Morgunblaðið - 28.03.2019, Page 18

Morgunblaðið - 28.03.2019, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 Norðmanna og um 20% af fram- leiðslu Færeyinga svo annað dæmi sé tekið. Að auki eru framleidd hér um 5 þúsund tonn af bleikju í stöðvum á landi og þar eru Íslendingar í fremstu röð. Í kjölfar Troms? Þótt laxeldið hér sé smátt í þessum samanburði hefur það nokkur efna- hagsleg áhrif. Útflutningsverðmæti lax á síðasta ári var um 9 milljarðar króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands, og fiskeldisins í heild um 14 milljarða. Fyrirtækin eru öll í stækkunarferli þannig að töl- urnar munu hækka mjög á komandi árum. Á fimmta hundrað launþegar voru hjá fiskeldisfyrirtækjunum á árinu 2017 og launakostnaður hátt í 4 millj- arðar. Sjókvíaeldi á laxi hefur langmest áhrif á Vestfjörðum þar sem það hef- ur snúið við íbúaþróun og á Aust- fjörðum þar sem fiskeldið er komið skemmra á veg en hefur orðið mikil áhrif á Djúpavogi og vaxandi áhrif á Eskifirði. Gunnar Davíðsson, deildarstjóri hjá fylkisstjórn Troms-fylkis í Nor- egi, sagði frá uppbyggingu fiskeldis í Norður-Noregi og þeim jákvæðu breytingum sem það hefur haft í för með sér fyrir hinar dreifðu byggðir. Bar hann stöðuna hér saman við Troms-fylki. Sagði að framleiðslan þar hefði verið svipuð fyrir 20 árum og nú er á Íslandi. Taldi hann mögu- leika á að það tæki strandbyggðir hér 10 og í mesta lagi 15 ár að auka fram- leiðsluna svipaða stærð og nú er í Troms, eða um 180 þúsund tonn. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyr- irtækja í sjávarútvegi, vitnaði til upp- lýsinga frá Samtökum atvinnulífsins þegar hún sagði að til þess að viðhalda 3% hagvexti á næstu árum þyrfti að tvöfalda útflutning á 20 árum. Út- flutningur þyrfti því að vaxa um 1.000 milljarða króna. Hár flutningskostnaður Ýmsar áskoranir eru í sölumál- unum. Neil Shiran Þórisson, fjár- málastjóri Arctic Fish, bendir á að ís- lensk fiskeldisfyrirtæki fái lægra skilaverð fyrir laxinn en framleið- endur í nágrannalöndunum auk þess sem dýrara er að framleiða laxinn hér. Lægra skilaverð stafar ekki síst af meiri flutningskostnaði. Fram kom hjá Shiran að það tæki 7-8 daga að flytja ferskan lax frá Bíldudal með skipi til Rotterdam á leið til laxaverksmiðju í Póllandi og það gæti tekið upp undir 12 daga við erfið veðurskilyrði. Flutningur frá Norður-Noregi alla leið í verksmiðj- una tekur 4 daga. Nokkuð er flutt út með flugi en Shiran segir að þróa þurfi þann flutningsmáta frekar, auka flutningsgetu og minnka kostnað. Laxabændur hafa lengi kvartað undan miklum flutningskostnaði. Shiran nefndi sláandi mun á flutnings- kostnaði frá Vestfjörðum og Norður- Noregi til verksmiðjunnar í Póllandi, eða 0,35 til 0,47 evrur á kíló frá Íslandi á móti 0,20 til 0,25 evrum frá Noregi. Ofurkæling hefur hjálpað framleið- endum á laxi á Íslandi að varðveita gæðin alla leið á markað. Það kom hins vegar fram á ráðstefnunni að kaupendur líta aðallega á dagafjölda frá slátrun þegar þeir velja sér vöru. Gera þurfi átak í að kynna kosti of- urkælingar fyrir kaupendum og neyt- endum afurðanna. Breytingar fylgja auknu magni Afurðir íslenska fiskeldisins eru að langmestu leyti fluttar úr ferskar, að- eins 5% eru flutt út frosin. Er það mjög líkt útflutningi Norðmanna. Aft- ur á móti flytja Færeyingar 15% af- urða sinna út frosnar. Íslendingar og Norðmenn selja um 80% afurða sinna í Evrópu en afganginn til Asíu og Bandaríkjanna. Íslendingar selja þó meira beint til Ameríku en Norð- menn. Mynstrið er allt öðruvísi hjá Færeyingum sem einir hafa aðgang að Rússlandsmarkaði. Fara um 38% afurða þeirra á þann markað en af- gangurinn skiptist tiltölulega jafnt á milli annarra helstu markaða. Talsmenn flutningafyrirtækja segja að þau muni laga sig að þörfum fyrirtækjanna. Þurfi meiri fram- leiðslu og jafnari til þess að keðjan virki sem best. Fiskeldisfyrirtækin eru bjartsýn um að hægt verði að fá gott verð fyrir laxinn, þegar framleiðslan eykst og hægt verður að afhenda vöruna allar vikur ársins. Vísa þeir til reynslu ann- arra útflytjenda íslenskra sjávaraf- urða. Neytendur taki vöru frá Íslandi fagnandi. Borgar sig að vinna saman Ómar Grétarsson, sölu- og mark- aðsstjóri Arnarlax, sagði á ráðstefn- unni að þegar tekist hefði að fá hærra verð en Norðmenn færi sú uppbót að- allega í vasa