Morgunblaðið - 28.03.2019, Síða 51

Morgunblaðið - 28.03.2019, Síða 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2019 ✝ Lýður Ægissonfæddist á Siglufirði 3. júlí 1948. Hann lést 20. mars 2019. Foreldrar Lýðs voru Kristján Ægir Jónsson, f. 4.5. 1921, d. 15.12. 1993, vélstjóri og verkamaður á Siglufirði, og kona hans Þóra Frímannsdóttir, f. 19.12. 1921, d. 21.3. 2010, verkakona á Siglu- firði. Albræður Lýðs eru Gylfi, f. 10.11. 1946, fyrrv. sjómaður og lagasmiður; Jón, f. 19.5. 1953, d. 22.4. 2014, fyrrv. sjómaður í Hveragerði; Sigurður, f. 21.9. 1958, sóknarprestur á Siglu- firði, og Matthías, f. 1.6. 1960, skrifstofumaður í Reykjavík. Hálfsystkini Lýðs, sam- höfn en kona hans er Hrönn Harðardóttir og eiga þau fjögur börn; Finnbogi, f. 20.4. 1974, handverksmaður og verktaki í Reykjavík og á hann þrjú börn; Sigurjón, f. 17.9. 1976; tölv- unarfræðingur í Hafnarfirði, en kona hans er Þórey Ágústsdótt- ir og eiga þau þrjú börn; Ófeig- ur, f. 22.3. 1983, ljósmyndari, búsettur í Reykjavík en kona hans er Kristjana Hlín Val- garðsdóttir og eiga þau eina dóttur, og Selma Hrönn Mar- íudóttur, f. 18.8. 1969 (fóstur- og bróðurdóttir), framkvæmda- stjóri á Siglufirði en maður hennar er Smári Sæbjörnsson og eiga þau fimm börn. Seinni eiginkona Lýðs var Rannveig Kristjánsdóttir, f. 26.6. 1962, skrifstofutæknir en dóttir hennar er Bylgja Ægis- dóttir, f. 26.8. 1980, búsett í Danmörku. Útför Lýðs fer fram frá Selja- kirkju í dag, 28. mars 2019, klukkan 13. mæðra, eru Frí- mann Ingimund- arson, f. 12.6. 1941, rennismíðameistari í Reykjavík; Ríkey Ingimundardóttir, f. 1.6. 1942, listmál- ari og myndhöggv- ari í Reykjavík, Þorsteinn Ingimundarson, f. 3.12. 1943, d. 17.1. 1963, sjómaður á Siglufirði, sem lést af slysförum nítján ára. Hálfbróðir Lýðs, samfeðra, er Ríkharð Krist- jánsson, f. 3.3. 1940, d. 24.5. 2009, rennismíðameistari og vélstjóri í Reykjavík. Börn Lýðs og fyrri konu hans, Hörpu Sigurjónsdóttur, f. 2.1. 1951, húsfreyju, eru Þorsteinn, f. 13.3. 1969, umsjónarmaður íþróttamannvirkja í Þorláks- Nú er ævintýrafleyið þitt lent hér í þessu lífi en við tekur ný vegferð á nýjum slóðum. Ég verð að viðurkenna að mér finnst eilít- ið skrýtið að skrifa minningar- grein um pabba minn. En ef það er eitthvað sem við eigum öll sameiginlegt er það dauðinn. Pabbi var góður vinur og sam- ferðamaður. Hann háði marga hildina í lífinu en sama hvað á gekk alltaf lét hann jákvæðni vera sinn vegvísi. Síðustu árin voru erfið fyrir pabba, mikil veikindi en alltaf sagðist hann taka slaginn og við það stóð hann. Gaf læknavísindunum reglulega langt nef og við bræð- ur töluðum oft um að eftir hans síðasta andardrátt væri ráð að gefa Kára Stefáns og deCODE líkamsleifarnar enda líkt og að pabbi hefði 19 líf. Það er alltaf stórt skarð sem faðir skilur eftir sig en pabbi var líka tengdafaðir, afi, langafi, vin- ur, fyrirmynd í svo mörgu. Elsku pabbi, takk fyrir allar stundirnar, takk fyrir ástina, takk fyrir tónlistina þína, takk fyrir öll lögin, takk fyrir strák- ana mína, takk fyrir að vera vin- ur minn, takk fyrir allar sögurn- ar, takk fyrir allan hláturinn og ekki síst, takk fyrir öll knúsin sem ég á mest eftir að sakna. Skilaðu kveðju til ömmu Þóru, Ægis afa og bræðra þinna. Við hittumst vonandi aftur á nýjum stað en bara ekki alveg strax. Þínum anda fylgdi glens og gleði gamansemin auðnu þinni réði því skaltu halda áfram hinumegin með himnaríkisglens við mjóa veginn. (Lýður Ægisson) Þinn sonur, Sigurjón Lýðs. Elsku pabbi. