nota skordýrafæl- andi smyrsl eða úða til að minnka líkur á skordýrabitum. Bera þarf vel á alla hluta líkamans sem ekki er hulinn fötum. Mörg skordýr bíta í gegnum föt og því er ágætt að úða líka á fötin. Efnið diethyltoluamide (DEET) er útbreiddasta, ódýrasta og virkasta skordýrafælan sem óhætt er að nota á húð. Gæta þarf að styrkleika efnisins, 30% er lágmark til að verjast skordýrum sem geta borið sjúkdóma en óþarfi er að fara yfir 50% styrk. Á svæðum þar sem malaría er landlæg er mikilvægt að verjast biti eftir að skyggja tekur. Moskítónet meðhöndlað með skor- dýraeitri ber að nota á nóttunni. Sé fólk bitið getur bit verið mjög hvimleitt og hægt er að minnka óþægindin talsvert með því að taka ofnæmislyf eins og Loritin og bera vægan steraáburð á bitin. Þessi lyf er gott að hafa með sér og þau fást án lyfseðils í lyfjabúðum. Sólin er það fyrirbæri sem gerir okkur mögulegt að lifa hér á jörð- inni. Hún yljar okkur, sendir okkur orku, birtu og þegar hún skín á húð- ina framleiðir húðin D-vítamín sem er okkur nauðsynlegt. En sólin get- ur líka brennt. Húð hefur nátt- úrulega vörn gegn geislum sól- arinnar sem hún byggir upp smám saman þegar við erum úti í sólinni. Húðin dökknar og það veldur því að við þolum sólina lengur. Aðferðir til að verjast skaðlegum geislum sólarinnar:  Besta leiðin er að klæðast ljós- um, léttum fötum á heitum sól- ardögum og gleyma ekki sólhatti ef menn eru langtímum saman úti í meðal áhættu eða meiri. Fólk sem býr sunnar á hnettinum hefur til- einkað sér að vera að mestu innan- dyra eða í skugga yfir bjartasta tíma dagsins til að forðast sólina þegar geislun hennar er mest yfir hádag- inn. Á ferðum til sólríkra landa er ágætt að taka upp siði heimamanna í þessum efnum og leita í skuggann á heitasta tíma dagsins.  Vera á hreyfingu í sólinni. Verst er liggja kyrr og láta sólina skína stöðugt á sama hluta líkamans.  Nota sólgleraugu sem eru CE merkt með breiðum örmum.  Nota sólkrem eftir þörfum. Gott er að hafa sólkremin með sér í ferðalagið.  Þeir sem ætla að ferðast til sól- ríkra landa með ung börn þurfa að gæta þess sérstaklega vel að verja þau fyrir sólinni. Hugað að heilsu á leið út í heim! Morgunblaðið/Sigurður Bogi Indland Það eru næstum helmingslíkur á því að fólk fái niðurgang ef ferðinni er heitið til landa til dæmis í Afríku. Heilsuráð Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar, og Margrét Héðinsdóttir, vefstjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.