Morgunblaðið - 28.03.2019, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.03.2019, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Mér kemur þetta ástand mjög á óvart. Ég er vanur því að það sé gengið frá öllum lausum endum jafn- óðum og það séu engar svona uppákomur,“ seg- ir Bárður Haf- steinsson, skipa- verkfræðingur hjá Nautic ehf. Bárður er þrautreyndur skipahönnuður og kom meðal ann- ars að hönnun nú- verandi Herjólfs sem byggður var 1992. Hann furðar sig á því hvernig haldið hefur verið á málum við smíði nýs Herjólfs. Krefjast 1,2 milljarða Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær tilkynnti Vegagerðin að skipasmíðastöðin Crist S.A. í Pól- landi, sem smíðar nýjan Herjólf, hefði á lokametrum verksins krafist viðbótargreiðslu sem nemur nærri þriðjungi af heildarverði skipsins. Í tilkynningu Vegagerðarinnar var rakið að í upphafi hefði verið samið um að smíði Herjólfs myndi kosta 26.250.000 evrur. Síðar hefði bæst við aukaverk að upphæð 3.492.257 evrur, svo sem rafvæðing Herjólfs, en skrif- legir samningar væru um öll þessi aukaverk. Krafan um viðbót- argreiðslu hljóðaði upp á um 8,9 milljónir evra eða ríflega 1,2 millj- arða íslenskra króna. Björgvin Ólafsson, umboðsmaður Crist S.A. á Íslandi, gagnrýndi fram- göngu fulltrúa Vegagerðarinnar í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég er nú búinn að vera í mörgum ný- byggingum, hef tekið þátt í að smíða 20-30 skip, en hef aldrei sé neitt þessu líkt. Þetta hlýtur að vera van- kunnátta. Menn bara haga sér ekki svona,“ sagði hann og nefndi að eng- in tilraun hefði verið gerð til sam- ræðna um uppgjör, stóð lögfræðinga hefði verið sent í stað kunnáttufólks. Skipið of þungt og of mjótt Bárður Hafsteinsson segir í sam- tali við Morgunblaðið að saga nýs Herjólfs sé hálf klúðursleg frá upp- hafi. „Það er nokkuð langur aðdragandi að þessu öllu saman. Vegagerðin leggur eftir því sem ég best veit fram teikningar að þessu skipi. Sá sem gerir frumhönnunina er Jóhannes Jóhannsson, skipatæknifræðingur, sem býr í Danmörku, og svo var boð- in út frekari teiknivinna. Það var norskt fyrirtæki sem fékk þá vinnu. Síðan er skipasmíðastöðin látin bera ábyrgð á þessum teikningum þegar samið er, eftir því sem mér er sagt. Mér finnst það dálítið undarlegt. Þeir eiga að standa ábyrgð á djúp- ristu og þyngd skipsins, sem hönn- uðu skipið. Svo heyrir maður að þeg- ar þeir fara að vinna úr þessu þá komi í ljós að skipið verður allt of þungt. Það er líka of mjótt.“ Bárður kveðst reyndar telja að vandamálin megi rekja lengra aftur en að hönnun nýs Herjólfs og kveður þá við kunnuglegt stef. „Það er aldrei minnst á það að þegar þessi höfn var hönnuð þá var hún hönnuð fyrir litla ferju. Hún var hönnuð fyrir miklu minni skip en verið er að tala um í dag. Alls ekki fyrir þessa ferða- mannatraffík í dag og síðustu árin. Þetta er hálfgert klúður frá upphafi, hönnunin á höfninni og öllu saman. Þetta verður allt að hanga saman, al- veg frá upphafi.