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig í gegnum tíðina, öll símtölin, alla leikina í enska boltanum, alla fréttatímana – með auglýsingun- um í botni, veislurnar okkar þar sem oftast voru lambahjörtu, slátur eða uppáhaldið þitt; sviða- kjammar. Þú varst mér algjör- lega ómetanlegur. Þrátt fyrir að fyrstu árin á ævi minni hafi mest verið símtöl og nokkrar heim- sóknir í borgina á ári þá urðu heimsóknirnar og símtölin enn fleiri eftir því sem ég varð eldri og fór að ferðast sjálfur í heim- sókn til þín. Svo ennþá meira eft- ir að ég flutti í borgina. Ég er svo þakklátur fyrir stuðning frá þér þegar ég fór í stýrimannanámið í Eyjum á sínum tíma. En mest af öllu vil ég þakka þér fyrir allan þann stuðning sem þú veittir mér í ljósmyndanáminu mínu. Þú varst alltaf rosalega stoltur af mér á þeim vettvangi og hikaðir aldrei við að segja mér og öðrum hvað ég væri góður ljósmyndari. Ég gleymi því aldrei þegar ég var í náminu og sá myndir af þér úr fyrri krabbameinsmeðferð- inni þar sem þú varst með grím- una fyrir geislunina á hausnum og ég hugsaði að það gæti verið geggjað að fá að mynda svona meðferð. Svo kom upp að krabb- inn fór aftur á stjá og seinni með- ferðin var nýhafin þegar ég náði að mana mig upp í það að spyrja þig hvort ég mætti fá að fylgja þér eftir og mynda þig í því ferli. Svarið þitt var einfaldlega: „Já, að sjálfsögðu, Ófeigur minn. Þú tekur svo flottar myndir.“ Allt árið 2012 fylgdi ég þér eins og skugginn með vélina í andlitinu. Fór með þér í hverja einustu lyfjagjöf, geislameðferð, blóð- prufu, sneiðmyndatöku og í raun allar læknisheimsóknir sem þú þurftir að fara í. Myndaði þig heima og að heiman. Tók meira að segja af þér portrett í hverri viku um tíma. Hvert sem þú fórst fylgdum við myndavélin. Á þess- um tíma kynntumst við enn frek- ar og er sá tími mér afar dýr- mætur og ég veit að hann var það líka fyrir þig. Ég fékk að heyra margar sögur, nýjar og gamlar sem þú sagðir svo skemmtilega frá. Eitt það minnisstæðasta frá þessum tíma var þegar ég kom með í sneiðmyndatöku og ég náði mynd af lungnamyndinni þinni. Það fannst mér alveg magnað að ná. Og þar sást mjög vel hvað annað lungað var orðið skemmt eftir krabbann. Það var alveg sama hvað gekk á í þínum veik- indum alltaf hélstu ótrauður áfram. Ávallt með bjartsýnina að vopni. Ég hélt áfram að mynda þig, en ekki eins mikið og áður en þær myndir eru mér mjög dýr- mætar. En þær allra dýrmæt- ustu eru myndirnar sem ég tók síðustu dagana þína, alveg fram á síðustu stund og áfram dagana á eftir. Ljósmyndunin mín er bú- in að hjálpa mér mikið síðustu daga. Ég var búinn að týna henni en ég er smátt og smátt að finna hana aftur. En ég hóf þetta á