Morgunblaðið - 28.03.2019, Side 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
SÓFADAGAR
AF ÖLLUM SÓFUM
HÆGINDASTÓLUM
OG SVEFNSÓFUM
28. MARS - 8. APRÍL
20-50%
Kæra Jelena er til umfjöllunar á
Leikhúskaffi Borgarbókasafnsins í
Kringlunni í dag kl. 17.30. Unnur
Ösp Stefánsdóttir, leikstjóri sýn-
ingarinnar, segir frá uppsetningu
verksins og í kjölfarið er rölt yfir í
Borgarleikhúsið þar sem leikmynd
og önnur sjónræn umgjörð upp-
færslunnar er kynnt. Kæra Jelena
verður frumsýnd 12. apríl.
Kæra Jelena rædd á
Leikhúskaffi í dag
FIMMTUDAGUR 28. MARS 87. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Stjörnukonan Danielle Rodriguez,
sem leikur sitt þriðja tímabil með
Garðabæjarliðinu, var besti leik-
maður marsmánaðar í Dominos-
deild kvenna í körfuknattleik að
mati Morgunblaðsins. Úrvalslið
mánaðarins er birt í íþróttablaðinu
og rætt er við Danielle sem er á
leið með Stjörnunni í einvígi við
Keflavík í undanúrslitum Íslands-
mótsins. »2-3
Danielle best í deild-
inni í marsmánuði
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bjarki Þór Birgisson, 12 ára lestrar-
hestur í Hafnarfirði, hefur lesið allar
bækur sem hann hefur komist yfir og
nú er svo komið að Fríða Björk Sand-
holt, móðir hans, er ráðþrota. En
þegar neyðin er stærst er hjálpin
næst og margir hafa svarað ákalli
hennar um hugmyndir á Fésbókinni.
Þar á meðal Ævar Þór Benediktsson,
Ævar vísindamaður, sem hefur lofað
að skrifa hraðar svo Bjarki hafi eitt-
hvað að lesa.
Fundið hefur verið að því að börn
lesi ekki nóg en óvarlegt er að alhæfa
í því efni sem öðru. Bjarki byrjaði að
lesa fimm ára og segist lesa tvær til
fjórar bækur á viku. „Ævintýra-
bækur eru skemmtilegastar,“ segir
kappinn, sem æfir fótbolta fjórum
sinnum í viku með 4. flokki í FH og
ætlar sér stóra hluti á þeim vettvangi
í sumar.
Bjarki er til dæmis búinn að lesa
ævintýraskáldsöguna Hobbitann, öll
þrjú bindi Hringadróttinssögu, allar
Eragon-bækurnar, Harry Potter, all-
ar bækur eftir Astrid Lindgren, öll rit
um Nicolas Flamel og Þjóðsögur
Jóns Árnasonar svo dæmi séu tekin.
Hann segir að í flestum tilfellum séu
aðalpersónurnar í uppáhaldi. „Djákn-
inn á Myrká er sennilega skemmti-
legasta þjóðsagan.“
Bækur, bækur og bækur
Foreldrarnir hafa verið iðnir við að
finna bækur handa pilti, hann fær
reglulega bækur í afmælis- og jóla-
gjafir og bókasöfnin hafa verið sem
gullnáma fyrir þennan nemanda í Ás-
landsskóla. „Það er mjög gott bóka-
safn í skólanum,“ segir hann. Móðir
hans bætir við að Ásdís Helga Árna-
dóttir bókasafnsfræðingur sé honum
innan handar og hafi vart undan að
kaupa bækur. Auk þess hafi viðbrögð
við óskinni á Fésbókinni verið mjög
góð og margar ábendingar um bækur
borist.
„Það var mjög flott að fá svar frá
Ævari vísindamanni,“ segir Bjarki,
sem hefur lesið allar bækurnar eftir
hann. Gunnar Helgason benti á fjölda
bóka, sagði að næsta bók eftir hann
kæmi út í apríl og lofaði að gefa
Bjarka eintak. Sá stutti er þakklátur,
segist hafa lesið allar bækur eftir
Gunnar og hlakkar til þess að fá nýju
bókina. Hann gefur fyrri bókum hans
góð meðmæli og sérstaklega Víti í
Vestmannaeyjum, því hann þekki
söguna svo vel eftir að hafa farið á
pollamót í Eyjum. „Pabbi er líka úr
Eyjum og hann var í fótboltanum.“
Birgir Þór Leifsson, faðir Bjarka,
er fyrirmyndin í íþróttunum og móð-
irin hefur verið alæta á bækur frá
barnsaldri. „Ætli ég verði ekki örugg-
lega járnsmiður eins og pabbi eða
eitthvað,“ segir hann spurður hvert
hugurinn stefni helst í framtíðinni.
En bækur eru honum líka ofarlega í
huga og fyrrnefndir rithöfundar.
„Þeir hafa komið í skólann og lesið
upp úr bókum sínum,“ segir hann
spenntur og hefur ráð handa þeim:
„Ég vil segja þeim að skrifa um lestr-
arhesta.“
Morgunblaðið/Hari
Lestrarhestur Bjarki Þór Birgisson í Hafnarfirði, 12 ára gamall, les allar bækur sem hann kemst yfir.
Bóklestur í forgangi
Ævar vísindamaður lofar að skrifa hraðar fyrir Bjarka
Gunnar Helgason hyggst gefa stráknum nýja bók í apríl
Sigríður Thorlacius kemur ásamt
hljómsveit fram í Jazzklúbbnum
Múlanum á Björtuloftum í Hörpu
annað kvöld kl. 21. Grunnur hljóm-
sveitarinnar er tríó sem skipað er
þeim Steingrími Karli Teague á pí-
anó, Rögnvaldi Borgþórssyni á gítar
og Andra Ólafssyni á kontrabassa,
en við bætist síðan Matthías M.D.
Hemstock á trommur. Tríóið hverf-
ist öðru fremur um þéttradda sam-
söng af gamla skól-
anum, en leikur auk
þess undir hjá sjálfu
sér. Á efnisskránni
eru m.a. útsetningar
Andra á lögum Jóns
Múla og Jónasar
Árnasona auk
frumsamins
efnis.
Sigríður Thorlacius
í Jazzklúbbi Múlans