Morgunblaðið - 03.04.2019, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 2019
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sex tilkynningar um hópuppsagnir
bárust Vinnumálastofnun í mars þar
sem 473 starfsmönnum var sagt upp
störfum. Gjaldþrot WOW air telst
ekki til hópuppsagna og því eru um
1.100 starfsmenn félagsins ekki inni í
þessum tölum Vinnumálastofnunar.
Tvær uppsagnir voru í starfsemi
tengdri flutningum og geymslu, þar
sem 328 manns var sagt upp störf-
um, þarf af 315 hjá Airport Associa-
tion, en stórum hluta þeirra sem sagt
var upp þar hefur verið boðin endur-
ráðning á öðrum kjörum. Því má
gera ráð fyrir að uppsagnir verði í
raun færri en fram kemur í tilkynn-
ingunni, en greint er frá þessu á
heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Hinar uppsagnirnar koma úr fjór-
um atvinnugreinum; 46 manns var
sagt upp í ferðaþjónustu, 37 í fram-
leiðslu, 32 í byggingastarfsemi og 30
í sérfræðilegri, vísindalegri og
tæknilegri starfsemi.
Flestar hópuppsagnir bárust frá
fyrirtækjum á Suðurnesjum eða 347
og 126 á höfuðborgarsvæðinu. Hóp-
uppsagnirnar koma til framkvæmda
á tímabilinu maí til júlí 2019.
Uppsagnir vegna gjaldþrots flug-
félagsins WOW air og aðrar upp-
sagnir vegna gjaldþrota eru sem
fyrr segir ekki í þessum tölum yfir
hópuppsagnir.
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2019
hefur 570 einstaklingum verið sagt
upp störfum í hópuppsögnum.
Frá því var greint á visir.is í gær
að 33 starfsmönnum Actavis yrði
sagt upp á næstu mánuðum. Munu
fyrstu uppsagnir taka gildi næstu
mánaðamót og öðrum dreift yfir ár-
ið. Haft var eftir upplýsingafulltrúa
Actavis á Íslandi að rekja mætti upp-
sagnirnar til skipulagsbreytinga hjá
móðurfélagi Actavis; Teva.
Hátt í 500 sagt upp í mars
Morgunblaðið/Hari
Óvissuástand Vinnumálastofnun
fylgist með þróun á vinnumarkaði.
Alls misstu 473 vinnuna í sex hópuppsögnum WOW air
ekki talið með Actavis hyggst segja upp 33 starfsmönnum
Helgi Bjarnason
Arnar Þór Ingólfsson
Samningamenn stéttarfélaga og
Samtaka atvinnulífsins unnu í allan
gærdag að því að útfæra samkomu-
lag sem tókst í fyrrinótt um meg-
inlínur kjarasamninga til þriggja
og hálfs árs. Einnig hafa fulltrúar
ríkisstjórnarinnar fylgst með vegna
væntanlegrar yfirlýsingar um að-
komu stjórnvalda en um það var
gerður fyrirvari í samkomulaginu.
Samningamenn unnu fram á nótt
með það að markmiði að ganga frá
samningum sem þá yrðu kynntir í
dag.
Ný atriði verða í yfirlýsingu
„Ég tel að þeir þættir sem verða
í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
ásamt þeim áherslum sem aðilar
vinnumarkaðarins hafa verið að
leggja sín í milli geti orðið grund-
völlur að víðtækri sátt og skapað
skilyrði fyrir efnahagslegum og fé-
lagslegum stöðugleika til langs
tíma. Einnig til vaxtalækkunar,“
sagði Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra í gærkvöldi, spurð
um stöðu mála í viðræðunum.
Samningsaðilar kynntu fulltrúum
ríkisstjórnarinnar í gær hugmynd-
ir um aðkomu stjórnvalda til að
liðka fyrir samningsgerð og Katrín
segist raunar hafa fylgst með við-
ræðunum að undanförnu og fengið
áður kynningu á ákveðnum atrið-
um.
Katrín segir að yfirlýsing stjórn-
valda hafi lengi verið í mótun. Hún
grundvallist annars vegar á vinnu
sem þegar hafi verið kynnt og hins
vegar á nýjum atriðum. Hún nefnir
sem dæmi um hið fyrrnefnda átak í
húsnæðismálum, tillögur í skatta-
málum og lengingu fæðingarorlofs.
„Hluti af þessum tillögum er hugs-
aður til að koma til móts við ungar
barnafjölskyldur en það er hópur
sem setið hefur eftir,“ segir hún.
Síðan hefur verið unnið að sérstök-
um tillögum um stuðning við kaup
fólks á fyrstu íbúð og tillögum um
það hvernig staðið verði við yfirlýst
markmið um að draga úr vægi
verðtryggingar. Síðastnefndu at-
riðin eru ný. Þá segir hún að ekki
megi gleyma víðtækum tillögum
um að gera vinnumarkaðinn heil-
brigðari en nú er.