þökkum og vil enda á því að þakka þér fyrir allan húmorinn sem þú hafðir og þá sér í lagi alla fimmaurabrandarana. Það er eitt af því sem ég fékk í vöggugjöf frá þér, að geta sagt mikla fim- maurabrandara. Takk. Ég elska þig ávallt. Þinn yngsti sonur, Ófeigur. Í dag kveð ég elskulegan fóst- urföður minn Lýð Ægisson með söknuði og þakklæti. Hann var jákvæðasti og lífsglaðasti maður sem ég hef umgengist. Hann gerði óspart grín að sjálfum sér og tók hverri áskoruninni á fæt- ur annarri með jafnaðargeði. Hann greindist með insúlín- háða sykursýki 29 ára og þurfti að sprauta sig við henni mörgum sinnum á dag allt til lífsloka. Of- an á þetta lenti hann í bílslysi þar sem hann skaddaðist á hálsi og seinna rann hann til á dekki þannig að hryggjarliður gekk til. Eftir síðara slysið var hann met- inn 75% öryrki. Hann greindist með Addison-sjúkdóminn og lungnakrabbamein sem dreifði sér í heila, nýrnahettu og lifur. Hann fékk rektappa í heila og lungnaþembu. Geislameðferð vegna krabbameinsins olli tauga- og heilaskemmdum og það var þyngra en tárum taki að horfa á þennan sköpunarglaða mann missa getuna smátt og smátt og hverfa inn í heim sem varð sífellt minni. Þegar ég spurði Lýð hvernig hann hefði það, þá svar- aði hann yfirleitt: „Það er ekkert að mér“ eða „ég er alveg í klessu, fáum okkur kaffi.“ Við Lýður vorum mjög náin og töluðum yfirleitt saman mörgum sinnum í viku. Umræðuefnið var margvíslegt; lífið, dauðinn og allt þar á milli. Tónlistin skipaði stór- an sess og þau voru ófá símtölin þar sem kastað var á milli texta- brotum og vísum eða hlustað á heilu lögin. Þegar við bjuggum í Sand- gerði var Lýður duglegur að koma til okkar og kom þá oftar en ekki færandi hendi. Við Smári höfum haldið í þá hefð að vera með lambalæri á sunnudögum og valdi Lýður þann dag oft til að koma. Þá hringdi hann á undan sér til að kanna hvort Smári væri ekki örugglega að undirbúa steikina því hann væri að koma. Í einni slíkri ferð spurði hann mig út í málverk sem hékk upp á vegg á blindramma. Hann spurði hvernig ramma mig langaði í og ég svaraði því. Nokkrum dögum síðar mætti gamli seinni part dags, án þess að gera boð á und- an sér. Hann var vel klyfjaður, með rammaefni, veggljós og öll þau tól sem þarf til innrömmun- ar. Á meðan Smári stóð yfir pott- um í eldhúsinu og töfraði fram máltíð handa gamla, innrömmuð- um við þessa fínu mynd á eldhús- borðinu og fífluðumst eins og enginn væri morgundagurinn. Myndin hangir hér inni í stofu og minnir okkur á hláturinn og sprellið í gamla. Fyrir þremur árum eignuð- umst við okkar fyrsta barnabarn. Þá var Lýður orðinn valtur á fót- um og átti það til að detta. Okkur leist ekki á að hann væri sjálfur að útrétta og báðum við hann að nýta frekar alla sem voru tilbúnir að skutlast fyrir hann. Eitt kvöldið þegar við komum til hans þá tekur hann upp nokkrar fallegar samfellur sem hann hafði keypt á barnabarnið. Hann hafði þá skrölt út í búð í orðsins fyllstu merkingu því þetta var eitthvað sem hann ætlaði að gera sjálfur. Elsku besti Lýður minn, hjartans þakkir fyrir allt. Takk fyrir