“ „Hálfgert klúður frá upphafi“  Skipaverkfræð- ingur furðar sig á smíði nýs Herjólfs Fimm ára saga vörðuð skrautlegum uppákomum 2014 FEBRÚAR Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkis- ráðherra heimilaði að auglýst yrði útboð um hönnun nýrrar Vestmannaeyjaferju á Evrópska efnahagssvæðinu. x 2016 JÚNÍ Ríkiskaup auglýsa útboð á nýsmíði og rekstri nýrrar Vestmannaeyjaferju. Í útboðinu er valið á milli þess að gera þjónustusamn- ing um smíði og rekstur skips til allt að 12 ára eða að semja um smíði nýs skips fyrir allt að 4,8 milljarða króna. 2016 8. SEPTEMBER Sam-skip kæra útboðs Herjólfs vegna fyrirspurnar sem var ekki svarað. Opnun tilboða frestað um viku. 2016 15. SEPTEMBER Átján tilboð bárust í ferjuna. Flest voru frá erlendum skipa- smíðastöðvum og fyrirtækjum og meirihlutinn aðeins í nýbyggingu skips. Samskip, Eimskip og Sæferðir buðu í einkaframkvæmd sem felst í að leggja til skip og reka það í tólf ár. Lægstu tilboð í smíði ferjunnar voru á bilinu 2,7 til 2,8 milljarðar króna, nærri því 800 milljónum undir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. 2016 OKTÓBER Norska skipasmíðastöðin Fiskerstrand Verft AS sem Vegagerðin og Ríkiskaup töldu að væru með hagstæð- asta tilboðið dró tilboð sitt til baka án skýringa. Tilboð áttu að vera bindandi. 2017 JANÚAR Ríkiskaup hafa ákveðið að velja tilboð pólsku skipasmíða- stöðvarinnar Crist í smíði nýrrar Vestmanna- eyjaferju. Engin kæra barst frá öðrum sem buðu í verkið. Tilboð Crist hljóðaði upp á rúmlega 26,2 milljónir evra, aðeins undir kostnaðaráætl- un en rúmlega 600 milljónum kr. yfir lægsta til- boði. Stefnt að afhendingu skipsins 20. júní 2018. 2018 SEPTEMBER Tafir ásmíði ferjunnar, bæði vegna breytinga að ósk Vegagerðar- innar og tafa hjá skipasmíðastöðinni. Ólíklegt að afhending verði fyrir lok árs. 2019 FEBRÚAR Verið að leggja loka-hönd á smíði Herjólfs í Póllandi. 2019 15. MARS Herjólfur fullbúinn og tilbúinn til af- hendingar. Deilt um lokauppgjör vegna tafa á smíði og aukaverka sem pöntuð voru. 2019 26. MARS Vegagerðin tilkynnir að skipasmíða- stöðin krefjist 1,2 milljarðs króna í viðbótargreiðslu. Óvíst hvenær eða hvort Herjólfur fæst afhentur 2014 ÁGÚST Samið við norska fyrirtækið Polarkonsult A/S um hönnun nýrrar Vestmanna- eyjaferju. Samningsupphæðin er um 124 milljónir króna. Reiknað er með að smíði ferjunnar ljúki síðla árs 2016. 2016 ÁGÚST Á annað hundrað fyrirspurnir berast Ríkis- kaupum vegna útboðsins og margir óska eftir að tilboðsfrestur verði framlengdur. Því er í fyrstu neitað en síðan er þeirri ákvörðun breytt og fresturinn lengdur um tvær vikur. Bárður Hafsteinsson Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga TORMEK T-4 Vinsæla brýnsluvélin Tryggingastofnun flytur frá Laugavegi í Hlíðasmára 11 í Kópavogi. Vegna flutninganna verður lokað fimmtudaginn 28. mars og föstudaginn 29. mars. Opnað verður á nýjum stað mánudaginn 1. apríl með betra aðgengi og nægum bílastæðum. Verið velkomin. Tryggingastofnun Hlíðasmára 11 | 201 Kópavogur Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.is HLÍÐASMÁRA 11 OPNUM MÁNUDAGINN 1. APRÍL Í
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.