Spurð hvort skattar verði lækk-
aðir meira en gert var ráð fyrir í
fyrri tillögum ríkisstjórnarinnar
segir Katrín að byggt sé á þeim til-
lögum en þær útfærðar nánar.
Betra verklag en áður
„En við munum ekki kynna efn-
isatriði yfirlýsingarinnar fyrr en
ljóst er að samningar nást sem ég
vona og leyfi mér að vera bjartsýn
um,“ segir forsætisráðherra.
Til stóð að kynna efnisatriði „lífs-
kjarasamnings“ aðila vinnumarkað-
arins og aðgerðir stjórnvalda í
tengslum við hann á sameiginleg-
um blaðamannafundi í Ráðherrabú-
staðnum klukkan 18.30 í gærkvöldi
en honum var aflýst þar sem ekki
var búið að ganga frá samningum.
„Það er verið að juða þessu
áfram. Það vill taka langan tíma
þegar menn eru að reyna að vanda
sig,“ sagði Björn Snæbjörnsson,
formaður Starfsgreinasambands
Íslands (SGS) í gærkvöldi en sam-
bandið kom inn í samningana með
samfloti Eflingar, VR, verkalýðs-
félaganna á Akranesi og í Grinda-
vík, Framsýnar á Húsavík og
Landssambands íslenskra verslun-
armanna. Að samningsgerðinni
standa því öll félög SGS og öll
verslunarmannafélög landsins.
Samflot iðnaðarmanna er ekki aðili
að samningunum nú.
Björn Snæbjörnsson segir að
gríðarlega mikil vinna hafi verið
lögð í samningana nú, meiri en ver-
ið hafi um langan tíma, og þess
vegna taki lengri tíma að ljúka öll-
um atriðum. „Tekin var umræða
um ýmsa þætti kjarasamninga.
Hún byggðist á ítarlegri kröfugerð.
Mér finnst verklagið betra núna en
áður, menn hafa gefið sér tíma til
að ræða hlutina,“ segir hann. Björn
bætir því við að margt nýtt fólk
hafi komið að gerð samninganna og
telur að allir geti dregið lærdóm af
vinnunni.
Morgunblaðið/Hari
Samningamenn Ragnar Þór Ingólfsson, VR, og Halldór Benjamín Þorbergsson, SA, bera saman bækur sínar við Karphúsið, fyrir viðtal við RÚV.
Skilyrði til stöðugleika
Forsætisráðherra segir að samningar geti skapað skilyrði fyrir efnahagslegum
og félagslegum stöðugleika Reiknað með að kjarasamningar verði kynntir í dag
Næring Matreiðslumaður ber veitingar inn í Karphúsið fyrir kvöldlotuna.
Samninganefnd
Eflingar sam-
þykkti á fundi í
gærkvöldi, eftir
að Sólveig Anna
Jónsdóttir og
aðrir samn-
ingamenn höfðu
kynnt drög að
kjarasamningum,
að veita formann-
inum heimild til
að ganga frá samningum. Sam-
þykktin var gerð með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða.
„Niðurstaðan í þessum viðræðum
er ekki fullnaðarsigur heldur vopna-
hléslína milli stéttar verkafólks og
stéttar auðmagnseigenda. Baráttan
milli þeirra heldur áfram,“ var haft
eftir Sólveigu Önnu, í frétt á vef fé-
lagsins í gærmorgun þegar greint
var frá því að Efling og samflots-
félögin hefðu fallist á grundvall-
aratriði kjarasamnings við SA.
Hún tók fram að hún væri sátt við
að samningamenn hefðu fengið fram
grundvöll til þess að loka samningi
en minnti á að félagsmenn hefðu síð-
asta orðið í atkvæðagreiðslu.
Vopnahlés-
lína á milli
stéttanna
Sólveig Anna fékk
umboð til samninga
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Efling hefur af-
lýst verkföllum
hjá bifreiðastjór-
um Almennings-
vagna Kynnis-
ferða frá og með
deginum í dag.
Verkfallið stóð
því yfir í tvo daga,
á háannatíma á
þeim 10 leiðum
sem fyrirtækið
ekur fyrir Strætó.
Verkfallinu var ekki aflýst í fyrra-
kvöld, um leið og öðrum verkföllum,
vegna þess að það hafði verið boðað
á forsendum bílstjóranna sjálfra og
vildu Efling og bílstjórarnir ræða
við stjórnendur fyrirtækisins áður
en það yrði gert. Sá fundur fór fram
í gærmorgun. Viðar Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Eflingar, segir
að stjórnendur hafi skuldbundið sig
til að halda áfram viðræðum við
starfsmennina og Efling styðji þær.
Síðasti verk-
fallsdagur bíl-
stjóra í gær
Verkfall Margir
vagnar stöðvuðust.
Lífskjarasamningur