ástina, hlýjuna, hláturinn, sprellið, samtölin og knúsið. Takk fyrir allt sem þú skildir eft- ir; minningarnar, ljóðin og tón- listina. Uns við hittumst á ný í ljósi hins fyrirheitna lands. Þín dóttir, Selma Hrönn Maríudóttir. Sjáumst, bróðir. Þangað til er gott að hugga sig við, að minningin er blóm sem aldrei fölnar. Sigurður Ægisson. Við Lýður vorum jafnaldrar og ólumst upp í Villimannahverf- inu á Siglufirði. Nafnið varð ekki til að tilefnislausu. Það var ekki sjálfgefið að guttarnir af eyrinni eða úr Bakkahverfinu kæmust óhultir í gegnum okkar svæði. Við Lýður urðum fljótt nánir vin- ir, einkum vegna örlaganna. For- eldrar Lýðs voru ekki alltof efn- uð og synirnir sjö talsins. Heimilisaðstæðum Lýðs eru gerð ítarlegri skil af Gylfa Æg- issyni, bróður hans, í bókinni „Sjúddirarí rei“. Lýður var fæddur holgóma – með skarð í vör. Slík fötlun krafðist endur- tekinna skurðaðgerða í Reykja- vík. Foreldrar Lýðs höfðu ekki ráð á slíkum ferðum með dreng- inn til Reykjavíkur. Það varð að ráði að foreldrar mínir, Gyða og Sigurður, tóku að sér fjármögn- un og aðstoð við að fara með Lýð í læknisaðgerðirnar í Reykjavík. Þá var Lýður orðinn nokkurra ára gamall. Foreldrar mínir, ég og Valtýr bróðir, urðum á þann hátt nokkurs konar fósturfjöl- skylda Lýðs. Í seinni tíð rifjaði Lýður oft upp þennan tíma – með þeirri kímni sem einkenndi hann. Lýður sagði svo frá: Í einni ferðinni til Reykjavíkur hitti ég vinkonu Gyðu. Hún kenndi aug- ljóslega í brjósti um mig og reyndi að benda mér á björtu hliðarnar. „En hvað þú ert í fín- um stígvélum Lýður minn,“ sagði konan. „Hann Jóhann á þau,“ svaraði Lýður. „Og fín úlpa sem þú ert í,“ sagði þá konan traustvekjandi. „Já, hann Valtýr á hana,“ svaraði Lýður. – Og svo hló Lýður að þessari sögu sinni. Við líka. Það var alltaf glatt á hjalla þegar við hittumst, en jafnframt sameiginlegur skiln- ingur á því hvaða alvara og hvílík örlög lágu að baki. Lýður var húmoristi, músík- alskur og vel greindur eins og allt fólkið hans af Lambanesætt- inni. Ég man ekki annað en að hann hafi ætíð verið hæverskur og drengur góður. Þannig séð ekki neinn „villimaður“. Vegir okkar skildu eftir unglingsárin, hann fór á sjóinn og fluttist um tíma til Vestmannaeyja og ég til Reykjavíkur. Oft höfðum við þó samband í gegnum árin sem liðu. Skólasystir okkar, Þórdís Pét- ursdóttir, hefur svo átt heiðurinn af því að kalla saman „ferming- arsystkini 4́8“ með reglulegu millibili á Siglufirði. Á slíkum samverustundum var eins og tíminn stæði í stað. Við fórum öll í okkar gömlu hlutverk frá barnaskólaárunum – yndislegt. Lýður var oft með í byrjun, en varð síðar, vegna langvarandi veikinda, að láta sér nægja að senda okkur línu og fylgjast með úr fjarlægð. Lýðs er nú sárt saknað af okkar gömlu skóla- félögum. Ég sendi fjölskyldu Lýðs innilegar samúðarkveðjur. Jóhann Ág. Sigurðsson. Lýður Ægisson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KARL V. STEFÁNSSON, lést á dvalarheimilinu Ási laugardaginn 16. mars. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur þakka starfsfólki dvalarheimilisins Áss hlýja og góða umönnun. Unnur Einarsdóttir Inga Lára Karlsdóttir Helga Karlsdóttir Garðar Rafn Halldórsson Unnur María Pálmadóttir Jóhann Kristinn Jóhannesson Birna Ósk Björnsdóttir Tony Vokey Linda Björg Björnsdóttir Ísak Óli Sigurjónsson og barnabarnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GRÓA ARADÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Eyri fimmtudaginn 14. mars. Útför hennar fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 30. mars klukkan 14. Ágústa Bragadóttir Hallur Páll Jónsson Einar D. Bragason Margrét J. Bragadóttir Sveinn S. Sveinsson Ólína Bragadóttir barnabörn og barnabarnabörn Þökkum innilega öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, SÉRA SIGURÐAR HELGA GUÐMUNDSSONAR. Hjartans þakkir til allra þeirra sem önnuðust hann í erfiðum veikindum síðastliðin ár og sýndu honum vináttu og hlýhug í orðum og verkum. Brynhildur Ósk Sigurðardóttir Sigurður Þór Sigurðarson Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir Margrét Sigurðardóttir Örn Hauksson Vilborg Ólöf Sigurðardóttir Jóhannes Rúnar Jóhannsson og barnabörn Amma Gógó var ekki bara heimsins besta amma, hún var ekki síður manns besti vinur og henni fannst svo gaman að spjalla við okkur barna- börnin um daginn og veginn. Síðastliðið vor, þegar heilsan var farin að gefa eftir bæði hjá ömmu og afa, fór ég röltandi til þeirra í góðu veðri og ætlaði að at- huga hvernig þau hefðu það. Er ég kom að húsinu sé ég ömmu á fjór- um fótum í blómabeði að reita arfa og setja niður sumarblóm eins og enginn væri morgundagurinn „Æ, það var ekki sjón að sjá garðinn hjá mér svona, ég varð að drífa í þessu fyrst veðrið er svona gott.“ Þetta fannst mér lýsa vel kraft- inum og dugnaðinum sem amma hafði, þó svo að líkaminn byrjaði að gefa eftir var hugurinn ekki deginum eldri en um tvítugt! Ég á mikið eftir að sakna allra stundanna sem við amma Gógó áttum saman, þá eru mér sérstak- lega kærar þær stundir sem við áttum saman núna í vetur. Allar stundirnar í kaffikrókn- um í Háaberginu yfir nýbökuðu pönnukökunum hennar ömmu eða nýtíndum bláberjum með rjóma Sigurlaug Jónína Jónsdóttir ✝ Sigurlaug Jón-ína Jónsdóttir fæddist 25. ágúst 1935. Hún andaðist 11. mars 2019. Útför Sig- urlaugar fór fram 26. mars 2019. og sykri, margar góðar minningar sem hlýja á stund sem þessari. Ég á ömmu og afa í Háabergi mikið að þakka, þegar ég veiktist fyrir fjórum árum voru þau mér ómetanlegur stuðn- ingur. Í minni end- urhæfingu labbaði ég nær daglega til þeirra, fékk hressingu í hádeginu og lagði mig áður en ég hélt heim á ný eða fékk far heim þegar veður var vont. Þessir göngutúrar til ömmu og afa hjálpuðu mér mikið og ekki síður samverustundirnar okkar saman. Ég kveð þig amma mín með uppáhaldslaginu okkar. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn rósin mín. Er kristallstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað, krjúpa niður kyssa blómið hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei, það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson) Ég elska þig amma mín, Andri Fannar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.