flutningsfyrirtækjanna. Hann sagðist sjá ýmis tækifæri til að ná árangri í sölumálum með því að fara lengra inn á markaðinn og nefndi dæmi frá Noregi, Færeyjum og Skot- landi. Ómar sagðist sjá það sem ýmsir tala um ógnanir við fiskeldið, eins og áhættumat Hafrannsóknastofnunar og lágan sjávarhita sem sérstöðu og góða sölupunkta. Áhættumatið sýndi að umhverfisvæn vara kæmi frá Ís- landi enda væri það eina landið sem væri með slíkar reglur. Shiran og Ómar vöktu báðir máls á því að íslensku fiskeldisfyrirtækin þyrftu að bindast samtökum um sölu afurðanna og koma sér upp eigin gæðamerki eins og Skotar hafa gert. Ómar bætti því við að gjarnan mættu þeir fá meiri stuðning stjórnvalda í því efni. Áskoranir í markaðsmálum  Fiskeldi hefur margfaldast í heiminum og litið er til enn frekari aukningar til að brauðfæða mann- fjöldann  Laxeldi á Íslandi er enn í smáum stíl en áform eru um aukningu á komandi árum Útflutningsverðmæti eldisfisks 2008-2018 15.000 14.000 13.000 12.000 11.000 10.000 9.000 8.000 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 15 14 13 12 11 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1 0 Eldislax Eldissilungur Lax Silungur Aðrar tegundir (tonn) Heildarverðmæti útfl utnings (milljarðar kr.) 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 3 6 563 1.279 1.412 1.837 1.598 1.361 1.720 2.006 2.355 2.814 3.306 3.602 4.795 3.037 1.791 1.192 1.621 2.089 5.526 8.691 9.636 milljarðar kr. tonn Útfl utningsverðmæti eldislax- og -silungsafurða 2008-2018, milljarðar kr. Heimild: Hagstofa Íslands Verðmæti (milljarðar) 1,8 Verðmæti (milljarðar) 13,7 13,1 9 8,8 0,5 3,4 1,2 Morgunblaðið/Eggert Strandbúnaður Metþáttaka var í ráðstefnunni í ár, um 350 manns. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þótt umræða um fiskeldi sé nokkuð fyrirferðamikil hér á landi er fram- leiðslan varla merkjanleg á heims- markaði, enn sem komið er. Það setur flutningum og markaðsstarfi miklar skorður og enginn grundvöllur er fyr- ir fullvinnslu. Íslenskum afurðum er tekið vel á mörkuðunum en kostn- aður við framleiðslu og flutning skerðir samkeppnisstöðu fiskeld- isfyrirtækjanna gagnvart samkeppn- isfyrirtækjum. Fjallað var um þessi mál í sérstakri málstofu á fiskeld- isráðstefnunni Strandbúnaði sem lok- ið er í Reykjavík. Umfang fiskeldis í heiminum hefur margfaldast á síðustu tveimur til þremur áratugum á meðan afli úr fiskveiðum hefur nokkurn veginn staðið í stað. Þau tíðindi urðu fyrir fá- einum árum að fiskeldið tók fram úr veiðum. Ekki eru vaxtarmöguleikar í fiskveiðum og vexti ýmissa annarra greina matvælaframleiðslu takmörk sett þar sem þær ganga nærri land- inu. Er því víða horft til ræktunar á fiski, ekki síst í sjó, til að standa undir aukinni eftirspurn eftir matvælum vegna fólksfjölgunar í heiminum og sérstaklega í þeim löndum þar sem kaupgeta almennings fer vaxandi. Það er að gerast í stórum stíl í fjöl- mennustu ríkjum heims. Vöxtur fiskeldis hefur vissulega verið mestur í Asíu. Atlantshafslax sem meðal annars er alinn í okkar heimshluta er ekki stór grein í þeim samanburði en keppir við verðmæt matvæli á kröfuhörðum mörkuðum. Gott dæmi frá Noregi Júlíus B. Kristinsson, fjár- málastjóri Orf líftækni og fyrrverandi stjórnandi fiskeldisfyrirtækja, tók Noreg sem gott dæmi um það hvað hægt er að gera í uppbyggingu stórs og arðbærs atvinnuvegar, í erindi sem hann flutti á ráðstefnu Strand- búnaðar. Uppbyggingin byggðist á vel útfærðri stefnumótun og aðgerða- áætlun í upphafi þar sem opinberir aðilar og fyrirtæki unnu saman. Fram kom á ráðstefnunni að Norð- menn áætla að margfalda eldið á næstu árum og spá 5 þúsund tonna framleiðslu eftir 30 ár. Norðmenn framleiða nú um 1.300 þúsund tonn af laxi og hefur verð- mæti afurðanna margfaldast á fáum árum. Framleiðslan í Síle er um helmingur af framleiðslunnar í Nor- egi en nær 150 þúsund tonnum í Bretlandi og Kanada. Hér voru fram- leidd rúm 13 þúsund tonn af eldislaxi á síðasta ári eða um 1% af framleiðslu HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum NÝR & KRAFTMEIRI Mitsubishi Outlander PHEV er rafdrifinn & svo miklu meira. Tvær öflugar rafvélar og S-AWC-aldrifið skila auknu afli og afköstum sem gera allar aðstæður leikandi léttar. Kynntu þér vinsælasta bílinn á Íslandi. Verð frá 4.690.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.